Morgunblaðið - 04.01.1957, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.01.1957, Blaðsíða 16
KENNINGAR kommúnista í rústum. Grcin Crankshaws á bls. 9. Skipstjórinn á Goðanesi forst einn 24 skipverja er skipið sökk Skipbrotsmenn biðu björgunar I brúnni í nær 8 klst. Björgunarbátarnir komu að engu haldi — Gúmmibjörgunarbátar ekki á skipinu EINN skipsmanna á togaran- um Goðanes, sem strand- aði við Færeyjar í fyrrakvöld, fórst. Var það skipstjórinn á tcgaranum í þessari ferð hans, Pétur Hafsteinn Sigurðsson, sem var aðeins 24 ára að aldri. Drukknaði hann er flak Goða- ness sökk skyndilega við sker- ið. Var hann þá enn á flakinu, ásamt fimm mönnum öðrum, sem öllum var bjargað. Voru klls á togaranum 26 menn, þar aí voru sjö Fæieyingar, og var örin sýnir Skálafjörð. mönnunum öllum bjargað af færeyskum sjómönnum, með aðstoð togarans Austfirðings. Skipbrotsmenn munu hafa haldið heimleiðis í gær frá Þórs- höfn með Austfirðingi. ERFIÐ AÐSTAÐA Eftir þeim fregr.um, sem borizt hafa frá Færeyjum af sjóslysi þessu, virðist öll aðstaða til björg unar hafa vevið erfið. Þungur sjór hefur verið á Skálafirði, því jafnskjótt og skipið tók niðri á grynningunum, gekk sjór stöðugt yfir það, meira og minna, enda tók skipið brátt að síga að aftan. Togarinn strandaði stundar- fjórðungi fyrir klukkan 9, en ár- angurslausar tilraunir voru gerð- ar til þess að koma skipsbrots- mönnum til hjálpar, allt fram undir klukkan hálf fimm í gær- morgun, en þá tókst að skjóta björgunarlínu, sem skipsbrots- menn náðu. Þeir voru þá allir í brúnni, og togarinn tekinn að sökkva mjög að aftan, en ólög gengu yfir hann. Hófst björgun- arstarfið síðan og um klukkan 6 í gærmorgun var búið að bjarga 15 skipbrotsmönnum um borð í færeyska skipið Rok. SKIPIÐ SEKKUR Er hér var komið björgunar- starfinu báðu Goðanesmenn um að björgun skipbrotsmanna yrði hraðað svo sem föng væru á. Skipið væri að því komið að lið- ast í sundur undir ólögunum. Báðu Goðanesmenn og um að Færeyingarnir reyndu að koma nær hinu strandaða skipi á trillu- bátum, sem komnir voru, og vera til taks af með þyrfti. Var björgunarstarfinu síðan enn haldið áfram. Hálftima síðar, eða um það bil voru 18 skipbrots- menn komnir yfir í Rok, og því enn sex menn eftir á flakinu. Var skipið þá mjög illa farið, enda Um 1400 manns á samkomum Sjálfstæðisfélaganna í fyrradag Hinn ungi skipstjóri er fórst Pétur Hafsteinn Sigurðsson. gerðist það nú með skjótum hætti, að það valt út af skerinu og sökk og fóru mennirnir allir 1 sjóinn. Voru nú trillubátarnir til taks. Þeim tókst að bjarga fimm þessara manna, en hinn sjötti fannst ekki. Var það Pétur Haf- steinn Sigurðsson, skipstjóri. VÆNTANLEGIR HEIM ÁMORGUN Voru skipbrotsmenn nú fluttir í land í Austurey, en þar er Skálafjörður — ekki í Sandey, eins og hermt var í blaðinu i gær. Þaðan voru þeir fluttir til Þórshafnar, sem er ekki löng ferð. Voru þeir þangað komnir um klukkan 10 í gærmorgun. Þangað kom svo togarinn Aust- firðingur, sem kominn var til Færeyja til þess að sækja fær- eyska sjómenn. í gærkvöldi mun Austfirðingur hafa látið úr höfn í Færeyjum með skipbrotsmenn af Goðanesi, sem að því er fregn- ir herma, munu allir ómeiddir. Fer togarinn með þá beint til Neskaupstaðar, en þar mu.i bæj- arfógetinn, Axel Tulinius halda sjópróf í málinu. Eru mennirnir væntanlegir á morgun heim til sín. KRÁSÖGN 1. STÝRIMANNS í Þórshöfn, þar sem fréttaritari Ríkisútvarpsins átti tal við 1. stýrimann á Goðanesi, Halldór Halldórsson, sagði Halldór m.a., að hann hafi verið meðal þeirra