Morgunblaðið - 29.01.1959, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 29.01.1959, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 29. jan. 1959 MORCUNBLAÐIÐ 9 Guðmundur Jónsson hreppstjóri frá Valbjamarvöllmn „Allir þekkja hinn þunga hljóm — en þó veit enginn hans leyndardóm“ Á ÖÐRUM degi þessa nýbyrjaða árs barst okkur, eins og oft áður, hinn þungi hljómur dauðans. Mætur maður og hugljúfur var frá okkur farinn. Við áttum ekki framar að sjá hann, mæta brosi hans, þrýsta hönd hans, vera með bonum í söng og músík. Allt heyrði þetta fortíðinni til. — Mér býr því í huga söknuður og eftirsjá, er ég minnist Guðmund- ar Jónssonar vinar míns, hans, sem var hvorttveggja: mannkosta maður og hæfileikamaður. Og iengi hafa leiðir okkar saman legið í kirkjulegu starfi, þar sem hann hefur fram lagt sinn ómet- anlega skerf af mikilli prýði og frábærri skyldurækni. Guðmundur kom mér strax fyrir sjónir sem maður mildi, drengskapar og glaðlyndis að strá blómum velvildar og hjarta- hlýju í kringum sig. Og sannar- lega reyndist hann mér svo — sannarlega reyndist hann svo vinunum sinum mörgu. Á liðnum árum hefi ég alltaf beðið komu Guðmundar með eft- irvæntingu og innilega glaðst að sjá hann, reiðubúinn til ljúfra skyldustarfa. Hann var organ- leikari í Stafholtskirkju um ára- tugi, spilaði þar fyrst við hjóna- vígslu sem 11 ára drengur. Oft sinnis spilaði hann og í Borgar- kirkju og um skeið í Hvanneyrar- kirkju, auk þess annaðist hann fyrrmeir gjarnan undirleik á samkomum og var æ hinn mesti auðfúsgestur á góðra vina fund- um. Jóladagurinn nú, hinn blessaði og yndislegi, varð síðasti dagur Guðmundar í Stafholtskirkju. Og gleðiefni er það okkur — fyrst svona varð að fara — að við skyldum þó fá að eiga með hon- um indæla stund, þegar jólasálm- arnir hljómuðu í helgum friði hinnar ljósum prýddu kirkju. En þegar út kom, roðaði bjarmi vest ur, loftið og kyrrðin, friðurinn og fegurðin umlukti allt örmum sínum. Þessi var hinzta kveðja Stafholts til Guðmundar frá Val bjarnarvöllum, en Stafholts- kirkja var honum mjög kær og áhugi hans brennandi, að söng- málum hennar yrði sem bezt borg ið — og endurgjaldslaust vann hann sitt ómetanlega starf fyrir kirkjuna. Þakkir okkar til hans við leiðarlok eru því miklar og góðar. Á nýársdag 1896, e» þá var Guðmundur aðeins 11 ára gamall, búast þau Valbjarnarvallahjón, Jón Guðmundsson hreppstjóri og Sesselja Jónsdóttir kona hans í ferð með syni sínum. Á skafla- járnuðum gæðingum skyldi leið leggja að Síðumúla — til Runólfs Þórðarsonar, en hjá honum átti Guðmundur að læra orgelspil til viðbótar því, er hann hafði lært hjá föður sínum heima. Dvaldist Guðmundur 1 Síðumúla um 9 vikna skeið og tók undraverðum framförum, svo sem vænta mátti. Skömmu áður en Guðmundur fór heim bar svo við, að sr. Magnús Andrésson á Gilsbakka kom til messugerðar í Síðumúla. Kirkju- organistinn, Rúnólfur Þórðarson, var ekki heima, en Helga hús- freyja tjáði prófasti, að á heimil- inu væri ungur sveinn, er leysa myndi vandann. Varð það að ráði, að Guðmundur Jónsson, 11 ára að aldri, spilaði við guðsþjónustu hjá héraðshöfðingjanum sr. Magnúsi Andréssyni og tókst með ágætum, sem sjá má af því, að eftir messu ávarpaði prófastur Guðmund og lauk lofsorði á frammistöðu hans. Þetta mun vera upphafið á hinum rúmlega 60 ára langa söngmálastarfi Guð- mundar frá Valbjarnarvöllum. Hann var gæddur músíkgáfu í ríkum mæli, svo sem hann átti kyn til — og fann djúpa og sanna gleði í heimi tónanna.