Morgunblaðið - 15.03.1957, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.03.1957, Blaðsíða 11
Föstudagur 15. marz 1957 MORGUWBLAÐIÐ 11 r r „Olympíabókin,” veg- legt afmælisrit ÍR Fyrri hlutinn frósngnir nf Olympíuleikunum — Síðuri hiutinn frú sturfi ÍB SÍÐASTLIÐINN mánudag, á afmælisdegi íþróttafélags Reykja víkur, sendi félagið á markaðinn veglega bók, sem ber titil- km Olympíubókin. Er henni ætlað tvenns konar verkefni, annars vegar að vera skýrsla og frásagnir af Olympískum vettvangi, ágrip af sögu leikanna og öðrum þræði er svo bókinni ætlað að vera ágrip af 50 ára sögu ÍR. ★ TILGANGURINN í formála bókarinnar segir m. a.: „fþróttaáhuginn í landinu fer sívaxandi og fsland hefur vakið á sér eftirtekt á alþjóðamótum erlendis og nú síðast með sigri Vilhjálms Einarssonar á Olym- píuleikunum í Melbourne og er það hinn mesti heiður og gleði- efni öllum þeim, sem trúa á gildi íþróttanna og hollustu þeirra fyr ir æsku landsins. Þess vegna þótti Í.R. sérstaklega tilhlýðilegt að gefa bók þessa út í tilefni af 50 ára afmæli félagsins, þar sem ekki hefur verið til nein s'aga Olympíuleikanna samfelld á ís- lenzkri bók. Með bók þessari er verulega bætt úr þeim skorti. Sjálfsagt er margt að bók þess- ari hægt að finna og ófullkomin er hún á margan hátt. En hins vegar er það trú útgefandans, að mörgum verði hún til ánægju og gleði og vel væri, ef hún yrði til þess áð auka og efla áhugann fyrir íþróttunum í landinu. Hef- ur hún þá ekki til einskis út komið'1. * ÁVARP Bókin hefst síðan á ávarpsorð- «m forseta fslands Ásgeirs Ás- geirssonar, ávarpi borgarstjóra, ávarpi tij forsetans eftir Jakob Hafstein. * OLYMPÍUSAGAN Þá er Olympíuóður Kristjáns Jóhannssonar og síðan fær Vil- hjálmur Einarsson orðið og lýsir Melbourneleikunum, ferðasögu ísl. Olympíufaranna til Mel- bourne og leikunum þar. Þá er í frásögn hans yfirlit um alla Olympíuleika frá 1896 og á- grip um upphaf og sögu Olympíu leikanna *íyrr og síðar. Þá er og skrá yfir sigurvegara í frjáls- íþróttakeppni leikanna síðan 1896. Er þessi kafli bókarinnar á annað hundrað síður í stóru broti. * STARF ÍR í síðari hluta bókarinnar eru þættir úr sögu Í.R. Jakob Haf- stein formaður félagsins skrifar greinina: „Hvert stefnir" og síð- an fylgja greinarnar, svipmynd- ir úr starfi hinna ýmsu greina. Halldór Magnússon skrifar um fimleikastarfsemi félagsins, Ragn ar Þorsteinsson um skíðaíþrótt- ina í ÍR, Atli Steinarsson um sundið hjá ÍR, Ingi Þór Stefáns- son um körfuknattleikinn, Örn Eiðsson um frjálsíþróttir og fylg- ir þeirri grein afrekaskrá félags- manna i frjálsíþróttum. Þá er minnzt á starf félagsins í ýms- um öðrum greinum íþrótta. Bókin er öll prýdd fagurlega gerðum og ljósprentuðum mynd- um, og vist munu fjölmargir hafa mikla ánægju af þessari íþróttabók. fþróttaáhuginn á ís- landi er mikill, en lítið er til af prentuðu máli um þau efni. — Hverri slíkri bók. sem skrifuð er til framgans málunum ber að fagna. Olympíubók ÍR er ein þeirra. Klœðskerameistarafélag Reykjavíkur 40 ára Vigfús Cuðbrandsson kjörinn heiðursfélagi Gunnar Felixson Gunnar Felixson K.R var 5 „gulldrengur” K.SÍ FYRIR nokkrum dögum síð- an