Morgunblaðið - 11.04.1959, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.04.1959, Blaðsíða 2
MORCUNfíT. Afílfí Laugardagur 11. apríl 1959 TúskHdingsóperan frum- sýnd á miðvikudag NÆSTKOMANDI miðvikudags- kvöld frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur Túskildingsóper- una, leikrit með söngvum eftir Bertold Breeht og Curt Weill. Leikrit þetta samdi Brecht árið 1928 upp úr «nska leikritinu „The Beggars Opera“ eftir John Gay. Leikurinn gerist í London og á að gefa mynd af tíðarand- anum í Berlín eftir fyrri heims- styrjöldina. Er hann skrifaður í satírustíl og myndin dregin með grófum. hörðum línum. Músíkina samdi Curt Weill. Túskildings- óperan gerði höfunda sína þegar heimsfræga, og hefur hún verið [ndversk flugvél skotin niður KARACHI, 10. apríl. (NTB). Orr- ustuflugvél úr her Pakistan skaut indverska sprengjuflugvél niður í dag um 500 km frá landamærum Afganistan. Indverska flugvélin var þota af Canberra gerð. Hún flaug yfir pakistanskt land og neitaði að lenda, þótt henni bær- ust fyrirmæli um það. Tveir menn voru í henni og björguðust þeir báðir með því að kasta sér út í fallhlífum út úr brennandi flug- vélinni. sett á svið í flestum borgum Evrópu síðan. Auk þess hefur ver ið gerð eftir leikritinu kvikmynd, sem þykir afbragðs góð, ög flést kvikmyndasöfn telja meðal sinna beztu mynda. Túskildingsóperan er fyrsta leikritið eftir Brecht, sem sýnt er hér á landi. Gunnar Eyjólfs- son setur það á svið. Þýðinguna gerði Sigurður A. Magnússon. Leikurinn er í þrem þáttum, en 9 atriðum, auk forleiks, og er sviðsskipting mjög tíð. Leiktjöld in gerði Magnús Pálsson og geng ur sviðskiptingin mjög fljótt fyr- ir sig. í Túskildingsóperunni eru 20 söngatriði, enda fer kunnur söngvari, Jón Sigurbjörnsson, með aðalhlutverkið. Leikur hann bófann Mackie hníf. Önnur stór hlutverk hafa á hendi þau Brynj- ólfur Jóhannesson. Sigríður Hagalín, Steinunn Bjarnadóttir og Nína Sveinsdóttir. Auk þeirra koma fram bófaflokkar og betl- arar. Alls eru leikendur 25. Flóttamenn, sem snúa heim til Ungverjalands í fangelsi S. Þ. í New York, 10. apríl. — Kommúnistastjórn Ung- verjalands hefur svikið grið á 6000 flóttamönnum, sem snúið hafa heim. Af rúmum 200 þús. manns, sem flúðu land eftir uppreisnina 1956 er talið að 21 þúsund hafi snúið heim, en þar af hefur tæpur þriðjungur verið svikinn t griðum. Þetta var upplýst ný- lega í skýrslu frá ungverska byltingarráðinu, sem hefur aðseíur í París, sendi Dag Hammarskjöld framkvæmda- stjóra S. Þ. Ungverskir kommúnistar hafa lagt mikla áherzlu á það, að fá flóttafólk til að snúa aftur heim til Ungverjalands. Til þessa hafa sendimenn þeirra verið ósínkir Tvö ný gervitungl á næstunni WASHINGTON, 10. apríl. (NTB) — Bandaríkjamenn munu skjóta tveimur gervitunglum á loft á næstunni. Flugherinn mun skjóta 600 kg Discoverer-gervitungli upp frá Vandenbergstöðinni í Kali- forníu og á það að snúast kring um jörðina frá norðri til suðurs og yfir bæði