------ Margt rifjast upp, þegar vegir skilja. — Það er sunnudagur í skammdeginu — messað hefur verið í Stafholti og við Guðmund- ur tökum hesta okkar og ríðum léttan yfir Norðurá og vestur í Borgarhrepp. Þar heimsækjum við allmarga bæi og hljótum hin- ar elskulegustu mótt. í svarta- myrkri síðkyöldsins komum við loks að Valbjarnarvöllum og þar var mér gisting búin. Þetta voru mín fyrstu kynni af heimili og sambúð þeirra hjónanna, Guð- mundar og hans ágætu konu, frú Þórunnar Jónsdóttur frá Galtar- felli. Ég man enn innileikann, birt- una, hlýjuna og glaðværðina, sem svo sannarlega skipaði öndvegið innan þessarar fámennu fjöl- skyldu. Ég átti líka eftir að sann- færast betur um hið nána og elskulega samband, sem var á milli þessara góðu hjóna — frá því fyrsta til hins síðasta. Saman stóðu þau á gleðistundum — sam- an stóðu þau á sorga og örðug- leikastundum. Vökul var ætíð kærleikshyggja Þórunnar, en þó aldrei meir en hin síðari árin, er heilsu Guðmundar tók mjög að hnigna. Var það þeim hjónum þakkarefni mikið að fá að njóta góðvistar og elskusemi á heimili dóttur og tengdasonar í Einars- nesi: Tvö voru börn þeirra Þórunnar og Guðmundar, Sigríður, gift Sig- þóri Þórarinssyni, hreppstjóra í Einarsnesi, og Jón Agnar, er and- aðist 1944 í blóma lífsins. Hafði hann átt við heilsuleysi að striða á uppvaxtarárum. Guðmundur bjó á Valbjarnar- völlum frá 1915—1941. Oddvita- störfum gegndi hann í 8 ár og var hreppstjóri Borgarhrepps frá 1932 og allt fram á s.l. ár, sóknarnefnd armaður Stafholtssóknar, eftir- litsmaður söngmála í Mýrarpróf- astsdæmi. öll störf sín rækti Guð mundur með ágætum — af skyldu rækni og samvizkusemi og fór að öllu með háttvísi og lipurð. Hann var ágætlega gefinn, skrifstofu- maður góður, með fagra rithönd og vandaði skýrslur og frágang allan, svo að til fyrirmyndar var. Hagmæltur var Guðmundur, þótt lítt á bæri, aðdáandi og unnandi alls, sem var listrænt og fagurt. Greiðvikinn, góður og gegn dreng skaparmaður, gestrisinn mjög og þau hjón bæði. Miklar voru vin- sældir hans og þeirra hjóna, svo sem sjá mátti og finna í samsæti því, er sveitungar hans héidu honum til heiðurs og þakkar á merkisafmæli hans fyrir rúmum þrem árum. Þar var fallega minnst ánægju og gleðistundanna mörgu, sem Guðmundur um langt skeið hafði flutt inn á heimili samferðamanna með músík sinni, góðvild sinni og góðum áhrifum. — Mikill og fjölmennur var og sá hópur manna er heiðra vildi minningu Guðmundar með því að vera við útför hans, en hún var gerð frá Stafholti, laugardaginn 10. þ.m. — Með fráfalli Guðmund ar frá Valbjarnarvöllum er blaði flett í sögu söngmálanna hér í þessum byggðarlögum. Sárt sakn- ar nú Stafholtskirkja og söfnuður og kirkjukór þessa listfengna manns og óþreytandi áhuga hans. Ég flyt honum miklar og góðar þakkir frá okkur öllum. Hánn hefur veitt okkur svo margar stundir yndis og uppbygg ingar. Fyrir það árnum við hon- um blessunar og velfarnaðar. Hann var okkur mikils virði — hann var ckkur svo kær. Þess vegna er heiðríkja um minningu hans. Bergur Björnsson. INDLAND SETUR NÝ IIÖFUNDALÖG HINN 21. okt. 1958 staðfesti Ind- land aðild sína að Bernarsam- bandinu varðandi höfundarétt, — eftir að ný höfundalög höfðu áður verið sett. Albert Camus, franski rithöfundurinn, sem fékk bókmenntaverðlaun Nóbels 1957, hefur nú lokið við að semja leikrit upp úr hinni frægu skáldsögu Dostojevskís „Ilinir djöfulóðu“, sem verð- ur sýnt í Theatre Antoine í París. Hinn þekkti leikari Pierre Blachar kemur nú fram á ný eftir margra ára hlé og fer með hlutverk Verkóvenskís. Myndin er tekin í hléi á einni æfingunni og sýnir frá vinstri: Pierre Blanchar, Tania Balachova, sem leikur Varvöru Petróvu Stavro- gínu og Albert Camus. Onassis leifar nú eftir sam- vinnu v/ð SAS og Swissair SKANDINAVISKA flugsamsteyp