Morgunblaðið - 28.12.1957, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.12.1957, Blaðsíða 2
€ 2 MORGVNBLAÐIÐ Laugardagur 28. des. 1957 Stórbruni virtist yfirvofandi í Þing- holtunum er „Hússtjórn44 brann Um skeið voru nærliggjandi timburhús i mikilli hættu m.a. „Farsótt" 20 manns fulforðnir og börn bjuggu í húsinu HÚSBRUNI sá, er varð hér í Reykjavík á aðfangadagskvöld. er mestur þeirra, bruna sem orðið hafa í íbúðarhverfi bæjarins frá því að Hótel íslana brann á ár- unum. Það var timburhúsið Hús- stjórn, sem svo var kallað, Þing- holtsstræti 28, er brann að mestu á um það bil tveim klukkustund- um. Við borð lá að eldurinn næði nærliggjandi húsum. Hús þetta, sem fyrr á árum var meðal hinna glæsilegri í bænum, hýsti nú alls 20 manns. Þetta fólk varð nær allt fyrir mjög tilfinnanlegu tjóni Ekkert af því sakaði, en einum manni bjargaði slökkviliðið með því að láta hann stökkva í fall- mottu, ofan af þaki hússins. Talið er að eldurinn hafi komið upp út frá kolakyntum ofni. Það var ótrúlegt hve fljótt eldsvoði þessi spurðist út um bæ- inn, en mjög fátt fólk var á ferli á götunum um þetta leyti kvölds, á sjálfu aðfangadagskvöldi. íbú- ar hússins sátu í góðum fagnaði með fjölskyldum sínum, þegar eldurinn kom upp. I nærliggjandi húsum var sömu sögu að segja, allir gluggar uppljómaðir, þar sem fólk ýmist var að taka utan af jólagjöfum sínum, eða jafna sig eftir jólamatinn. Enginn var viðbúinn þvi þarna í Þingholtun- um, að þurfa ef til vill fyrirvara- iítið að yfirgefa hús sitt og heim- ili. Um klukkan 10 á aðfangadags- kvöld munu fyrstu eldblossarnir hafa blossað út frá rishæð hins gamla húss. Enginn í húsinu mun þá hafa vitað, að eldur væri uppi. I rishæðinni var einn maður og hann í fastasvefni. í stofu á miðhæðinni sat Val- geir Þormar, bifreiðastjóri, ásamt konu sinni og ungu barni þeirra. Snyrtiherbergi er þar frammi á gangi og þangað brá Valgeir sér. Er hann kom inn, fann hann reykjarlykt leggja inn um glugga herbergisins. Hann brá þegar við til þess að athuga þetta, fór upp í rishæðina, en þar voru öll her- bergin læst. Hann varð ekki vai við neinn eld þar uppi, en reykja- lykt. Hann fór þegar og gerði slökkviliðinu aðvart. Að vörmu spori voru slökkviliðsmenn komn ir á vettvang með háþrýstidæl- ur. Þeir höfðu fengið boð um að reykjarlykt væri í húsinu. Uppi í rishæðinni sprengdu þeir upp dyr að íbúðarherbergi Bjarnþórs Þórðarsonar. Var það þá alelda Valgeir hafði ekki farið upp með brunavörðunum. Um leið og hann kom inn í stofu sína, brauzt eldur gegn um loftið yfir stof- unni og skipti það engum togum, eldurinn flögraði um stofuna á svipstundu og varð Valgeir að flýja út með konu sína og barn. Um talstöð slökkviliðsbílsins var kallað á liðsauka, og var nú allt slökkvilið bæjarins kallað út. Klukkan mun hafa verið um 10.10 er eldurinn var búinn að læsa sig um húsið allt, ofan úr rishæð og niður á götuhæðina, en þar niðri bjó m. a. dr. Jón Dúason. Hann var ekki heima, og svo var raunar um flesta aðra íbúa hússins. Úti var suðvestan afspyrnurok með dimmum hríðaréljum. Þegar slökkviliðsmennirnir komu á vett vang varð