Morgunblaðið - 19.05.1957, Qupperneq 20
Veðrið
NA-goIa. — Skýjað.
JtStMftjtöbí
Reykjavíkurbréf
er á bls. 11.
111. tbl. — Sunnudagur 19. maí 1957.
Innrás kommúnista í bankana
Stórkostlegt glapræði Framsókn-
arflokksins og Alþýðuflokksins
ALÞÝÐUBLAÐIÐ skýrir í gær frá því, hvernig fyrirhuguð sé
skipting valda og embætta innan bankanna eftir að hin nýja
löggjöf um þá hefur verið samþykkt. Kemst það m. a. að orði
á þessa leið:
„Sennllegt er talið, að aðal-
bankastjóri seðlabankans
verði Framsóknarmaður, hinn
bankastjórinn líklega Sjálf-
stæðismaður, en meðstjórn-
endur Alþýðuflokksmaður og
Alþýðubandalagsmaður. Xalið
er einnig liklegt, að Alþýðu
flokksmaður verði bankastjóri
Uandsbankans (viðskipta-
bankann) og Alþýðubandalags
maður við Útvegsbankann".
bá skýrír Alþýðublaðið einnig
frá því að „sennilegt sé talið, að
belztu bankamenn þeirra (þ.e.
Sjálfstæðismanna), Pétur Bene-
diktsson og Jóhann Hafstein,
verði áfram í stöðum sínum og
Jón Maríasson einnig í annari
hvorri deild Landsbankans".
HVER FÆR HVAB?
Þetta voru upplýsingar Alþýðu
blaðsins um hina nýju ráðstöfun
vinstri stjórnarinnar á yfirstjórn
bankanna. En þar með er ekki öll
sagan sögð. Hver á að fá hvað?
Mbl. hefur nokkra vitneskju um
það.
Ákveðið mun vera að Vil-
hjálmur Þór verði aðalbanka-
E i n a r
E m i I
Vilhjálmur Þór
valdastöðum í bönkunum er
hin stórkostlega innrás komm
únista þangað. Tveir lýðræð-
isflokkar hafa fengið komm-
únistaflokknum meiri völd og
áhrif í lánastofnunum íslend-
inga en þeir hafa meðal nokk-
urrar lýðræðisþjóðar, enda er
allstaðar annarsstaðar litið á
þá, sem hreina skemmdar-
verkamenn, sem þjóðhættu-
legt sé að hafi nokkur áhrif
á stjórn efnahagsmála.
Hér er því um að ræða stór-
kostlegra glapræði en menn
hefðu jafnvel gert sér í hug-
arlund að Framsókn og Al-
þýðuflokkurinn myndu leyfa
sér að fremja.
Stjénorliðv
nenna ekki nð
gieiðn ntkvæði
3JÁLFSTÆÐISMENN létu
bað koma fram við nokkrar
atkvæðagreiðslur í Neðri deild
á föstudag, að stjórnarliðar
nenna margir ekki að sitja
þingfundi og greiða atkvæði.
Forseti lenti því strax í vand-
ræðum með afgreiðslu mála,
þegar Sjálfstæðismenn létu
sins og stjórnarliðar undan
fallast að greiða atkvæði.
Hvort sem það var af þessum
ástæðum eða öðrum hvarf for-
seti eftir þetta frá því, sem
ætlunin hafði verið að knýja
fram síðustu umræðu deildar-
innar um stóreignaskattinn á
laugardag, þegar ýmsir Sjálf-
stæðismenn höfðu boðað for-
föll.
Alþýðublaðið snýr þessu
svo, að Sjálfstæðismenn hafi
sýnt frv. um tunnuverksmiðju
ríkisins f jandskap. Bjarni
Benediktsson mælti einmitt í
nefndaráliti með samþykkt
frv. og greiddi ásamt öðrum
Sjálfstæðismönnum atkvæði
með því í deildinni. En ein-
hverjum stjórnarliðum hefur
auðsýnilega gramizt, að forseti
skyldi þurfa að senda eftir
þeim og lóta smala þeim inn
[ deildina til að greiða þar
atkvæði. Af því koma um-
kvartanir Aljjýðublaðsins.
