Morgunblaðið - 21.01.1958, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.01.1958, Blaðsíða 2
2 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 21. janúar 1958 Þrir skipbrotsmannaima af finnska skipinu á Garðskaga á sunnudaginn. Þeir voru búnir að fá þurr föt og góðan mat hjá vitavarðarhjónunum. Vélstjórinn, sem hafði orð fyrir þeim, er lengst til vinstri. Þeir ætla allir á sjóinn aftur, en vildu helzt ekki þurfa að sigla hingað fyrr en komið væri sumar. Stefnisfundur á sunnud. Ungir Hafnfirðingar berjast fyrir heilbrigð- um rekstri bæjarfélagsins og bættri aðstoðu æskufólksins STEFNIR, félag ungra Sjálf- stæðismanna í Hafnarfirði, efndi til útbreiðslufundar sl. sunnudag. — Fundurinn var haldinn í Sjálfstæðishúsinu, og var fundarsalurinn þétt setinn. — Fundarstjóri var Birgir Björnsson, formaður Stefnis, en ræður fluttu. Eggert ísaksson bæjarfull- trúi, sem er í 2. sæti á lista Sjálfstæðismanna í Hafnar- lllmögulegf fyrir ókunnuga að sigla án hafnsögumanns hér við land sagði skipstj. á finnska skipinu Valborg LAUST fyrir hádegi á sunnudag- inn hafði Hafnamönnum tekizt að bjarga áhöfn finnska flutninga skipsins Valborg. Á skipinu var 19 manna áhöfn, og meðal skip- verja voru þrjár konur. Er það að líkindum í fyrsta skipti, sem kon ur eru í hópi skipbrotsmanna hér við land. Allir komust Finnarn- ir ómeiddir frá borði. Fjórum var bjargað í land, en hinir voru teknir í bát, er lagði að hlið hins strandaða skips. A laugardagskvöldið voru menn allvongóðir um að takast myndi að bjarga skipbrotsmönnum, en þá voru komin á strandstað tvö varðskip, María Júlía og Albert, flutningaskipið Jökulfell og vél- báturinn Mummi frá Garði. En þá um kvöldið var svo hvasst, að ekki var talið ráðlegt að senda menn á báti út að skipinu. Að vísu voru gerðar tilraunir í þessa átt, en bátarnir hurfu frá. Um klukkan 2 um nóttina, var skipstjóranum á finnska skipinu tilkynnt, að björgun skipbrots- manna yrði að bíða morguns, nema þá að sýnt þætti að skips- menn væru í beinum lífsháska. Þóttust sjómenn úr Garði á vél- bátnum Mumma, sem kunnugir eru staðháttum, sjá að skipið myndi ekki brotna þá um nótt- ina. Á flóði braut að vísu á því norðan vindbáru, en hafbrim var ekki við ströndina. Gekk þó yfir skipið. Varðskipin voru til taks með björgunarbáta sína, ef skip- brotsmenn myndu skyndilega þurfa að yfirgefa skipið. Alla nóttina beindu skipin ljósköstur- um,sínum á hið strandaða skip. í landi var Sigurbergur Þorleifs- son vitavörður í Garðskaga stöð- ugt á varðbergi og hjá honum var til taks sveit manna úr Garð- inum. Var þess nú beðið að dagur rynni. Um borð í skipinu var myrkur og ekkert samband hægt að hafa við það, því senditæki þess biluðu áður en rafhlöðurn- ar tæmdust. Skipsmenn voru flestir uppi í brúnni. Munu þeir um skeið hafa óttazt að skipið myndi brotn'a og velta af skerinu. Stóð það alveg fram um miðjan kjöl. Rétt fyrir aftan það var nokkurt dýpi. Þegar vel var orðið bjart á sunnudagsmorguninn, um kl. 10, hófst björgunarstarfið. Bátur var mannaður úr vitanum, róið út í vélbátinn Mumma úr Garði, skip stjóri Þorsteinn Einarsson í