Morgunblaðið - 22.03.1955, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 22. marz 1955
út* BLf. Arvakur, Reykjavík.
Fremkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgUarm.)
Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vlfur.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni GarSar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Askriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlandi.
1 lausasölu 1 krðnu eintakið.
Unga fólkið og byggingarmálin
SENNILEGA hefur aldrei jafn
margt ungt fólk undirbúið
íbúðabyggingar víðsvegar um
land og einmitt nú. Hið aukna
byggingarfrelsi, sem núverandi
ríkisstjórn hefur beitt sér fyrir
á ríkan þátt í þeirri hreyfingu,
sem nú er í byggingarmálunum.
Ennfremur hefur mikil og góð
atvinna ýtt mjög undir það, að
margt ungt fólk hefur byrjað að
safna sér nokkrum sjóðum til
þess að eignast þak yfir höfuðið.
Loks hafa fyrirheit ríkisstjórnar-
innar um aukna fyrirgreiðslu í
lánamálum stuðlað að byggingar-
áformum almennings.
Til þess að miklum byggingar-
framkvæmdum verði haldið uppi
á næstu árum er fyrst og fremst
tvennt nauðsynlegt. í fyrsta lagi,
að verðgildi peninganna rýrni
ekki, þannig að byggingarefni
hækki stórlega. f öðru lagi, að
það fólk sem hyggur á bygging-
arframkvæmdir njóti framvegis
nægrar og tryggrar atvinnu.
Þegar á þetta hefur verið
litið verður það auðsætt, hví-
lík ógnun felst í því við bygg-
ingaráform unga fólksins, að
kaupgjald verði stórhækkað,
peningarnir verðfelldir og at-
vinnuleysi skapað í landinu.
Þegar slíkt ástand hefði skap-
azt væri grundvellinum bók-
staflega kippt undan hinum
ráðgerðu umbótum í húsnæð-
ismálum. Unga fólkið, sem
safnað hefði sér nokkrum
sjóðum til þess að geta ráðizt
í íbúðarbyggingar stæði allt í
einu uppi með þá stórskerta.
Ekki nóg með það. Sjáift
byggingarefnið væri orðið
miklu dýrara en það er nú. I
Þegar svo væri komið væru
það aðeins efnamenn sem ráð-
izt gætu í byggingarfram-
kvæmdir.
Þessa hlið málanna verður
vissulega að athuga í sambandi
við þau átök, sem nú eiga sér
stað um hæð timakaupsins. Hús-
næðið er ríkur þáttur í lífskjör-
um fólksins. Hver einasti maður
vill eiga þess kost að eignast góða
og heilsusamlega íbúð fyrir sig
og sína. Þær ráðstafanir sem tor-
velda honum viðleitnina til þess,
fela því í sér mikla skerðingu á
lífskjörum hans. j
Það er því vissulega ekki
ofmælt að kommúnistar hafa
gerzt sekir um freklega árás
á lífskjör almennings með
þeim kröfum sem þeir hafa
haft forystu um, um yfir 50%
kauphækkanir.
Um það þarf ekki að fara í (
neinar grafgötur að kommúnistar
vita vel, hve>" afleiðing yrði af
slíkum ráðstöfunum. Þeir hafa
sjálfir lýst því yfir, að bæði tog-
araútgerðin oe vélbátaútgerðin
sé nú þannie á vegi stödd, að
hún þoli ekki aukinn tilkostnað. j
Engu að síður hafa þeir ekki hik-
að við, að hafa forgöngu um fyrr-
greindar kröfur. Fyrir þeim vak-
ir beinlínis, að koma í veg fyrir,
að þróunin í byggingarmálunum
haldi áfram. Þeir vilja alls ekki
að ungt fólk, sem undirbýr nú
íbúðabyggingar og treystir m. a.
á aukna lánastarfsemi komi
áformum sínum fram. Kommún-
istar vilja hreinlega viðhalda
stóirfelldum húsnæðisskorti og
öngþveiti í þessum málum. Auð-
vitað kenna þeir svo ríkisstjórn-
inni og flokkum hennar um
vandræði fólksins!!
Það væri sannarlega hörmu-
lega farið ef möguleikar þess
mikla fjölda fólks, sem nú und-
irbýr íbúðarbyggingar, yrðu ó-
nýttir. Þjóðfélagið á mikilla hags
muna að gæta í því, að einstak-'
lingsframtakið verði hagnýtt sem
bezt á sviði byggingarmálanna.1
Það hefur lyft Grettistökum á
undanförnum árum. Síðan Sjálf-j
stæðismenn höfðu forgöngu utn
það á Alþingi árið 1947 að auka- j
vinna efnalítilla einstaklinga við
byggingu eigin íbúða var gerð
skattfrjáls hafa þúsundir einstak-
linga lagt fram óhemju vinnu
við íbúðahúsabyggingar í land-
inu. Þúsundir fjölskyldna hafa,
eignazt gott og varanlegt hús-!
næði vegna afnáms hins rang-!
láta lagaákvæðis. Og eins og getið
var um í upphafi undirbýr nú,
mikill fjöldi ungra manna íbúð-
arhúsabyggingar.
