Morgunblaðið - 11.07.1953, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.07.1953, Blaðsíða 1
40. árganguur 153. tbl. — Laugardagur 11. júlí 1953 Prentsmiðja Morgunblaðsint TARI LOGREGLURÍKISINS EALLINN „Þessi æfintýramaður og leigoisveiiui erleudra au&valdsafla . Eftir Iát Stalins: Malenkov — Beria — Molotov 66 Beria kynni að 99uppræta Er nú 99upprættur44 sjálfur Feriíl hans var blóði drifinn EFTIR dauða Stalins leit út fyrir að þrír menn hefðu skipt völdum hans milli sín, þeir Malenkov, Beria og Molotov. í stjórnartilkynningum síðustu mánaða hefur nafn Berias jafnan verið nefnt annað í röðinni á eftir nafni Malenkovs, forsætisráðherra. Það er einkurn tvennt, sem talið er hafa valdið hinum mikla frama og upphefð Berias. í fyrsta lagi að hann var Georgiumaður eða með öðrum orðum landi Stalins. Og \ öðru lagi að við áralanga reynslu hafði hann mikla æfingu í stjórn leynilögreglu, sem hlýtur óhjákvæmileg'a að verða mikilvægur þáttur til þess að bæla niður mót- spyrnu og óánægju almennings í einræðisríkjum. Fyrir síarfsemi Berias er það sem ríki kommúnismans hafa hlotið samheitið „lögregluríki“, því að þar er það ekki réttlæti sem hefur ráðið ríkjum, heldur handahófs- kennt ofbeldi lögreglunnar. Frá árinu 1938 til 1953 hefur lögreg'luríkið verið starfrækt undir handlciðslu „meist- arans“ Berias. Mál Beria fyrir hæstarétt í gærkvöldi var tilkynnt að Hæstarétti Sovétríkjanna liafi verið falið mál Beria til meðferðar og í ákær- unni er sú megin sök borin á Beria að hann hafi viljað grafa undan stjórnarfyrir- komulaginu í Sovétríkjun- HLAUT GÓÐA MENNTUN Lavrentii Pavlavich Beria er Georgiumaður að uppruna eins og Stalin. Hann er fæddur 1899 í þorpinu Merkheuli nálægt Suk- hum, sem er frægur baðstaður á strönd Svartahafsins. 1 opinberum sögum Sovétríkj- anna er sagt að foreldrar hans hafi verið bláfátækir. Samt hlaut Beria góða menntun, fyrst í menntaskólanum í Sukhum og síð an í verkfræðiháskólanum í Baku. Þar lauk hann prófi í bygginga- list. — EINN AF GÖMLU KOMMÚINISTUNUM Hann gekk í kommúnistaflokk- inn í Baku 1917 og hefur því get- að miklað sig af að vera einn af gömlu kommúnistunum, þ. e. a. s. hann varð flokksmaður nokkrum mánuðum fyrir byltinguna. Fram eftir miðjum aldri átti Beria heima þarna suður i Káka- sus. Þjóðir Kákasus hófu sjálf- stæðisbaráttu gegn Rússum 1919, en rússnesku kommúnistarnir bældu hana niður vægðarlaust. — Kostaði sú árangurslausa sjálf- stæðisbarátta Kákasusþjóðanna miklar blóðfórnir. RAUTT SVIÐ UMHVERFIS HANN Síðan hefur það verið svo með þennan mann, Beria, þrátt fyrir það, að hann sé sagður ákaflega hæglátur maður í framgöngu, að það er eins og blóð undirokaðra og pyntaðra fljóti allt í kringum hann. Hersveitir kommúnista her- námu Baku og Beria varð foringi í „öryggis“-lögreglunni, sem gekkst fyrir fjöldaaftökum í borg- inni. Skömmu síðar sundraðist kom- múnistaflokkur Rússlands í bolsé- vika og mensévika. Eins og kunn ugt er, fóru bolsévikar með sigur Framhald á bls. 7. 20 léfu iífið í vafnsflóði BRESCIA 10. júlí: — Að minnsta kosti 20 menn létu | lífið í Bresciu, smáþorpi í N.- Ítalíu. er skyndilegir vatna- vextir urðu þar í dag. Hljóp geysimikið flóð í á eina er á upptök sín í Alpa- fjöllum. Brecia stendur við vatn eitt við rætur Alpafjall- anna og er flóðið hljóp í fjalla lækinn hækkaði mjög í vatn- inu. Mikil hætta er talin á frekari vatnsflóðum. — NTB-Reuter. MOSKVU 10. júlí: — Lífið í Moskvuborg virtist ganga sinn vana gang í dag. Öll umferð var eðlileg, fjöldi fólks var úti á gangi en glampandi sólskin var, og að venju staðnæmdist fólkið frammi fyrir gluggunum þar sem blöð dagsins voru uppfest. Hálf forsíða Pravda var til- einkuð Bería, hinni föllnu stjörnu. Þar var m. a. skýrt frá því, „að upp hefði komizt um