Morgunblaðið - 13.07.1951, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.07.1951, Blaðsíða 1
38. árgangur 156. tbl. — Föstudagur 13. júlí 1951 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Sólskin og fómafar Nokkrar telpur úr Vinnuskóla Reykjavíkurbæjar slökkva þorstann í sólskininu með þvi að í'á sjer tómat. — Um 35 telnur 14—16 ára cru í sumar í Vinnuskólanum og vinna að ýmiskonar garðyrkju- störfum, við að prýða og fegra umhverfi bæjarins. Vinnuskóla- fyrirkomulagið virðist ætla að gefa góða raun, en það var fyrst í vor sem fasíri skipan var komið á um vinnu unglinga á vegum bæjarins. mönnum að fan fiS Kaesong! r A meðan verSur hlje á umræðunutn Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. TOKYO, 12. júlí: — Snurða hefur nú hlaupið á þráðinn í vopna- hlj esumleitunum í Kóreu. Verður hlje á fundum þar til kommún- is*tar hafa fallist á að leyfa frjettamönnum S. Þ. að fara til Kaesong og vera viðstadda vopnahljesumleitanirnar. Virðist, sem kommún- istar þekki ekki frjálsa frjettastarfsemi, heldur vildu þeir banna förina frjettamönnum þeim, sem leyft hafði verið að fara með séndinefnd Sameinuðu þjóðanna. KOMMUNISTAR ÞEKKJA < EKKI FRJÁLSA F'RJETTAÖFLUN Þegar sendinefnd S.Þ. lagði í dág af stað í nýjar vopnahljesum- ræður í borginni Ka«song, fengu um 20 frjettamenn og ljósmynd- afar að fylgjast með henni til þess að skýra heiminum frá því sem fyrir augu ber á vopnahljes fúndunum. Skammt frá Kaesong komu vopnaðir kínverskir verðir | móti bifreiðum S. Þ. og bönnuðu frjettamönnum S. Þ. að halda lengra. HLJE Á VIÐRÆÐUM Joy aðmíráll aðalfulltrúi sendi nefndar S. Þ. ákvað þegar, að ef frjettamennirnir fengju ekki að halda áfram ferðinni, þá myndi nefndin ekki heldur fara á vopna hljesfundinn og situr við það. Hefur yfirstjórn S.Þ. í Kóreu gert kommúnistum orð um að ekki verði af frekari vopnahijesum- leitunum fyrr en rjettur frjetta- mannanna verði virtur af Kín- verjum. Segir þar og að slík í- hlutun Kínverja um hverjir fylgi vopnahijesnefndinni sje óþolandi. Vilja ekki iengur sfyrjöid við Þýskaiand WASHINGTON, 12. júlí. — í dag var lögð fram í fulltrúadeild bandaríska þjóðþingsins þings- ályktunartillaga þess efnis að lýsa yfir því, að styrjaldarástand ríkti ekki lengur milli Banda- ríkjanna og Þýskalands. — Reuter Uppkast að japönskum friðarsamningum birt Kínverjar verða ekki spurðir álils una þá Blæs óbyrlega fyrir Harriman WASHINGTON, 12. júlí. — Harriman liinn sjerstaki sentli maður Trumans forseta verð- ur kominn til Teheran í Persíu á föstudagskvöld eða snemma laugardags. Truman forseti sagði að hann vonaðist til að Harriman tækist að finna ein- hveria leið til að leysa olíu- deiluna þannig að bæði Bretar og Persar mættu vel við una. Frá Teheran berast hins- vegar frjettir um að breski sendiherrann þar í borg, Francis Shcpherd, hafi enga trú á að Harriman fái nokkru áorkað og að Mossadeq for» sætisráðherra Persa vilji eng- ar sættir, svo að heldur blæs óbyrlega fyrir Iiarriman. Telja menn, að hann þurfi að vera meira en lítið slóttugur, ef honum eigi að takast að sætta aðila olíudeilunnar. — Reuter. KYRRAHAFS- Frakkar láta ckki Saar PARÍS — Fulltrúar bresku stjórn arinnar hafa látið í það skína að vonir Þjóðverja um að fá full yfir- ráð yfir Saar-hjeraði eru tylli- vonir einar, því að Frakkar ætla alls ekki að láta Saar af hcndi. Einkaskeyti til Mbl. frá Rcuter. WASHINGTON, 12. júli: — í dag var birt samtímis í Washing- ton og London uppkast að friðarsamningum við Japani, sem ríkisstjórnir Bretlands og Bandaríkjanna hafa komið sjer saman um og ýmsar aðrar þjóðir, sem hlut eiga að máli hafa samþykkt. Ekki hefur Kínverjum, hvorki stjórninni á Formosa nje Peking- stjórninni verið boðið að taka þátt í friðarsanmingum við Jap- ani. Samkvæmt uppkasti þessu að friðarsamningum verður Japan að öllu leyti frjálst og óháð ríki og er.gar sjerstakar höml- ur settar á verslun þess, að öðru leyti en því að Japanir skuld- binda sig til að fylgja almennum verslunarreglum. ---------------------------®ENGIN HEIMSVELDIS- STEFNA FRAMAR í uppkasti þessu er gert ráð fyrir að Japanir afsali sjer með öllu Kúrileyjum, Sakhalin og Formósa. Einnig viðurkenna Japanir sjálfstæði Kóreu og á- girnist ekki Kyrrahafseyjarn- ar, sem verð'a felldar undir stjórn Ástralíumanna og Banda ríkjamanna. IIERLIÐ I JAPAN Engar sjerstakar hömlur verða settar á japanskan iðnað og verslun og