Morgunblaðið - 27.05.1956, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.05.1956, Blaðsíða 12
12 morgunblaðið Sunndagur 27. maí 1956, SYSTURNAR ÞRJÁR EFTIR IRA LEVIN - Annar hluti: ELLEN Framhaldssagan 95 kveljandi og kæfandi, eins og í bakarofni og eitraður koparþefur lukti eins og hjúpur um hann — raddir hrópuðu til hans — hann sá greiparnar byrja að opnast.— hann sleþpti, af því að hann vildi það sjálfur. Það var ekki vegna hins brennandi, kæfandi lofts- skorts, eða nálanna, sem stung- ust í lófa hans, að hann sleppti takinu. Hann gerði það einungis af því, að hann vildi það sjálfur Alveg eins og hann henti sér út af brúnni. En eðlishvötin hafði komið honum til þess að grípa um stálvírinn og nú var hann vel á leið kominn með að yfirvinna eðlishvötina — vinstri höndin opn aðist og féll niður — hann hékk á hægri hendinni og dinglaði lítið eitt til í glóandi hitanum. — Það var olía á handarbakinu, af járn- stoðinni, eða keðjunni eða ein- hverju öðru — og þeir hefðu heldur aldrei hrundið honum út af pallinum — haldið þið kannske að hver sem er geti drepið? — hann hafði stokkið og nú sleppti hann handfestunni af því að hann vildi það sjálfur, það var allt og sumt og það var eins og það átti líka að vera og hnén skulfu ekki lengur vegna þess, að nú hafði hann aftur náð fullkominni stjórn á sér. — Hann hafði ekki veitt því athygli, þegar hægri höndin opnaðist, en hún hlaut engu að síður að hafa opnazt, því að hann var að hrapa niður í hinn steikj- andi funa. Vírarnir þutu ofsa- hratt upp á við, einhver hljóðaði eins og Dorrie, þegar hún hrapaði niður í húsagarðinn og Ellen, þeg ar fyrsta skammbyssukúlan vann ekki á henni að fullu — þessi manneskja gaf frá sér þvílíkt vesældarleg hljóð og allt í einu var það hann sjálfur og hann gat ekki hætt. Hvers vegna hljóðaði hann? Hvers vegna? Hvers vegna í ósköpunum skyldi hann vera að — — Ópið sem rauí hina skyndilegu kyrr verksmiðjunnar, endaði í óhugnanlegu skvampi. Upp úr gagnstæðum hluta stóra kersins steig grænn strókur til lofts, eins og smá foss, myndaði boga og féll svo lóðrétt niður á gólfið, þar sem hann sundraðist í milljónir smápolla og dropa. Það snarkaði lágt í þeim á stein- gólfinu og breyttist hægt úr grænu 1 koparraut. ‘ ' M 'l I 15. KAFLI Kingship varð eftir í verksmiðj- unni. Gant fylgdist með Marion til New York aftur. í flugvélinni sátu þau hljóð og hreyfingarlaus, sitt hvoru megin við miðganginn. Að nokkurri stundu liðinni tók Marion upp vasaklút og þrýsti honum að augum sér. Gant snéri sér að henni, fölur yfirlitum. „Við ætluðum aðeins að þvinga hann til að meðganga", sagði hann, eins og í sjálfsvörn. „Við setluðum ekki að gera það. Og hann meðgekk. Hvers vegna þurfti hann endilega að snúa sér svona óvarlega við?