Morgunblaðið - 29.03.1955, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 29. marz 1955
MORGUNBLAÐIÐ
11
Jóharrn Bárðarson íram-
kvæmdastjóri
— Sjúklingurinn lifði
F. 17. júní 1883
D. 20. marz 1955
VINIRNIR hverfa einn og
einn út yfir móðuna miklu
— einn nú og annar þá, en sökn-
uður og tóm sitja eftir. Skarð er
fyrir skildi, því kærari vinur,
því stærra skarð. — Nýir vinir
fylla ekki þau skörð. Það er per-
sónuleikinn, sem vér unnum.
Sérkenni hans, sem hafa auðgað
líf vort, eru oss kær. í þeim
skilningi getur aldrei komið
maður í manns stað. Sjóð eigum
vér að vísu endurminninga og
metum sem fjársjóð, er vér vild-
iim með engu móti án vera. En
Ijúf minning um látinn vin vek-
ur þó söknuð. Hér er horfinn sá
vinur, sem mikill var í tryggð og
í mörgu sérstæður. Seint mun
hann gleymast þeim, er gjörla
þekktu hann. Mér var til happs
að kynnast honum ungur og
þekkja hann lengi. Kær var hann
mér og kær mun hann mér verða.
Sérhver minning um hann vekur
mér söknuð.
Jóhann Bárðarson var Vest-
firðingur, Bolvíkingur að ætt og
uppruna, sonur hjónanna Bárðar
Jónssonar, bónda, og Valgerðar
Jakobsdóttur að Hanhóli í Bol-
ungarvík. Ólst hann þar upp hjá
þeim, lærði síðan trésmíði og
stundaði húsasmíði um nokkur
ár. — Þrítugur hóf hann verzl-
unarstörf í Bolungarvík. Hann
gegndi þar ýmsum trúnaðar-
störfum, var m. a. hreppsnefnd-
armaður á annan áratug, oddviti
hreppsnefndar um nokkur ár og
hreppstjóri. Landsimastjóri var
hann í Bolungavík'árin 1916—’20.
Hann var því í flokki forustu-
manna sveitarfélagsins um all-
langt skeið. — Hann var maður
vel að sér ger til sálar og lík-
ama. Tók hann vandamálin föst-
um tökum, var glöggskygn og
framsýnn og því aðgætinn. í
málflutningi mun hann hafa ver-
ið einarður og fylginn sér, vel
máli farinn.
Árið 1923 flutti Jóhann heim-
ili sitt frá Bolungarvík til ísa-
fjarðar, og gerðist hann þá fyrst
meðeigandi í timburverzluninni
„Björk“, en síðar einkaeigandi
verzlunarinnar. Rak hann þá
verzlun þar til hann fluttist tii
Reykjavíkur 1936. Um skeið var
hann bæjarfulltrúi á tsafirði.
Síðan til Reykjavíkur kom,
hefur Jóhann Bárðarson verið
framkvæmdarstjóri fyrir timbur-
verzlunina „Skóg“ og síðar
„Brautina" og seinustu árin
framkvæmdarstjóri fyrir þvotta-
húsið ,,Lín“.
Jóhann Bárðarson átti sér
hugðarefni, sem hann iðkaði í
tómstundum og fyrir þá tóm-
stundaiðju varð hann þjóðkunn-
ur maður, bæði sem rithöfundur
og fræðimaður. Eftir hann hafa
birzt þrjár bækur: Araskip
(1940), Brimgnýr (1943) og smá-
ritið: Séra Páll Sigurðsson, minn-
ingarorð (1949).
Fyrsta bók hans, Araskip, ber
það með sér ótvírætt, að því er
mér virðist, að höfundur hafði
góða rithöfundarhæfileika,en hún
ber einnig vott um ágætan fræði-
mann. Hann var vandur að heim-
ildum og nákvæmur í vinnu-
brögðum, leitaði sérhverju at-
riði áreiðanlegrar staðfestingar,
svo sem kostur var á, enda mun
honum hafa tekizt að gera þessa
frumsmíð sína svo úr garði, að
teljast mun merk bók, sem vafa-
laust verður mikils metin af
komandi kynslóðum og heldur
lengi á lofti nafni höfundarins.