Nýja Bæ. Þar voru með honum nokkr- ir skipstjórar aðrir, m.a. Eggert Gíslason hinn kunni aflamaður. Frá Mumma var bátnum síðan ró ið að finnska skipinu og voru fyrstu skipbrotsmennirnir tekn- ir í bátinn. Voru meðal þeirra þrjár skipskonur. Fór báturinn þrjár ferðir á milli. Jafnframt fór björgunarsveit fram eftir Garðskagaflös, en á fjöru er fært eftir henni, allt út undir skipið sjálft. Mun flösin vera um 1 km á lengd út frá gamla Garðskaga vitanum. Fyrir sveitinni var Ingvar Júlíusson á Bjargi. Er þeir komu út að skipinu tóku fjórir skipbrotsmanna til þess ráðs að fara niður eftir síðu skips ins og ösla sjóinn upp undir mitti upp að flösinni, þar sem björgunarmenn tóku á móti þeim. Var björgun skipbrots- manna lokið um klukkan 11 árd. Hélt Mummi með 15 skipbrots- menn til Sandgerðis, en hinir fjórir gengu heim að Garðskaga vita, þar sem tekið var vel á móti þeim af vitaverði og konu hans. í Sandgerði var einnig tekið vel á móti hinum finnsku skipbrots- mónnum. Voru þeir fluttir í hina stóru verbúð Guðmundar á Rafn- kelsstöðum, þar sem veitingar voru fram bornar. Síðar var hópn um ekið upp á Keflavíkurflug- völl, en þar var fólkinu komið fyrir í flugvallarhótelinu. Er tíðindamann Mbl. bar að Garði hjá Sigurbergi Þorleifssyni vitaverði um hádegisbilið á sunnudaginn sátu þar fiórir skip brotsmannanna að snséðingi. — Einn þeirra var aðalvélstjórinn á skipinu, myndarlegur maður. Hann sagði að það væri þreytandi fyrir ókunnuga að sigla meðfram íslandsströndum í skammdeginu, þegar bjart er aðeins nokkrar klukkustundir. Á Keflavíkurflugvelli hitti tið- indamaður blaðsins John Sund- blom skipstjóra sem snöggvast að máli. Er skipstjórinn traustlegur, roskinn maður. — Já, nú hafa leiðir okkar skilizt, sagði hann, og talaði um sitt gamla skip, sem tilgangslaust er talið að reyna að bjarga. — Ég var búinn að sigla Valborgu í 10 ár. Sigling meðfram íslandsströnd um vetrarmánuðina, er háskaleg þegar allt er í senn, skipið gam- alt, ekki með radartæki, gang- lítið og loks skipstjórinn gjöró- kunnugur, en þannig er því var- ið með mig. Tel ég það næstum frágangssök að sigla hafnsögu- mannslausu höfn úr höfn í því skammdegismyrkri sem hér er, sagði John skipstjóri, sem að öðru leyti vildi ekki ræða um tildrög strandsins. Sjáið þér til, fyrst vil ég koma fyrir sjódóm- inn, svaraði hann. Það er álit siglingafróðra manna, að skipstjórinn hafi ekki reiknað með straumi á þessum slóðum, sem er mikill, og gang- lítið skip sem Valborgu ber auð- veldlega af léið. Var skipið alveg tómt og hafði skrúfan staðið all- verulega upp úr sjó. Hinir finnsku skipbrotsmenn munu halda heimleiðis með flug vél í kvöld. firði, svo Þórðarson Þorgrímur fræðingur, og Guðlaugur B verzlunarmaður, Halldórsson raf- Birgir Björnsson vélskólanemi, Einar Sigurðs- son stud. oecon., Arngrímur Guðjónsson húsasmíðameist- ari, Jóhanna Helgadóttir skrif stofustúlka, Magnús Þórðar- son verkstjóri, og Finnbogk Arndal vélsmiður. Á fundinum kom fram mikill sóknarhugur í röðum ungra Sjálf stæðismanna í Hafnarfirði. Hið unga fólk flutti snjallar ræður, deildi hart á dáðleysi vinstri