Þau áform má ekki trufla,
við verðum að geta haldið
áfram umbótunum í húsnæð-
ismálunum. Nýjar, bjartar og
vistlegar íbúðir þurfa að rísa
til sjávar og sveita, bæði yfir
það fólk, sem býr nú við
þröngt og lélegt húsnæði og
hitt, sem er að stofna fjöl-
skyldur og heimili.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
á þessu fullkominn skilning.
Þess vegna er aukinn stuðn-
ingur við íbúðarhúsabygging-
ar eitt af höfuðmálum núver-
andi ríkisstjórnar. En einmitt
af þeirri ástæðu svífast komm
únistar einkis í baráttunni
gegn húsnæðisumbótunum.
Churchíl! að fcveðja
NÚ er talað um það sem vissu í
Bretlandi að Winston Churehill
muni draga sig í hlé í næsta mán-
uði og láta af embætti forsætis-
ráðherra. Er það fyrir elli sakir
en Churchill varð áttræður 30.
nóvember s.l.
Orðrómurinn segir að Churc-
hill taki þetta spor hikandi og
með eftirsjá. Stafar það fyrst og
fremst af því, að hann muni girn-
ast það mjög, að geta áður en
hann iætur af störfum, komið á
fjórveldaráðstefnu. Myndi hann
telja það verðugan lokaþátt langr
ar ævi, ef honum tækist með
fjórveldaráðstefnu, að koma á
samkomulagi milli austurs og
vesturs og tryggja mannkyninu
frið um ókomnar aldir. En slík
ráðstefna verður ekki haldin fyrr
en samningarnir um landvarnir
Vestur-Evrópu eru gengnir í
gildi. Verður það því væntanlega
verkefni eftirmanns hans, Ant-
hony Edens, að koma á fjórvelda-
ráðstefnunni.
Því mun Churchill fyrst og
fremst draga sig í hlé að þing- |
kosningar í Bretlandi eru í vænd- I
um og þó gamli maðurinn sé enn
furðanlega ern, þá mun hann '
ekki treysta sér til að heyja slíka
rimmu. íhaldsflokkurinn, sem
hefur meirihluta þingsins, að vísu
tæpan, getur nokkurn veginn ráð
ið því hvenær kosningar fari
fram og hefur útlitið sjaldan ver-
ið svo vænlegt sem einmitt nú,
þegar verkamannaflokkurinn er
klofinn. Því getur hugsazt að
kosningar verði í sumar og aldrei
seinna en næsta haust.
Fimmfygur:
Þorsfeinn Guðmunds
son á Finnboga-
slöðum
FIMMTUGUR varð í gær, Þor-
steinn Guðmundsson, bóndi og
stöðvarstjóri að Finnbogastöðum
á Ströndum. Hefur Þorsteinn unn
ið mikið og ómetanlegt líknar-
starf í sinni sveit hvað snertir
skepnuhjálp. Þorsteinn er ekki
lærður dýralæknir, en hefur
margri kýr og kind hjálpað til að
fæða, og mörg dæmi eru þess að
hann hafi limað kálfa frá kúm,
án þess að nokkuð yrði að. Myndi
margur bóndinn í hreppnum hafa
orðið fyrir þungum búsifjum ef
hans hefði ekki notið við Auk
þess er Þorsteinn mjög fjölhæfur
maður, og má segja að öll verk
leiki í höndum hans.
A afmælisdaginn var mann-
margt á heimili Þorsteins því að
margir vildu árna honum heilla
á þessum merku tímamótum. —
Ekki gat Httnn þó sinnt gestum
sínum svo sem hann hefði viljað,
vegna þess að hans var vitjað til
þess að hjálpa kú frá kálfi um
miðjan daginn, lét hann það sitja
í fyrirrúmi fyrir gestunum. Hef-
ur hann aldrei neitað um slíka
hjálp ef til hans hefur verið leit-
að, enda hefur hann almennings-
orð á sér fyrir greiðvikni og
hjálpsemi í hvívetna. — Regína.