Það er sómi fyrir Bolungarvík,
að sonur hennar skyldi verða til
þess að rita svo glögga og lifandi
lýsingu á hinum forna atvinnu-
vegi, sjóróðrum á opnum bátum,
og varðveita þannig frá yfirvof-
andi gleymsku fjölda mörg menn
ingarsöguleg verðmæti úr elztu
verstöð landsins.
En þannig vora vinnubrögð Jó-
hanns Bárðarsonar. Allt, sem
hann vann, var af kostgæfni gert
og snyrtimensku, enda átti
hann traust allra, er þekktu hann
náið.
Minningarorð
Hinn 6. des. 1908 kvæntist Jó-
hann Guðbjörgu Pétursdóttur
frá Hafnardal við Djúp, mikilli
myndarkonu. Áttu þau tvær dæt-
ur barna. Hafa þau hjónin fyrr
og síðar átt hið ágætasta heimili
enda verið samhent um það bæði
að hlúa að því og prýða það.
Mæðgunum Guðbjörgu og dætr
um hennar, Ingibjörgu og Ragn-
heiði, votta ég innilegustu sam-
úð í sárum harmi og bið þeim
blessunar Guðs.
Svo kveð ég með þakklæti
kæran, tryggan vin í eftirsjá. —
Og það skal ekki dulið, að ég
kveð hann í trú, trú á þann sama
, Drottin, sem Haligrímur segir
um:
Með sínum dauða hann deyddi
dauðann og sigur vann,
makt hans og afli eyddi,
ekkert mig skaða kann.
Eítir föstutímann kemur heilög
páskahátíð.
Ingólfur Ástmarsson.
EITT af því þungbærasta við
ellina er sú einmanatilfinn-
ing, sem gamalt fólk ber jafnan
í brjósti. Þrátt fyrir það þótt
gamall maður sé umkringdur
vandamönnum, sem vilja allt
fyrir hann gera, þá er hann ein-
mana í þeim skilningi, að sam-
ferðamenn hans eru horfnir af
taflborði lífsins.
Hann hóf líf sitt og starf í
fylgd með ákveðnum hópi manna
— lifði sín manndómsár í sam-
starfi og samfylgd með þeim. En
þeir hafa horfið, einn eftir ann-
an, allir sömu leið. Og loks stend-
ur gamli maðurinn einn eftir og
á ekki lengur samleið með nein-
um af þeim, er nú standa í önn
dagsins. Það er þessi tilfinning,
sem grípur mig í hvert sinn, er
ég sé á bak samferðamönnunum,
sé þá hverfa í dauðans djúp. —
Minningarnar um þá standa ein-
ar eftir og vekja í sálunni sökn-
uð og trega.
Dauðinn lætur skammt högga
1 í milli. — Frá fyrstu kennara-
! árum mínum í Bolungarvík man
1 ég glöggt eftir ljóshærðum, svip-
hreinum, glöðum og vel gefnum
dreng, dreng, sem var hvers
manns hugljúfi. Hann var bor-
inn til grafar fyrir tveim dög-
um. Það var Skúli Eggertsson
rakari. — í dag er borinn til
grafar sá maður, sem ég á einna
bjartastar minningar um — minn
ingar frá löngu liðnum dögum.
Það er Jóhann Bárðarson for-
stjóri.
Fæddur var hann á litlu sveita
býli í Syðridal í Bolungarvík,
var af fátæku fólki kominn og
eigi til mennta settur, nam tré-
smíði, stundaði þá iðn um skeið,
gerðist síðan kaupmaður, síðar |
framkvæmdastj. fyrirtækja, sem
hann stofnaði og loks rithöfund- |
ur á efri árum. — Þetta læt ég 1
nægja um ævistörf Jóhanns, því :
að vissulega skiptir það ekki'
máli hvað maðurinn vinnur,1
heldur hvernig hann leysir af
hendi þau störf, er örlögin út-
hluta honum.
