Morgunblaðið - 04.10.1955, Blaðsíða 16
VeSurúflif í dað:
Stinningskaldi V og skúrir.
fHtvgtntMftMfr
Próf
í knattspyrnu. Sjá grcin á bls. 9.
225. tbl. — Þriðjudagur 4. október 1955
I
Mjög fjölsótt héraðs
mót í Kjósarsýslu
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Kjósarsýslu var haldið síðast-
liðinn laugardag að Hlégarði í Mosfellssvcit. Var hið stóra
•■samkomuhús þétt skipað, en þó komust ekki allir að, er óskuðu.
Formaður Sjálfstæðisfélagsins
„Þorsteinn Ingólfsson", Gísli
Tireppstjóri Andrésson á Hálsi,
;setti mótið og stjórnaði því. Bauð
Iiann forsætisráðherra og frú
'hans sérstaklega velkomin og lét
’d ijós þá ósk, að enda þótt sumarið
Tiefði reynzt héraðsbúum erfitt,
I;iá gleymdu menn áhyggjunum í
kvöld.
Ólafur Thors, forsætisráðherra,
flutti aðalræðu mótsins. Var ræða
lians snjöll sg ítarleg og fjallaði
‘cingöngu um stjórnmálin.
Ólafur Bjarnason, hreppstjóri
í Brautarholti, flutti skörulegt
ávarp um sýslumál og sýslubúa.
Ræðumönnum öllum var mjög
vel fagnað.
Hinir ágætu listamenn Kristinn
Hallsson, óperusöngvari, Fritz
Weisshappel, píanóleikari, og leik
ararnir Valur Gíslason og
Klemenz Jónsson skemmtu við
góðar undirtektir, en síðan var
stiginn dans til kl. 2 um nóttina.
Ásbjörn Sigurjónsson, fram-
kvæmdastjóri, Álafossi, annaðist
allan undirbúning mótsins af sín-
um alkunna dugnaði.
Frábærilega góð sala á
Berklavarna-merkjunum
Morris-bifreiðin kom upp á nr. 69
Á berklavarnadaginn s. 1.
sunnudag voru undirtektir al-
mennings undir merkjasölu
SÍBS frábærlega góðar. Skrif-
stofa sambandsins hafði ekki
enn í gær fengið upplýsingar
um heildarsölu á merkjum og
timariti sambandsins, en ljóst
er að salan hefur verið meiri
en nokkru sinni fyrr.
■Á T. d. er það nú Ijóst að merki
seldust í Reykjavík fyrir 211
þús. kr. á móti 145 þús. kr. í
fyrra. Og talið er að tímaritið
hafi selzt í 12,500 eintökum.
Víða um land seldust bæði
merki og tímarit upp.
★ í lokuðu hólfi á merkjum
dagsins var prentað happ-
drættisnúmer og var dregið
um aðalvinninginn í gær í
skrifstofu borgarfógeta. Kom
upp nr. 69. Eigandi merkis
með því númeri hefur því
hlotið 4. manna Morris-bif-
reið. Verður bifreiðin afhent
nú þegar gegn framvísun
merkisins í skrifstofu SÍBS í
Austurstræti.
G-lislinn hélt meirihluta
sinum í Kópavogi
Sjálfstæðismenn juku verulega alkvæiamagn sift
Á SUNNUDAGINN fóru fram bæjarstjórnarkosningar í hinum
t* nýstofnaða Kópavogskaupstað. Skyldi kjósa 7 bæjarstjórnar-
fulltrúa. Mikil kosningaþátttaka var, eða nærri 90%. Hlaut G-listi
kommúnista meirihluta fulltrúanna eða 4, Sjálfstæðismenn hlutu 2
kjörna og Framsóknarmenn einn. Listi Alþýðuflokksins kom eng-
um að.
Forsæfisráðherra
talar á fultrúaréðs-
hindi í kvöld
Ólafur Thors, forsætisráðherra.
FULLTRÚARÁÐSFUNDUR Sjálf
sæðisfélaganna í Reykjavík verð-
ur haldinn í Sjálfstæðishúsinu í
kvöld kl. 8,30.
Formaður Sjálfstæðisflokksins,
Ólafur Thors, forsætisráðherra,
verður málshefjandi um viðhorf-
ið í landsmálum.
Alþingi kemur saman n.k.
laugardag og mun forsætisráð-
herra gera að umræðuefni ýmis
þau viðfangsefni, sem fyrir þing-
inu liggja.
Skip! um menn I
valdastólum
LUNDÚNUM, 3. okt. — Georghie
Dej forsætisráðherra Rúmeníu
hefur látið af embætti í því skyni
að taka við embætti aðalritara
kommúnistaflokks Rúmeníu.
