Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 78. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						8

MORGUNBLAÐIÐ

Miðvikudagur 8. apríl 1953.

4:s>

Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavfk.

Framkv.stj.:  Sigfús Jónsson.

Ritstjóri:  Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)

Lesbók: Árni Óla, sími 304i

Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.

Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:

Austurstræti 8. — Sími 1600.

skriftargjald kr. 20.00 á mánuði, innanlands.

í lausasölu 1 krónu eintakið.

Ifvað er ú gerast í Moskvu?

; í HEIMSFRÉTTUNUM hefur ver,

ið komizt þannig að orði um at-

burði þá, sem verið hafa að ger-'

ast í Moskvu undanfarið, að þeim

-Kiætti líkja við þögla kvikmynd

án   skýringa.   Heimurinn   hefur

, hlustað á tíðindin af þessum at-

burðum án þess að fá skýringar

á því, sem raunverulega  liggur ¦,

að baki þeim.

En af yfírlýsingu Sovétstjórn-

arinnar sjálfrar um sýknu hinna

i rússnesku lækna, sem fyrir

skömmu voru ákærðir um eitur-

morð og viðleitni til þess að ráða

æðstu valdamenn landsins af dög

: um koma þrjár staðreyndir í

ljós. í henni felst viðurkenning

á þessu:                                            ,

í fyrsta lagi, að sovétskipu-

lagið hafi gerzt sekt um yfir-

sjón, sem hefði getað leitt til

dauðadóms yfir hinum á-

kærðu Iæknum.

í öðru lagi að rússneska log-

reglan noti pyndingartæki til

þess að knýja fram játningar

sakborninga.                               |

í þriðja lagi, að í stjórnar-

tíð hins „mikla" skurðgoðs

kommúnista, Stalins, haf i

verið beitt ofbeldi og réttar-

kúgun.

Þessi viðurkenning hinna

kommúnísku valdhafa er svo

stórkostleg og í slíku ósam-

ræmi við fyrri staðhaefingar

kommúnista, að engu er líkara

en að bylting sé að gerast inn-

an flokks þeirra.

Eins og kunnugt er hefur því

verið haldið fram í lýðfrjálsum

löndum, að óhugsandi væri ann-

að en að „játningar" ýmsra

þeirra leiðtoga rússneska komm-

únistaflokksins, sem orðið hafa

fyrir barði „hreinsananna", væru

knúðar fram með pyndingum eða

einhverjum óþekktum aðferðum

gagnvart sakborningunum. Vald-

hafarnir i Moskvu hafa að sjálf-

sögðu harðneitað því og leiguþý

þeírra á íslandi og annars staðar

hafa tekið í sama streng. „Þjóð-

viljinn" hefur t.d. aldrei látið á

sér standa að um útmála glæpi

þeirra, sem Sovétstjórnin hefur

knúð til, að játa á sig hin hroða-

legustu afbrot gagnvart henni og

;hinu kommúníska skipulagi. —

Þannig átu öll kommúnistablöð

íheimsins upp frásögn Pravda

og annarra málgagna Moskvu-

stjcrnarinnar um glæpi rúss-

nesku læknanna, sem handteknir

voru fyrir um það bii þremur

mánuðum.

Kn   nú   kemur   hin   nýja

stjórn Malenkovs og lýsir því

hiklaust yfir, að þessir menn,

sem áður vorn kallaðir „kvik-

indi í mannsmynd" séu sak-

lausir og að þeir hafi veríð

neyddir til bess, með aðferð-

um, sem ekki séu í samræmi

við    stjórnarskrá    Sovétríkj-

anna, að játa á sig glæpi, sem

þeir aldrei hafi framið.

Hvað hefur eiginlega gerzt? Er

Malenkovstjórnin komin  í  stríð

við Stalin nokkrum vikum eftir

að   hann  var  lagður  til   hinztu

hvíldar við hlið Lenins á Rauða

torgi?

nt -i ^es*- er ennþá á huldu um or-

«,   sakir þessarar stórfelldu kúvend-

ingar í rússneskum stjórnmálum.

, ,TOjEn   sú   skoðun  hlýtur   að   hafa

, | ;, piikinn rétt á sér, að frumorsök

I ,,hennar sé su, að hin kommún-

íska harðstjórn hafi að einhverju

leyti   kiknað   undir   áfellisdómi

E<L^<^ð(

x^B cr>^j> c_^s c

)

j UR   DAGLEGA   LIFINU ]

almenningsálitsins í sínu eigin

landi. Hún hafi beinlinis ekki

þorað að halda áfram á sömu

braut réttarmorða, ofbeldis og

harðýðgi, sem Stalinstjórnin fet-

aði.Við uppreisn hafi legið í Rúss-

landi er hið aldna skurðgoð féll

af stalli sínum.