Lagt til að 57 manns fái
ísl. ríkisborgararétt
Skilyrði sett að þau faki upp íslenzk nöfn
ALLSHERJARNEFND Neðri deildar Aiþingis hefur lagt fram
álit sitt og breytingartillögur um það hverjum skuli veittur
rikisborgararéttur að þessu sinni. Gerir nefndin tillögur um 57
manns sem fái ríkisborgararétt. Af þeim eru 11 af dönskum ættum,
10 af þýzkum, 9 af hollenzkum (allt Karmel-nunnur), 8 af fær-
eyskum, 7 af norskum. Þær reglur sem nefndin hefur aðallega farið
eftir eru þessar: að umsækjandi hafi gott orð um alla hegðun og
framkomu. Einhleypir menn hafi átt hér lögheimili í 5—10 ár
og fari um árafjöldann nokkuð eftir þjóðerni, o. fl.
Nefndin leggur til að eftirtaldir menn fái ríkisborgararétt, að-
eins fyrsta nafn tekið:
Anton Árge, verkamaður í Reykja
vík, færeyskur.
Anges Bakker, nunna, hollenzk.
Anna Ballering, nunna, hollenzk.
Erich G. H. Benske, verzlunarmað
ur í Reykjavík, þýzkur og kona
hans Sesselja Guðmundsdóttir.
Hans J. H. Beth, húsgagnasmiður
í Borgarfirði, þýzkur.
Hans P. Christoffersen, hygginga
verkamaður, ^íureyri, danskur.
Elisabeth Clausen, húsmóðir, —
Reykjavík, norsk.
Giinther W. H. Doretz, vinnupilt-
ur, Miðfelli, Hrunamannahreppi
þýzkur.
Einar G. V. Einarsson, járnsmið-
ur, Akranesi, kanadískur.
Maria A. H. M. A. van Fulpen,
nunna, Hafnarfirði, hollenzk.
George F. Gazely, verzlunarmað-
ur, Reykjavík, enskur.
Guðrún Ólafsdóttir, Reykjavík,
fædd á íslandi.
VeL'k ancli óbripar:
Kaldur sunnudagur.
SÍÐASTI sunnudagur kom flatt
upp á marga með sólbjart-
an hörkugadd og norðannæðing.
Dagarnir fyrir helgina höfðu
verið mildir og vorlegir og fólk-
ið var komið í hálfgert vorskap,
krakkarnir búnir að kasta af sér
vettlingum og treflum og smá-
stelpurnar farnar að hoppa í
höfum við líka heyrt öðru hvoru
að undanfömu fregnir um hafís
við strendur landsins og hann
hefir ekki hingað til verið ís-
lands börnum neinn vorboði.
R‘
Parísarleiknum um allar götur,
rjóðar og ánægðar með lífið. Það
er annars ástæða til að benda
ykkur á, telpur mínar, að það er
hættulegur leikur að leika sér í
París úti á akbrautunum þar sem
bifreiða umferð er, enda er slíkt
algerlega bannað.
Ekki vert að vera of
bjartsýnn.
JÁ, ÞAÐ var mörgum kalt á
sunnudaginn, fólk sást hlaup
andi í sprettinum um götur bæj-
arins, sérstaklega í úthverfunum,
þar sem vegalengdirnar eru meiri
en í miðbænum. Og það var ekki
aðeins vindurinn og frostið, sem
það var að flýja undan, sem fæt-
ur toguðu, heldur líka mold- og
steinrykið, sem þyrlaðist í stór-
um skýjum eftir vegunum, það
var ekkert gaman að fá þann
ófögnuð inn á sig — til viðbótar
frostinu. En nú hefir hlýnað í
veðrinu aftur, þótt e'kki sé hann
reyndar hlýr á vangann enn —
en við erum heldur ekki nema í
marzmánuði ennþá og það er
engin nýbóla, að hann sé svalur
og kuldalegur. Það borgar sig
aldrei að vera mjög bjartsýnn
um veðurfarið á þessum tíma
érsins, hér á norðurslóðum og svo
Verkfallið í fullri
hörku.
EYKVÍKINGUR skrifar:
„Verkfallið stendur yfir af
fullri hörku og litlar líkur þykja
fyrir því, að bráðlega muni úr
því rætast, þrátt fyrir langa fundi
deiluaðilja og sáttanefndar. Það
er dauði yfir athafnalífi höfuð-
borgarinnar, enda þótt allur
þorri verkafólksins, sem stendur
að verkfallinu brenni í skinninu
eftir að vinna pg uni þessu á-
standi hið versta. — Verkfalls-
verðir standa vörð um, að boði
verkfallsins sé hlýtt í hvívetna
og ganga oft harðar eftir en þeir
hafa nokkurn lagalegan rétt til.
Það er ekki annað en alltaf skeð-
ur, þegar til verkfalls kemur hér.
E'
Hversvegna er það
látið líðast?