flokkanna, sem farið hafa með stjórn málefna Hafnarfjarðar síðasta kjörtímabil og hvöttu ungt fólk til að taka höndum sam an til að gera sigur Sjálfstæðis- manna sem mestan. En sigur flokksins myndi tryggja aukið at hafnalíf og meiri hagsæld fyrir bæjarbúa. Sérstaklega var á það bent, hversu slælega hefði verið unn ið að þeim málum, sem æskan ber fyrir brjósti. Var rifjað upp í því sambandi, að fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar lofuðu kratar og kommúnistar að koma upp íþróttahúsi í Hafnarfirði og Sérstök skólastjárn skipuð fyrir Fósfruskóla Sumargjafar Skólinn hlaut 55 þús. kr. styrk trá Reykjavíkurbæ s.l. ár 1 GÆR var blaðamönnum boðið að kynnast Uppeldisskóla Sumar- g-jafar. Formaður Barnavinafé- lagsins Sumargjafar, Páll S. Páls- son, hæstaréttarlögmaður, skýrði svo frá, að nýlega hefð. verið skipuð sérstök skólastjórn Upp- eldisskólans og eiga sæti í henni auk formanns Sumargjafar þeir Helgi Elíasson, fræðslumálastjóri og Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri Reykjavíkurbæjar. —- Skólastjórinn, VaLborg Sigurðar dóttir, uppeldisfræðingur, skýrði fm því, að nýlega hefði verið skipt um nafn á skólanum, og héti hann eftirleiðis Fóstruskóli Sumar- gjafar. 55 þús. kr. styrkur frá Iieykjavíkurbœ sl. ár Skólinn hefir verið rekinn af Sumargjöf en hlotið styrk fi'á Reykj avíkurbæ og veitt hefir ver- ið sama upphæð á fjárlögum, en 1957 hækkaði Reykjavíkurbær framlag sitt upp í 55 þús. kr. Fór skólinn fram á aukinn styrk frá Alþingi, sem því næmi á þeim forsendum, að hér væri um lands- skóla að ræða. Yfirleitt er það svo, að fleiri stúikur sækja skól- ann utan af landi. Nú er í skól- anum 4 reykvískar stúlkur en 7 viðs vegar að af landinu. Skólinn er til húsa í Grænu- borg, og síðan hann var fluttur þangað 1954, hefir verið relcinn í tjr • i - , r i". ■ -1 r samband við skolann leikskoli fyr Kosnmgaskrifstofa Sjalf ir börn á aldrinum 3_7 ára og er stæðismanna í Miðbæj- forstöðukona leikskólan- Margret , Sohram. Árlega hafa 10—11 stulk arhverfi (frá Oðinsgötu ur getað fengið skólavist, en í * a * i ' haust verður kleift að taka fleiri að Aðaistrætl) Iiytur 1 stúlkur inn í Fóstruskólann, þar rlacr frá T aiifáqvPCO að , sem rýmra verður um húsnæði í dag íra Hau g Grænuborg með haustinu. Vegna Skólavörðustíg 17. Sím- þessa aukna húsnæðis verða einn- I ig tekin fleiri börn í leikskólann inn verður 2 44 59. i Grænuborg. Eftirspurnin eftir fóstrum er mjög mikil og er hvergi nærri hægt að fullnægja henni, enda hefir barnaheimilum, dagheimil- um og gæzluleikvöllum fjölgað mjög mikið, einkum í Reykjavík en einnig víðs vegar um landið. Úti á landi er þó einkum um sum- arheimili að ræða.enda mikil eft- irspurn eftir forstöðukonum fyrir slík heimili yfir sumartímann. Alls hafa 55 námsmeyjar lokið námi í Fóstruskólanum og flestar forstöðukonur á barnaheimilum í Reykjavík og starfandi fóstrur eru brautskráðar frá skólanum. Tvegfíja ára nám Fóstrunámið tekur tvö ár. Nem- andinn þarf að vera 18 ára að aldri, en má 3Ígi vera eldri en 33 ára. 1 skóianum er lögð jöfnum höndum stund á bóknám og starf, og fá nemendur kaup