“ Það var eins og orð hans væru lengi að ná eyrum hennar. „Þér megið ekki .... “ sagði hún loks, svo lágt að varla heyrðist. Hann leit á niðurlútt andlit hennar: — „Þér grátið", sagði hann lágt og alúðlega. Hún horfði á vasaklútinn í höndum sér og sá votu blettina eftir tárin. Svo braut hún klútinn hægt saman og snéri sér út að glugganum: „Ekki vegna hans“, svaraði hún hljóðlega. Þau héldu beint heim í íbúð L«o Kingships. Þegar kjallara- meistarinn tók við kápu Marions, _ Gant iór ekki úr sínum írakka — sagði hann: „Frú Corliss bíður komu ykkar inni í setustofunni, ungfrú Kingship". „Ó, guð minn góður" sagði Marion. Þau gengu inn í setustofuna. í roðageislum hnígandi kveldsólar stóð frú Corliss við skáp með smámunum og skarthlutum og skoðaði neðra borð lítillar postu- línsstyttu. Hún lét hana aftur á sinn stað og snéri sér við, er hún heyrði dyrnar opnast. — „Komin strax aftur?“ sagði hún brosandi. „Hafið þið skemmt ykkur vel og ....??“ Hún pirði með döprum augun- um í áttina til Gants. „Ó, ég hélt að þér væruð .. “ Svo gekk hún til þeirra, yfir gólfið, staðnæmd- ist í opnum dyrunum og leit út í mannlaust anddyrið. Eftir andartak snéri hún sér aftur að Marion, brosandi, en með spurn í rólegum augunum: „Hvar er Bud?“ spurði hún. SÖGULOK Dansað í kvöld frá klukkan 9—11,30, Ragnar Bjarnason syngur með hljómsveitinni. Ókeypis aðgangur. Alfir í Tjarnarcafé. jusf efcam' ^ Ekki fædd í gær (It’.í sin to tell a iie) BJÖRN R. og hljómsveit leika og syngja. Æfinleoa (Evermore) ADDA ÖRNÓLFS , syngur með hljómsveít Björns R. Einarssonar Adda Þessi margeftirspurða plata er nú kom’n á mark- aðinn. — Ennfremur nýju íslcnzku hljómplöturnar með STEFÁNI ÍSLANDI, Erlu Þorsteinsd. og Ingibjörgu Smith. NÝ SENDING af nýjuslm og vinsælustu dægurlög- unum á plötum og nótum. HL J ÓÐFÆR A VERZLUN Sigriðar Hetgadóttur Lækjargötu og Vesturveri. SILFURTUIMGLIÐ Hartsðeikur í kvöid klukkan 9. Hin vinsæla hljómsveit JOSE M. RIBA leikur. Aðgöngumiðar seldir eítir ki. 8. Silfurtunghð — Sími 82611. í síðdegiskaffitímamim leikur hljómsveit JOSE M. RIBA Söngvari með hljómsveitinni er hinn vinsæii danski dægurlagasöngvari BÖRGE WAGNER, sem stundum hefur verið nefndur Frankie Lane Danmerkur Silfurtunglið — Sími 82611. Þórscafé Dansleikur að Þórscafé í kvöld klukkan 9. Hljómsveit Baldurs Kristjánssonar leikur. Aðgöngumiðasala frá kl. 5—7. Carðeigendur Athugið! Sjaldgæfar útirósir og blómstrandi runnar. Allt afleggjarar, rótarskot og fræ. er garðyrkjustöð Hall- gríms H. Egilssonar, Grímsstöðum, Hveragerði, hefur fengið og ræktað úr hinum faúega garði Kristmanns Guð- rnundssonar, Hveragerði. — Selt næstu daga í KRON- portinu, Bankastræti og Blóm og Ávöxtum. Athugið! Takmarkaðar birgðir. Skemmtissgling Slysavarnafélag Kópavogs mun hafa björgunarbátinn Gísla J. Johnsen í skemmtisiglingu fyrir almenning, ef veðui leyfir, sunnudaginn 27. mai 1956, milli ki. 4 og 8, frá Kópavogsbryggjunni. Stjórnin. Skriísiotustúlka óskast frá 1. júní n. k. Þarf að kunna vélritun. Tilboð merkt: „Stundvís — 2239“, sendist afgr. Mbl. fyrir 30. maí næstkomandi. 1) — Þér mun vissulega geðj- ast að þessum skemmtistað, Sirrí. — Já, hann virðist ekki svo af- leitur. 2) — Skál fyrir ferðinni okkar inn í Kongó, að hún gangi vel. 3) Villtu dansa við mig, Sirri. 4) — Hvernig lízt þér á Phil, Davíð? — Ja, ég velt það ekkl. Bn vl® verðum að gera allt sem við get- um þar sem faðir hans greiðip íerðakostnaðinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.