an SAS gerði í vetur víðtækan samstarfssamning við svissneska flugfélagið SWISSAIR og hyggj- ast flugfélögin bæta þannig að- stöðu sína í hinni hörðu sam- keppni stóru flugfélaganna á hinni upprennandi þotuöld. Nýju þoturnar eru geysilega dýrar og töldu forráðamenn beggja félag- ann sig ekki getað fest kaup á jafnmörgum þotum og nauðsyn bar til. En samkvæmt samningi flugfélaganna mun hvort um sig nota jöfnun höndum þotur beggja félaganna á sumum flugleið- um. Er þar um að ræða mjög aukna nýtingu þotanna svo og aukinn spamað. í rekstri. Jafn- framt mun viðhöfð g'agnkvæm samvinna um viðhald þotanna. En nú hefur heyrzt, að fleiri hafi áhuga á samvinnu þessari. Og það er enginn annar en Onassis, sem mjög hefur nú í huga að færa út kvíarnar á loft- leiðum ekki síður en sjóleiðum. Flugfélag það, sem Onassis á hlut að og stofnað var árið 1957 hefur eflzt mjög á þessum stutta tíma. Olympic Airways, eins og það heitir , á nú 14 DC-3 flugv’élar, Skymaster flugvélar og átti um áramótin að fá 3 flugvélar af gerðinni DC-6b. Auk þess á félag- ið tvær þotur af gerðinni DC-8 í pöntun. Þessar þotur eru aðal- iega ætlaðar til langflugs, en flugleiðir félagsins eru flestar það stuttar, að minni þotur hæfðu betur. A.m.k. koma DC-8 þoturn ar félaginu ekki að fullum not- um. Helztu flugleiðir Olympic Air- ways eru milli Aþenu og ýmissa borga í V-Evrópu svo og landa Onassis fyrir botni Miðjarðarhafsins. Minni þotur, eins og Caravelle hin franska, munu hæfa þessum flugleiðum betur — og það er m.a. einn meginþáttur í samvinnu SAS og "Swissair, að hið síðar- nefnda fær afnot af hinum fjöl- mörgu Caravelle-þotum SAS á Evrópuflugleiðum, en SAS mun hins vegar njóta hinna stóru þota SWISSAIR að eínhverju í At- lantshafsfluginu. Talið er, að fyrir Onassis vaki hið sama og varð til þess að sviss neska félagið leitaði eftir sam- vinnu við SAS. Enn munu um- ræður um málið vera á byrjunar- stigi, en ef til „þríveldasamvinnu" kemur er ekki ólíklegt talið, að fleiri flugfélög, þá aðallega þau minni, verði sum hver neydd til þess að leita samvinnu sín á milli, ef þau eiga ekki að verða alveg undir í samkeppninni. Heildarafli Bíldudalsbáta BÍLDUDAL, 24. jan. — Heildar- afli bátanna, sem af er þessari vertíð, hefur verið sem hér segir: Geysir með rúmlega 71 lest í 13 róðrum, Hannes Andrésson með rúmlega 70,5 lestir í 12 róðrum og Sigurður Stefánsson með 34 lestir í 7 róðrum. Rækjuveiði hófst hér á nýjan leik fyrir hálfum mánuði og hef- ur gengið sæmilega. Hafði rækju veiðin legið niðri um skeið vegna ósamkomulags um kjör þeirra, sem skelfletta rækjuna. Gæftir hafa verið sæmilegar, j' en í nótt sneru bátarnir við vegna veðurs. Veðrið er mjög slæmt I dag, hvassviðri og rigning eða | slydda. Mjög mikili ís hefur verið \ á höfninni undanfarið, en hann ! hefur nú rekið á haf út. Þorrablót verður haldið hér i kvöld á vegum Slysavarnadeild- arinnar. Á borðum verður hangi- kjöt, hákarl og annar íslenzkur matur. —Hannes. Norræni Sumarhá- skólinn í Hilleröd Þota DC-8. NORRÆNI Sumarháskólinn verS ur haldinn í Hilleröd í Danmörku næsta sumar. Verður það fyrri hluta ágústmánaðar, og stendur skólinn í 10 daga. Námskeið til undirbúnings þátttöku í skólan- um hefst að venju í byrjun febrú- armánaðar hér í Háskólanum. — Viðfangsefni Sumarháskólans aS þessu sinni ber heitið: Þekking, mat og val. Þeir sem hafa áhuga á því aS taka þátt í undirbúningsnámskeið inu, eru beðnir að snúa sér til Ólafs Björnssonar, prófessors, eða Sveins Ásgeirssonar, hagfræðings, fyrir 5 .febrúar næstkomandi, en þeir munu gefa allar nánari upp- lýsingar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.