Morgunblaðið - 18.02.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.02.1959, Blaðsíða 1
20 slður Eitt von í sé mesta sjóslys á þessari óld: er talin úti um að lengur ofansjávar Með honum forust 30 sjomenn, 16-48 ára flestir frá Reykjavík — 39 hörn eru föðurlaus eftir sjöslysið SÍÐDEGIS í gær tilkynnti Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, að togarinn Júlí væri talinn af með allri áhöfn, 30 mönnum. Leit er nú hætt að togaranum, en hún hófst að morgni 10. þessa mánaðar og í tilkynningu Bæjarútgerðarinnar segir, að viðstöðulaust hafi síðan verið leitað með flugvélum og skipum á meir en 70,000 fersjómílna svæði. Fjöldi flugvéla hafði tekið þátt í leitinni að Júlí, björgunarflugvélar frá Kanada, Bandaríkjunum, Nýfundnalandi og héðan frá ís- landi, svo og handarískar flotaflugvélar. Á sjó leituðu veður- skip og stórir rússneskir verksmiðjutogarar. Auk hins fyrr- greinda leitarsvæðis á Nýfundnalandsmiðum var og leitað á stóru aðliggjandi svæði sunnar, á þeim slóðum, sem kanad- ísku skipin fórust, er einnig týndust í þessu ægilega mann- skaðaveðri. Leit að þeim var hætt fyrir nokkrum dögum. Allur þorri skipsmanna á Júlí voru ungir menn, yngsti maðurinn aðeins 16 ára, en hinn elzti 48 ára. Flestir á aldr- inum milli tvítugs og þrítugs. Af þeim voru 19 frá Reykjavík og fimm frá Hafnarfirði. í hópnum voru 12 heimilisfeður, er láta eftir sig konur og börn. Með hvarfi togarans Júlí hafa 39 börn á aldrinum nokkra vikna til 15 ára misst feður sína. Þá voru í hóp hinna vösku sjómanna á Júlí nokkrir menn er ýmist voru fyrirvinna móður eða foreldra.. Þetta er eitt hið mesta sjáslys, sem orðið hefur á íslenzku skipi á þessari öld, en fleiri fórust þó í hinu svonefnda Þor- móðsslysi 1943, er 31 maður drukknaði. 1 Halaveðrinu 1925, er tveir togarar fórust, drukknuðu 68 menn, og með togar- anum Max Pemberton, er hvarf árið 1944, fórust 29 menn. Forustugrein Morgunblaðsins í dag fjallar um hinn mikla mannskaða er hér hefur orðið. Hér fara á eftir nöfn skipverja á togaranum Júlí: Togarinn Júlí á Selvogsbanka 1956. (Ljósm.: Jóakim Snæbjörnsson) Nýlendugötu 7, Reykjavík. Ó- kvæntur. Sigmundur Finnsson, netamað- ur, Tripólibúðum 25, Reykjavík, 25 ára. Ókvæntur, en lætur eftir sig tvö börn. Magnús Guðmundsson, háseti, Trípólibuðum 25, Reykjavík, 44 ára. Kvæntur. Hann var stjúp- faðir Sigmundar og lætur eftir sig 4 stjúpbörn, uppkomin. Móðir hans er á Súgandafirði. Benedikt Sveinsson, netamað- ur, Njálsgötu 77, Rvík, 27 ára. Ó- kvæntur. Bjó með móður sinni. Jóhann Sigurðsson, netamaður, Laugavegi 53 B, Rvík, 44 ára. Kvæntur og lætur eftir sig fjög- ur börn, 15, 14, 11 og 4ra ára. Ólafur Snorrason, háseti, Njáls götu 87, Rvík, 34 ára. Fósturfor- eldra átti hann á Patreksfirði og móður á lifi. Björn Heiðar Þorsteinsson, há- seti, Ránargötu 24, Akureyri, 31 árs. Ókvæntur og bjó hjá foreldr- um sínum á Akureyri. Jón Geirsson, háseti, Borgar- nesi, 21 árs. Ókvæntur, í for- eldarhúsum. Magnús Gíslason, háseti, Lækj- kinn 2, Hafnarfirði, 31 árs. Ó- kvæntur og eru foreldrar hans í Elliheimilinu Grund hér í Rvík. Magnús Sveinsson, háseti, Rauðarárstíg 40, Rvík, 21 árs. í heimili fósturmóður sinnar. Jón Haraldsson, háseti, Hlíðar- vegi 11, Kópavogi, 16 ára. Hann var einkabarn foreldra sinna. Þorkell Arnason, háseti, Sörla- skjóli 20, Rvík, 38 ára. Lætur hann eftir sig unnustu og ungt barn. Foreldrar eru norður á Þórshöfn. Guðmundur Elíasson, háseti, Vitateig 5, Akranesi, 30 ára. Kvæntur og átti fjögur börn á aldrinum 10, 7, 5 og 2ja ára. For- eldrar hans búa á Akranesi. Benedikt Þorbjörnsson, háseti, Lokastíg 28, Rvík, 27 ára. Ó- kvæntur. Faðir á lífi. Aðalsteinn Júlíusson, háseti, Hítarnesi Hnappadalssýslu, þar sem faðir hans nú býr. Hann var 27 ára og ókvæntur. Björgvin Jóhannsson, háseti, (stud. med.), Höfðaborg 12, Rvík, 29 ára og lætur eftir sig tvö mjög ung börn. Móðir á lífi. Sigurður Guðnason, háseti, Kirkjubraut 28, Akranesi, 44 ára. Kvæntur en barnlaus. Foreldrar hans búa á Suðureyri. j ★ i I gærkvöldi