Nýr forsætisráðherra hefur ver
ið skipaður — 45 ára gamall
bóndasonur, Stoiea, sem verið
hefur í kommúnistaflokknum
síðan 1930. Jafnframt hafa verið
gerðar miklar breytingar á ríkis-
stjórn landsins. — Reuter-NTB
IfVERNIG ATKVÆÐI
FÉLLU
Á kjörskrá voru 1685. Af þeim
kusu 1495. — Atkvæði skiptust
þannig að A-listi fékk 115 atkv.
B-listi 273, D-listi 349 og G-listi1
740. 3 seðlar voru ógildir og 15
auðir.
ÚRSLIT FYRRI KOSNINGA
Við síðustu hreppsnefndar-
kosningar í Kópavogi voru 1144
á kjörskrá. 997 gild atkvæði
skiptust þá þannig milli list-
anna: A-listi 132 atkv., B-listi
196, D-listi 231 atkv. og G-listi
438 atkv.
Síðan þær kosningar fóru fram
hefur fjölgað um nærri 500 á
kjörskrá. Úrslit bæjarstjórnar-
kosninganna á sunnudaginn sýna
að Sjálfstæðismenn og kommún-
istalisti Finnboga Rúts hafa hlut-
fallslega unnið á, en Alþýðu-
flokkurinn og Framsókn hafa
tapað verulegu fylgi.
PARÍS. — Fjölmargir blaðamenn
í París þustu til Sherbourg s.l.
mánudag. Höfðu þeir fengið
fregnir u mað Rita Heyworth
væri með „Queen Mary“ og væri
á leið til fundara við Ali Khan
«inn fyrrv. eiginmann. En þegar
skipið kom að bryggju kom í ljós
að kvikmyndadísin var alls ekki
með.
Lítil flugvél hrapar í Borgarfirði
Flugmaðurinn og stúlka, sem var
farþegi, stórslösuðust
ASUNNUDAGINN varð flugslys hjá Stóra-Kroppi i Borgarfirði,
er lítil flugvél hrapaði til jarðar, og flugmaðurinn og stúlka,
sem var farþegi í vélinni, stórslösuðust. Var náð í þau í annarri
flugvél og þau flutt í Landsspítalann.
Dregið um jeppa og
ia herb. íbúð
3ja
Sát vonbrigði brezku togaraeigendanna:
Islenzkir blaðamenn neit-
I
uðu að ræða lamlhelgina!
v - I •
Fishing News segir frá kokkfeil-M; þar sem allir
forkólfar fogaraeigenda heiðruðsi samkvæmið með
nærvem sinni j
UM þessar mundir eru fjórir íslenzkir blaðamenn í kynnisför um
Bretland. Þeir eru Axel Thorsteinsson frá Vísi, Sigvaldi
Hjálmarsson frá Alþýðublaíinu, Sverrir Þórðarson frá Morgun-
blaði-nu og Þórarinn Þórarinsson frá Tímanum. Með þeim í förinni
er Brian Holt. í síðasta eintaki brezka fiskveiðitímaritsins Fishing
News bregður svo skyndilega við, að þar er ýtarlega sagt frá heim-
sókn íslenzku blaðamannanna og að lokum er stór forustugrein
blaðsins rituð um komu þeirra.
"fÁ CARLTON HOUSE TERRACE
í Fishing News er skýrt frá
því að upplýsingadeild brezka
utanríkisráðuneytisins hafi hald-
ið kokkteil-boð á Carlton Housa
Terrace í London og boðið þangað
m. a. ýmsum forustumönnurai
brezkra togaraeigenda.
Segir blaðið að þessir forustu-*
menn brezku togaraútgerðarinn-
ar hafi átt örðugt um vik aft
sækja boðið. En þeir lögðu á sig
mikla fyrirhöfn til þess að sýna
íslenzku blaðamönnunum Þ*
virðingu að mæta í boðinu.
ALLIR FORKÓLFARNIR
Þarna mættu m. a. J. Croft
Baker, forseti félags togaraeig-
enda, sem hafði að vísu verið
veikur, en lagði á sig langferð
frá Lowestoft, R. P. Ross forseti
togareigendafélagsins í Hull, H.
W. Crampin forseti félagsskapar-
ins í Grimsby og Ray ritari fé-
lagsskaparins, sem og fjöldi ann-
arra togaraútgerðarmanna. Ætl-
un þessara háttsettu manna vat
að samræður við íslenzku blaða-
mennina mættu leiða til skiln-
ings og endanlega ef til vill sam-
komulags í landhelgisdeilunni. •
TEKIÐ AÐ „MULDRA“
Frásögnin heldur áfram á þá
leið, að þarna hafi brezku togara-
eigendurnir orðið fyrir sárum
vonbrigðum, því að íslenzku
blaðamennirnir hafi allir sem
einn neitað að ræða nokkuð um
landhelgisdeilu. Svo að í hópi
veizlugestanna fór nú að heyrast
muldrað „tímanum eytt til einsk-
is“, segir Fishing News. j
I GÆR var dregið í 6. flokki
Happdrættis Dvalarheimilis aldr
aðra sjómanna. Vinningar voru
Willys-jeppi með stálhúsi og 3.
herbergja íbúð í Hamrahlíð 21.
