Morgunblaðið - 16.08.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.08.1959, Blaðsíða 1
20 siður 46. árgangur 176. tbl. — Sunnudagur 16. ágúst 1959 Prentsmiðja Morgunblaðsixis ... ef pessar tilraunir mtnar og önnur sund mín heima veröa til þess aö hvetja unga Is- lendinga til sundafreka, þá er tilgangi mínum náö.“ Sjá baksiöu. (Ljósm. Jóh. Sigurðsson) Þinglausnir fóru fram i gær: Stutt þing, sem valda mun miklu um örlög þjódarinnar — Þingkosningar ákveðnar 25. og 26. október n.k. ÞINGLAUSNIR fóru fram í Sameinuðu Alþingi í gær og hófst athöfnin kl. 13,30 eftir hád. Forseti Sameinaðs þings, Bjarni Benediktsson, gerði grein fyrir störfum þingsins og þakkaði þingmönnum góð samskipti, en Eysteinn Jónsson flutti þakkir af þeirra hálfu. — Því næst sagði forseti ís- lands, herra Ásgeir Ásgeirsson þinginu slitið, og skýrði við það tækifæri frá því, að ákveðið hefði verið, að næstu al- mennar þingkosningar skuli fram fara sunnudaginn 25. og mánudaginn 26. október næstkomandi. þingsins og þingskjöl urðu sam- tals 50. Ræða forseta S.þ. Þessu næst mælti forseti Sam- einaðs Alþingis nokkur orð til þingheims og hljóðar sú ræða svo: „Þetta þing hefur staðið skem- ur en flest önnur þing, sem háð hafa verið síðustu áratugina og lagafrumvörp, sem þingið hefur Framh. á bls. 2 Afríka logarl Uppreisn gegn hvitum mönnum i Natal DURBAN % Suöur-Afríku, 15. ágúst. — (Reuter). — Svertingjar um gervallt Natal-fylki í Suður-Afríku hafa risið upp gegn hinum hvítu mönnum með alls kyns skemmdarverkum og upp- þotum. Hefur nú komið til alvarlegustu átakanna, sem enn er vitað um í kynþátta- stríði landsins. Svertingjarnir hafa einkum reiðst lögregluyfirvöldum lands- ins fyrir það að fangelsa konur þeirra og banna heimabrugg á sterku öli. Einnig rísa svertingj- ar upp til mótmæla gegn fyrir- mælum um kvikfjárbaðanir. I gær réðist hópur 200 svert- ingjakvenna á bjórstofur í Pieter martisburg. Þeim er í nöp við bjórstofurnar, vegna þess að þær álíta að eigendur þeirra hafi kom ið fram bruggbanninu. Fram til þessa hefur heimabrugg verið ein helzta tekjulind kvenpjóðar svert ingja. Fyrir nokkrum dögum voru 84 konur fangelsaðar í Isipofu- héraði. Þær höfðu staðið fyrir mótþróa gegn kvikfjárböðunum og í gær voru 28 konur handtekn- ar í Harding- héraði. Valda þess- ar fangelsanir mikiili ólgu í land- inu og er nú svo komið, að hvítir bændur, sem búa á afskekktum sveitabýlum hafa ekki þorað ann að en að yfirgefa búgarða sína. Hafa hvítir menn stofnað með sér varðsveitir til að vera við öllu búnir. Sl. nótt létu svertingjar til skar ar skríða í sumum héruðunum. Komu þeir farartálmum fyrir á vegum og járnbrautum og kveiktu í graslendi á stórum svæð um og ber reykinn frá þessum brennum hátt við himinn. Svert- ingjar munu einnig hafa gert til- raunir til líkamsárása á hvíta menn, en ekki er enn vitað til þess að neinn hafi beðið bana. Færeysk nefnd er farin á stúfana Flýgur til Grænlands á mánudaginn F I M M manna sendinefnd Færeyinga er lögð af stað frá Þórshöfn til að reyna að ná samningum við græn- lenzku landsstjórnina um fiskveiðiréttindi við Græn- land. Formaður nefndarinn- ar er Peter Mohr Dam, lög- maður og hefur