Morgunblaðið - 21.03.1953, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.03.1953, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 21. marz 1953 Skautametin Framhald af bls. 10 aS gert keppendum óhægara um vik, er sannleikurinn sá, að þessi fullyrðing er aiveg út í bláinn. — Brautin var um 6 metra breið og má m.a. sannfærast um það með því að líta á mynd þá, sem Morg- unblaðið birti frá mótinu á sínum tíma. Þetta dæmi ætti að sýna hvers konar smámunir hafa verið bornir á borð fyrir ÍSÍ til þess að hafa neikvæð áhrif á hana. B YR JUN ARÖRÐ UGLEIKAR Þar sem skautakeppnir eru hér á byrjunarstigi, þarf engan að undra þótt keppnin bæði hér og á Akureyri hafi ekki farið eins vel fram og æskilegt væri. En hlutaðeigandi aðilar bæði dóm- arar mótanna og stjórn ÍSÍ, hafa reynt að skilja þessa byrjunar- örðugleika og því ekki látið smá- muni sitja í fyrirrúmi. Aðalatrið- ið, sem sé að hafa vegalengdina nógu langa, hefur hins vegar allt- af tekizt, enda hefur stjórn ÍSÍ til þessa treyst dómurum þeim, sem hafa undirritað metaskýrsl- urnar og því staðfest þær. Óhætt mun og að fullyrða að fram- kvæmd mótanna hafi farið batn- andi og afrekin því orðið áreið- anlegri. Er það álit flestra, að skautalandsmótið á íþróttavellin- um í Reykjavík, hafi verið bezt framkvæmda mótið til þessa, enda þótt brautin hafi verið ó- hagstæð fyrri daginn vegna fram- kvæmdaörðugleika. Þrátt fyrir frekar óhagstæðar aðstæður tókst keppendum þessa móts að bæta íslandsmetin í 4 greinum af 6, enda vöru fyrri met léleg, allir beztu skautamenn landsins mættir til leiks Og keppni því hin harðasta. En nú kom eftirleikurinn. 2 áhugamenn frá Akureyri, sem sjálfir höfðu staðið fyrir mælingum og fram- kvæmdum margra skautamóta og annar þe»rra m. a. mælt út skautabraut íþróttavallarins, töldu sig ekki örugga um að braut ín væri allskostar rétt. Þessvegna var brautin endurmæld að keppni lokinni og reyndist nógu löng. Auk þess var önnur beygjan lög- uð áður en keppni hófst síðari dag mótsins, en hún hafði verið óhagstæð keppendum vegna skafla, sem safnast höfðu sarnan. Nú skyldi maður halcLa að Akur- eyringarnir hefðu örðið fegnir þeim tíðindum að brautin hefði reynzt rétt, en það var öðru nær. Aðstandendur þessara áhugasömu pilta norður á Akureyri virtust ekki alveg vera á því að kyngja þeirri staðreynd að brautin væri rétt Og nú var um að gera að sannfæra Í.S.Í. um imyndað brot á alþjóðaleikreglum með ein- hverjum flóknum útreikningi — ög því miður — þá virðist stjórn Í.S.f. hafa bitið á agnið, eftir því sem hún sjálf upplýsir. Nú hafa ýmsir tjáð mér að slík Mjúk og falleg húð er eftirsótt. — RósóB-Glycerin hefur þann eiginleika, að gera húðina silkimjúka, hvíta og fallega. Fæst í flestum verzlunum ( g kost- ar kr. 7.85, túban. framkoma sem þessi sé ekkert nýtt brauð hjá Akúrevringum og sé hún sambland af metnaðar- girnd og afbrýðisemi út í Reyk- víkinga. Vil ég helzt ekki trúa því að óreyndu. En hvort sem ástæðan er afbrýðissemi eða smá- munasemi, tel ég að stjórn Í.S.I. eigi að vera yfir það hafin að láta slíkt hafa áhrif á sig. Ef mönnum á að takast að blekkja stjórn Í.S.Í. til að eyði- leggja svona afrek frá heilu lands móti, er ég hræddur um að það geti haft ófyrirsjáanlegar afleið- ingar. Ég hefi talað við menn, sem telja Akurey'rarmótin þ. á. m. landsmótið 1951, ekki sem full- komnust í framkvæmd og hver veit nema Í.S.f. eigi eftir að fá á sig kærur á flestöll skautamet, sem sett hafa verið hér á landi. Það er engin hætta á því að ekki verði hægt að finna eitthvert smáatriði, sem stjórn Í.S.Í. yrði þá að taka til greina ef hún ætl- ar að halda frávísun áðurnefndra skautameta til streytu. Auk þess tel ég ólíklegt að þeir dómarar, sem staðið hafa kaldir tímunum saman við að dæma og taka tíma á skautamótum hér í Reykjavík s. .1 2—3 ár, verði ginkeyptir fyr- ir því að eyða orku sinni og tíma í slík störf, þegar verk þeirra eru dæmd dauð og ómerk af æðstu stjórn þessara mála. Ég vænti þess því fastlega að stjórn f.S.