Jeppinn kom á miða nr. 49013
og íbúðin á nr. 10702. Báðir þess-
ir miðar voru seldir á Kefla-
víkurflugvelli.
Léleg reknetjavelði ■
Akranesbáfa
AKRANESI, 3. okt. — Átta rek-
netjabátar komu hingað í dag og
var síldin yfirleitt treg. Bátur-
inn, sem hæstur var, fékk rúm-
ar 70 tunnur.
Vatnajökull liggur nú við
hafnargarðinn og losar 600 lestir
af sementi til H. Böðvarssonar
& Co. —O.
„Jeppi á Fjalli"
sýndur á Akranesi
AKRANESI, 3. okt. — Vetrar-
starfsemi Leikfélags Akraness
hófst laust eftir miðjan septem-
ber með því að einn bezti leik-
listarfrömuður Norðlendinga, Jón
Norðfjörð, var ráðinn til leik-
stjórnar í sumarleyfi sínu. Set-
ur hann nú á svið Jeppa á Fjalli,
hinn vinsæla gamanleik Hol-
bergs, í þýðingu Lárusar Sigur-
björnssonar.
Æfingar ganga ágætlega og
vonir standa til að hægt verði
að sýna leikritið um miðjan
þennan mánuð. Jón Norðfjörð
stjórnaði hér í fyjríra franska
„Æfintýrinu". —O.
1
HIN FULLKOMNA
BREZKA SKAPGERÐ
Þetta sýnir, segir blaðið hina
mismunandi skapgerð þjóðanna.
Það er brezkur vani og venja að
rökræða skoðanaágreining og
og reyna að finna leið, sem geti
leitt til skilnings. Út úr þessu
gefst blaðinu síðan tækifæri til
ýmiskonar heimspekilegra bolla-
legginga.
HLUTU MIKIL MEIÐSL ^
Flugmaðurinn, Ámundi Ólafs-
son, fór í lítilli flugvél, er Flug-'
skólinn Þytur á, upp að Stóra-1
Kroppi ásamt öðrum manni. Þar j
var þá stödd frænka hans, Júlí-
ana Helgadóttir (þau eru bræðra-
börn), ásamt fleira fólki. Bauð
Ámundi Júlíönu að fljúga með
hana yfir Borgarfjörðinn, en er
hann hafði nýlega hafið vélina !
til flugs hrapaði hún til jarðar.
Fóru flugvélar frá Þyt þegar
upp að Kroppi og fluttu hin slös-
uðu til Reykjavíkur, þar sem þau
voru lögð í Landspítalann. Hafa
þau bæði hlotið mikil meiðsli,
m. a. fótbrotnað á báðum fótum
og skaddazt meira.
Flugvélin mun alveg ónýt, en j
reynt verður að komast að því, i
hver orsök slyssins var. I
Strætisvagn á Akurcyri |
2000 börn með vaqninum fyrsfa daqinn
Mikil hrifning á lón-
leikum Ricci's j
AMERÍSKI fiðluleikarinn Rugi-
ero Ricci hélt tónleika í gær-
kvöldi fyrir styrktarfélaga Tón-
listarfélagsins. Á efnisskránni
voru sónötur eftir Vivaldi, Beet-
hoven og Brahms, Chaconne eftir
Bach, auk þess verk eftir Smet-
ana, Tsjaikofsky, Skrjabín og
Paganini. Listamanninum var tek
ið framúrskarandi vel og varð
hann að leika 3 aukalög. Ernest
Ulmer píanóleikari aðstoðaði. —
Tónleikarnir verða endurteknir í
kvöld.
Arinbiörn
°g
J?
AÐEINS tveimur skákum varð
lokið í gærkvöldi á skákþinginu.
Arinbjörn og Pilnik skildu jafn-
ir og sömuleiðis Baldur Möller
og Jón Einarsson. Hinar skák-
irnar fóru í bið.
STRÆTISVAGNAFERÐIR hóf-
ust á Akureyri á laugardaginn og
er það Norðurleið h.f. sem hefur
rekstur vagnsins með höndum ea
hefur fengið 15 þús. kr. fjárveit-
ingu úr bæjarsjóði. Stendur þessl
tilraun í einn mánuð.
Til að byrja með sóttu ferðitt
vagnsins mestmegnis börn og £
sunnudag mun vagninn hafa flutt
um 2000 börn. Varð um tíma að
taka aukavagn í notkun til að
anna eftirspurninni.
Strætisvagninn mun ganga frá
kl. 7 um morgna til 21 að kvöldi
og fer um allan bæinn — innst
frá Aðalstræti, efst upp á brekku,
út á Oddeyrartanga og til Glerár
þorps. — Nánar verður sagt frá
ferðunum síðar. ,