Jón Finnbogi
Tilgangurinn—fleirí bankastjórar
Kristinn
stjóri hins nýja seðlabanka,
skipaður af forseta íslands,
einn allra bankastjóra lands-
ins. Einar Olgeirsson verður
meðstjórnandi í hinni fimm
manna yfirstjórn seðlabank-
ans, Emil Jónsson bankastjóri
í Landsbankanum, Jón Grims-
son hjá Kron aðstoðarbanka-
stjóri í Landsbankanum, Svan
björn Frímannsson banka-
stjóri í Landsbankanum.
Finnbogi Rútur Valdemars-
son bankastjóri í Útvegsbank-
anum og Kristinn Gunnarsson
aðstoðarbankastjóri í Útvegs-
bankanum.
INNRÁS KOMMÚNISTA
Það sem mesta athygli vek-
ur í sambandi við þessa skipt-
ingu stjórnarflokkanna á
í NEÐRI deild voru hin nýju
frumvörp ríkisstjórnarinnar um
breytingu á bankalöggjöfinni til
umræðu í gær.
Hermann Jónasson skýrði ein-
staka liði þessara frumvarpa. í
lok ræðu sinnar sagði Hermann
að ástæðan til þess að þessar laga
breytingar voru gerðar væri sú
að Sjálfstæðisflokkurinn réði
einn og óskorað yfir tveimur
bönkum þjóðarinnar og það aðal
viðskiptabönkunum. Með þessu
væri hins vegar ætlunin að skipta
valdaaðstöðunni.
Ingólfur Jónsson benti á að
Vilhjálmur Þór væri einn af
bankastjórum Landsbankans og
aðstoðarbankastjóri væri Svan-
björn Frímannsson og í Útvegs-
bankanum væri Valtýr Blöndal
einn af bankastjórum. Allir væru
þessir menn taldir Fram-
sóknarmenn. Kvað Ingólfur þá
ekki hafa unnið til þess að fá
þær hnútur, sem þeir nú hefðu
fengið frá forsætisráðherranum.
Þá ræddi Ingólfur Jónsson
nokkuð einstaka liði frv., m. a.
það er varðar að setja seðlabank-
ann undir sérstaka stjórn. Um
það hefðu til þessa verið all-
mjög skiptar skoðanir. Banka-
málanefnd hefði ekki orðið sam-
ála og aldrei skilað áliti. Ingólf-
ur kvað fjármagnið ekki vaxa
þótt seðlabanki væri undir sér-
stakri stjórn. Hins vegar mundi
auðveldara fyrir stjórnendur
hans að synja um fé til viðskipta-
bankanna þar sem þeir þyrftu
ekki að kynnast daglegum við-
skiptum og beiðnum einstakra
viðskiptamanna.
Ingólfur kvað tilgang þessara
frv. þann einan að tryggja stjórn
arflokkunum fleiri bankastjóra.
Kvað han það nýmæli í setningu
laga að bankalöggjöfinni sé
breytt til þess eins að stuðnings-
menn ríkisstjórnar á hverjum
tíma geti fengið bankastjóra-
stöður. Þá benti Ingólfur á það
að fjármagnið mundi ekki vaxa
þótt bankastjórum væri fjölgað.
Það væri engin allsherjarlausn
á fjárskortinum að skipta um
menn.
Fleirri tóku til máls og stóðu
umræður yfir er blaðið fór í
pressuna.
Bankamálin
Rœdd á Varðarfundi n.k. miðvikudag
LANDSMÁLAFÉLAGH) VÖRÐUR mun halda fund um banka-
málin n. k. miðvikudag kl. 8.30 e. h. í Sjálfstæðishúsinu. Á
fundinum verða rædd frumvörp ríkisstjórnarinnar til nýrrar banka-
löggjafar sem lögð hafa verið fram á Alþingi. Frummælandi á
fundinum verður Ingólfur Jónsson fyrrverandi viðskiptamálaráð-
herra.