Í. eigi eftir að endur- skoða afstöðu sína til þessara meta og láta þá jafnframt heyra frá sér eitthvað opinberlega. Einnig treysti ég því að hún geri okkur skautamönnum þann sjálf- sagða greiða að birta, þó ekki væri nema stuttan úrdrátt úr þessum margumtöluðu alþjóða- skautareglum, sem enn eru óút- gefnar hér á landi, svo við fáum að sjá, svart á hvítu, hvaða skil- yrðum þarf að fullnægja til þess að skautaafrek sé alveg öruggt um að fá náð fyrir hennar aug- um í framtíðinni. Skautamaður. Hershöfðinginn lézt í gær. TILKYNNT var á Formósu í dag, að hershöfðingi Þjóðernissinna- liðsins í Burma hefði látizt í dag. — NTB-Reuter. Framlög bæjarsjóðs vegna bygg- ingaframkvæmda Elliheimiiisins ÚT AF frásögn Morgunblaðsins í dag um samþykkt bæjarstjórn- ar á fjárframlagi til viðbygging- ar Elli- og hjúkrunarheimilisins Grund, þykir mér rétt að óska eftir, að birt verði greinargerð sú, er ég lagði fyrir borgarstjóra 23. febr. s.l. út af þessu máli: Yfirlit um framlög bæjarsjóðs Reykjavíkur vegna byggingaframkvæmda Elli- og hjúkrunarheimilisins Grund 1946 Kr. Framlag vegna bygg- ingar starfsmannahúss 371.000.00 Byggingarkostn. varð 1.152.000.00 1948—49 Framlag vegna við- byggingar I (að norð- anverðu) 400.000.00 Byggingarkostn. varð 611.000.00 1951—’52 Framlag vegna við- byggingar II (að aust- anverðu) 700.000.00 Byggingarkostnaður og breyting 1.363.000.00 (Eftir er að ganga frá hátíða- sal og kostar það talsvert fé). Auk þessara bygginga hefur verið reist þvottahús, sem kost- aði með uppsetningu véla kr. 360.000.00. Vegna þessara bygg- ingaframkvæmda hefur verið unnt að auka við vistplássin sem hér segir: 1946: Starfsmannahúsið Aukniríg 49 vistpláss 1948—49: Viðbygging I. Aukning 31 vistpláss 1950: Þvottahúsið. Aukning 20 vistpláss 1952: Viðbygging II. Aukning 30 vistpláss Samtals aukning 130 vistpláss. Þessar framkvæmdir hafa kostað samtals kr. 3.488.000.00 og þar af hefur bæjarsjóður Reykja víkur lagt fram óafturkræft framlag samtals kr. 1.471.000.00. Öll áhöld, innanstokksmuni og alls konar lækningatæki og ann- að, sem nauðsynlegt hefur verið Hafnarfjarðarbátar HAFNARFIRÐI Gæftir hafa Lifstykkjaisúðin selur lífstykki og aðrar skyldar vörur á sauma- stofunni, Þingholtsstræti 27. — Upplýsingar í síma 82733 og 4473. — Sendum í póstkröfu. Savunastofa cJ^í^á tijhhjabií&arivmar Þingholtsstræti 27 vegna þessara stækkana, hefur stofnunin sjálf séð um greiðslu 4, en sú fjárhæð nemur mörg hundruð þúsund krónum. — í þessu sambandi þykir rétt að benda á, að vistgjöld eru nú kr. 38.50 á dag og kr. 43,50 í nýju viðbyggingunni. Ennfremur skal bent á það, að árlega fær stofn- unin kr. 8.000.00 úr bæjarsjóði og kr. 10.000.00 frá ríkissjóði í styrki. Ef ráðizt verður í að reisa álmu að vestanverðu við aðalbygging- una, þá mun verða hægt að auka vistplássin um 50 og verða þau samtals rúmlega 350. — Þessi viðbygging mun væntanlega kosta um kr. 2.000.000.00, en af þeirri fjárhæð er lagt til að bæj- arsjóður leggi til helming eða kr. 1.000.000.00, þ. e. a. s. kr. 500.000.00 árið 1954 og kr. 500.000.00 árið 1955. Til að fyrirbyggja misskilning er nauðsynlegt að taka fram, að ef úr þessu verður, þyrfti fram- lag bæjarsjóðs að greiðast án til- lits til þess, hversu mikið af eigin fé stofnunin hefur lagt fram á hverjum tíma. Ef þessi háttur hefði verið hafður á um síðustu viðbyggingu, þá hefði sú bygging verið tekin til notkunar mörgum mánuðum fyrr en raun varð á. — Gera má ráð fyrir, ef nauð- synleg leyfi fást, að viðbygging III verði tekin til notkunar seint á árinu 1955. Verður þarna um sjúkradeild að ræða fyrir gamla fólkið, en á því er brýnust nauð- syn. Að lokum skal þetta tekið fram: Frekari eða