það þeirra fyrsta verk á brunastaðnum, að sannfæra sig um að enginn væri teptur inni í húsinu. Uppi í rishæðinni hafði Axel Guðmundsson sofið í her- bergi sínu. Hann komst ekki öðru vísi úr húsinu en upp á þakið Hann sá niður á götuna, þar sem brunaverðir stóðu með fallmottu. Jón Sigurðsson, slökkviliðsstjóri, kallaði til mannsins að stökkva niður og varð lífi hans þannig borgið. Slökkvistarf I þessum gamla bæjarhluta er mjög erfitt. Þarna er götuæðin, sem flytur allt vatn, aðeins um tveir þuml., og hafði það í för með sér að fyrsta dæla, sem sett var í samband, tók allt vatnið. Varð að leggja leiðslu nið ur í Lækjargötuna til þess að fá nægilegt vatn úr nokkrum bruna hönum. Ofsalegan hita lagði af hinu brennandi húsi, og með veðrinu barst neistaflugið langar leiðir, og logandi þakpappi flögraði allt. inn á Snorrabraut. Nærliggjandi hús, svo sem Þingholtsstræti 26 og Farsóttahúsið, sem er járnvar- ið timburhús, og Þingholtsstræti 27, sem er timburhús en óvarið, voru öll í hættu. Að nokkrum tíma liðnum kom slökkviiið Reykjavíkurflugvallar til aðstoðar og munaði mikið um það. Má geta þess t. d., að bíl! með áfastri „vatnsbyssu" var mjög áhrifamikill í slökkvistarf- inu. Svo hitnuðu nærliggjandi hús, að rúður sprungu. Eldur kvikn- aði nokkrum sinnum í vindskeið Þingholtsstrætis 26. — Þegar nægilegt vatn hafði verið flutt að, tók slökkvistarfið að bera verulegan árangur, en þá múi) hafa verið um það bil ein klukku- stund frá eldsupptökum. — Um það leyti hrundu reykháfar húss- ins og nokkru síðar féll þakið inn og þar næst efri hæðin. Ótt- uðust menn mjög að brennandi raftar myndu feykjast fyrir vind- inum á næstu hús, er húsgrindin hrundi, en hún féll inn í eldhafið Um það bil stundarfjórðungi síðar hafði slökkviliðsmönnum tekizt að ná yfirtökunum, hætt- unni, sem nærliggjandi húsum stafaði af bálinu, var bægt frá og var þá þungu fargi af mörgum létt. En í næstu húsum mun fólki tæpast hafa orðið svefnsamt af ótta við að neistar kynnu að hafa komizt undir þakskegg, undir þakplötur og þess háttar. Mun sumt af fólki í þessum húsum hafa leitað gistingar úti í bæ. Þessi ótti var ekki heldui ástæðulaus. Um miðnættið var Slökkviliðið kallað að Grundar- stíg 2 A. Á efstu hæð hafði neisti frá bálinu kveikti í hurð út á svalir. Þarna urðu ekki miklar skemmdir. Langt fram á nótt voiu slökkv: liðsmenn að berjast við eldinn í Hússtjórn. Slys varð ekki á þeim. þótt mjög hættulegt væri að fást við slökkvistarfið. Fékk einn maður logandi timburhurð í höf- uðið, en hjálmurinn bjargaði Þingmenn skera eigin laun við nögl PARIS, 27. des. — Sparnaðar- fjárlög Gaillards fengu lokaaf- greiðslu í dag. Þingið hafði áður samþykkt frv. og nú samþykkti ríkisráðið það einnig — breyt- ingalaust. Jafnframt samþykkti þjóðþingið með naumum meiri- hluta að afþakka launauppbót, sem áður hafði verið ákveðin — og munu þingmenn ekki þiggja uppbótina, 50 þús. franka, fyrr en 1. marz. Launin eru 250 þús. frankar. Reyna þingmenn á þenn- an hátt að ganga með góðu for- dæmi á undan öðrum stéttum, sem sífellt gera hærri launa 1 kröfui manninum, sem riðaði þó við