í verknámi sínu yfir sumartímann. í skólan- um eru kenndar þessar námsgrein ar: Uppeldis- og sálarfræði, lík- ams- og heilsufræði, meðferð ung- barna, hjálp í viðlögum, átthaga- fræði, næringarfræði, félagsfræði, ísienzka, bókfærsla, söngur, gít- arleikur, ryþmik, föndur, teikn- ing, smíðar, barnafata- og ieik- fangasaumur. skapa æskunni viðunandi skilyrði til íþróttaiðkana. Þetta loforð hefur ekki verið efnt. Lagði hið unga fólk áherzlu á, að þessu máli og öðrum hagsmunamálum æskunnar yrði ekki komið í höfn, fyrr en Sjálfstæðisflokkurinn fengi meirhluta í bæjarstjórn. Þá fjölluðu ræðumenn um ýmsa þætti atvinnulífsins, m. a. um óreiðu þá, sem nú er á fjár- stjórn og rekstri Hafnarfjarðar- bæjar, sérstaklega bæjarútgerð- arinnar, en ekki hefur enn verið gengið frá reikningum þessa fyr- irtækis frá undanförnu ári. Taldi hið unga fólk, að brýna nauðsyn bæri til, að kvaddir væru tii stjórnar á máiefnum bæjarins ný ir menn, er myndu koma á festu og öryggi í málefnum hans. Lýðræðissinnar í Verkalýðsfclagi Rorgarness unnu stórsigur BORGARNESI, 20. jan. Lokið er stjórnarkjöri í Verkalýðsfélagi Borgarness, en þar áttu lýðræð- issinnar miklum sigri að fagna gegn kommúnistum og nokkrum framsóknarmönnum, sem lista þeirra studdu. Tveir listar komu fram, lýð- ræðissinna og kommúnista. Lýð- ræðissinnar hafa farið með stjórn í félaginu og við stjórnarkjör í fyrra hlutu þeir 45 atkvæði, en kommúnistar 33. Á kjörskrá voru 130. Enginn seðill var ógildur eða auður. Við stjórnarkjör það, sem nú er lokið, hlutu lýðræðissinnar í verkalýðsfélaginu 59 atkvæði, en kommúnistar 33. Er því hér vissu lega um stórsigur að ræða fyrir lýðræðisöflin innan Verkalýðs- félags Borgarness. Það þykir aug- ljóst mál, að kommúnistar hafi talið sig eiga að fagna óskiptu fylgi framsóknarmanna í verka- lýðsfélaginu, en það hefir ekki reynzt vera á rökum reist hjá þeim. — F. Sjálfstæðismenn - efliiin flokkssjóðinn SJÁLFSTÆÐISMENN í Reykja- vík safna nú fé í kosningasjóff sinn. Reykvíkingar, sem leggja vilja eitthvaff af mörkum, eru vinsamlega beffnir aff koma fram lögum til skrifstofu flokks- ins í Sjálfstæffishúsinu viff Aust- urvöll. Einnig má hringja í síma 1-71-00, og verffa framlögin þá sótt. Reykvíkingar! Styrkiff Sjálf- stæffisflokkinn. Öll framlög í kosningasjóffinn, stór og smá, eru vel þegin. SEYÐISFIRÐI, 20. jan. — í des. s. 1. kom hingað 21 erlendur togari, ýmist með veiga menn, eða til viðgerða. Alls hafa verið tollafgreidd rúmlega 500 skip á árinu. —B. Framsóknarréttlætið í verbi 1 Samvinnuskólanum eru 66 nemendur. í Verzlunarskólanum eru 348 nemendur. Ríkisstyrkur til Samvinnuskólans er 320 þús. kr. Ríkisstyrkur til Verzlunarskólans er 440 þús. kr. Ríkisstyrkur á hvern nemanda í Samvinnuskólanum 4800 krónur. Ríkisstyrkur á hvern nemanda í Verzlunarskólanum er 1200 krónur. Þetta ósamræmi og mismunun milli skóla hefur lengi veriff í gildi. Viff síffustu afgreiðslu fjárlaga juku stjórnarflokkarnir ósam- læmiff enn, þrátt fyrir tillögu Björns Ólafssonar á þingi, aff bætt yrffi úr þessu ranglæti. er um um

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.