Lið leikara á æfingu á föstudag, mjög vígalegt,
Fjöldi leikara og blaðamanna
rr
fekur þálf í „Iþróttarevýunni
ASUNNUDAGINN kemur mun verða mikið um dýrðir hér í bæn-
um, er Félag ísl. leikara og Blaðamannafélag íslands efna
til „íþróttarevýu" á íþróttavellinum, sem hefst með almennri skrúð-
göngu við Þjóðleikhúsið út á völl og verður Lúðrasveitin Svanur
í broddi fylkingar.
Undanfarna daga hafa blöðin
öðru hvoru verið að tæpa á því,
að eitthvað óvenjulegt og jafnvel
skemmtilegt væri á seyði hjá
leikurum og blaðamönnum. Hef-
ur nefnd manna haft með hönd-
um að undirbúa þessa „íþrótta-
revýu“ og er það von nefndar-
manna að almenningur, eldri sem
yngri, geti haft af þessu nokkra
skemmtun.
í skrúðgöngunni frá Þjóðleik-
húsinu verða sveitarmenn leik-
ara og blaðamanna í búningum
úr Þjóðleikhúsinu, til þess að
setja nokkurn lit á, og þá verður
Örkin hans Nóa dregin með. Er
öllum heimil þátttaka í göngunni
sem hefst við Þjóðleikhúsið
stundvíslega (ekki ísl. stundvísi)
kl. 2,30.
Þegar Brynjólfur Jóhannesson
hefur lokið setningarræðu há-
tíðarinnar suður á velli, hefst
skemmtiprógrammið, sem á að
standa yfir, án þess að hlé verði á,
þar til klukkan tæplega 5,30. Það
verður sungið, þá þreytt reiptog,
hinir hraustustu í liðum beggja
sýna lyftingar. Þá verður farið
í boðhlaup, almennur söngur,
vallargestir taka *undir. Sungnar
gamanvísur, sýnd leikfimi, flutt-
ur gamanþáttur, keppt í knatt-
spyrnu og þreytt pokahlaup.
Um 140 leikarar og blaðamenn
koma fram á þessari stónkostlegu
íþróttahátíð, sem lýkur með því
að Brynjólfur Jóhannesson syng
ur lokasöng.
Til þess að gera áhorfendum
auðveldara að fylgjast með
„atinu“ verða þrír þulir hafð-
ir til þess að lýsa því sem fram
fer og er þá allt undir hátalara-
kerfinu komið og þeim sjálfum að
vel heppnist. —
Dagsbrúnarmenn hjá Mjólkur-
samsölunni segja upp samningum
V
Mjólkurfræbingar ]par og v/ð Flóa-
mannahúid og Borgarneshúib einnig
CTJÓRN Mjólkursamsölunn-
^ ar hefur fyrir nokkru bor-
izt samningsuppsögn frá
Verkamannafélaginu Dags-
brún, vegna bílstjóra á mjólk-
urflutningabílum og aðstoð-
armanna bílstjóranna og
verkamönnum þeim sem í
mjólkurstöðinni vinna. Samn-
ingstímabil fyrir þessa menn
rennur út miðað við 1. júní
næstk. Einnig hafa mjólkur-
fræðingar sagt samningum
sínum upp við Mjólkursam-
sölur, Mjólkurbú Flóamanna
og við mjólkurbúið í Borgar-
Komi til verkfalls hjá framan-
greindum starfsstéttum, stöðvast
augsýnilega öll mjólkursala hér
í Reykjavík og nágrenni, auk
þess sem af verkfalli mjólkur-
fræðinga myndi leiða til stöðvun
Flóamannabúsins og mjólkurbús
ins í Borgarnesi. Félag mjólkur.
fræðinga er eitt þeirra stéttarfé.
laga, sem lengzt hefur verið und-
ir stjórn kommúnista.
Þá vekur hitt ekki minni at-
hygli, að stjórn Dagsbrúnar, sem
fyrir mánaðamót hélt fund með
verkamönnum og lét þá sam.
þykkja óbreytta samninga áfram,
skuli nú láta starfsmenn mjólk-
ursamsölunnar sem eru í félag-
inu, segja upp samningum og
koma fram með nýjar kröfur.
Sagt er að kröfur þær, sem
félögin hafa borið fram myndu
leiða af sér kringum 25% út-
gjalda hækkun fyrir Mjólkursam
söluna.