Þegar ég kom til Bolungarvík-
ur árið 1912, var Jóhann Bárðar-
son tæplega þrítugur að aldri,
stóð í blóma lífsins, hafði byggt
sér snoturt, en lítið hús, var
kvæntur góðri og glæsilegri
konu, átti tvær litlar og elsku- (
legar dætur og snoturt og hlý-
legt heimili. Hann var þá í
hreppsnefnd, varð oddviti á
næsta ári, síðar hreppstjóri og
símstöðvarstjóri og hélt þeim
störfum, unz hann fluttist til
ísafjarðar árið 1920. Öll þessi
störf leysti Jóhann af hendi með
mikilli prýði og ekki vissi ég til
þess, að hann ætti nokkurn ó-
vildarmann í byggðarlaginu. |
Það varð ekki komizt hjá því j
að veita þessum manni eftirtekt,
enda vakti hann þegar í stað,
óskipta athygli mína, og tókst
fljótt með okkur kunningsskap-
ur og síðar vinátta, sem entist
alla tíð síðan.
Þegar ég kynntist Jóhanni,
sannfærðist ég fljótt um það, að
það er sitthvað að vera lærður
maður og menntaður maður. Jó-
hann var óskólagenginn, en hann
var menntaður maður, sjálf-
menntaður í þessa orðs beztu
merkingu, hafði lesið mikið og
var svo rökrænn í hugsun, að af
bar. — Skemmtilegastar minn-
ingar á ég um Jóhann frá sam-
starfi okkar í félags- og skemmt-
analífi Bolungarvíkur. Þrátt fyrir
annir við opinber störf, gaf hann
sér tóm til að taka virkan þátt
í félagslífi og leikstarfsemi í
þorpinu og reyndist hann þar
sem í öðru hinn bezti starfs-
maður og ágætasti félagi. Frá
þeim tímum er á fjölmargt
skemmtilegt að minnast.
Jóhann var prýðilega hagmælt-
ur, eins og mörgum er kunnugt,
en þótt undarlegt megi virðast,
varð ég þess aldrei var fyrr en
á efri árum hans.
Og nú er þessi trygglyndi og
vel gefni maður horfinn — horf-
inn fyrir fullt og allt, en minn-
ingarnar lifa bjartar og heiðar
eftir.
Þegar samferðamennirnir
hverfa, verður mér stundum á
að spyrja: Sjáumst við þá aldrei
aftur? Hver veit? — — Og þá
flýgur mér í hug þessi vísa Bólu-
Hjálmars:
Húmar að mitt hinzta kvöld,
horfi ég fram á veginn,
gröfin móti gapir köld,
gref ég á minn vonarskjöld
rúnir þær, sem ráðast hinum
megin.
Guð blessi minningu Jóhanns
Bárðarsonar og eftirlifandi ást-
vini hans.
Sveinn Halldórsson.
Framh. af bls. 1 |
hún í einstökum smáatriðum
skýrð fyrir okkur.
BLAÐAUMMÆLI
'l blaðaúrklippu, sem hinn ísl.
læknir sendi hingað heim, segir
m. a. svo:
Tilgangurinn með smíði vél-
arinnar var sá, að læknar
fengju tíma til þess að vinna |
að aðgerð í hjartanu á með-
an vélin annaðist störf hjart-
ans. Ef litla telpan lifir að-
gerðina, táknar þetta tímamót.
Mörgum klukkustundum eftir
aðgerðina var líðan telpunnar
sögð hin ákjósanlegasta. Lifi
hún, verður hún þriðja mann-
eskjan sem lifir slíka hjarta-
aðgerð, en svipuð „vél“ var
nýlega reynd í Svíþjóð við
svipaða aðgerð og tókst sú
aðgerð vel.
Það eru læknar er starfa við
Mayo-stofnunina sem eiga hug-
myndina að „hjarta-lungna vél-
inni“ og undir þeirra stjórn var
hún smíðuð. Þeir voru einnig að-
stoðarlæknar er vélin var reynd
og skurðaðgerðin á telpunni
framkvæmd.
