Morgunblaðið - 02.02.1958, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.02.1958, Blaðsíða 14
„Körfuknatfleiksfélag Reykjavíkur" í sfað „Gosi" Aðalfundur samþykkti einráma nafn- bteyfinguna — E. Mikson ráðinn þjalfari AÐALFUNDUR körfuknattleiks- íélagsins Gosa var haldinn 22. desember sl. í skýrslu fráfarandi stjórnar var drepið á hinn geysi aukna áhuga á þessari íþrótt, sem gerir félögunum í Reykjavík mjög erfitt fyrir, vegna þess hve íþróttahús bæjarins eru þéttset- in og ómögulegt að auka æfinga- tíma frá því, sem verið hefur. Sl. sumar hafði félagið forgöngu um það að láta smíða og reisa körfur á íþróttavellinum og munu full not verða af þessu verki í sumar, en tekið var að líða á s. 1. sumar, er þær voru tilbúnar til notkunar. Er þetta mikil bót og stórum bættur áðbúnaður til æf- inga allt árið. Munu önnur fé- lög fá afnot af körfum félagsins eftir óskum og eins og hægt verð- ur að koma við. Æfingatimar hjá félaginu sl. starfsár hafa verið mjög vel sóttir og æft í öllum aldursflokkum. Félagið hafði forgöngu í því að hingað til lands fékkst hinn góðkunni þjálfari John Norland- er, sem dvaldist hér um mánað- artima sl. haust og veitti tilsögn félögum í Reykjavík og úti á landi. Hinn góðkunni körfuknatt- leiksmaður og þjálfari E. Mikson hefur fengizt til að þjálfa meist- tmr - — —■ — y.-yryy™ - \ —:—— —. . E. Mikson, sem nú ber nafnið Eðvarð Hinriksson. araflokk, og eru miklar vonir bundnar við hann. Þá hafði félagið forgöngu og undirbúning að stofnun körfu- knattleiksráðs fyrir Reykjavík og var Guðmundur Georgsson kos- inn fyrsti formaður þessa nýstofn 'aða ráðs, en sem kunnugt er hefur Guðmundur verið formað- ur félagsins í 5 ár af 6 ára starfs- tímabili. Félagið gekkst fyrir happdrætti á starfsárinu, sem varð til þess að veita nokkurn styrk til félags starfsseminnar. í tilefni af 5 ára afmæli fé- lagsins var efnt til keppniskvölds á árinu og var keppt í meistara- flokki og II aldursflokki. Farn- ar voru keppnisferðir til Mennta- skólans á Laugarvatni. í íslands- meistaramótinu skipaði félagið annað sæti í öllum aldursflokk- um, en tapaði íslandsmeistara- titlinum í leik gegn LR. með einu stigi. í opinberum mótum hjá meist- araflokki varð heildamiðurstað- an sú að af 11 leikum leiknum, þá unnust 5, 1 varð jafntefli og 5 tapaðir. í sambandi við dvöl banda- ríska þjálfarans Norlanders var efnt til keppniskvölds í kveðju- skyni við hann, þar sem tvö íslenzk úrvalslið léku gegn tveim bandarískum úrvalsliðum. Úr Gosa voru 6 menn valdir í þessi félap járniðnaðar- manna í Reykjavik Hérmeð er auglýst eftir framboðslistum til vænt- anlegs kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs Félags járniðnaðarmanna fyrir árið 1958. Listar þurfa að hafa borizt skrifstofu félagsins að Skólavörðustíg 3A fyrir kl. 18 þriðjud. 4. þ.m. Meðmælendur skulu vera að minnsta kosti 45 full- gildir félagsmenn. Félagsfundur, þar sem rætt verður um stjórnar. kjör, verður haldinn í Alþýðuhúsinu við Hverfis- götu miðvikud. 5. febrúar og hefst hann kl. 2D.30. Stjórnin. Samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar verður hver sá, er vill njóta atvinnuleysisbóta, að sanna atvinnu- leysi sitt með vottorði vinnumiðlunar. Verkamönnum, sem eru eða verða atvinnulausir, skal því bent á að láta tafar- laust skrá sig atvinnulausa. Eftir fyrstu skráningu ber mönnum að mæta einu sinni í viku til að láta stimpla í inn- ritunarskírteini. Vanræki menn að láta skrá sig reiknast þeir atvinnuleysisdagar ekki með í biðtíma og bótagreiðslur koma ekki fyrir þá daga. Skráning fer fram