Morgunblaðið - 29.11.1958, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.11.1958, Blaðsíða 16
V EÐRIÐ Vaxandi SA-átt með morgrnin- um. Hvass SA og regn síðdegis. Rœða Jóhanns Hafsteins Sjá bls. 9. 274. tbl. — Laugardagur 29. nóvember 1958 Hroðalegt slys í höfninni í gœr. Danskur maður fórst MILLI kl. 7.30—8 í gærkvöldi varð hörmulegt slys við höfnina, er danskur farmaður beið bana um borð í norsku skipi. í gærkvöldi voru fregnir af atburði þessum, einkum aðdrag- anda hans, óljósar. Þar eð hér var um slys að ræða um borð í erlendu skipi og engir hérlendir menn voru við það riðnir, kom ekki til kasta rannsóknarlögregl unnar að ransaka slys þetta. Síðdegis í gær kom hingað til Reykjavíkur norska flutninga- skipið Kyvig, sem Sameinaða gufuskipafélagið, hið sama og á „Ðrottninguna", hefur á leigu. Skipið liggur hér í austurhöfn- inni. Eins og fyrr segir er Mbl. ekki kunugt um aðdraganda að slysinu, en eftir því sem það frétti í gærkvöldi, þá mun hinn látni danski sjómaður hafa verið emn við spilið, sennilega að und irbúa affermingu. Með hvaða hætti slysið varð, var ógjörla vitað, en maðurinn hafði orðið fastur við vír úr bómuvindu með þeim afleiðingum að hann dróst með vírnum í sjálfa vinduna, þar sem hann beið samstundis bana. Lík mannsins var flutt í land og hafði það verið hroðalega út- leikið. Hinn danski sjómaður var 31 árs að aldri og átti keima í Kaupmannahöfn. Ekki var vitað í gærkvöldi hvort hér myndu verða haldin próf í málinu. Skemmtun verzlunar- skólanema annað kvöld Á MORGUN, sunnudaginn 30. nóv., verður haldin miðnætur- skemmtun í Austurbæjarbíói, kl. 11,15. Eru það nemendur í Verzlunar skólanum, sem gangast fyrir skemmtun þessari, tM eflingar félagsstarfi sínu. Á síðasta vori héldu Verzlunarskólanemendur hljómleika með K. K.-sextett- inum ásamt fjölmörgum dægur- lagasöngvurum, og komust færri að en vildu. Óvenjulegt a'criði verður á skemmtun þessari. Þ. e., að jap- anskur fjölbragðaglímumaður, sem dvalizt hefur hérlendis und- anfarið, Matzoka Sawamura, sýn- ir ýms afbrigði af Jiu-jit-su, Judo, Agido o. fl. Hefur hann æft flokk manna, sem mun koma fram með honum á morgun. Er þetta í fyrsta skipti, sem Reyk- víkingum gefst kostur á að sjá þetta víðfræga japanska sjálfs- varnarkerfi í öllum sínum mynd- um. Síðari hluti dagskrárinnar verð- ur leikur 9 manna hljómsveitar K. K., „JAZZ ’58“. „JAZZ ’58“, V öruskipta jöfuð- urinn óhagstæður um 10 mill j. kr. í okt. s.l. V ÖRUSKIPT A J ÖFNUÐURINN var í okt. s.l. óhagstæður um 10 millj. kr. samkvæmt bráðabirgða- tölum frá Hagstofu íslands. Vör- ur voru fluttar inn fyrir 116 millj. kr., en út fyrir 106 millj. kr. Fyrstu 10 mánuði ársins er vöru- skiptajöfnuðurinn óhagstæður um 229,4 millj. kr. Vörur hafa ver iS fluttar inn fyrir 1093,5 millj. kr., en út hafa verið fluttar vörur fyrir 864,1 millj. kr. Skip hafa verið flutt inn fyrir 38,4 millj. kr. Vöruskiptajöfnuðurinn var óhag stæður um 246,2 millj. kr. á sama tíma í fyrra. hefur leikið í Breiðfirðingabúð um helgar, nú undanfarið, við mjög miklar vinsældir. Enda er hljómsveitin skipuð 9 af beztu jazzleikurum landsins. Má geta þess, að þetta er í fyrsta sinn, sem „JAZZ ’58“, leikur á miðnæt- urskemmtun hér i bænum. Aðgöngumiðar munu verða í Vesturveri, Hljóðfærahúsinu í Bankastræti og í Austurbæjarbíói á sunnudag. Árshátíð og full- veldisfagnaður HAFNARFIRÐl — Árshátíð og fullveldisfagnaður Sjálf- stæðisfélaganna verður í Góð- templarahúsinu í kvöld og