hann lýst því yfir, að hann langi einn- ig til að ræða við íslenzka stjórnmálamenn um fiskveiði réttindi Færeyinga við ísland. Til Grænlands á mánudag Sendinefndin lagði af stað frá Færeyjum á fimmtudag og mun verða komin til Kaupmannahafn- ar á sunnudagskvöldið. Hyggst hún síðan fljúga með flugvél Flugfélags íslands til Grænlands, á mánudaginn. Hún mun hafa viðdvöl á íslandi, annaðhvort á leiðinni til eða frá Grænlandi. Nefndin ætlar að ræða við græn lenzku landsstjórnina og sveit- arstjórnir í Grænlandi um fisk- veiðiréttindi á miðunum og að- stöðu í landi bæði við vestur og austurströnd landsins. Því fer fjarri að Færeyingar séu bjartsýnir um árangur við- ræðnanna. Búizt er við því að Grænlendingar komi fram með harðr gagnkröfur, ef þeir eigi að heimila Færeyingum fiskveið- ar og verkunaraðstöðu í Græn- landi. Fólkaflokkurinn hefur gagnrýnt það, að lögmaðurinn Peter Mohr Dam skuli vera for- maður nefndarinnar og telur að hann sé sá maður sem sizt sé lík legur til að geta náð nokkrum ár- angri í sendiför til Grænlands og fslands. „Sidewinder64 framleiddur í Evrópu PARÍS, 15. ágúst. — Bandaríkja stjórn hefur ákveðið að fram- leiða Sidewinder eldflaugar í sex Evrópulöndum í samvinnu við sljórnarvöld viðkomandi landa. Þetta var í dag tilkynnt í höfuð- stöðvum Atlantshafsbandalags- ins — og löndin, sem um ræðir, eru Danmörk, V-Þýzkaland, Hol- land, Noregur, Grikkland og Tyrkland. Sidewinder eldflaugin er notuð sem varnarvopn fyrir orrustuþotur og ætlað til þess að skjóta á óvinaflugvélar. Kínverjar vilja drottna yfir Laos Þegar fundur hafði verið sett ur, gaf forseti Sameinaðs Alþing is, Bjarni Benediktsson, yfirlit urn störf þingsins, sem alls stóð í 26 daga, frá 21. júlí 1959 til 15. ágúst 1959. — Störf þingsins Á þinginu voru haldnir 44 fundir; flestir í neðri deild 17, en 13 í efri deild og 14 í sameinuðú þingi. Sex lagafrumvörp komu fram tvö stjórnarfrumvörp og fjögur þingmannafrumvörp, öll lögð fram í neðri deild. — Stjórnar- frumvörpin og eitt þingmanna- frumvarp var afgreitt sem lög frá Alþingi, en önnur urðu ekki útrædd. Þingsályktunartillögur voru 5 talsins, þar af 4 bornar fram í sameiriuðu þingi en 1 í efri deild. Ein tillagnanna var afgr. sem ályktun Alþingis, en hinar urðu ekki útræddar. í tveim málum voru bornar fram fyrirspurnir á þinginu og voru þær allar ræddar í samem- uðu þingi. Alls komu 13 mál til kasta VIENTIANE í Laos 15. ágúst. — (Reuter). — í dag lagði sérstakur sendimaður Laos- stjórnar af stað frá höfuð- borginni Vientiane. Ferðinni er heitið til New York, þar sem honum hefur verið falið að berjast fyrir því að Sam- einuðu þjóðirnar sendi rann- sóknarfulltrúa til landamæra Laos og Norður Vietnam. — Sendimaðurinn er Ngon Framh. á bls. 2. ★--------------------------★ Sunnudagur 16. ágúst Efni blaðsins m.a.: Bls. 3: Tíminn og tómstundirnar, eft- ir sr. Óskar J. Þorláksson. Ástin kostaði hann tvær skákir. — 6: Frímerki. — 8: Gísli Jónsson, alþm. sjötugur. — 9: Skák. — Bridge. — 10: Ritstjórnargreinarnar: Fram- sókn valdi Moskvu-kommúnista — 11: Reykjavíkurbréf. — 13: Fólk í fréttunum. *--------------------------*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.