alla virka daga í Ráðningarstofu Reykjavíkurbæjar. Skrifstofa Kópavogskaupstaðar annast skráningu verkamanna, sem þar eru búsettir og skrifstoía Seltjarnarneshrepps skráir þá, sem búsettir eru þar. Verkamannafélagið Dagsbrún. Ljósatæki — Ljósatæki Tókum upp um helgina: ÞÝZKAR Ljósakrónur, gangaljós, vegglampa, standlampa 3 arma, 4 tegundir. Bast-borðlampa. Fjölbreytt úrval — fallegúr litir. lið, en tveir af þeim léku ekki með vegna veikinda. Þá skýrði stjórnin frá því að unnið væri að því að senda meist araílokk til utanferðar næsta haust og kæmi helzt til greina Frakkland, Þýzkaland eða Aust- urriki. Á aðalfundinum bar fráfarandi stjórn fram tillögu um það að nafni félagsins yrði breytt og voru fcfrsendur tillögunnar ein- róma samþykktar og félaginu gef ið heitið Körfuknattleiksfélag Reykjavíkur. Taldi fundurinn þetta nafn vel til fallið, þar sem þetta væri eina félagið í Reykja- vík, sem hefði einungis þessa íþróttagrein á stefnuskrá sinni. Skammstöfun á nafni félagsins er K.F.R. Fráfarandi stjórn var öll end- urkosin en einn vék úr henni vegna náms erlendis, en það er Ólafur Thorlacius. í stjórn eru nú: Ingi Þorsteinsson, form., Guðmundur Árnason, varaform., Geir Kristjánsson, gjaldkeri, Guð mundur Georgsson, ritari og Hörð ur Sigurðsson, meðstjórnandi. SkjalduglíBta Ármanns í dag SKJALDARGLÍMA Ármanns 1958 fer fram í íþróttahúsi Í.B.R. við Hálogaland í dag, sunnud. 2. febr., kl, 4,30 e.h. Keppendur eru 12 frá 5 félög- um. U.M.F. Reykjavikur sendir 6 keppendur, þá Ármann J. Lárusson, Hannes Þorkelsson, Hilmar Bjarnason, Kristján H. Lárusson, Svavar Einarsson, Svein og Þórð. Kristjánsson. Glímufélagið Ármann sendir 3 keppendur, • Sigmund Ámunda- son, Kristján Andrésson og Sigur jón Klristjánsson. Frá U.M.F. Eyfellingi er einn keppandi, Ól- afur Eyjólfsson og frá U.M.F. Dagsbrún, Landeyjum keppir Ólafur Guðlaugsson, frá íþrótta- fél. Miklaholtshrepps Karl Ás- grímsson. Glímustjóri er Guðmundur Ágústsson f.v. glímukóngur. Yfir dómari er Ingimundur Guð- mundsson og meðdómendur Gunn laugur J. Briem og Hjörtur Elías- son. Glímufélagið Ármann sér um mótið. Núverandi skjadhafi er Trausti Ólafsson úr Glímufél. Ármann. Hann getur ekki tekið þátt í glímunni að þessu sinni, þar sem hann er við nám erlendis. Gera má ráð fyrir mörgum spennandi glímum, ef að vanda lætur, og mun margan langa til þess að sjá utanbæjarmennina í keppni við hina gamalreyndu keppendur. Glíman hefst kl. 4,30 e.h. og eru ferðir að Hálogalandi með Strætisvögnum Reykjavíkur. B£S árJoffa SteSáas- mót í sviffi ier iram í daff HIÐ svonefnda Stefansmót skíðamanna fer fram við skíðaskál- ann í Hveradölum í dag. Mótið er haldið til minningar um Stefán Gíslason, brautryðjanda skíðaíþrótta hjá KR. Keppendur á mót- inu eru 50 talsins og keppt er eingöngu i svigi, en í öllum flokk- um. Keppt er um fagra bikara. Árdegis fer fram keppni í kvennaflokki, drengjaflokki og B-flokki, en kl. 2,30 e. h. hefst aðalkeppnin í A-flokki karla. Meðal keppenda er allt bezta skíðafólk Reykjavíkur. Keppt er um fagra verðlauna- gripi en handhafar þeirra frá í fyrra eru í Aflokki karla Stefán Kristjánsson, Á, í kvennaflokki, Heiða Árnadóttir, Á, í B-flokki Elías Hergeirsson, Á, og í drengja flokki Þorbergur Eysteinsson, í. R. Er ekki að efa að margir verða við Skíðaskálann í dag ef veð- ur verður gott. Þar er nægur snjór og gott færi. Simanúmer okkar er 2-24-80 Jttorgimfcfa&tft Stefán Kristjánsson, handhafi bikarins í A-fl. karla. Pappírshnífur til sölu Uppl, i sima 15815

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.