Önnur ástæðan kann að vera

sú, að leiðtogar rússneska komm-

únistaflokksins hafi gert sér þá

staðreynd ljósa, að stefna þeirra

er gersamlega að svipta komm-

únistaflokka allra lýðfrjálsra

landa öllu fylgi. Náðun lækn-

anna og viðurkenning pynding-

arferðanna, sem knúði fram

„játningar" þeirra eigi að skapa

þá skoðun, að friður, réttarör-

yggi og mannúð sitji nú á valda-

stólum í Kreml.

Enn má vel vera, að þessir at-

burðir séu afleiðing víðtækrar

valdastreytu innan rússneska

kommúnistaflokksins. Viðurkenn

ing ofbeldisaðgerðanna cg réttar-

morðanna sé aðeins forleikur að

nýrri „hreinsun", sem stefnt sé

gegn valdamiklum leiðtogum

sjálfs kommúnistaflokksins. Sú

skoðun á m.a. rök í þeim ummæl-

um Pravda, að „sterkir óvinir"

innan sovétskipulagsins bíði

tækifæris til þess að eyðileggja

það. í ávarpi sínu við likbörur

Stalins minnti Malenkov einnig

á þetta sama.

Þannig bendir allt til þess,

að hið kommúníska skipulag

sé maðksmogið, seyrt af

spillingu og logandi af valda-

streytum og óeiningu.

Því fer þess vegna víðsfjarri,

að náðun hinna 15 lækna sé nokk

ur úrsiltasönnun um endurfæð-

ingu Kremlmanna.

Það sem gerst hefur, er fyrst

og fremst það, að hin nýja stjórn

hefur viðurkennt glæpi Stalin-

stjórnarinnar. En með þvi hefur

hún einnig höggvið býsna nærri

sjálfri sér.

Ennþá er of snemmt að fullyrða

nokkuð um, hvort vaxandi samn-

ingalipurð kommúnista um

fangaskipti og vopnahlé í Kóreu

byggist á raunverulegum friðar-

vilja. Vissulega væri vel farið ef

svo væri. Mannkynið þráír að

Kóreustyrjöldinni ljúki og „kalda

stríðinu" linni. Enhugsanlegt er,

að hin þróttmiklu varnarsamtök

hinna vestrænu lýðræðisþjóða

haf i, eins og Anthony Eden komst

að orði í ræðu um páskana, knúð

Rússa til undanhalds og friðvæn-

legri framkomu í alþjóðamálum.

En atburðirnir í Moskvu

hafa lyft móðu leyndarinnar

í þessu lokaða einræðislandi,

af einum ljótasta þættinum í ]

harðstjórnarsögu kommúnism-

ans i Rússlandi. Hinír nýju;

valdhafar hafa játað hroðaleg

afbrot á stjórn hins „mikla"

Stalins og þar með á sig sjálfa,

þvi allir voru þeir Malenkov,

Bería og Molotov meðal valda

mestu manna hennar um langt

árabil. Þessir menn hafa því

ekki þvegið sjálfa sig hreina

með viðurkenningu sinni. Hin

ir 15 læknar, sem Pravda kall-

aði fyrir nokkrum vikum

„kvikindi í mannsmynd" fá að

lifa enn um skeið. En hvað

verður um sjúklinginn, sjálfa

rússnesku þjóðina, sem stunið

hefur undir oki hinnar komm-

únisku harðstjórnar? Þeirri

spurningu er ennþá ósvarað.

það,    svaraði

—   næstur.   á

Þegar Malenkov varð illt

við

I„léttara hjali" í sænsku blaðí

einu birtist nýlega eftirfarandi

frásögn sem sögð var „komin

með Austanvindinum":

—  Hvílikt ó-

mælanlegt tjór

hefur    ættlanc

vort beðið vií

fráfall     okkao

kæra     Stalins

Vissulega    va:

hann        mest

maður  verald

arsögunnar,

sagði Malenkov

svo kirkjuhöfi

inginn    heyrð

tiL              sj «£

—  Víst   er   um

kirkjuhöfðinginn,

eftir Jesú Kristi var Stalin það.

Alvörusvip brá fyrir á andliti

Malenkevs, og hann segir eitt-

hvað á þessa leið:

—  Kristur. Hvað skyJdi hann

svo sem hafa gert, sem okkar

frábæra landsföður hugkvæmdist

ekki að gera?

—  Kraftaverkin, svaraði þá

kirkjuhöfðinginn.

Malenkov varð alvarlega þung-

ur á brún við þetta tilsvar og

segir:

—  Hvað eru iðnframkvæmdir

okkar annað en kraftaverk?