N MÉR er spurn, hversvegna
er það látið líðast, að hinir
svokölluðu verkfallsverðir, sem
margir hverjir eru ekki annað
en ábyrgðarlausir ofstopaseggir,
eru látnir komast upp með hvers-
konar strákslæti og bófahátt,
misþyrmingar á mönnum og
slettirekuhátt, sem er algerlega
óþolandi. Ég hirði ekki um að
nefna hér einstök dæmi, þar eð
þau eru öllum bæjarbúum nægi-
lega kunn. Við viljum virða verk-
fallið sem slíkt á meðan því er
framfylgt af sanngirni og sæmi-
legum aga.
Við viljum hinsvegar engan
veginn una við uppvöðslu rétt-
lausra æsingamanna, sem látnir
eru leika lausum hala í skemmd-
arfýsn sinni. Við krefjumst þess,
að þeir verði látnir sæta réttlátri
laganna refsingu, svo sem atferli
þeirra gefur tilefni til hverju
sinni. — Reykvíkingur".
Merkið, sem
klæðir Iandið
Odni Gærdbo, klæðskeranemi,
Reykjavík, færeyskur.
Leif B. Hansen, járnsmiður,
Reykjavík, danskur,
Niels M. Hansen, vefari á Akur-
eyri, danskur.
Leifur G. Hæslund, verkamaður,
Reykjavík, danskur.
Otto Ö. G. Haslund, verkamaður,
Reykjavík, danskur.
Helgi N. V. Einarsson, lögreglu-
þjónn, Akranesi, kanadískur.
Sigrid J. E. Holboe, húsmóðir,
Reykjavík, dönsk.
Christa E. Holz, húsmóðir, Reykja
vík, þýzk.
Betzy E. A. Jacobsen, húsmóðir,
Reyk.javík, færeysk.
Tröndur Jacobsen, verkamaður,
Stykkishólmi, færeyskur.
B.jarne O. Jensen, verzlunarmað-
ur, Reykjavík, danskur.
Erik F. Jensen, trésmiður, Rvík,
danskur.
Jörgen Jörgensen, verkamaður,
Reykjavík, norskur.
Kári Guð.jónsson, sjómaður, Rvík,
fæddur í Noregi.
Julius I. K.jærvik, matsveinn,
Reyk.javík, norskur.
Maria E. A. Knippen, nunna,
hollenzk.
Reidar Kolsöe, stýrimaður, Reykja
vík, norskur.
Else M. C. Krog, húsmóðir, Reykja
vík, færeysk.
Per Krogh, vélfræðingur, Reykja-
vík, norskur.
Dietrich Kuhn, námsmaður, Rvík,
þýzkur.
Fridthjof J. Lam'brechts, sjómað-
ur, Kópavogi, norskur.
Lorens Lorensen, bústjóri, Skála-
túni, Mosfellssveit, þýzkur.
Berta E. Machnitsky, ráðskona,
Sveinsstöðum, Lýtingsstaða-
hreppi, þýzk.
Hans W. May, járnsmiður, Reykja
vík, þýzkur.
Josefa J. M. van der Meer, nunna,
hollenzk.
Evald Mikson, íþróttakennari,
Reyk.javík, eistnezkur.
Johann F. J. Moravek, hljómlistar
maður, Kópavogi, austurrískur.
Alfred L. J. Múnch, matreiðslu-
maður, Reykjavík, þýzkur.
Lydia O. Niclassen, húsmóðir,
Reykjavík, færeysk.
Niels S. G. Nielsen, verkamaður,
Borgarfjarðarhreppi, færeysk-
ur. —
Adolf B. Petersen, verkamaður,
Reykjavík, fæddur á íslandi.
Arne I. Petersen, hljóðfærasmiður,
Reykjavík, danskur.
Walter R. Petty, verzlunarmaður,
Reykjavík, enskur.
Bernadotte A. M. van der Poel,
nunna, hollenzk.
Olaf M. A. Poulsen, iðnnemi,
Reyk.javík, bandarískur.
Maria M. C. P. Rannsyn, nunna,
hollenzk.
Erika A. M. L. Spitzer, húsfrú,
Reyk.javík, þýzk.
Peter A. Tavsen, sjómaður, Hofs-
ósi, færeyskur.
Flemming Thorberg, sjómaður,
Reykjavík, danskur.
Herbert P. Ward, verkamaður,
Reykjavík, írskur.
Miriam W. M. Wesseling, nunna,
hollenzk.
Arne K. M. Wind, landbúnaðar-
verkamaður, suður-Reykjum, —
Mosfellssveit, danskur.
Else K. Wind, húsmóðir, Syðri-
Reykjum, dönsk.
Margarethe de Zeeuw, nunna,
hollenzk.