heimskautin. Þá mun Bandaríkjafloti skjóta Van- guard-eldflaug með gervitungli upp frá Canaveralhöfða í Flórída. Þegar tunglið er komið upp á braut sína mun það sleppa út litlum loftbelg. Er það tilraun gerð til að rannsaka þéttleika loftsins í mikilli hæð. — Japanir Framh. af bls. 1. En þá komu lögreglumenn og þrifu hann burt með valdi. Þegar Nakayama kom til lögreglustöðv- arinnar í borginni var hann yfir- heyrður og sagði hann þar, að það væri rangt að þetta kónga- fólk fengi að halda sýningu á sér fyrir íbúum borgarinnar, því að keisaradýrkun hefði verið afnum in í Japan við lok síðustu styrj- aldar. Eftir gifingarathafnirnar héldu ungu brúðhjónin til hinnar litlu hallar sinnar, sem reist hefur verið í úthverfi Tokíó. Er það hús fagurt og mjög nýtízkulegt í öllum sniðum. Hæsti virmiiigiir- inn kom á heil miða í GÆR var dregið í 4. flokki Há- skólahappdrættisins, 96 vinning- ar, samtals að upphæð rúmlega 1.1 millj. kr. Hæsti vinningurinn í þessum flokki, 100,000 krónur, kom á heilmiða, nr. 20.355, í um- boði Guðrúnar Ólafsdóttur & Jóns Arnórssonar í Bankastræti. Næsthæsti vinningurinn, 50,000 kr., kom á hálf miða, nr. 49348, og var annar í sama úmboði og og hæsti vinningruinn en hinn helmingurinn vestur í Ólafsvík- urumboði. Þá komu 10.000 kr. vinningarnir á þessa miða: 13607 — 17725 — 18387 — 30683 — 34629 — 42933 — 45270. Þá komu 5000 kr. vinningar á þessa miða: 1361 — 1504 — 16055 22285 — komnir eru að í kvöld er rýr afii. j 27256 — 28845 — 31946 — 36038 — Oddur. 40355 -- 41942. á að heita flóttafólkinu griðum og góðri atvinnu. Viðkvæði þeirra hefur verið að strikað skuli yfir fortíðina, aðeins ef menn vilja snúa aftur heim til föðurlandsins. Um 21 þúsund manns hafa látið ginnast af gylliboðum kommúnista, enda margir verið haldnir sárustu heimþrá, eftir tveggja ára dvöl við ýmsa erfiðleika í fjarlægum löndum. Áður en flóttafólkið sneri heim fékk það afhent hjá starfsmönn- um ungverskra sendiráða svo- nefnt griðabréf, þar sem þeim er heitið svart á hvítu, að ekki skuli skert hár á höfði þess. — Þegar kom inn fyrir landamæri Ungverjalands virtist sem þessi griðabréf misstu gildi sitt. Það er nú vitað að sumir flóttamann- anna, einkum þeir sem voru menntaðir, eða æfðir í iðngrein- um voru handteknir strax þegar þeir komu inn fyrir landamærin og fluttir austur til Rússlands. Fyrir fleiri flóttamönnum hefur þó farið svo, að þeir fengu að fara heim til sín og dveljast þair í tvær til þrjár vikur. Eftir þann tíma kom öryggislögregla komm- únista og sótti þá. Er almennt álitið að þeir ýmist verið settir í fangabúðir í Ungverjalandi eða fluttir í þrælkun austur til Rúss- lands. Leitað liðsinnis MÁNUDAGSKVÖLDIÐ síðastlið ið brann íbúðarhús í BúðardaL Hús þetta höfðu systurnar Alex- ína og Kristbjörg Jónsdætur frá Köldukinn í Haukadal látið reisa sér af litlum efnum og var það reyndar ekki fullsmíðað. Tjón þeirra er sárt, þar sem þær hafa lagt aleigu sína í það, að koma sér upp