—  Jú, á sinn máta eru þær það,

segir þá kirkjuhöfðinginn. Eftir

nokkra þögn bætir hann við: —

En gætið að, minn góði Malen-

kov, hann reis upp frá dauðum.

Nú sló sýnilega felrntri á eftir-

manninn. Harín stirðnaði í fram-

an og segir:

—  Hvern eigið þér við?

—  Krist, að sjálfsögðu, svarar

kirk j uhöf ðinginn.

Þá varð Malenkov sýnilega

rórra við og segir:

—  Þér gerðuð mér alvarlega

illt við.

Er hún afkomandi

Alberts Xhorvaldsens?

MÆLT er að hin ítalska kvik-

myndaleikkona Anna Magn-

ini, sé afkomandi Alberts Thor-

valdsens.

A Rómaárum

hins mikla lista-

manns, hafði

hann um skeið

ítalska lagskonu,

er hét Anna

Magnini — Með

henni eignaðist

hann tvö börn,

dreng og stúlku.

Dóttirin giftist Fritz Paulsen

ofursta. Eiga afkomendur þeirra

hjóna heima í Róm, og eftir því

sem menn segja, er núverandi

kvikmyndaleikkona meðal afkom

enda þeirra.

Mörgum íslendíngum. mun á-!

reiðanlega leika forvitni á að fá

að vita hvaða núlifandi íslending-1

ar    séu nánustu ættingar    hins

heimsfræga listamanns, er aldreL

leit ættjörð. sína, en bar ætíð hínn

mesta hlýhug til lands og þjóð-

ar,  eins  og Jónas Hallgrímsson

komst   að   orði   í   þakkarkvæði

sínu fyrir skírnarfontinn er Thor-

valdsen sendi  Miklabæjarkirkju

í  Blönduhlíð   og  hingað   kom  í

Dómkirkjuna  árið   1839.  — Þar

segir m. a.:

Risti smíð þessa

í Róm suður

Albert Thorvaldsen

fyrir árum tólf

aettjörð sinni

ísalandi

gefandi hana

af góðum hug.

Hinir iðnu ættfræðingar vorir

ættu að grafa það upp, hverjir nú

lifandi manna á íslandi séu nán-

ustu ættmenn séra Þorvaldar á

Miklabæ En eigi er um nánari

skyldmenni listamannsins að

ræða hérlendis.

Áhrifamikil kvikmynd

í Nýja Bíói

NÝJA BÍÓ hafði á annan í pásk

um frumsýningu á þýzku

kvikmyndinni Vökumenn (Nacht

wache). Óhætt er að segja að

mynd þessi sé meðal hinna merk-

ustu og áhrifamestu, sem hér

hafa verið sýndar um langt skeið.

Efnið er harmsögulegt, fjallar

annars vegar um erfiðleika og

hugarstríð fólks, sem orðið hefur

fyrir þungu mótlæti og áfóllum

af vöidum heimsstyrjaldarifnnar,.

hefur glatað trúnni á gildi lífsins

og^allrar tilverunrtar, og hins veg-

ar.itm styrk og hjálparmátt krisU

innar trúar til að standast.hverja

eldraun og sigrast á erfiðleikun-

um.

Efasemdir og trúarvissa skipt-

ast á í hugum fóiksins og er þessi

innri barátta á listrænan hátt

fléttuð inn í atburðarásina.

Aðalhlutverkið; ungur kven--

læknir, er- sniidarvel ieikið af

Luise Ulrich. Tvö önnur stærstu

hlutverkin eru leikin af. Hans

Nielsen og René Daltgen, sem

einnig sýna ágætan leik.

Þetta er ein þeirra kvikmynda,

sem enginn ætti að láta hjá líða

að sjá.

Þetta gerðist í sögutíma í barna

skóla í Svíþjóð:

Kennslan fjallaði um hina

heilögu Birgittu, og sögunni var

svro langt komið, að sagt var frá

því, að Birgitta ætlaði sér a5

stofna nunnuklaustur í Vadstena,

og hafði gert fyrirspurn til páfa

um, hvort hún gæti fengið leyfi

til stofnunarinnar.

—  Og hvaða ráðstafanir þuxfti

hún annars að gera til þess a5

hún gæíi komiff klaustrinu upp?

spurði kennarirm.

Lítill snáði varð fyrir svörum.

—  Hún þurfti að sækja- unœ

byggingarleyfi.

Eftir kringumstæðunum, vftr

þetta svar tekið gott og gilt.

í miðdegisveizlu spurði frú ein,

borðherra sinn, hvað hann hefði

sér að atvinnu.

—  Ég er forstöiSumaður fyrir

fangelsi, sagði hann.                   <

—  Hvernig getur maður unnið

sig upp í þá stöðu? spyr kon-

an. — Byrja menn að vera fang-

ar, og hækka þeir svo í tign-

inni smátt og smátt?