hefst kl. 8,30 með sameigin- legri kaffidrykkju. Aðalræð- una flytur Sigurður Bjarna- Varðarkaffi í ValhÖll i dag kl. 3-5 s.d. Selfoss á ytri höfninni í gærdag. (Ljósm. Mbl.: Ó. K. M.) Nýi Seltoss glœsilegur arftaki hins gamla skips HINN nýi „Foss“ Eimskipafélags- ins, Selfoss, er að allra dómi, sem skipið sáu síðdegis í gær, er það lagðist upp að hafnarbakkanum, glæsilegur arftaki hins gamla, happasæla Selfoss. Það sem eink- um vakti eftirtekt þeirra er skip- ið sáu, er hve iangt og rennilegt það er. Um borð í því eru ýms- ar nýjungar. Með komu Selfoss eru „Fossarnir" nú orðnir 10 að tölu, og samanlagt burðarmagn þeirra er um 20,000 tonn. Selfoss kom á ytri höfnina skömmu fyrir hádegi £ gær. „Foss ar“, sem í höfninni voru, fögn- uðu komu skipsins með því að fánar þeirra voru dregnir að hún. Selfoss var sjálfur allur fán- um prýddur stafna á milli. Lest- ar skipsins fullar af vörum og á þiljum mátti sjá tvo stóra, nýja Mercedes-strætisvagna yfir- byggða og 2 strætisvagnagrindur. Skömmu eftir klukkah 3 komu stjórnarmenn Eimskipafélagsins ásamt framkvæmdastjóra þess um borð, þar sem skipstjórinn, Jónas Böðvarsson, tók á móti þeim. Var síðan gengið til setustofu yfirmanna skipsins, þar sem stjórn Eimskipafélagsins bauð skipstjóra og skipshöfn Selfoss velkomna til Reykjavíkur úr jómfrúrför skipsins, sem í þess- ari ferð hafði fengið 10 vindstiga mótbyr. Síðdegis í gær var svo blaða- mönnum boðið um borð til þess að skoða skipið hátt og lágt. 1 mjög hlýlegri setustofu yfir- manna bauð Guðmundur Vil- hjálmsson blaðamenn velkomna um borð í hið nýja skip. Eftir að veitingar höfðu verið fram born- ar fylgdi Jónas Böðvarsson blaðamönnunum um skipið, ásamt verkfræðingi Eimskipafé- lagsins, Viggo Maack. — Á leið- Borgarafundur um ÁVR í Keflavík: Flestir rœðumenn mót- fallnir opnun útsölu Sigurður Bjarnason son, alþingismaður. Leikar- arnir Valur Gíslason og Klem- ens Jónsson fara með stutta leikþætti, og Guðrún Tómas- dóttir syngur einsöng. Síðan verður dansað fram eftir nóttu. Aðgöngumiðar eru seldir hjá Jóni Mathiesen og Verzl- un Þórðar Þórðarsonar — og í Góðtemplarahúsinu frá kl. 2 í dag. — Er allt Sjálfstæðis- fólk hvatt til að fjölmenna og tryggja sér miða í tíma. Árshátíð Sjálfstæðisfélag- anna, sem jafnframt hefur verið fullveldisfagnaður, hef- ur ávallt verið mjög vel sótt, enda alltaf vel til hennar vandað. Er þess að vænta að Sjálfstæðisfólk fjölmenni á skemmtunina í kvöld. — G.E. KEFLAVÍK, 28. nóv. — í gær- kvöldi var haldinn hér almennur borgarafundur 1 Bíóhöllinni um væntanlega- atkvæðagreiðslu varðandi áfengisútsölu hér í bæ. Hallgrímur Th. Björnsson for- maður stúkunnar Víkur setti fundinn og tilnefndi Tómas Tóm- asson og Hafstein Guðmundsson fundarritara. Áfengisráðunautur ríkisins séra Kristinn Stefánsson var frummælandi á fundinum. Ræddi hann einkum um það þrennt, er hann taldi þá er væru fylgjandi áfengisútsölu, aðallega nota málflutningi sínum til stuðn ings, en það væri héraðsbönn, leynivínsala og tekjur bæjarfé- lagsins af útsölu. Að loknu ávarpi áfengisvarnar ráðunauts, fluttu þessir menn ávörp: Hallgrímur Th. Björns- son, séra Björn Jónsson og Jón- ína Guðjónsdóttir formaður Slysavarnarfélags kvenna hér í bænum. Ræddu þau öll um þá miklu hættu er þau töldu stafa af opnun vínbúðar hér, jafnt fyr- ir yngri sem eldri. Hvöttu ræðu- menn bæjarbúa mjög til að greiða atkvæði gegn opnun áfeng isútsölu hér í bænum, við kosn ingarnar næstkomandi sunnudag. Þá