Morgunblaðið - 14.08.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.08.1959, Blaðsíða 1
20 siður 46.árgangur 174. tbl. — Föstudagur 14. ágúst lf Prentsmiðja Morgunblaðslns Bandaríkjaför Þyngsfa gervitungliB -765 kg Flugvélar reyna oð „veiða" hnöttinn i net VANDENBERG, Kaliforníu, 13. ágúst. — Bandaríkjamenn hafa nú skotið á loft nýju gervitungli, Uppgötvari' V, sem er 765 kg. að þyngd og hið þyngsta, sem Bandaríkja- menn hafa skotið á loft. Á það að fara á braut umhverf- is jörðu, yfir bæði heims- skautin. Engin lifandi dýr eru x þessu nýja gervitungli, en því er ætlað að kanna enn betur möguleikana á því að hægt verði að senda mannað- ar eldflaugar út í geiminn og ná þeim aftur til jarðar. Þegar Uppgötvari V. hefur farið 17 sinnum umhverfis jörðu mun áfastur „hnöttur" verða los aður frá honum með fjarstýri- útbúnaði — og er ætlunin að ná þessum hnetti ósködduðum. — Reiknað er með, að það verði á morgun, þegar gervitunglið verð ur yfir Hawaii. Þetta er fimmta tilraun í þessa átt, en allar hinar haía mistekizt. Xvisvar komst Upp götvari ekki á braut, en í hin Ljósmyndurum gerist biðin löng KRISTIANSAND, 13. ágúst — Gifting þeirra Anne Marie Ras- mussen og Steven Rockefeller á að fara fram hinn 22. ágúst að við stöddu miklu fjölmenni. Von er á foreldrum brúðgumans ein- hvern næstu daga — og fleiri bandarískum gestum. Sennilega verða um 100 manns í veizlunni, en þar verður lítið drukkið, segja fréttamenn, því að áfengis- útsala er engin í Kristiandssand og íbúarnir almennt andvígir áfengi. Foreldrar brúðarinnar eru stakir bindindismenn, en þó er gert ráð fyrir að þau skáli við Rockefellerhjónin fyrir heill brúðhjónanna. Enda þótt skammt sé nú til brúðkaupsins og von sé á gestum langt að einhvern næstu daga hafa brúðhjónin og foreldrar brúðarinnar enn ekki komið úr fylgsni sínu, en á sunnudaginn hurfu þau öll eftir vel skipu- lagðan „flótta“ frá fréttamönn- um og ljósmyndurum, sem hafa að undanförnu verið eins og svartir kettir kringum hús Ras- mussenfjölskyldunnar. Frétta- mennirnir bíða nú með enn meiri eftirvæntingu en nokkru sinni fyrr, því að von er á „huldufóikinu" á hverri stundu — og ljósmyndarar víkja ekki frá húsinu. skiptin náðist hnötturinn ekki aftur. Þegar Uppgötvara var skotið upp í dag, var Thor eldflaug notuð sem fyrsta þrep. Öll vóg eldflaugin ásamt gervitunglinu 50 tonn — og segir í tilkynningu hersins, að notað hafi verið öflugra elds- neyti en áður. Þegar litli hnötturinn verður leystur frá Uppgötvara á morg- un mun verða reynt að ná honum með aðstoð flugvéla, sem verða á sveimi á stóru svæði umhverfis Hawaii. Draga þær á eftir- sér útbreidd net, sem hnettinum er ætlað að lenda í, því ef allt fer samkvæmt áætlun á fallhraðinn þá að vera orðinn tiltölulega lít- ill, því í hann er hnýtt fallhlíf. Ef þessi tilraun mistekst, mun verða reynt að slæða hnöttinn upp úr sjónum — og bíður fjöldi skipa til taks. Hefur Butisto núð fótiestu? BANDARlSKA blaðið Miami News skýrði frá því í gær, að uppreisnarmenn á Kúbu hafi náð bænum Trinidad á suðurströnd- inni á sitt vald, og þeim gangi vel í bardögum við stjórnarher- inn. Eru þessir uppreisnarmenn sagðir vera úr her Batista, fyrr- um