Weluakandi óhrimr:

Hvað gert var

í páskafríinu.

OLK er venjulega ekki í vand-

ræðum með umræðuefni

fyrstu dagana eftir að stórhátíð

er um garð gengin og frídagarnir

eru á enda. — Hvert var farið,

eða hvað var gert, eru spurning-

ar, sem alls staðar kveða við.

Sumir hafa heil ósköp að segja,

eru fullir af fréttum af öllu því,

sem á dagana hefir drifið. aðrir

haf dregið sig inn í hýði sitt og

notað tímann til að sofa og hafa

það náðugt. Og nú eru allir horfn

ir til fyrri starfa — með endur-

nærða starfslöngun og starfs-

orku? — Ef til vill sumir, en flest

um held ég nú samt, að beri sam-

an um, að það er einstaklega erf-

itt að byrja á ný fyrstu dagana

á meðan að verið er að koma sér

í farveg skyldustarfanna og hvers

dagsleikans.

Páskadagarnir voru annars ein

dæma bjartir og fallegir í ár, enda

fannst okkur við eiga fyrir því

eftir.allan veðurosfann að und-

anförnu. Það var líka skemmti-

legt að taka eftir, hve hátíðaskap-

ið ljómaði af prúðbúnu fólki,

ungu og öldnu, á götum bæjax-

ins. Það var „sól úti, sól inni, sól

í hjarta, sól í sinni. — Sól, bara

sól!"

Hneykslaður yfir

aprílgabbL

MAÐUR nokur, sem gefur sér

nafnið „Betur-vakandi" hef-

ir skrifað mér bréf ásamt úr-

klippu úr Morgunblaðinu af

„strætisvagninum fljúgandi" sem

birtist í blaðinu hinn 1. apríl og

vakið hefir mikla athygli. Fólk

átti augsýnilega dálítið erfitt með

að átta sig á fyrst í stað, að hér

var aðeins um að ræða venjulegt

aprílgabb — reyndar dálítið ó-

venjulegt, þegar allt kom til alls.

Það kom lyftingur í Akurnes-

inga við tilhugsunina um, að þeir

fengju ef til vill að njóta þessa

kostuglega farartækis og komast

til Reykjavíkur á fáeinum mín-

útum. Þeir skyldu svei mér gefa

„Eldborginni" langt nef! — Fólk

hringdi á ritstjórn blaðsins og:

spurði hvenær búast mætti við,

að vélin tæki upp áætlunarferðir!

Sem sagt — gabbið tókst ágæt-

lega.

Hver veit?

EN bréfritari minn, Betur\Tak-

andi, virðist vera mj'ág

alvarlega hugsandi maður, ég

held næstum því alltof alvarlega

— og tekur hann Morgunblaðinu

óstinnt upp það ábyrgðarleysi og

óvöndun þess að hafa á þennan

hátt auðtrúa  borgara  að  gabbL

Honum finnst líka afleitt, að

blaðið skuli henda önnur eins

villa og sú að tala um kl. 10.6Í

í staðinn fyrir 11,01! Fallegt for-

dæmi að tarna!

Mér finnst mjög leitt, Betur-

vakandi góður, að þetta tiltæki

skuli hafa valdið þér svo mikíu

hugarangri. En mér finnst nú

samt endilega, að við ættum að

reyna að sjá það skemmtilega við

hlutina, fremur en að gera sér-

gramt í geði yfir því. Og hver

veit, nema hugmyndin um ,stræt-

isvagninn fljúgandi" verði einn

góðan veðurdag að raunveru-

leika? Við vitum, að tæknin í

flugvélasmíði engu síður en ljós-

myndagerð, gengur kraftaverki

næst!

Hvernig kjarnorku-

fræðingar verja

tímanum.

TRUMAN, fyrrv. forseti Banda-

ríkjanna hitti fyrir nokkm

síðan að máli einn af hinum þekkt

ustu kjarnorkii-

fræðingum Ame

iku og spurði

hann m. a. þess-

arar spurningar:

—   Segið  mér

—   hvernig   ver

eiginlega kjarn-

orkufræðingur-

inn tíma sínum?

— Það skal ég

skýra út fyrir

yður,   Mr.   Tru-

man, svaraði vísindamaðurirm.

Hann vinnur allan liðlangan dag-

inn á tilraunastofunni með fjöld-

anum öllum af sprenglærðum

sérfræðingum og stöðugt að þvi

sama: að gera kjarnsprengjurnar

eins skaðlegar og léttskeyttar og

mögulegt er. —

—  Og á nóttunni?

—  Þá liggur hann á bæn ura,

að þeim verði aldrei hleypt af!

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16