leynimakk þjóðaróvinarins Beria, sem hefði unnið að því að trana sér fram og reyna að komast til æðstu valda í ríkinu. Hans óþjóðholla og I óflokkslega starfsemi var í fyrstu framkvæmd með leynd en síðar fór að bera á því hvert Bería stefndi — en það var að því að setja innanrík- isráðuneytið yfir sjálfan flokk inn og ríkisstjórnina“. , Síðan koma ásakanirnar. Þar segir meðal annars: i Bería var erkióvinur landbúnaðarins, og reyndi að vinna að bví að áætlan- ir um samyrkjubúin stæð- ust ekki“. Bería gerði allt sem hann gat til bess að ala á ósætti meðal hinna ýmsu bjóða innan Sovétsam-1 bandsins“. .Bería stuðlaði að stofn- j un ýmissa borgaralegra' samtaka. Síðan segir: Þessi ævintýramaður oí; leigusveinn erlendra auð- valdsafla hafði í hu?a að ná til sín völdunum í flokknum og í ríkinu, með bað eitt í huga að eyði- leergja flokkinn og breyta stefnu hans í kapitaliska átt.. .“ Fregnin um hrap Bería og 'brottvikningu hans úr embætti og brottrekstur úr flokknum, hef ur vakið gífurlega athygli um heim allan og telur brezka út- varpið atburð þennan þann ör- lagaríkasta sem gerzt hefur í Soyétríkjunum frá því málaferl- in gegn Trotsky hófust árið 1927. Bandaríkjastjórn hefur kvatt sendiherra sinn, von Bohlen, heim frá Moskvu og er hann kominn til Berlínar. Ríkisstjórnir margra landa hafa skotið á aukafundi út af at- burði þessum, og hvarvetna tala menn um hina æðisgengnu valda baráttu, sem spáð var að myndi eiga sér stað eftir fráfall Stalíns, enda hefur nú raunin orðið sú að sá spádómur reyndist réttur. Forsetinn í opinbera heinuókn !ii Ves!- fjarða FORSETI ÍSLANS, herra Ásgeir Ásgeirsson, fór í gærkvöl í opin- bera heimsókn til Vestfjarða. Verður forsetafrúin með í för- inni og ennfremur Bjarni Guð- mundsson, blaðafulltrúi. Ráðgert er að forseti verði rúma viku í ferðinni. (Fréttatilk.ynning frá forseta- skrifstofunni). Sjáliur lögregluleið- loginn I fangelsi! WASHINGTON 10. júlí: — Utan ríkisráðherra Bandaríkjanna, Foster Dulles, talaði á fundi ut- anríkisráðherranna í dag. Hann sagði að allra augu mændu nú enn einu sinni til Rússlands. Þar sæti nú sjálfur leiðtogi lögregl- unnar í lögreglurikinu í fang- elsi.- Það kann að vera, sagði Dulles, að sama skipulag muni ríkja áfram, en veikleiki þess inn á við hefur áþreifanlega komið í ljós. — Reuter-NTB. Tortryggja Syngunan Rhíee forseta S-Kóren Senda aukið herlið ti! Kéreu Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB SEOUL 10. júlí: — Bandaríkjamenn í Kóreu búa sig nú undir að i n>æta öllum þeim ráðstöfunum sem Syngman Rhee, forseti Suður- Kóreu, kann að grípa til í því skyni að koma í veg fyrir vopnahlé í Kóreu. Hafa Bandaríkjamenn flutt aukið lið í þessu skyni til Kóreu. 5 m dollai a WASHINGTON 10. júlí: — Sam- eiginleg nefnd öldungadeildar og I fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur orðið ósátt um að veita 5.157.232.500 dollara til „aðstoð- ar Bandaríkjanna við erlend ríki“. Er fjárveiting þessi miðuð ‘ við fjárhagsárið 1953—1954. AUKIÐ HERLIÐ TIL KÓREU Hið aukna lið Bandaríkja- manna í Kóreu kemur frá bækistöðvum í Japan. Telja fréttamenn, að megintilgang- urinn með liðsflutningum þessum sé sá að styrkja varð- gæzlu við fangelsi og aðra gæzlu að baki víglinunnar, jafnframt því sem liðið eigi að vera reiðubúið að grípa inn í á sjálfum vígstöðvunum, ef svo kynni að fara, að Syng- man Rhee dytti í hug að kalla hersveitir Suður-Kóreumanna frá vígstöðvunum. Fyrsta herliðið sem kom til Kóreu frá Japan var fallhlífa hermannasveit, svo og hluti hins fræga 1. Riddaraherf- fylkis. FUNDUR í PANMUNJOM í dag áttu vopnahlésnefndirnar sinn fyrsta fund frá því að upp úr viðræðum þeirra slitnaði sr Syngman Rhee lét sleppa úr haldi 26 þús. stríðsföngum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.