vann 5. ísl. unglingurinn sér rétt til þess að bera gull- merki Knattepyrnusambands íslands fyrir hæfni í knatt- þrautum. Piltur þessi er Gunnar Felixson. Hann varð í gær 17 ára gamall en fyrir 17 ára afmælið verða drengir að hafa lokið prófinu vilji þeir merkið bera. Gunnar er KR-ingur, bróðir hinna kunnu knattspyrnumanna KR Harðar og Bjarna Felixsona. Gunnar, sem jafnframt því að vera góður knattspyrnumaður er mikill skákmaður m.a. skák- meistari Verzlunarskólans, vann bronsmerkið 26. júní í fyrra, silfr ið 30. des. og lauk gullmerkis- þrautunum 11. marz sl. Hlaut hann góðar einkunnir (eða 10, 26 stig, 132, 8, 4, 31,9 sek. og 5) en til að vinna gullmerkið þarf að vera öruggur í innánfótar- spyrnum, skjóta á mark frá víta- teig, halda knetti á lofti, fram- kvæma ristarspyrnur af 15 m færi á 1,5 m mark, lyfta knetti frá jörðu og skalla í körfu, reka knött á lágmarkstíma og „bera“ knött á skallanum. Gunnar er leikmaður i 2 flokki KR og leikur þar frat.ivörð. Frá Kjalarnesþingi AÐALFUND sinn hélt Klæð- skerameistarafélag Reykjavíkur 13. febr. s. 1. Samkvæmt skýrslu stjórnarinnar voru haldnir 5 félagsfundir og 5 stjórnarfundir á liðnu starfsárL Gjaldkeri las endurskoðaða reikninga félagsins og voru þeir samþykktir einróma. Ekknasjóð- ur Klæðskerameistarafélagsins, sem stofnaður var á 25 ára af- mæli þess 1942, með frjálsu framlagi félagsmanna 3.200 kr., var í lok starfsársins krónur 22.868,47. Aðalfundurinn samþykkti, að breyta nafni félagsins úr Klæð- skerameistarafélagi íslands í hið upprunalega nafn þess Klæð- skerameistarafélag Reykjavíkur. Rædd voru ýmis áhugamál félagsmanna og að lokum komu fram þessar tillögur, sem voru einróma samþykktar: „Aðalfundur Klæðskerameist- arafélags Reykjavíkur skorar á fjármálaráðuneytið, að afnema söluskatt og útflutningssjóðs- gjald af fataefnum og tilleggi, sem selt er og saumað hjá klæð- skerum. Bendir fundurinn á það ósamræmi, sem er í því, að ef áðurnefndar vörutegundir eru keyptar í smásölu eru þær und- anþegnar framanskráðum álög- um“. „Aðalfundur Klæðskerameist- arafélags Reykjavíkur skorar á viðskiptamálaráðuneytið, að hlut ast til um, að fullnægjandi inn- flutningur verði veittur á brezk- um fataefnum til klæðskera, sem reka 1. flokks saumastofur. Tel- ur fundufinn að hér sé ótvírætt um tilveru stéttarinnar að ræða, þar sem ekki sé unnt að starf- rækja 1. flokks saum á öðrum grundvelli en þeim, að efni og tillegg samsvari vinnunni, en 1. flokks efni séu ekki fáanleg nema frá Bretlandi, eins og flestum mun kunnugt um. Þar sem hér er ekki um háar gjaldeyrisupphæð- ír að ræða, treystir fundurinn því, að hið háa ráðuneyti sjái sér fært að sinna þessum ein- dregnu tilmælum félagsins". Stjórn félagsins skipa nú Guðm. Benjamínsson form„ Guðm. B. Sveinbjarnarson rit- ari, Bragi Brynjólfsson gjald- keri og meðstjómendur Bjami Bjarnason og Franz JesorzkL í varastjórn voru kjörnir: Friðrik Vigfússon, Hreiðar Jónsson og Haukur Ingimundarson. Stjórn ekknasjóðs skipa: Guðm. Benja- mínsson forrn, Axel Skúlason meðstj. og Árni Einarsson vara- maður. Félagið átti 40 ára afmæli 2. marz s. 1. og hélt það hátíðlegt með borðhaldi í Þjóðleikhúss- kjallaranum sunnudagskvöldið 3. þ. m. kl. 7 e. h. í þessu 40 ára afmælishófi félagsins var lýst heiðursfélagakjöri. Var Vigfús Guðbrandsson kjörinn heiðurs- félagi fyrir margvísleg trúnaðar- störf í þágu félagsins frá stofnun þess, en hann var fyrsti ritari félagsins og form. um langt ára- biL 34. ÞING Ungmennasambands Kjalarnesþings var haldið að Klé bergi á Kjalarnesi dagana 2.