Morgunblaðið - 16.03.1954, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.03.1954, Blaðsíða 1
16 síður 41. árgangur. 62. tbl. — Þriðjudagur 16. marz 1954 Prentsmiðja Morgunblaðsim Sfærsfa flugvél í heimi á Reykjavíkurflugvelli. Þetta er Globemasterflugvélin úr flugher Banda ríkjanna, stærsta flugvél heims, sem nú svífur um loftin. á Reykjavíkurflugvelli á sunnudaginn. — Þetta bákn vegur um 90 tonn og inn í henni er 10 hjóla birgðaflutningabíll. — Sjáið hvað lögreglumaðurinn er lítill, sem stendur fyrir framan flugvélina. — Á öðrum stað hér í blaðinu er sagt frá komu flugvélarinnar. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Kvenréttindakonur sveSta! aðeins 3 daga að losna við konunginn — og það æfíi þvs ekki að faka langan fíma að veifa konum kosningaréff og kjörgengi i KAIRÓ, 15. marz frá Reuter. IBYGGINGU einni í Kairóborg hýrast nú 10 egypzkar konur og svelta í því skyni að reyna að fá egypzk stjórnarvöld til að veita konum kosningarétt og kjörgengi við þingkosningarnar sem þar fara fram í júnímánuði n. k. Leiðtogi egypzka kvenréttinda- sambandsins, frú Boria Shfikk, er potturinn og pannan í hungur- verkfallinu en 9 stöllur hennar svelta með henni. ¥!g- vellinum - síðan ný SAIGON 15. marz. — í dag var þriðji dagur stórsóknar Viet- Mihn uppreisnarmanna í Indó- Kína að borginni Dien Bien Puh í Norður-Laos, sem verið hefur umkringd um tíma. Hafa geisað þarna hörðustu orrustur Indó- Kína stríðsins. Ilppreisnarmönnum tókst að rjúfa skörð í víglínu Frakka. Frakkar hafa hinsvegar um- ráð vfir flugvelli í borginni og þaðan gera þeir látlausar vél- byssu- og sprengjuárásir á lið ÞAÐ ER EKKI l ónusafa á deei hverjum Hún uPPrt',snarnlanna- TÍMAFREKT | er enn hin brSttasta eftir' 4 daga 1 m°rgun var gert þnggja hma Frú Boria hefur haft tal hungur. Stöllur hennar tvær hafa j vopnah,le tÚ særða af við Nagíb. Kvað hún hann hins vegar veikzt og fengið lækn- vifA'ehinum. Þegarþvi var iok- hafa gleymt að frelsa helm- igaðstoð. Hungurverkfall þeirra lð byouðu djofullætm aftur a ny. ing þjóðarinnar er liann braut Vekur geysilega eftirtekt um1 Frökkum hefur siðan í dag hlekki óstjórnar af egypzku , heim allan — og hver veit nema borizt liðstyrkur flugleiðis þjóðinni. Fyrst það tók aðeins þag þeri árangur. I —Reuter. 3 daga að losna við konung- • inn, þá þyrfti það ekki að taka largan tíma að veita konum hún. Lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar Tollar ó hráefnum til iðnaðar verði lækkaðir Tolltekjurnar munu þá lækka um 5 milljónir kr. T DAG var lagt fram á Alþingi og rætt í Efri deild frumvarp til " laga um breyting á lögum um tollskrá. Þetta er stjórnarfrum- varp, hefur verið í undirtíúningi alllengi og er það von ríkisstjórn- arinnar, að þótt liðið sé á þingtímann nái frumvarpið fram að ganga á þessu þingi. Frumvarp þetta miðar fyrst og fremst að því að greiða fyrir íslenzkum iðnaði. Er í því lagt til að tollar á ýmsum vöruteg- undum, sem íslenzkir iðnaðarmenn nota við framleiðslu sína, verði lækkaður til muna. Má segja að þetta sé fyrsta sporið í þá átt að byggja hér upp iðnaðarframleiðslu til útflutnings, en að því vill ríkisstjórnin stuðla. LÍFSSKILYRÐI ÞJÓÐARINNAR Fjármálaráðherra hafði fram- sögu um málið af hálfu ríkis- stjórnarinnar. Kvað hann ríkis- stjórnina vilja keppa að því að íslenzk iðnframleiðsla gæti orðið útflutningsvara. — íslendingar hefðu í þeim efnum góða aðstöðu að mörgu leyti, því hér á landi má fá ódýra orku, sem er frum- | skilyrði öflugs iðnaðar. Lífsskil- ’ yrði þjóðarinnar, sagði ráðherr- ann, fara í framtíðinni eftir því hvort við getum sjálfir framleitt ódýra og góða vöru. 5 MILLJ. KR. TEKJUMISSIR Breytingarnar, sem frum- varpið gerir á tollskránni eru í nær 150 liðum og gert er ráð fyrir, að ef frumvarp þetta verður að lögum hafi það í för með sér tekjumissi fyrir ríkis- sjóð, allt að 5 millj. króna. VERND GEGN ERLENDUM IÐNAÐARVARNINGI í athugasemdum við lagafrum- varpið segir annars svo: Með bréfi, dagsettu 18. apríl 1953, skipaði fjármálaráðherra, í kosningarétt, sagði TVÆR HAFA VEIKZT Frú Boria, sem er vel gift kona og tveggja barna móðir, nærist aðeins á svolitlum sopa af sítr- Lokaundirbún- ingur innrásar LUNDÚNUM 15. marz. — Eden, utanríkisráðherra Breta, sagði í neðri málstofu brezka þingsins í dag, að brezka stjórnin teldi enn ekki tímabært, að þjóðernissinn- ar á Formósu gerðu tilraun til innrásar á meginland Kína. Var Eden að svara spurningu um það, hvort brezka