Margir læknar hafa reynt að
finna aðferð til slíkrar hjarta-
aðgerðar. Bandaríkjamanni tókst
að gera vél, sem reyndist vel við
fyrstu tilraun, svo að sjúkling-
urinn lifði, en síðan hefur hon-
um ekki tekizt að endurtaka að-
gerðina. Svo er tilfellið frá Sví-
þjóð, sem áður er nefnt og litla
telpan 5 ára er þriðja mann-
eskjan er lifir það, að hjarta
hennar sé opnað.
VÉLIN
Hin nýja vél samanstendur af
pumpu — eða „hjarta“ sem dæl-
ir blóðinu um líkama sjúklings-
ins og í öðru lagi „oxygenator“
eða „lungum“, sém endurnýjar
súrefnismagn blóðsins.
Skurðagerðin á litlu telpunni
tók 6 klukkustundir og þar af
stóð aðgerðin á hjarta litlu.telp-
unnar yfir í 40 mínútur.
Þann tíma annaðist vélin störf
hjartans.
Slíkar hjartaaðgerðir hafa ver-
ið reyndar með ýmsum aðferð-
um áður, t. d. með því að láta
hjarta annars manns annast
hjartastarfsemi þins sjúka. En.
það hefur ekki gefizt vel. Skurð-
aðgerðin sem gerð var í Rochest,-
er s. 1. þriðjudag er þeim mun
athyglisverðari. Hún kann að
þýða, að lífi fjölmargra barna
verði bjargað á ókomnum árum.
Framh. af bls. 7
Þrístökk án atrennu:
ísl.m.
Friðl. Stefánsson KS 9,61
2. Daníel Halldórsson ÍR 9,55
3. Vilhjálmur Ólafsson ÍR 9,38.
4. Guðm. Valdemarsson KR 9,23
J AUKAKEPPNIN
Kúluvarp: 1. Guðm. Hermanns-
i son KR 14,92 m, 2. Skúli Thor-
arensen ÍR 14,82 m, 3. Ágúst
Ásgrímsson ÍM 13,44, 4. Þorsteinn
Löwe KR 13,39 m.
Hástökk: 1. Gísli Guðmunds-
son Á 1,85 m, 2. Sig. Lárusson
Á 1,70 m, 3. Pétur Rögnvaldsson
KR 1,65 m og Björgvin Hólm
ÍR 1,65.
BEZT AÐ AUGLÝSA
1 MORGUTSBLAÐINU
MVKOMIÐ
Herraskyrtur, hvítar og mislitar, mjög vandaðar.
Amerískir morgunkjólar, stór og lítil númer.
Vefnaðarvöruverzlunin Týsgötu 1
Sendum í póstkröfu — Sími 2335
íbúð óskast til leigu
2ja—4ra herbergja íbúð óskast. — Há leiga og mikil
fyrirframgreiðsla í boði. — Tilboð sendist afgr. Mbl.
merkt: „B. H. — 823“.
HEILDSÖLUR -
Vanur sölumaður, sem ferðast mikið um landið, óskar
eftir að komast í samband við heildverzlanir og verk-
smiðjur sem hafa áhuga á að selja vörur sínar um land-
ið. — Tilboð merkt: „Sýnishorn 815“. sendist Mbl. fyrir
fimmtudagskvöld.
Afgreiðsl umaður
Vanan afgreiðslumann vantar oss nú þegar.
Kjötverzlun Tómasar Jónssonar
Laugavegi 2.
Þessi ágætu sjálfvirku
Olíukynditæki
fást hjá okkur og kosta
aðeins kr. 3995,00 með öll
um venjulegum öryggis-
tækjum.
VÉLA- og RAFTÆKJA-
VERZLUNIN
Bankastr. 10 sími 2852
Rafgeymar
6 volta, 90 amper, 125 amper, 135 amper, 150 amper
og 200 amper. — Hlaðnir og óhlaðnir.
Véla- & raftækjaverzlunin h.f.
Tryggvagötu 23. — Sími 81279.