höggið. íbúarnir misstu flestir, sem fyrr segir, aleigu sína. Á öðrum stað í blaðinu er stutt samtal við Jón Dúason um tjón hans. Geta má þess, að þarna bjó maður að nafni Þorleifur Kristófersson, arkitekt. Hann átti mjög merki- legt bókasafn, t. d. afbragðssafn listaverkabóka. Einnig átti hann frábært hljómplötusafn. Allt þetta fór forgörðum ásamt öðru því, er hann átti. Hann og annar maður til í þessu stóru timbur- húsi, munu hafa verið þeir einu, sem vátryggt höfðu eigur sínar. Aðrir íbúar í húsinu, sem ekki hafa verið nefndir, eru Kristín Þorsteinsdóttir, öldruð kona; Sig- urður Björnsson og fjölskylda, alls 5 manns; Hjördís Guðmunds- dóttir með barn, og Gunnar Bíld- dal og fjölskylda, alls 5 manns. — Bjuggu því í húsinu alls 20 manns. Allt hefur þetta fólk orð ið fyrir meira og minna tjóni. Úr íbúð Sigurðar tókst að bjarga út innanstokksmunum, en hann bjó í kjallara hússins. Þeir skemmd- ust þó eitthvað við þann flutning Um eldsupptök er ekki vitað með vissu, þó hallazt sé að því, að eldurinn hafi komið upp út frá kolaofni í herbergi Bjarnþórs, I ofninum logaði er Bjarnþór fór út klukkan 6 um kvöldið. Er ótt- azt að í óveðrinu hafi slegið nið- ur í ofninn. Eldurinn, sem brauzt niður í gegnum loftið í íbúð Val- geirs Þormars, var einmitt ' horninu, þar sem kolaofninn I herbergi Bjarnþórs stóð. Vissulega gengu slökkviliðs- menn rösklega fram við slökkvi- starfið, en það kom berlega í ljós, að þörf er endurskipulagningar Slökkviliðsins, um leið og hugsað er nú fyrir nýrri slökkvistöð, því gamla stöðin, sem byggð var fyrir tæplega hálfri öld fyrir hand- vagna og önnur slökkvitæki þeirra tíma, getur ekki fullnægt þeim kröfum, sem gerðar eru til slíkra stöðva nú á tímum og þeirrar þjálfunar, sem slökkviliði í stórum bæ er nauðsynleg. Væri vissulega viðeigandi að þakka slökkviliðinu, sem svo lengi hefur starfað við erfið skil- yrði, með því að hafa komið nýju stöðinni upp fyrir 1962, en-þá er 50 ára afmæli stöðvarinnar við Tj arnargötu. Framboðslisti Sj álí st æðismanna í Ólafsfirði EINS og skýrt hefur verið frá, hafa Sjálfstæðismenn í Ólafs- firði lagt fram framboðslista sinn við bæjarstjórnarkosningarnar. Vegna mistaka er hann birtist l Mbl. verður hann birtur hér aft- ur: 1. Ásgrímur Hartmannsson, bæj arstjóri. 2. Jakob Áffústsson, rafveitu- stjóri. 3. Þorvaldur Þorsteinsson, bókari. 4. Sigvaldi Þorleifsson, fram- kvæmdastjóri. 5. Magnús Gamalíelsson, út- gerðarmaður. 6. Gunnar Björnsson, verka- maður. 7. Sigurður Guðmundsson, sund laugarvörður. 8. Guðmundur Þór Benedikts- son, skrifstofumaður. 9. Sigurður Baldvinsson, út- gerðarmaður. 10. Jónmundur Stefánsson, verka maður. 11. Finnur Björnsson bóndi. 12. Jón Magnússon, bifreiðastj. 13. Guðmundur Williamsson, verkamaður. 