Morgunblaðið - 25.08.1959, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.08.1959, Blaðsíða 18
18 MORCVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 25. ágúsf 1959 Asbjörn Hansen og Edgar Falck reyna árangurslaust að verja, þegar Örn Steinsen skoraði. ■nnmnimmmiimnHininnniminminiiitrainnniHM í íslenzkri knattspyrnu LOKIÐ er glæsilegustu og einhverri bezt heppnuðu för er íslenzkt landslið í knattspyrnu hefur farið. Knattspyrnu- lega séð tókst förin með slíkum ágætum, að íslenzk knatt- spyrnuhreyfing mun búa að árangri fararinnar lengi. — Árangur þessarar ferðar hefur rutt þann veg, sem aldrei hefur fyrr tekizt að ryðja — að skapa álit á knattspyrnu sem hér á Iandi er leikin og gera íslendingum auðvelt eða mun auðveldara en áður að ná samkomulagi við aðrar þjóðir um knattspyrnuviðskipti. í öðru lagi sýndu liðsmenn ei þátt tóku í förinni þann félagsanda og þá góðu fram- komu, hlýðni við strangar reglur o. s. frv., að landi og þjóð er sómi að dvöl þeirra meðal tveggja frændþjóða á Norð- urlöndum sem að þessu sinni voru heimsóttar. byggðist á þéttri vörn. Fram- verðirnir voru dregnir aftur og látnir aðstoða í vörn og innherjunum einnig falið að vera þar til aðstoðar ef á þyrfti að halda. Með öðrum orðum, liðið er dregið aftur en ekki teflt fram tii sóknar. Dönsk upphlaup verða mörg en vörn Islands er þétt. — Leikaðferðin heppnast að þessu leyti. Um leið er að- ferðin sú að gera snögg og hröð upphiaup. Þau verða færri en Dana, en hin hættu- legu tækifæri eru álíka mörg á báða bóga. Þetta er stað- reynd, sem Danir bera ekki á móti. if Æsispennandi leikur Þær 26400 manna sem keyptu sig inn á aðalleikvang Danmerkur, Idrætsparken, sl. þriðjudag og allir þeir aðrir er leikinn sáu, eru á einu máli um að sjaldan hafi þeir verið við- staddir æsifengnari leik, meira taugastríð hefur sjaldan verið í landsleik og sjaldan svo mikil spenna frá upphafi til enda. Og það var íslenzka liðið sem hafði forystuna í þessum ógleymanlega leik í 53 mínútur. En honum lauk sem kunnugt er með jafn- tefli. Gangur leiksins hefur þegar verið rakinn og svipmyndir úr honum sýndar í blaðinu. En það er full ástæða til að vekja at- hygli á einstaklega harðfenginni framgöngu íslenzka liðsins og því að jafn gott lið og landslið Dana varð að neita allra sinna krafta til að ná jafnteflisúrslit- um. — ir Framfarirnar Af gangi leiksins sézt að upphlaup Dana voru fleiri. — Og víst voru þeir í sókn mun lengur en Islendingar. Það stafar fyrst og fremst af því að leikaðferð ísl. liðsins Danir benda á framfarir í íslenzkri knattspyrnu. Mín skoðun er sú, að þær felist ekk helzt í því að sparkað sé nákvæmar á íslandi í dag en áður eða hlaupið sé hraðar í upphlaupum nú en áður. Þær felast fyrst og fremst í því að ísl. knattspyrnumönnum hefur lærzt hve þýðingarmik- il Ieikaðferðin sjálf er — „taktikin“ og það að geta framkvæmt og framkvæma það sem liðsmönnum er inn- prentað fyrir leik. 1 þessu eru að mínum dómi fólgnar að mestu framfarirnar í ísl. knattspyrnu. Og þetta eru þær framfarir sem gera það að verkum að ísl. knattspyrna stendur nú jafnfætis danskri og norskri. Á Óheppni í Noregi Eftir þennan leik var haldið til Noregs og keppt þar. Það er staðreynd að það er of erfið þraut jafnt fyrir annara landa landslið sem lið Islands, að Ieika tvo erfiða landsleiki með 72 klst. millibili. Það sáust á íslenzka lið- inu þreytumerki er það hóf leik- inn á Ullev&I-leikvanginum í Osló. Snerpuna sem ríður bagga- muninn vantaði. En liðin voru ákaflega jöfn. Heppni ein réði þeim úrslitum er urðu — sigri Noregs. Þetta er mín skoðun