Morgunblaðið - 27.05.1956, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.05.1956, Blaðsíða 9
Sunnudagur 27 maí 1956. MORCIJTSBLAÐIÐ Reykjavíkurbréf: Laugardagur 26. maí Mánuður Hl kosninga - Yaraarmálin gleymdusl - Framsókn á flólta - Skírn Rannveigar - Jákvæð haráfla Sjállslæðismanna - Ná vilja allir Lilju liveðið.bafa - Hið visnaða ?ré Sellur og ósigur Hræðslubandalagsins W px H ■ r* JV' ■■ ■■■ Mánuður til kosninga í DAG er mánuður þar til alþingiskosningarnar eiga að fara fram. Öll framboð eru nú kunn og landslistar lagðir fram. Fundir stjórnmálaflokk- anna standa sem hæst og gefst kjósendum gott tækifæri til þess að kynna sér stefnur þeirra, mál- stað og baráttuaðferðir. Sjálfstæðisflokkurinn hóf fundahöld sín nokkru seinna en vinstri flokkarnir, sem töldu sér sérstaka þörf á að kynna þjóð- inni hin nýju bandalög, atkvæða- verzlunina, óheilindin og glund- roðann í röðum sínum. En hvar- vetna þar, sem Sjálfstæðismenn hafa haldið fundi, hafa þeir ver- ið vel sóttir og sýnt mikið og traust fylgi flokksins og fram- bjóðenda hans. Minntust varla á varnarmálin ÞAÐ hefur vakið allmikla at- hygli, að á fundum Hræðslu- bandalagsins úti um land, hafa leiðtogar þess varla minnzt á utanríkis- og öryggismálin. í upphafi kosningabaráttunnar leit svo út sem Tíminn ætlaði að gera samþykkt Alþingis um upp- sögn varnarsamningsins að einu aðalmáli kosningabaráttunnar. En nú er svo komið, að Hræðslu- bandalagsmenn þora varla að minnast á þessa samþykkt, sem þeir fengu kommúnista í lið með sér til að afgreiða á síðustu dög- um þingsins. Af hverju skyldi þetta spretta? Ástæðan er engin önnur en sú, að þeir hafa fundið andúð fólksins á því lánlausa og ábyrgðarlausa tiltæki að gera öryggismál þjóðarinnar að kosningabitbeini. Það er líka komið í ljós, að Framsókn meinar ekkert með forgöngu sinni um uppsögn varnarsamningsins. New York Times hefur þau ummæli eftir dr. Kristni Guðmundssyni í París, „að ekkert liggi á, að Bandarík jaher fari af íslandi“! Ummæli þessi hlýtur utanríkis- ráðherra íslands að hafa látið sér um munn fara í einkasam- tali við einhvern blaðamann eða stjórnmálamann því eins og all- ir vita, þá steinþagði hann á NATO-fundinum í París, og greiddi atkvæði með því að nauðsynlegt væri að halda áfram að efla varnarviðbúnað hinna frjálsu þjóða. Þegar á allt þetta er litið, get- ur íslenzkum almenningi ekki dulizt í hversu aumlega aðstöðu Framsóknarflokkurinn er kom- inn í þessum málum. Hann fær kommúnista í lið með sér til þess að samþykkja uppsögn varnar- samningsins án þess að hafa nokkurt samráð við bandalags- þjóðir íslendinga. Þegar til á að taka, lýsir utanríkisráðherra Framsóknar því svo yfir, að „ekkert liggi á“ fyrir Bandaríkja- liðið að fara frá íslandi. Og hann tilkynnir ekki einu sinni form- lega þá uppsögn varnarsamn- ingsins, sem samþykkt hefur ve’r- ið. Loks verður Tíminn stór reiður, þegar bandalagsþjóð okkar dregur úr varnarfram- kvæmdum sínum á Keflavík- urflugvelli vegna hinna nýju viðhorfa, sem skapazt hafa í öryggismálum Islendinga. — Framsóknarflokkurinn hefur vissulega orðið sér til mikill- ar minnkunnar fyrir þetta framferði. Verst er þó, að hann hefur orðið íslenzku þjóðinni til skammar. Skírn Rannveigar HARALDUR Guðmundsson hef- ur nú haldið Rannveigu Þor- steinsdóttur undir skírn. Hún Kannveig Þorsteinsdóttir hefur nú sagt sig úr Framsóknarflokknum og tekið sæti á framboðslista Alþýðuflokksins. .