voru lesnar upp tvær álykt- anir sem fundinum bárust. Var önnur frá íþróttabandalagi Kefla víkur, en hin frá stjórn Skáta- félagsins Heiðarbúar, þess efnis að fyrrnefnd félög, væru eindreg ið á móti opnun áfengisútsölu og skoruðu jafnframt á alla bæjar- búa að greiða atkvæði gegn opn- un hennar. Hófust nú almennar umræður um málið og tóku alls til máls 18 ræðumenn, auk þeirra sem áð- ur er getið. Mikill meirihluti þeirra var andvígur útsölunni og urðu því umræður nokkuð ein- hliða framanaf. En er líða tók á, færðist nokkurt líf í fundinn. Tóku þá nokkrir fundarmenn að deila hart á starfsemi stúku- manna yfirleitt. Var Einar Ingi- mundarson fremstur í flokki og taldi starfsemi góðtemplara mjög óraunhæfa enda bæri hún lítinn árangur. Urðu nú allsnarpar deil- ur þar sem mjög var rætt um starf stúkumanna, og má því segja að umræður hafi farið út fyrir þann ramma sem þessum fundi var upphaflega ætlaður. En umræðuefnið var opnun áfengis- útsölu en ekki starfsemi góð templarareglunnar í landinu. Fundurinn stóð fram yfir mið- nætti. Var útvarpað frá honum og tókst útvarpssendingin mjög vel. — Ingvar. inni um skipið útskýrði verk- fræðingurinn það helzta, sem fyrir augun bar, og telja má til nýjunga. Hann gat þess til dæmis að veggir í íbúðum og borð væru öll klædd plasti, sem þolir svo mikinn hita að það getur vart kviknað í því. Hann lýsti og margbrotnu, en öruggu sjálf- virku slökkvikerfi skipsins hvort heldur eldur verður laus í lest eða vélarrúmi. Hver einasti maður af skips- höfninni hefur sitt einkaherbergi. Borðstofur yfirmanna svo og há- seta eru bjartar og rúmgóðar, búnar einföldum húsgöngum en nýtízkulegum. Litir í íbúðum eru bjartir. Að sögn Viggos Maack, hafði það vakið einna mesta ánægju meðal hásetanna, að hafa möguleika til þess að eyða frístundum sínum um borð í mjög rúmgóðri og skemmtilegri setustofu. Hitunarkerfi skipsins í íbúðunum er nýtt af nálinni, mjög fullkomið. Öll aðstaða til stórviðgerða í vél hefur verið bætt með því að auðvelt er með krana á sporbraut að taka vélar- hluti upp á þilfarið, ef á þarf að halda. í vélarrúminu söknuðu menn þess að finna engan titring frá vélinni, eins og einn gestanna komst að orði. Að lokum söfnuðust gestirnir saman aftur litla stund í setu- stofu yfirmanna. Jónas Böðvars- son, skipstjóri, sem verið hefur áratugi í þjónustu Eimskipafé- lagsins, hóf skipstjórnarferil sinn hjá félaginu fyrir 11 árum eða svo, á gamla Selfossi. Síðan hefur hann verið skipstjóri á Goðafossi og er nú sem sé aftur kominn á Selfoss. Hann taldi það öldungis ósanngjarnt að gera sam anburð á gamla Selfossi og þessu nýja skipi, sem hann nú sigldi í fyrsta sinn hingað heim. Hann kvaðst vissulega vera ánægður með skipið og það hvernig skip- ið reyndist í rokinu á heimleið- inni. Viggo Maack, sagði að skrokk- lag skipsins væri mjög líkt og á Fjallfossi, e* sá væri munurinn helztur, að Selfoss væri miklu lengra skip, en hann er aðeins 3 fetum styttri en Tröllafoss. Þegar skipið var byggt var ekki einasta stuðzt við íslenzka staðhætti hvað siglingu viðvíkur heldur og tillit tekið til þeirra verkefna sem skipsins bíða við flutninga á íslenzkum fiskafurð- um, því frystilestar skipsins rúma feiknanaagn af frystum fiski. Magnús Þorsteinsson er fyrsti stýrimaður skipsins og Jón Aðal- steinn Þorsteinsson 1. vélstjóri, Jón Bjarnason «r bryti og Hauk- ur Hólm Kristjánsson loftskeyta- , maður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.