sex, er voru á skipsflakinu er pað sökk og hann hafi séð það síðast til skipstjórans unga, Pét- urs Hafsteins, að hann var að hjálpa tveim skipsmönnum að komast í björgunarstólinn, en þá var það sem flakið valt út af skerinu og sökk skyndilega. Ríkissjóour borgar sjóoveðs- kröfur færeysku sjómannanna MORGUNBLAÐIÐ frétti í gær- kvöldi að á fundi ríkisstjórnar- innar í gærdag hafi verið fjallað um það er togarinn ísólfur frá Seyðisfirði sigldi úr höfn í Fær- eyjum eftir að hald hafði verið lagt á skipsskjölin, svo og þær sjóveðskröfur er Fiskimannafé- lagið í Færeyjum hefur gert á hendur Bjólfi hf., eigendum tog- arans. GREIBIR KRÖFUNA Á þessum fundi sínum ákvað ríkisstjórnin að ríkissjóður skuli nú þegar greiða hinum fæi'eysku sjómönnum umræddar sjóveðs- kröfur er nema milli 180 og 190 þús. kr. alls, gegn því að kröf- urnar verði framseldar ríkissjóði, sem síðan gerir þær gildandi gagnvart eigendum togarans ís- óífs. HITI í MÁLINU Þegar það spurðist í Færeyj- um hvað gerzt hefði í Skálafirði í fyrradag, er togarinn sigldi úr höfn skipsskjalalaus, komst hiti í málið af hendi færeyskra sjó- manna, sem höfðu verið ráðnir á íslenzk skip á komandi vertíð. Voru horfur á að brottsigling ís- ólfs úr Skálafirði myndi spilla fyrir ráðningu manna á íslenzk fiskiskip á nýbyrjaða vertið. MISTÓKST AÐ KOMA ÚT BÁTUM Halldór Halldórsson, stýrimað- ur, sagði ennfremur frá því, að vegna þess hve togarinn kastaðist mikið til á blindskerinu er ólög- in komu á skipið, hafi skipsmönn um mistekizt að koma öðrum björgunarbátnúm út. Var hann á hvolfi, er hann .kom í sjóinn. f hinum brotnaði botninn, er hann var kominn niður. Einnig skýrði hann frá því, að þeim hafi tekizt að losa stóran björgunarfleka, sem var aftan á skipinu og hafi hann verið bundinn við afturenda skipsins. En svo hafi skipið sigið skyndilega svo mikið niður að aftan, að skipstjórinn hafi gefið þeim mönnum er þar voru skip- un um að yfirgefa bátapallinn í skyndi, Varð þá flekanum ekki náð. Fóru skipbrotsmenn þá allir inn í brúna og voru þar unz yfir lauk og Goðanes sökk. Ekki var neinn gúmmíbjörgunarbátur á togaranum. Fréttaritari Mbl. í Neskaupstað sagði í gær, að fregnin hefði bor- izt bæjarbúum árdegis í gær og hefðu þá fánar víða verið dregnir í hálfa stöng í bænum. VAR STÝRIMAÐUR Á AGLI RAUÐA Hinn ungi skipstjóri, Pétur Hafsteinn, átti heima þar í bæn- um. Hann var sonur Sigurðar Bjarnasonar og konu hans Guð- laugar Jónsdóttur, sem bæði eru komin á efri ár. Einnig læti.r hann eftir sig unnustu sína, Elísa- betu Kristinsdóttur, sem einnig er Norðfirðingur, og áttu þau eitt barn á öðru ári, sem skírt var á jólunum. Pétur Hafsteinn var stýrimaður á Agli rauða, er hann fórst undir Grænuhlíð í fyrravet- ur. Pétur Hafsteinn var undir venjulegum kringumstæðum 1. stýrimaður á Goðanesi, en skip- stjórinn, Ólafur Aðalbjörnsson, var nú í jólafríi. Var Pétur Haf- steinn mjög dugandi skipstjórn- armaður. Einmitt um þessar mundir var hann að láta byggja fyrir sig og tengdaföður sinn, Kxústin Marteinsson, 60 tonna vélbát og mun Pétur Hafsteinn hafa ætlað að vera skipstjóri á bátnum. Hann var aðeins 24 ára að aldri. Er sár harmur kveðinn að fjölskylduliði hans. Togarinn Goðanes var, eins og kunnug: er, einn nýsköpunartog- aranna. Fyrir Neskaupstað er skiljanlega mikill skaði að því að hafa nú misst báða togara sína á um það bil einu ári. 8-10 skippund HAFNARFIRÐI. — Fjórir bátar eru nú byrjaðir róðra héðan. Fóru þeir út í fyrrakvöld og komu að í gær með 8—10 skipp. hver. Fleiri bátar munu hefja