þaki yfir höfuð- ið en tekjur litlar, þar sem önnur er öryrki en hin hefur framfæri sitt af prjóni en prjónavélina missti hún í eldinum. Áfall, sem þetta verður að vísu aldrei að fullu bætt, en þó er hægt að létta mikið undir með þeim fjárhagslega og hefur af- greiðsla Morgunblaðsins góðfús- lega lofað að taka á móti gjöfum til aðstoðar þeim systrum. Ásgeir Ingibergsson. sóknarprestur. Frk. Jóninna Sigurðar- dóttir áttrœð Lítill afli Akranesbáta AKRANESI. 10. apríl. — í gær voru 13 bátar á sjó. Fengu þeir alls 63,5 tonn. Voru aflahæstir Sigurvon með 15,2 tonn og Sæ- fari 14 tonn. Allur flotinn reri í morgun. Hjá þeim bátum sem ★ JÞBOTTIR ★ Dagskrá Alþingis í DAG er boðaður fundur í neðri deild Alþingis kl. 1:30. Tvö mál eru á dagskrá. 1. Tekjuskattur og eignarskatt- uh, frv. — 2. umr. 2. Sauðfjárbaðanir, frv. — 2. umr. Himdraðasti landsleikur Wriglits í DAG fer fram á Wembley leik- vanginum landsleikur í knatt- spyrnu milli Englands og Skot- lands hinn 75. í röðinni. Skotar hafa breytt liði sínu allmikið frá síðasta landsleik og valið mikið af „Anglo-Skotum“, en svo kall- ast þeir skozkættuðu er leika með enskurp félögum. Á enska lands- liðinu eru litlar breytingar frá seinustu leikjum. Fyrirliði Eng- lands Billy Wright leikur sinn' 100. landsleik, en það mun eins- dæmi að sam maðurinn sé valinn í svo marga landsleiki fyrir land sitt. Wright lék fyrst fyrir Eng- land árið 1946 gegn Belgíu. Það eru liðin átta ár síðan Skot- um hefur tekizt að sigra Englend inga, eða árið 1951 og þá á Wem bley. Liðin eru skipuð þessum leik- mönnum (Talið frá markmanni til v. útherja.): Skotland: Br»wn (Dundee), Caldow (Rangers), McKey (Celtia), McKay (Tottenham), fyrirliði, Evans (Celtic), Doc- herty (Arsenal), Leggatt (Ful- ham), Collins (Everton), Herd (Arsenal), Dick (West Ham) og Ormond (Hibernian). England: Hopkinson (Bolton), Howe (West Bromwich), G. Shaw (Sheffield Utd.), Clayton (Black Billy Wright burn), Wright (Wolverhamton) fyriliði, Flowers (Wolverhamp- ton), Douglas (Blackburn), Broad bent (Wolverhampton), Charlton (Manchester Utd.), Haynes (Ful- ham) og Holden (Bolton) í DAG, hinn 11. apríl, er frk. Jóninna Sigurðardóttir, fyrrum húsmæðrakennari og hótelrek- andi, áttræð. — Frk. Jóninna er fædd á Þúfu í Fnjóskadal, dóttir Sigurðar bónda Jónssonar, er lengst bjó á Draflastöðum í sömu sveit, og konu hans, Helgu Sig- urðardóttur, frá Veisu. — Jón- inna er því alsystir Sigurðar, fyrrum búnaðarmálastjóra og hins merka frömuðar á sviði ís- lenzkra búnaðarmála. Frk. Jóninna nam fyrst í Kvennaskóla Akureyrar, en hélt síðan til Noregs og var þar við hússtjórnarnám, en fór síðan til Danmerkur og stundaði þar nám í 2% ár í Húsholdningsskole Vællegaard í Sorö, og ennfremur í Statens Lærerhöjskole í Kaup- mannahöfn. Eftir að frk. Jóninna kom aftur heim til íslands tók hún að sér umferðakennslu í matreiðslu á vegum Búnaðarfélags íslands. Stundaði hún það starf í þrjá vetur, og þá fyrst og fremst