14. Jón Ásgeirssoa, vélstjóri. Fjárhagsáœtlunin rœdd og fjárhagsörðugleíkar átgerðarfélagsins AKUREYRI, 27. des. — Fjár- hagsáætlun Akureyrarbæjar fyr- ir 1958 var til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi í dag. Niður- stöðutölur áætlunarinnar er tæp- lega 21,5 millj. kr. Helztu tekju- liðir eru skattar af fasteignum kr. 1,77 millj., ýmsar tekjur kr 1,32 millj. — Þar í er nýr liður, tekjur af Áfengisverzlun ríkisins, kr. 500,000. — Hæsti tekjuliður- inn eru útsvör sem eru áætluð kr. 17,428 millj. og er það tæpri 1 millj. kr. hærri upphæð en fyrir síðastliðið ár. Helztu gjaldaliðir eru vextir og afborganir af lánum kr. 1,555 millj. Stjórn kaupstað- arins kr. 1,235 millj., vegir og byggingamál kr. 2,466 millj., þar af til vega og ræsa 2 milljónir. Líftrygging og lýðhjálp nemur kr. 3,22 millj. Framfærslumál kr. 1,16 millj., til menntamála kr 1,708 millj. Hæsti gjaldaliðurinn er framlag til framkvæmdasjóðs vegna ábyrgðarskuldbindinga fyrir Útgerðarfél. Akureyringa hf. kr. 4 milljónir. Um þennan lið urðu allmiklar umræður. Steinn Steinsen, bæjarstjóri skýrði fjárhagsáætlunina, en ein- stakir fulltrúar gerðu fyrirspurn- ir og þá einkum varðandi fram- lagið til útgerðarfélagsins. Steindór Steindórsson (Alþfl.) spurðist fyrir um rekstur strætis- vagnanna í bænum og bað um skýringu á framlagi til rekstrar- þeirra. Hann áleit hæpið að sam- þykkja framlag til útgerðarfél. nema bæjarfulltrúarnir fengju nánari skýringu á rekstri þess. Stakk hann upp á því að bæjar- stjórn héldi lokaðan fund um það mál. Marteinn Sigurðsson (Þjóð- vörn) spuröi um skuldaeigendur hjá útgerðarfélaginu og tók und- ir ummæli Steindórs. Jón Þor- valdsson (Sj.) ræddi skipulags-' mál bæjarins og gerði fyrirspurn um þau. Ennfremur kvað hann nauðsyn skýringa á framlaginu til Ú. A. Svör bæjarstjóra Bæjarstjóri svaraði síðan fram- komnum fyrirspurnum og ræddi ætlaður til framtiðar-rekstrarins, en ekki til að greiða með gamlar skuldir, sagði Guðmundur. Þá minntist hann á, að vart myndi hægt að ganga frá skuldum fé- lagsins nema með samningi við skuldaeigendur til margra ára. í lok máls síns sagði hann, að eitthvað nánara yrði fram að koma, áður en gengið væri endan lega frá þessu máli, og stakk upp á lokuðum fundi um það. Jakob Frimansson (F) kvað fyrrnefnda upphæð fram komna eftir því sem bæjarráðsmenn hefðu lauslega talið saman af á- byrgðarskuldbindingum bæjar- ins. Hefði það verið lagt til grund vallar, enda myndi þessi upphæð ekki langt frá réttu lagi. Hann kvaðst sammála fyrri ræðumönn um um nauðsyn nánari skýringa á rekstri Ú.A. Hins vegar benti hann á, að ekki væri enn búið að gera upp reikninga yfirstandandi árs, en uppgjör lægi fyrir miðað við 1. október sl., en þá hefði bæj arstjórnin kosið nefnd til funda við ríkisstjórnina og nefndin feng ið þær upplýsingar frá stjórn Ú. A., sem hún hefði beðið um. Ekki væri hægt að leggja fram svör þessarar nefndar við aðstoðar- beiðninni, því enn hefðu engin svör komið frá ríkisstjórninni. Væri því ekki hægt að vænta frekari uppl. á þessu stigi máls- ins. Þá ræddi hann og kosningu nefndar til athugunar á rekstri Ú. A. Sú nefnd væri langt komin störfum og hefði endað athugun sina í Reykjavík. Þar hefði a.m. k. einn fulltrúanna verið i sam- bandi við ríkisstjórnina. Þegar nefndarálitið lægi fyrir, væri hægt að gera samþykkt um þetta mál. Ekkert væri vitað hvað rík- isstjórnin ætlaði að gera í mál- efnum útgerðarinnar og því vart hægt að gera áætlun um