Japanir verði full- komlega sjálfstæð og óháð þjóð. 90 dögum eftir að friðarsamn- ingar hafa verið undirritaðir mun hernámi Japan ljúka, en það kemur hinsvegar ekki í veg fyrir það, að Japanir semji við Bandaríkjamenn með áfram- haldandi veru bandarísks her- liðs. WASHINGTON, 12. júli: — Drög eru nú komin fram að Kyrra- hafsbandalagi þar sem Bandarík- in, Ástralia og Nýja Sjáland gera með sjer hervarnabandalag. Lofar hver aðili fyrir sig að hafa samráð við hina um mikilvægar ákvarðanir í málum varðandi Kyrrahafssvæðið og koma hver öðrum til hjálpar, ef á þá yrði ráðist. Búist er við að samning- urinn verði bráðlega undirritaður og staðfestur. Bradley vongóAur WASHINGTON, 12. júlí. — Bradley yfirmaður landvarnar- ráðs Bandaríkjanna sat í dag nefndarfund með nokkrum öld- ungadeildarþingmönnum. Sagðist hann álíta að nú hefði verulega niiðað áfram í Kóreu áleiðis til að koma þar aftur á kyrrð. Virt- ist hershöfðinginn ákaflega von- góður um lausn Kóreudeilunnar. — Reuter. Erkibiskup í fangelsi BELGRAD 12. júlí. — Utvarpið í Belgrad útvarpaði nýlega tilkynn ingu frá Tito einræðisherra, þar sém hann segir, að kaþólska kirkj an sje að reyna að gera Stepinac erkibiskup að píslarvotti. Erki- biskup þessi, seha situr nú í fang- elsi titostjórnarinnar er yfirmað- uf kaþólsku kirkjunnar í Júgó- slavíu, sem 7 milljónir manns að- hyllast. — Reuter. BERGEN, 12. júlí. — I dag gerði maður í Bergen tilraun til að myrða kærustu sína. Honum fórst verkið svo óhönduglega, að kær- ustuna sakaði ekki en maðurinn situr nú í steininum. Dró hann upp skammbyssu og „hleypti margsinnis af“. Þó byssan væri hlaðin var hún biluð og aðeins síðasta skotið sprengdi en í það skiptið hafði hann gleymt að miða. — NTB. Sprengja springnr og Reimann birtist . ■* Viðburðaríkur dagur í þýska þinginu Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. BONN, 12. júlí: — Furðulegir atburðir gerðust á þingfundi þýska1 þingsins í dag. Heimatilbúin sprengja sprakk í þingsalnum er kommúnistaforinginn Max Reimann birtist, en nú er deilt um það hvort heimilt sje að handtaka hann eða ekki. PAKKIí SNÚRU Þegar umræður fóru fram um þátttöku Þýskalands í Schuman- áætluninni tóku nokkrir þing- menn eftir því að lítill pakki, hangandi í snæri var látinn síga niður yfir þingsalinn, ofan af svölum. Og það kom í ljós, að hjer var um litla heimatilbúna itsprengju að ræða. Sprakk hún, *en var of kraftlítil til að valda nokkru tjóni að ráði, nema brjóta !!l rúður. MAÐURINN, SEM LEITAÐ HEFUR VERIÐ AÐ Skömmu síðar vakti það stór- mikla athygli, að á bekkjum kommúnista i þingsalnum birtist kommúnistaforinginn Max Rei- mann. Hann hefur verið í felum að undanförnu og bjuggust menn við að hann væri í A-Þýskalandi. Þykir þetta nokkuð djarft hjá honum að sýna sig í V-Þýska- landi, því að hann liggur undir ákæru um að hafa rænt gömlum fjelaga sínum, sem orðinn var Tító-sinni og flutt hann í greipar Rússa' í A-Þýskalandi. Reimann var samt ekki handtekinn, þar sem sumir álita hann í þinghelgi. KINVERJUM EKKI BOÐIÐ Kínverjum verður ekki boð- ið að taka þátt í friðarsamning- um við Japani, hvorki fulltrú- um Formosa-Kínverja nje Peking-kínverja. Stafar þetta af því, að hvorug kínverska stjórnin nýtur almennrar við- urkenningar allra þjóða heims. Líkaði illa dvölin austan járnijalds OSLÓ, 12. júlí — Nýlega var nokkrum fulltrúum norska al- þýðusambandsins boðið í heim- sókn til Tjekkóslóvakíu ásamt verkalýðsfulltrúum írá öðrum löndum. Fulltrúar þessir eru nú komnir heim. Líkaði þeim illa, ið það var litið á þá sem njósnara. A ferðum um landið kom það fvrir, ef lestin nam staðar, og full trúarnir vildu fara út til að teygja úr sjer og líta í kringum sig, að vopnaðir verðir skipuðu þeim að halda sig inni í lestinni. Fulltrúunum þóttu matvæli ákaf lega dýr í Tjekkóslóvakíu og það þótt allar vörur væru skammtað- ar. — NTB. Max Reimann, foringi kommún- ista birtist nýlega í þingsölum í Bonn. Ilcfur þetta vakið mikla athygli, því að lögreglan hefur undanfarið leitað að honum, þar sem hann er ásakaður um að hafa rænt Tító-kommúnistanum Múller og komið lionum í greip- ar Rússa. Queiile lærist undan að mynda stjórn PARÍS, 12. julí. — Auriol Frakk landsforseti átti í dag viðtal við Henri Queille hinn fráfarandi for sætisráðherra, og bað hann að mynda stjórn, en Queille baðst undan því, vegna heilsubrests. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.