—3. marz sl. Formaður sambandsins Ármann Pétursson setti þingið og bauð fulltrúa og gesti velkomna, Þingið sóttu 28 fulltrúar frá sam bandsfélögunum. Auk þess sóttu þingið þeir Ben. G. Waage forseti Í.S.f., Hermann Guðmundsson, frmkv.stj. Í.S.Í., Þorsteinn Ein- arsson íþróttafulltrúi og Stefán Gunnarsson frkvstj. U.M.F.f. Fluttu þeir þinginu ávörp og kveðjur. Starfsemi sambandsins var mikil og fjölbreytt á árinu. í sambandinu eru nú 5 félög með samtals 538 félagsmenn. Hið ár- lega héraðsmót í frjálsum íþrótt- um var haldið í Mosfellssveit við sæmilega þátttöku og urðu ung- mennafélögin Drengur og Aftur- elding jöfn að stigum. Skák- keppni fór fram á árinu en það er nýmæli í starfsemi sambandsins og mikill áhugi er á skák- íþróttinni í héraðinu. Starfs- íþróttirnar eiga vaxandi vinsæld- um að fagna á sambandssvæðinu. Á starfsíþróttamóti sambandsins sem haldið var í ágústmánuði hjá IBUÐ 3ja herb. íbúð óskast tfl leigu 14. maí. Fátt í heim- ili. Tilb. leggist inn á afgr. Mbl. fyrir n.k. þriðjudags- kvöld merkt: „14. maí — 2316“. — 12 volta RAFGEYMAR Carðar Gíslason hf. BEZT AB AUGLTSA 1 MORGU NBLAÐINU Félagsgarði í Kjós voru skráðir til keppni samtals 61 þátttak- andi. Mót þetta var skemmtilegt og áhorfendur margir. Samband- ið efndi til þriggja hópferða á sl. sumri: Kynnisför var farin til Norðurlanda, keppnisför íþrótta- manna til Akureyrar og skemmti ferð til Vestmannaeyja. Ferðir þessar tókust vel og voru þátttak endum til gagns og ánægju. Margar ályktanir voru gerðar á þinginu, þar á meðal um kennslu í þjóðdönsum og íþrótt- um vegna landsmóts U.M.F.Í. á Þingvöllum n.k. sumar, um vernd un sögustaða, um kynningu hér- aðsins með póstkortaútgáfu, söfn un þjóðháttalýsinga, starfsiþrótt- ir o. m. fl. Þá hefur verið hafizt handa um að skrá sögu sambands ins og sambandsfélaganna. f stjórn sambandsins voru kosnir: Ármann Pétursson formaður, Gunnar Sigurðsson varaformað- ur, Páll Ólafsson, Steinar Ólafs- son og Gestur Guðmundsson með stjórnendur. Sambandsþingið var haldið í boði U.M.F. Kjalnes- inga er veitti þingfulltrúum af rausn og myndarskap. I.O.G.T. I.O.G.T. Barnasiúkurnar í Reytjavík efna til "GRÍMUSKEMMTUNAR fyrir börn í G.T.-húsinu sunnudaginn 17. marz kl. 3 sd. — Aðgöngumiðar kosta 15 kr. og verða seldir í G.T.-húsinu á laugardag kl. 5,30— 6,30 og eftir kl. 2 á sunnudag. MIÐSTOÐVAR TEIKMIGAR OG ÖNNUR VERKFRÆÐILEG ÞJÓNUSTA. 23 ÁRA REYNSLA- GÍSLI HALLDÖRSSON VÉLAVERKFRÆÐINGUR M.V.Í. — M.ING.F. — M.A.S.M.E. Hafnarstr. 8__ Sími 80083 Prentari (handsetjari) getur fengið atvinnu — Vaktavinna Umsóknir sendist afgr. Mbl. merktar: Handsetjari — 7756. HJÓLBARÐAR 670x15 700x15 BÍL ABÚÐ Hringbraut 119. SÍS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.