Morgunblaðið - 18.08.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.08.1959, Blaðsíða 1
2C slður 46. árgangur 177. tbl. — Þriðjudagur 18. ágúst 1959 Prentsmiðja Morgunblaðsins Rússar taka enn 'útlendar bókmennt- ir traustataki Moskvu, 17. ágúst (Reuter) HÆSTIRÉTTUR Sovétríkj- anna felldi í dag þann endan- lega úrskurð, að rússneskir útgefendur séu ekki skyldug- ir til að greiða erlendum rit- höfundum nein höfundar- laun. Dómstóllinn hafnaði kröfu erfingja brezka rithöf- undarins Arthurs Conan Doyle um höfundarlaun að upphæð 280 þúsund dollara og kemur skýrt fram í dóms- forsendum, að dómstóllinn tel ur óþarft að greiða erlendum mönnum rithöfundarlaun. Erfingjar Conan Doyles fengu bandarískan sérfræðing í rússn- eskum rétti, prófessor Harold Ber man til að flytja mál sitt. Þeir kröfðust ritlauna vegna stórfelldr ar útgáfu á sögunum um leyni- lögreglumanninn Sherlock Holm- es á rússneskri tungu. Berman flutti málsóknarræðu sína í dag og talaði 2Vz klst. fyrir réttinum á rússnesku. Hann lagði megináherzlu á það, að hinar rússnesku bókaútgáifur hefðu auðgað sig á vinnu annars manns með útgáfu á umræddum leyni- lögreglusögum. Þeim bæri að skila aftur slíkum rangfengnum vinningi. Aðeins skammur tími leið frá því Berman lauk ræðu sinni, þangað til dómur var upp kveðinn. I dómi er hafnað rök semdum hins bandaríska lögfræð ings og sagt að ekki sé hægt að beita ákvæðum laga um ranglega fenginn arð í þessu tilfelli, vegna þess að það sé skýrt fram tekið í rússneskum lögum, að útlendir rithöfundar njóti ekki verndar höfundalöggjafar Sovétríkjanna. Er dómur hafði verið upp kveð inn, sagði prófessor Berman: ■— Það er þýðingarlaust að berjast lengur í þessu máli. Við höfum fengið allar þær skýringar, sem við þurftum um rússneskt réttar- far. Á hverju ári tekur bókaút- gáfa hins opinbera traustataki fjölda bóka eftir vastræna höf- unda, lætur þýða þær nesku og gefur út, án þess greiða höfundunum grænan eyri b fyrir. Dómur hæstaréttar Rúss- \ lands sýnir, að þeir halda þessu áfram. ætla 5 | Afmæli Reykja- 1 vikur i dag s S ÞAÐ er ástæða til fyrir Reyk- | víkinga að draga fána að hún ( í dag, því að bærinn þeirra á S afmæli — 1^3 ár eru liðin J síðan Reykjavík fékk kaup- J staðarréttindi, það gerðist 18. S ágúst 1786. — í tilefni dags- i ins birtir Mbl. hér mynd af \ yfirstandandi framkvæmdum S í bænum, en hin síðari ár hef- ) ur saga Reykjavíkur ein- kennzt af miklum og örum sem kunnugt i framkvæmdum, S er. S Myndin er af nýjum hita- ( veitustokk, sem nú er verið S að leggja. Verður hann í vest- Kringlumýrarbraut- framkvæmdir eru : ari brún ^ ar, sem S hafnar við. — Verður stokk- S ur þessi um 500 metra langur, J liggur frá Sogavegi og um 100 S metra suður fyrir Miklu- S braut. Vatnið, sem fara mun \ um þennan stokk, er úr þrem S borholum, sem stóri jarðbor- S inn hefur undahfarið gert • neðan Laugavegar og Suður- S landsbrautar — og einni hoiu, s sem boruð var með hinum • gamla bor Hitaveitunnar við ( Hátún. — Eru líkindi til, að S úr holum þessum fáist sam- | tals allt upp í 100 sekltr. af S 120—125 stiga heitu vatni. — S Verður það leitt undir þrýst- | ingi upp í fyrrgreindan stokk, j s gegnum hann og áfram upp í s S aðalæð \ Reykjum ; geymana, hitaveitunnar frá • — og í Öskjuhlíðar- s þar sem ’það bland-S S ast Reykjavatninu. En þetta • 5 vatn er að sjálfsögðu of heitt ( ^ til þess að fara beint inn á S s hitaveitukerfið. S i ' Indverskir kommúnisfar ráðast harkalega á Nehru Frú Rockefeller ætlar að hjálpa til SÖGNE í Suður Noregi 17. ágúst (Reuter) — Frú Mary Rockefeller, móðir Stevens Rockefeller, kom í dag til Sögne til að kynnast fjöl- skyldu tengdadóttur sinnar væntanlegrar. Steven og Anna Maria, unnusta hans, tóku á móti henni á flugvell- inum í Kjevik. Síðan fylgdu þau henni heim í hús Ras- mussens fjölskyldunnar, sem heimsfræg er orðin fyrir að mægjast nú Rockefeller fjöl- skyldunni amerisku. Frú Rockefeller kann ekki orð í norsku og Rasmussen hjón- in ekki orð í ensku, svo að Anna Maria tók að sér hlutverk túlks- ins. Nelson Rockefeller, ríkisstjóri, ætlaði sér að koma til Noregs um helgina, en varð að fresta því vegna anna. Ekki er vitað með vissu hvenær hann kemur, en hjónavígslan á að fara fram á laugardaginn. Móðir Stevens sagði í dag, að hún kæmi til þess að hjálpa til við undirbúning giftingarinnar. Hún sagðist vera mjög glöð yfir því, hvað Steven hefði valið sér gott konuefni. Nú kvaðst hún hafa mestan áhuga á því hvern- ig brúðarkjóll Önnu Maríu yrði. Hann er saumaður af gamalli saumakonu í þorpinu. Ljósmynd- arar og blaðamenn hafa sótt á saumakonuna að segja þeim, hvernig kjóllinn eigi að líta út en gamla saumakonan kann að þegja yfir leyndarmáli. Miklar umræður á Indlandshingi um Keralamálið Nýja Delhi, 17. ágúst (Reuter) INDVERSKIR kommúnistar hófu í dag í fyrsta sinn skæð- ar persónulegar árásir á Nehru, forsætisráðherra. — Þetta gerðist í umræðum um Kerala-málið í neðri deild indverka þingsins. ★-----------------------★ 5í)í»r0xmWaí>i& Þriðjudagur 18. ágúst. Efni blaðsins m.a.: Bls. 2: Síldarskýrsla Fiskifélagsins. — 3: Sérkennileg steinhella við Árbæ — 6: Varðarferðin sl. sunnudag. — 8: Þórir Ólafsson segir frá Sakiet Sidi-Yousset. — 10: Ritstjórnargreinin: Vinnufrið- urinn og framtíðin. — 11: Rabb um heimsókn til Færeyja. — 18: íþróttir. Efni blaðsins m.a.: Spáir falli Nebrus Foringi indverska kommún- istaflokksins S. A. Dange sagði að -brottvikning kommúnista- stjórnarinnar j Kerala væri upp- hafið að „falli Nehrus“. Hann hefur misst allan átrúnað indversku þjóðarinnar, hélt rseðu maðurinn áfram. Það var mikill missir fyrir indverskt lýðræði, nú getur almenningur engum treyst. Umræður þessar um Kerala- málið eiga að standa tvo daga í þjóðþinginu og er þeim fylgt með mikilli athygli, því að hér er um að ræða eitt mesta hita- mál, sem komið hefur upp í indverskum stjórnmálum. Um- ræðurnar hófust með því að inn- anríkisráðherra Indlands Ballabh Pant gaf þinginu skýrslu um at- burðina í Kerala og lauk ræðu sinni með því að óska eftir því að þjóðþingið samþykkti þær að- gerðir sambandsstjórnarinnar að víkja kommúnistastjórn Kerala frá völdum. Ráðherrann gerði grein fyrir starfsaðferðum kommúnista- stjórnarinnar í Kerala, þann tíma, Hann sem hún sat að völdum. sagði að ólgan í Kerala Framh. á bls. 19 Heiítrækinn þjóðhöfðingi kominn lieim ADEN, 17: ágúst. — Imaminn af Jemen, smáríkinu á Rauða- hafsströnd Arabíu kom heira til sín sl. fimmtudag eftir fjög urra mánaðar heilsubótarftrC á ftalíu. Meðan hann var fjar- verandi var gerð ein uppreisn artilraun í ríki hans. Eftir heimkomuna hefur imaminn nú tekið skörulega til verka. Hefur hann ein- sett sér að koma greypilegum hefnduin fram á uppreisnar- mönnum og herma fregnir að fjöldi manna, sem viðriðnir voru samsærið hafi verið hand teknir og aðrir verið það síð- ast. Sex menn voru teknir af lífi án dóms og laga í gær. ííer nú þegar á því, að flóttamenn komi til verndarsvæðis Breta kringum Aden, vegna vægðar lausra aðgerða þjóðhöfðingí- ans af Jemen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.