framtíð- arrekstur. Nú væri svo komið að einn togari Ú. A. lægi bundinn við bryggju og kæmist ekki út og óvíst væri um hvort togari sá, er næst kemur að landi komist út , ‘ w i v s aftur- Væri Þyí yfirvofandi að sérstaklega rekstur U.A. Kvað . . , ... .... , , hann þetta framlag vera lauslega áætlað. Ekkert lægi fyrir um framtíðarrekstur togaraútgerðar í landinu í heild. Ríkisstjórnin hefði engu svarað þeirri nefnd er bæjarstjórnin hafði sent á henn- ar fund, með beiðni um aðstoð til Ú.A. Kvað hann koma til álita að láta seinni umræðu um fjárhagsáætlunina bíða þar til eitthvað lægi fyrir í þessu efni. Hins vegar væri það ekki sam- kvæmt lögum að fresta málinu, enda væri það hlutverk núver- andi bæjarstjórnar að afgreiða það áður en kosningar fara fram síðari hluta janúar. Guðmundur Jörundsson (Sj.) kvaddi sér hljóðs og kvaðst undr- ast þá ónákvæmni sem við væri höfð á framlagi til útgerðarinnar á fjárhagsáætluninni. Ennfremur kvaðst hann undrast að ekki lægju fyrir neinar beiðnir frá stjórn Ú.A. um fjárþörf félags- ins. Kvaðst hann ekki sjá fram á að hægt væri að komast til botns í þessu máli nema bæjar- stjórnin héldi um það lokaðan fund. Ekki væri viðlit að ganga frá málinu eins og hér væri gert. Kvað hann þurfa að liggja fyrir eins nákvæmt uppgjör frá félag- inu og hægt væri að fá, ennfrem- ur lista yfir skuldaeigendur. Hér væri um svo stórt mál að ræða að ekki væri lengur hægt að láta reka á reiðanum. Um fjárvon frá hendí ríkis- stjórnarinnar til togaraútgerðar- innar kvað hann lítið hægt að fullyrða, eftir því sem hann vissi bezt um, eftir viðræður við Isjávarútvegsmálaráðherra. Hugs anlegar væru auknar bætur til handa útgerðinni, en þær væru leggja þyrfti öllum togurum fé- lagsins. Bæjarstjórnin yrði því að taka ákvörðun í þessu máli. Guömundur Gufflaugsson (F) sagði að hægt myndi að leggja fram nánari uppl. fyrir bæjarfull trúana um rekstur og skuldir Ú. A. Mælti hann með því að fjár- hagsáætlunin yrði afgreidd til 2. umræðu og kvaðst leggja fram till. sem fram væri komin, um að lokaður fundur yrði haldinn í bæjarstjórninni um útgerðarfé- lags-málin. Helgi Pálsson (Sj) sagði út- gerðarfélagsstjórnina hafa sent bæjarstjórninni bréf í nóv.-byrj- un og gefið skýrslu um ástand fé- lagsins. Þá hefði bæjarstjórnin sent nefnd á fund ríkisstjórnar- innar, þar sem bæjarstjórnin hefði ekki.treyst sér til þess sjálf að ábyrgjast áframhaldandi rekst ur félagsins. Kvað Helgi nauðsynlegt að halda fund nú um áramótin þar sem þessi mál yrðu sérstaklega rædd, því framundan væru mjög auknar fjárgreiðslur er Ú. A. þyrfti að inna af hendi svo sem endurskráningar, skipaskoðanir og tryggingar og fleiri gjöld. Væri því nauðsyn að taka hið bráðasta ákvarðanir um hvað hægt væri að gera í þessum mál- um. Sagði hann að ekki myndi hægt að ganga frá skuldum félagsins, nema með samningum við skuldaeigendur til margra ára. Ekki væri hægt að gera áætlanir um framtiðarrekstur félagsins fyrr en fyrir lægi hvað ríkisstjórnin ætlaðist fyrir í út- gerðarmálunum. Sagði hann að Framh. a bls. 15. <

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.