róðra næstu daga, en um 15 bát- ar verða líklega gerðir út á línu hér í vetur. Bjarni riddari kom á gamlárs- kvöld með um 100 lestir af fiski, Surprise frá Englandi á nýjárs- dag og Röðull af veiðum. Júní kom í g;er frá Þýzkalandi. Baráttan harðnar á Hastingfs-mótinu í FYRRADAG efndu Sjálfstæð- isfélögin hér í Reykjavík til mannfagnaðar í Sjálfstæðishús- inu og að Hótel Borg. Voru salir þessara samkomuhúsa beggja þéttskipaðir, er ánægðir sam- komugestir settust að félagsvist, eða um 400 manns á hvorum stað. Síðdegis í fyrradag efndi Lands- málafélagið Vörður til jólatrés- fagnaðar í Sjálfstæðishúsinu. Var þar mikil gleði ríkjandi meðal barnanna og voru á þeirri sam- komu alls um 600 manns, börn og fullorðnir. Voru því alls um 1400 manns á þessum samkomum Sjálfstæðisfélaganna á miðviku- daginn var. Jólatrésfagnaðurinn í Sjálf- stæðishúsinu verður endurtekinn á mánudaginn kemur í Sjálfstæð- ishúsinu. Kvöldskemmtunin hófst klukk- an 9 í Sjálfstæðishúsinu og að Hótel Borg. Stjórnaði Sveinn Helgason varaformaður Varðar samkomunni í Sjálfstæðishúsinu, en Sveinn Björnsson gjaldkeri Varðar var samkomustjóri að Hótel Borg. Gestirnir skemmtu sér við félagsvist fram eftir kvöldi og milli spila skemmtu þeir Guðm. Jónsson óperusöngv- ari og Karl Guðmundsson leikari. Söng Guðmundur nokkur lög við mikla hrifningu, með undir leik Fritz Weishappels, en Karl flutti gamanþátt, sem var bráðsnjall. Alþingismennirnir Bjarni Bene- diktsson og Björn Ólafsson fluttu ávörp til samkomugesta. Talaði Bjarni í Sjálfstæðishúsinu en Björn að Hótel Borg. Var máli þeirra mjög vel tekið. AS spila- keppninni lokinni var eigulegum vinningum úthlutað, og efnt var til happdrættis. Var þessi jóla- fagnaður sérlega ánægjulegur og lauk með því að dans var stiginn fram á nótt af miklu fjöri. Fimm dra sölu- meti hnekkt TOGARINN Marz seldi í gærmorgun í Grimsby. Var togarinn með mikinn fisk og var það hinn mesti úrvals fiskur sem togarinn var með, enda varð sala hans metsala á erfendum markaði um fimm ára skeið. Var Marz með 4048 kit af ísfiski og seldist afl- inn fyrir 15,276 sterlings- pund. Ekki hefur neinn ís- lenzkur togari selt svona vel á erlendum markaði frá því í janúarmánuði 1952. SJÖUNDA umferðin var tefld á Hastingsmótinu í gær. Frið- rik Ólafsson tefldi þá við Bret- ann Horseman og vann þá skák. Er Friðrik því kominn í efsta sætið ásamt þeim Gligrrick og O’Kelly, sem eru með 5 vinninga hver. Þess ber að geta að Larsen lauk ekki sinni skák í þessari umferð, á móti Clark. Fór hún í bið. Er Larsen því með 4 'h vinning og biðskák. í gær vann Gligoric O’Kelly, en jafntefli varð hjá þeim Szabo og Pemrose, einnig hjá Alexand- er og Toran, en sem fyrr segir eiga þeir Larsen og Clarke bið- skák. Eftir 7. umferð er Szabo með 4 vinninga, Clarke 3 og biðskák, Toran 2%, Alexander 2 og Pen- rose og Horseman með IV2 v. í dag teflir Friðrik á móti Al- exander, Larsen og Szabo, O’Kelly og Penrose, Gligoric og Toran. Samkomulags- liorfur í kjaradeilu SEINT í gærkvöldi, er sáttafund- ir í kjaradeilunni milli sjómanna og útgerðarmanna á Akranesi, höfðu staðið frá því klukkan 2 í gærdag, voru taldar allgóðar horfur á að með nóttinni myndu samningar takast. Var þessi samn inga fundur haldinn fyrir milli- göngu sáttasemjara ríkisins Torfa Hjartarsonar. Sáttasemjari mun þessu næst taka fyrir kjaradeiluna sem uppi er í Grindavík milli útgerðar- manna og sjómanna þar. í gær kvöldi var þó ekki vitað nær samningafundir myndu hefjast.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.