aðrar stækk- anir eru ekki ráðgerðar á þess- um stað. Reisa þarf þó síðar við- bótarhúsnæði fyrir starfsfólkið, en það bíður síns tíma. Einnig er fyrirhugað að reisa sérstök íbúð- arhús fyrir eldra fólkið, en ég tel mest aðkallandi að reisa um- rædda viðbótarálmu vegna hinna gífurlegu vandræða, sem eru á því að veita sjúku gömlu fólki viðunandi hjálp og umönnun. Gísli Sigurbjörnsson. Bréf: ftáðningarsfofa skemmfikrafla ekki eini aSilinn, sem útvegar skemmlikraffa Herra ritstjóri. VEGNA ummæla ,,Vignis“ í Morgunblaðinu frá 10. þ. m. vil ég leyfa mér að benda á, að um einokun á skemmtikröftum til Akureyrar af hendi Ráðning- arskrifstofu Skemmtikrafta get- ur alls ekki verið að ræða. Á- stæðan fyrir því er sú, að Ráðn- ingarskrifstofa Skemmtikrafta er alls ekki eini aðilinn, sem hef ur á hendi útvegun á skemmti kröftum. Vinsamlegast, Svavar Gests. verið allstirðar hjá línubátum að undanförnu, svo sem víða í ver- stöðum. Þegar þeir hafa komizt á sjó, hafa þeir aflað vel, 6 og allt Upp í 12 lestir í róðri. Netjabát- arnir hafa aflað heldur slælega. Nú í vikunni kom Síldin með 12 tonn og Dóra með 10 eftir langa útivist. Snemma í vikunni kom togar- inn Fylkir með 339 tonn af fiski eftir 10 daga útiveru. Einnig kom Júlí, og var hann með talsvert af karfa og saltfiski. Togarinn Surprise kom í gær af veiðum. — Vatnajökull lestaði fisk í gær til útflutnings. — G. - Ummæll Framhald af bls. 2 1952 um verndun fiskimiða um- hverfis ísland. ENGIN BREYTING Kemur þessvegna ekki til mála að þeim verði breytt nema um það gangi alþjóðlegur dóm- ur, sem báðir aðilar verða að sjálfsögðu að hlíta. — Kvennasíða Framhald af bls. 5 garn og bómullargarn, en í er- lenda hráefninu felst ekki nema 7% af verðinu. Að gæðum eiga þessi flosteppi að jafnast allt að því á við Wilton-gólfteppin al- kunnu. Á borði sé ég liggja marglita búta, sem hver er með sínu mynstri. Ég spyr Björn hvort við- skiptavinirnir geti valið sér ó- takmarkaða fjölbreytni í litum og munstrum. — Það er ef til vill of mikið sagt, segir hann. — En ef fólki líkar ekkert af þeim munstrum, sem við höfum, þá getur það feng ið munstur eftir eigin fyrirmynd- um með svolitlum aukakostnaði, en þá tekur afgreiðslan lengri tíma. — Hvernig er salan? — Hún er mikil. Renningarnir eru notaðir á ganga og stiga, eða þeir eru saumaðir saman í sam- felld teppi. Fólk getur fengið hvaða stærð og lögun, sem því hentar. Margt fólk, sem er að byggja, sparar sér gólfdúka á stofur með því að fá sér teppi um allt gólfið. Flestir hafa hvort eð er teppi á stofugólfum, og þá munar ekki svo miklu á verðinu, þótt teppið sé látið ná alveg út í horn og gólfdúkurinn verður þá óþarfur.“ Eins og greinilegast kom fram á Iðnsýningunni í haust, er ís- lenzkur iðnaður orðinn fjölbreytt ari en almenningur gerir sér ljóst og því er full ástæða til að gera almenningi kunnugar þær nýju iðngreinar er sjá dagsins ljós og miða að því að hægt sé að lifa lífinu á íslandi með sem minnstum tilkostnaði í erlendum gjaldeyri. Ráðning gálunnar HLEYPT MJÓLK M A R K tJ S Eftir Ed Dodd Art'. í c t nDS rwrc’t. Bt E w c S.í.’.'ÍP 5Í O J.. M,STA»<f- !____T,» V'.O*"' ►UY/£ A 'A/£CC*N».. t M VE-C' / HCR* .' EWMI'VTLS LAUC lFF Jt MJ*- ‘ vm. CtW AlN T>«'. itxn.’ tt K~. ' ( •r> ‘KVLusm*;. srr%mrvn‘"~ 1) — Jósep, hvað í ósköpunuml 3) — Háttvirtu vinir mínir. hefur komið fyrir. I Það hafa orðið hræðileg mistök. | 2) Jósef svarar konu sinni ekki'Það verður engin hjónavígsla. en strunsar inn kirkjugólf. j Mér þykir þetta leitt. 4) Nokkrum mínútum síðar: — Jósep, hvað í lifandis ó- sköpunum hefur komið fyrir. Get urðu ekki skýrt fyrir mér hvers- I LL EXPLAIN WMEN WE HAVE T'HE PPIVACVOF' OUR BEDCOOM f vegna þessir niðrandi atburðir hafa gerzt. — Ég skal skýra það fyrir þér í eini'úmi í svefnherbergi okkar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.