á Norðurlandi. ---- Á þeim tíma fóru mjög í vöxt félagssamtök kvenna, og vakning var mikil fyrir framfaramálum þeirra. — Frk. Jóninna var ein þeirra, er mjög studdu alla slíka starfsemi. ala, Gudmanns Minde, í 4 ár. húsmæðraskóla á Akureyri. Þá var hún ráðskona Akureyrarspít- ala, Gudsmanns Minde, í 4 ár. Árið 1917 hóf hún rekstur Hótel Goðafoss og rak það allt fram undir síðasta áratug, en allt til þessa dags hefir hún haft á hendi greiðasölu. Að sjálfsögðu hefir frk. Jón- inna jafnan tekið virkan þátt í öllu því, er að húsmæðrafræðslu hefir lotið, enda einhver mennt- aðasta kona landsins á þvi sviði. Hún hafði um árabil á hendi próf dómarastarf við Kvennaskólann Laugalandi, annaðist mat- reiðslunámskeið á Akureyri og hafði umsjón með matreiðslu- og hússtjórnardeild Barnaskólans hér í bæ. Ekki mun sú húsmóðir til hér á landi, sem ekki þekkir Mat- reiðslubók Jóninnu Sigurðardótt ur, og hefir haft af henni meiri og minni kynni. Sú bók hefir komið út í mörgum útgáfum og var um langt árabil eina aðgengi- lega matreiðslubók íslenzkra hús mæðra. Enn er ótalið eitt stórmál, sem kannski hefir verið eitt mesta áhugamál frk. Jóninnu, en það er stofnun, vöxtur og viðgangur Húsmæðraskóla Akureyrar. Frk. Jóninna hefir átt sæti í stjórn þess skóla allt frá stofnun hans og barizt ötuíli baráttu fyrir til- veru þeirrar meantastofnunar. — Þótt sá skóli hafi nú um nokk- urt árabil ekki útskrifað reglu- lega nemendur, hefir hann verið til ómetanlegs gagns fyrir bæjar- félagið. Innan veggja hans hefir margs konar húsmæðrafræðsla farið fram, og þá fyrst og fremst í námskeiðum fyrir húsmæður í bænum. Einnig hefir þar farið fram húsmæðrafræðsla á vegum annarra skóla bæjarins. — Það hefir jafnan verið óskdraumur frk. Jóninnu, að þessi skóli mætti eflast og aukast, m.a. með því, að komið væri upp heimavist við hann, svo hann gæti enn betur fullnægt hlutverki sínu. Frk. Jóninna Sigurðardóttir er vinmörg og vinföst. Hótelrekstur hennar á Akureyri var með ein- stökum myndarbrag, og margir munu þar minnast hlýlegs við- móts og ágæts atlætis húsráð- anda. — Öll verk frk. Jóninnu einkennast af hógværð og festu hinnar gagnmenntuðu konu. Þótt óteljandi séu orðnir gestirnir, sem notið hafa fyrirgreiðslu hennar, munu allir hafa fundið hjá henni hið sama, íslenzka heimilishlýju góðrar húsmóður, sem einstök er, en sárasjaldgæf meðal hótelrekenda. Einnig hefir hún annað einkenni góðrar hús- móður — hún hefir jafnan verið mjög hjúasæl, svo sumt starfs- fólk hennar hefir fylgt henni í áratugi. Nú er tekið að halla á ævi- kvöld frk. Jóninnu, þótt enn sé starfsþrek nokkurt og starfslöng un mikil. Jafnan hefir hún verið góður gestur, og þó beztur gest- gjafi í glöðum vinahópi, óg víst má telja, að svo verði enn í kvöld. Ég flyt þessari öldnu heiðurs- konu árnaðaróskir í tilefni dags- ins og þakka hlýtt hugarþel og margan góðan bitahn upp í gírug an strák. vig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.