stjórnin hefði fengið vitneskju um um- mæli forsætisráðherra Formósu 4. marz s.l. á þá leið að loka- undirbúningur innrásar á megin- land Kína væri nú hofinn. Eden kvað brezku stjórnina ekki viðriðna þetta mál að neinu leyti og henni hefði ekki borizt opinberlga-nitt um það mál. Dönsku blöðin segja: ,Punktum f inale í handritamálmu* H KAUPMANNAHÖFN, 15. rnarz frá fréttaritara Mbl. ANDRITAMÁLIÐ er enn í dag eitt aðalmál dönsku blaðanna. Þau gera nú hreint fyrir sínum dyrum, birta tillögur dönsku stjórnarinnar ásamt afsvari íslenzku ríkisstjórnarinnar. Ræða þau síðan flest um málið vítt og breitt og taka fram að enn muni hand- ritamálið liggja í láginni sem hingað til. — Þetta sé punktum finale málsins um ófyrirsjáanlega framtíð. Eftir að Sigurður Nordal,' sendiherra íslands, hafði af- hent dönsku stjórninni svar íslenzku ríkisstjórnarinnar, lét Hedtoft forsætisráðherra hafa eftir sér eftirfarandi: „Danska stjórnin skilur þau rök, sem fram eru færð í svari | íslendinga, en henni þykir miður að mistakast skyldi að leysa handritamálið á grund- velli sameignar með handrita- söfnum bæði á íslandi og í Danmörku.“ — Danska stjórn- in hefur í hyggju að ræða mál ið enn við utanríkisnefnd danska þingsins. Úr ummælum blaðanna er þetta heizt: Socialdemokraten: „íslending- ar hafa hafnað víðtækri og vel meintri danskri áætlun. Sú áætl- un miðaði að því að leiða til lvkta langa og erfiða deilu um leið og reynt var að skapa sem bezt skilyrði til rannsóknar á handritunum. Má nú telja að lausn þessa vandamáls sé nú skotið á frest um langt árabil. Það harma allir þeir mörgu Dan- ir, sem vildu að handritamálið yrði ekki lengur til að ala á mis- skilningi milli tveggja bræðra- þjóða.“ Politiken tekur í sama streng og segir ennfremur: „Skiptar skoðanir voru um það hve mik- ið af handritunum átti að af- henda íslendingum. En óhætt mun þó að telja að sameignar- hugmyndin hafi átt fylgi að fagna meðal beggja deiluaðila. Danir vildu leysa erfitt vandamál, en nú mun handritamálið leggjast í þann sama 'dvala, sem það hefur áður legið í lengi.“ „Information: „Handritin eru ómótmælanlega eign Dana og geta aldrei verið afhent á annan hátt en sem gjöf. Þegar Islendingar slitu sam- bandi við Dani á hernámsárun- um særðu þeir þjóðarmetnað og þjóðartilfinningu Dana. Nú vilja íslendingar ekki aðra lausn handritamálsins en þá, að þeir fái afhent öll handritin. Það kemur berlega fram í svari ís- lendinga við sanngjörnum til- lögum dönsku stjórnarinnar. Ekkert tillit er tekið til óska Dana. Það hlýtur því að liggja fyrir nú, að hætta öllum viðræð- um um þetta mál. Það ætti danska stjórnin að tilkynna hinni íslenzku.“ samráði við iðnaðarmálaráð- herra, nefnd til þess að endur- skoða lög nr. 62/1939, um toll- skrá o. f 1., ásamt síðari breyting- um, með tilliti til þess, að inn- lendur iðnaður hafi hæfilega og skynsamlega vernd gegn sam- keppni erlendra iðnaðarvara. Enn fremur skyldi nefndin, í sam ráði við fjármálaráðuneytið, taka til athugunar önnur þau atriði, sem nauðsynlegt kynni að þykja að endurskoða í tollskrárlögun- um. í nefnd þessari áttu sæti: Friðjón Siguiðsson, fulltrúi í skrifstofu Alþingis, og var hann formaður nefndarinnar. Magnús Gíslason, fyrrv. skrif- stofustjóri. Pétur Sæmundsen, viðskipta- fræðingur. Sverrir Þorbjörnsson, hag- fræðingur. Harry Frederiksen, fram- kvæmdastjóri. Síðar ákvað fjármálaráðherra, að framkvæmdastjóri Landssam- bands iðnaðarmanna, Eggert Jónsson, lögfræðingur, mætti taka þátt í störfum nefndarinn- ar með tillögurétti, þegar fjallað væri um mál, er sérstaklega snertu hagsmuni félaga Lands- sambandsins. Nefndin átti samkvæmt f.yrir- mælum ráðherra að hafa lokið störfum fyrir 15. sept. 1953. Á hinn bóginn reyndist starf nefnd- arinnar og öflun nauðsynlegra Framh. á bls 2. Skotið á götum Túnisborgar ★ TÚNIS 15. marz: — Til all snarpra átaka kom í dag er nokkur hundruð stúdentar reyndu í dag að ná á sitt vald byggingu stjórnarinnar í Tun- is, sem er í Afabahverfi borg- arinnar. Lögreglan greip til skot- vopna sinna og var tilkynnt að einn uppresnarmanna hefði fallið en tveir lögreglumenn særðust alvarlega. Mannfjöld- anum var síðan dreift með táragasi. Rólegt hefur verið í Tunisborg að undanförnu. En þessar óeirðir eru taldar eiga rót sína að rekja til þjóðernissinnahreyfingar og séu gerðar í því skyni að lýsa óánægju með stjórninni sem tók við völdum 2. marz s.l. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.