einræðisherra, en hann stjórni þeim þó ekki, heldur hershöfðingi, sem var herforingi í stjórnartíð hans. Einnig er í her þessum nokkuð af liðhlaup- um úr her Castro. < KRÚSJEFF mun í Banda- < ríkjaförinni fara víða um land , ið og kynnast mörgu. En hann < Br frægur fyrir að geta sam- iagazt umhverfinu, þegar hann vill það við hafa — a. m. k. finnst hollenzka skop- teiknararum Behrend það, Eins og sézt á myndinni hér Eyrir ofan — og neðan. AAAA AA \AAAJ- A Engin stefnu- breyting I — Herter SANTIAGO, 13. ágúst. — Herter, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, bar í dag fram þá tillögu, að utanríkisráðherrar Ameríku- lýðveldanna 21, sem sitja hér fund, gæfu út yfirlýsingu þar sem lýst væri fullum stuðningi og trú á þá meginstefnu, að engu riki bæri að hafa afskipti af inn- anríkismálum annarra ríkja. Þá lagði Herter til, að þessi fundur samtaka Amerikuríkjanna, setti á laggirnar nefnd til þess að rannsaka ástandið á Carabiska hafinu. ( í ræðu sinni sagði Herter enn- fremur, að allar þjóðir Ameríku væru í öllum atriðum andvígar einræði. Á utanríkisráðherra- fundinum í Genf hefðu Rússar] hvergi viljað gefa eftir og stefna þeirra í Berlínarmálinu bryti al- gerlega í bága við stefnu frjálsra þjóða. Heimboð Eisenhowers til Krúsjeffs boðaði ekki neina stefnubreytingu Bandaríkja- stjórnar, en það sýndi, að Banda- ríkin vildu gera allt til þess að fá réttláta lausn vandamálanna. Kommunistar hörfa og bíða þurrkatímans VIENTIANE, 13. ágúst — Tals- maður stjómarinnar í Laos skyrði svo frá í dag, að hersveitir kom- múnista hefðu hörfað aftur yfir landamærin til N-Vietnam, en um 1,200 manna skæruliðahersveitir hefðu verið skildar eftir í skóg- inum til þess að undirbúa sókn. Búast stjórnarvöldin í Laos við, að kommúnistar reyni að láta til skarar skríða yfir þurrkatím- ann, frá október til /desember. Laos-stjómin birti í dag til- kynningu þar sem greint var frá því hvar skæruliðasveitir héldu sig aðallega — og jaínframt sagt, að hersveitir stjórnarinnar hefðu verið sendar inn í skóginn til þess að eyða um 250 manna hópi kommúnista, sem þar hefði búið um sig til frambúðar Stjórnin í Laos hefur sent Sameinuðu þjóðunum orðsend- ingu um málið og búizt er við að það verði tekið upp á Alls- herjaarþinginu, þegar það kem ur saman. Þá herma fregnir, að fulltrúi stjórnarinnar sé nú á leið til New York til þess að biðja Hammarskjöld ásjár. Áreiðanleg ar fregnir frá London herma, að Laosstjórn vilji nú, að SÞ sendi eftirlitssveitir til þess að kanna ástandið á landamærunum og gefa skýrslu um það, ef vera mætti, að slík rannsókn héldi eitthvað aftur af kommúnistum. Samtímis ráðast leiðtogar og 1 blöð í N-Vietnam og Peking harkalega á Bandaríkjastjórn og segja hana valda öllum erfið- leikum í Laos með því að blanda sér í innanríkismál Laos. ..Krúsjeffs -<S> Föstudagur 14. ágúst. Efni blaðsins m.a.: Bls. Z: Frá umræðum á Alþingi. — 3: Síldarbræðsla I Neskaupstað. — 8: Ökumenn virðast sýna nýju umfcrðalögunum tómlæti. — 10: Ritstjórnargreinin: Lausnarorð framtíðarinnar. — 11: Vilhjálmur Finsen starfar enn fyrir ísland, grein eftir Krist- mann Guðmundsson. — 18: íþróttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.