var skipshafnar- innar á Júlí minnzt í Ríkisútvarp- inu. Flutti biskup íslands, hr. Ásmundur Guðmundsson, ávarp og bæn. Felld var niður dagskrá útvarpsins að fréttum undan- skildum, en þess í stað leikin sorg arlög og sígild tónlist. Úrslit Kýpurráðstefnunnar virðast í höndum Makariosar Þórður Pétursson, skipstjóri, Grænuhlíð 8, Reykjavík, 42 ára. Hann lætur eftir sig 3 börn: 14 ára, 11 og 6 ára. Faðir hans er á lífi. Hafliði Stefánsson, 1. stýrimað- ur, Köldukinn 6, Hafnarfirði, 31 árs. Kvæntur með 2 börn, 5 ára og 3ja ára. Móðir á lífi. Þorvaldur Benediktsson, 2. stýrimaður, Brekkugötu 14, Hafn- arfirði, 24 ára, ókvæntur. Hann var sonur Benédikts Ögmunds- sonar skipstjóra á togaranum Júní frá Hafnarfirði. Stefán Hólm Jónsson 1. vél- stjóri, Eskihlíð 4 C, Reykjavík, 48 ára. Lætur hann eftir sig 5 börn tvö innan fermingaraldurs. Guðlaugur Karlsson, 2. vél- stjóri, Garðavegi 10, Hafnarfirði, 20 ára. Hann var fyrirvinna móð- ur sinnar. Runólfur Viðar Ingóifsson, 3. vélstjóri, Langholtsvegi 137, Reykjavík, 23 ára. Hann var ó- kvæntur en móðir hans býr á Akranesi. Hörður Kristinsson, loftskeyta- maður, Langeyrarvegi 9, Hafnar- firði, 29 ára. Kvæntur og lætur eftir sig þrjú börn ung. Andrés Hallgrímsson, bátsmað- ur, Mávahlíð 27, Reykjavík, 35 ára, ókvæntur, en fyrirvinna móð ur sinnar. Kristján Ólafsson, 1. matsveinn Efstasundi 85, Reykjavík, 24 ára. Kvæntur og lætur eftir sig þrjú börn, 4 ára, 1% árs og 6 mánaða. Átti foreldra á lífi. Viðar Axelsson, 2. matsveinn, Njarðargötu 29, Reykjavík, 23 ára. Kvæntur ©g átti 1 barn 3 ára. Átti foreldra á lífi. Svanur Pálmar Þorvarðarson, kyndari, Laugarnesbúðum 31, Reykjavík, 19 ára. Ókvæntur. Hann var fyrirvinna móður sinn- ar. Skúli Benediktsson, kyndari, Ránargötu 6, Reykjavík, 24 ára. Kvæntur og lætur eftir sig 6 ung börn, hið elzta 5 ára. Átti fóstur- foreldra og foreldra á lífi. Ragnar Guðjón Karlsson, neta- maður, Höfðaborg 21, 39 ára. Kvæntur og lætur eftir sig þrjú börn 13, 11 «g 7 ára. Átti fóstur- móður á lífi. Ólafur Ólafason, netamaður, LONDON 17. febr. — Upphaf Kýpurráðstefnunnar í London var ekki með þeim samvinnu- anda, sem menn höfðu almennt búizt við. Óttast menn nú, að samkomulag strandi á Makarios og hann fallizt ekki á samkomu- lag Tyrkja og Grikkja, og kröfur Breta. Fundinum í dag stjórnaði Selwyn Lloyd utanríkisráðherra Breta og setti hann í upphafi fram álitsgerð Breta — og var hún í fjórum meginatriðum: Bretar vilja tryggja hern- aðarlega aðstöðu sína á Kýp- ur þannig og alger yfirráð yfir herstöðvum sínum. Sam- komulag verður að nást milli þjóðarbrotanna á Kýpur. Vin- áttutengsl Grikkja og Tyrkja verður að treysta á ný. Kýp- urbúar verða að hljóta fullt stjórnmálafrelsi. Makarios erkibiskup, og Dr. Kutchuk, fulltrúar grískumæl- andi Kýpurbúa báðu um að ráð- stefnunni yrði frestað til morg- uns eftir að Lloyd hafði flutt ræðu sína. Vildu þeir fá tóm til að athuga gaumgæfilega brezku kröfurnar — og ráðfærðu þeir sig síðar í dag við fulltrúa hinna tyrkneskumælandi Kýpurbúa. Mun Makarios svara ræðu Lloyds á fundinum á morgum — og er búizt við að Makarios gagn- rýni harðlega þá kröfu Breta að vilja halda herstöðvum sín- um á Kýpur — og fullum yfir- ráðum yfir þeim. Næsta fund sitja for- sætis- og utanríkisráðherrar Tyrklands, Grikklands og Bret- lands auk fulltrúa Kýpurbúa. ★-------------------------★ Miðvikudagur 18. febrúar Efni blaðsins m.a.: Bls. 3: Óhróðri Tímans um Eimskip hnekkt. Innheimtu Stefgjalda af segul- bandstækjum verði hætt (Frá Alþingi). —- 6: Af sjónarhóli sveitamanns. Samtal við sendiherra Ju|é« slavíu á íslandi. — 8: Sitt af hverju tagi — 9: Akureyrarbréf. Kvikmyndaþáttur. — 10: Forystugreinin: „Þjóð í sorgM. Æskan að leik meðal listaverka meistarans. (Utan úr heimi.) — 11: Garðars Gíslasonar, stórkaup- manns minnzt. — 12: Hitaveita og hitamiðstöð (Benjamín Eiríksson). — 13: Hlustað á útvarp. Bréf úr Mývatnssveit. — 18: íþróttir. ★--------------------------★

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.