— Myndin hér að cfan sýnir, hvernig teiknari Mbl. hugsar sér skírnarathöfnina, þegar formaður Alþýðuflokksins skírði fröken Rannveigu í viður vist tveggja skírnarvotta. hefur nú sagt sig úr Framsókn- arflokknum og tekið sér sæti á sjálfum framboðslista Alþýðu- flokksins í Reykjavík. Það er nú meiri vöxturinn, sem er hlaup- inn í þann flokk. Fjórir eða fimm Framsóknarmenn í Reykjavík hafa gengið í flokk íslenzkra Jafnaðarmanna til þess að geta tekið sæti á framboðslista hans!! Nú verður Rannveig ekki leng- ur kennd við Framsóknarflokk- inn. Nú berst hún eldheitri bar- áttu fyrir hugsjónum jafnaðar- stefnunnar. Hinn gamli Fram- sóknar-Adam, þeirrar Rannveig- ar, sem sat á þingi í eitt kjör- tímabil fyrir Framsóknarflokk- inn, er nú endanlega dauður og lifnar aldrei aftur. Rannveig Þorsteinsdóttir hefur látið skír- ast undir merki Alþýðuflokks- ins! Svona grimm eru örlög ís- lenzkra Jafnaðarmanna. Þeir geta ekki lengur borið fram sjálfstæðan lista í höfuðborg landsins. Framsóknarflokkur- inn, sá flokkur, sem er and- stæðastur alira flokka hags- munum verkalýðsins verður að lána Alþýðuflokknum frambjóðendur. I staðinn fyr- ir menn úr verkalýðssamtök- unum — eða í tengslunPkvið þau, býður Alþýðuflokkurinn nú Reykvikingum upp á af- dankaða Framsóknarþing- menn! En margir draga í efa, að þessi skírn Rannveigar Þor- steinsdóttur dugi til þess að afla henni atkvæða meðal verk'afólks og launafólks í Reykjavík. Framsóknarlyktin af Alþýðuflokkslistanum er svo sterk, að allt bendir til þess, að fjöldi fólks fælist liann. Þar að auki er atkvæða- brask Hræðslubandalagsins líklega hvergi óvinsælla en meðal Reykvíkinga, sem þekkja hrekkjarbrögð hinnar gömlu maddömu frá liðnum tíma. Tvenns konar kosningabarátta ENN sem komið er, hefur það auðkennt kosningabaráttuna, að Sjálfstæðismenn hafa rætt stjórn málin á málefnalegum grundvelli, en Hræðslubandalagið og komm- únistabandalagið hafa ausið and- stæðinga sína botnlausum rógi og svívirðingum. Sjálfstæðismenn hafa bent þjóðinni á það, að aldrei hefur henni liðið eins vel og nú, aldrei hafa framfarirnar orðið eins örar i landinu og s. I. 17 ár, síðan Sjálfstæðismenn kom ust til áhrifa í ríkisstjórn. Sjálfstæðismenn hafa leitt rök að því, að á sviði sjávarútvegs- mála, landbúnaðarmála og iðn- aðarmála, hafa þeir haft forystu um stórfellda uppbyggingu, sem lagt hefur grundvöll að bættum lífskjörum almennings. Það er fyrst og fremst vegna þess, að undir forystu Sjálf- stæðismanna hefur fjármagn þjóðarinnar verið notað til kaupa á nýjum framleiðslutoekjum, sem almenningur nýtur í dag betri lífskjara en nokkru sinni fyrr. f skjóli atvihnulífsuppbygging arinnar hefur þjóðin svo getað ráðizt í miklar framkvæmdir á sviði menningarmála, heilbrigðis mála og samgöngumála. Það er Sjálfstæðismönnum mikil gleði, að einmitt nú skuli vera að rætast draumur þeirra um rafvæðingu landsins. Þegar Jón Þorláksson og Jón á Reyni- stað fluttu fyrstu tillögurnar um að veita rafmagninu til sveita og sjávarsíðu, sagði formaður Fram- sóknarflokksins að slíkt glapræði myndi „setja landið á hausinn". Og þegar Sjálfstæðismenn báru fram fyrsta frumvarpið um virkj- un Sogsins, kölluðu Framsókn- armenn það „samsæri andstæð- inga Framsóknarflokksins". En nú vilja allir Lilju kveð- ið hafa. Nú segjast Framsókn- armenn alltaf hafa verið fram herjar í baráttunni fyrir hag- nýtingu vatnsaflsins á Islandi. Nú minnast þeir ekkert á, að virkjun Grímsál á Austur- landi, Mjólkuránna í Arnar- firði og Fossár í Bolungarvík, séu „samsæri andstæðinga Framsóknarflokksins“. Nú segja þeir þvert á móti, að allt þetta sé sér að þakka. Svikin við málefnasamninginn BATNANDI mönnum er bezt að lifa. En er Framsóknarflokkur- inn annars að batna? Var það ekki hann, sem rauf stjórnar- samstarfið og sveik þann mál- efnasamning, sem rafvæðingin, húsnæðisumbæturnar og at- vinnulífsuppbyggingin byggist á? Jú, það var Framsóknarflokk- urinn. Honum er aldrei treyst- andi. Braskið og hentistefnan sit- ur alJtaf í fyrirrúmi hjá hinum mikla veiðimanni. Hann veit að vísu, að veiðimenn eiga að miða liti klæða sinna við landslagið, sem þeir veiða í. En hann kann ekki skil á því, hvaða munur er á ábyrgðarlausu braski og raun- hæfu starfi að stjórnmálum og hagsmunamálum almennings. Þai bregst honum bogalistin. Þess vegna heldur hann, að hin- ar botnlausu svívirðingar Tím‘ ans um Sjálfstæðismenn, muni reynast honum drjúgar til fylgis. KAÍRÓ. — Egypzka blaðið „Rosa el Youssef" birti nýlega viðtal, sem einn af fréttariturum þess hafði við ísraelska forsætisráð- herrann David Ben Gurion. Segir Ben Gurion þar, að hann sð reiðubúinn til að hitta egypzka íorsætisráðherrann Gamel Abdel Nasser að máli, „hvenær sem er og hvar sem er,“ jafnvel í Kaíró, og ræða við hann um, hvað sem Nasser kynni að liggja á hjarta. í viðtalinu, sem er fyrsta grein, sem egypzkt blað hefir birt um ísrael, segir blaðamaðurinn m.a, að allir venjulegir borgarar í ísrael vilji fyrst og fremst frið, enginn þeirra vilji styrjöld við Egypta. ★ ★ ★ Blaðamaðurinn segir, að hann Vantreystir dómgreind almennings í ÞESSU felst hin mikla yfir- sjón Hermanns Jónassonar. Hann vantreystir dómgreind fólksins og setur allt sitt traust á veiði- brellur og brask. Hann heldur að það sé nóg, að Haraldur Guð- mundsson skíri Rannveigu Þor- steinsdóttur Alþýðuflokkskonu. Þá muni hún sópa að sér fylgi verkafólks og launafólks í Reykjavík. En svona einfalt er málið ekki. Almenningur í Reykja- vík veit ósköp vel, að fram- bjóðendur Framsóknarflokks- ins endurfæðast ekki við það eitt að vera gróðursettir á hinu visnaða og hálfdauða lífstré pínulitla flokksins. Og það færist ekkert líf í hið hrörn- andi tré, þó að nokkrir Fram- sóknargæðingar séu festir þar. Þeir visna líka, tréð fellur og ósigur Hræðslubandalagsins verður í Reykjavík óskajpleg- ur. hafi komizt inn í landið og kom- izt í samband við fólkið með því að látast vera fréttamaður frá Brazilíu. Allir ísraelsmenn, sem hann hafi átt tal við — að for- sætisráðherránum meðtöldum —• álíti, að ómögulegt sé að flytja arabisku flóttamennina aftur tu ísrael. Blaðamaðurinn lætur í ljós aðdáun sína á stórfelldum rækt- unarframkvæmdúm ísraels- manna, sem þegar hefir tekizt að rækta upp nokkuð af eyði- mörkinni. Lýkur greininni með því, að ísraelsmenn Iíti á Egypta sem sína einustu höfuðfjandmenn, og allur vígbúnaður ísraelsmanna só fyrst og fremst vörn gegn Egypt- um. Ben Gurion reiðubíinn uð hitfu Nusser, „hvenær sesn er..“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.