og hún byggist á tvennu. Hlutkestið vann Noregur og kaus að leika undan sól — og kvöldsólin lágt á lofti réði miklu. Eg efast um að hlutkesti hafi áður í lands- leikjum Islendinga haft meiri þýðingu. Hin ástæðan eru meiðsl- in, sem íslenzkir leikmenn urðu fyrir. Á þriðju mín. meiðist Þór- ólfur Beck — annar af beztu framherjum okkar (að öðrum ólöstuðum). Hann yfirgefur völl- inn og inn í miðherjastöðu kem- ur Sveinn Jónsson. Hann stóð sig með stakri prýði í nýrri stöðu, en mannaskipti í stöðum hafa alltaf áhrif og mest hjá lítt reyndum liðum eins og íslenzk- um. Skömmu síðar meiðist Hörð- ur Felixson, svo að hann hefði að öðru jöfnu yfirgefið völlinn. En hefði hann gert það mátti enginn koma í stað hans sam- kvæmt reglum. Hann lék með og stóð sig vel — en ekki sem heill Hörður Felixson. — 1 síð- ari hálfleik meiðist Sveinn Teits- son (ekki Sveinn Jónsson eins og stóð^í sunnudagsblaðinu). Hann var af velli í 10—15 mín. en kom svo í útherjastöðu þar sem hann haltraði til lítils gagns, að- eins til að fylla tölunna fyrir Is- land. — Á’ Tveir beztu menn Við sem þekkjum hve mikill styrkur er að Sveini Teitssyni í landsliði vitum hver blóðtaka þessi meiðsli urðu íslenzka lið- inu. En slíkur var baráttuvilj- inn hjá okkar mönnum að þeir gáfu hvergi eftir og minnkuðu það forskot sem Norðmenn höfðu náð. Já, er það furða þó að sólin í fyrri hálfleik og meiðslin séu nefnd sem úrslita- áhrif í þessum leik. Með heilu liði og unnu hlutkesti var sigur- inn að mínum dómi öruggur. — Sólin var svo sterk að hún blind- aði varnarmenn okkar. Einu sinni missti Helgi af hæðarknetti hennar vegna — hann fór rétt utan við stöng. Og öðru sinni hljóp hann blindaður á mark- stöngina og var vankaður á eftir. Þessí sól gékk tíl viðar er um 5 mín. voru af síðari hálfleik. Hún vermdi Norðmenn bara í bakið — hindraði þá ekki. Skoðun Norðmanna sjálfra er að Island hafi átt tvo beztu leikmenn vallarins, þá Garð- ar Árnason og Ríkharð Jóns- son. Garðar lék nú einhvern sinn bezta leik. Frá upphafi vann hann næstum hvert ein- asta návígi og drottnaði á miklu stærra svæði á vellin- um en framverði er ætlað. — Eitthvað varð og að bæta upp missi Sveins Teitssonar. Rík- harður setti norsku vörnina úr jafnvægi með hraða sínum og átti ágætan leik. En hvað hefðu Norðmenn sagt ef þessi 25. landsleikur Ríkharðar hefði verið hans bezti lands- leikur. Eg býst við að þá hefði hann varla fengið að yfirgefa Noreg. Björn Helgason lék sinn fyrsta landsleik, í upphafi sem v. inn- herji og síðar í stöðu Sveins. — Hann skilaði sínum fyrsta lands- leik með prýði, því það er nógu erfitt að „debutera“ þó ekki sé „debuterað“ í tveimur stöðum. Árni Njálsson vakti verðskuld- aða athygli. I Kaupmannahöfn lék hann móti fyrirliða Dana, Poul Pedersen. Því hlutverki gerði hann svo góð skil að Ped- ersen var gersaml^ga einangrað- ur — og raddir eru uppi um að hann verði ekki fyrirliði í næsta landsleik Dana vegna þess hve illa honum gekk móti hinum eld- snögga og eitilharða Islending. Útherjarnir Örn Steinsen og Þórður Jónsson brugðust ekki vonum okkar. Þórður átti að mínu viti einhverja þá beztu leiki sem hann hefur átt með landsliði. Örn tók innherjastöðif er framlínán var stokkuð upp vegna meiðslanna og skilaði hlutverki sínu vel bæði sem út- herji og innherji — og markið hans var gott þó heppni hafi hjálpað til. Hann var kominn að endalínu þar sem vítateigur sker hana er hann skaut snúnings- knetti fyrir markið sem Asbjörn j Strangar reglur - Vinsæl j fararstjórn ■ FARARSTJÓRAR í för | knattspyrnulandsliðsins í s.l ; viku voru Björgvin Schram ■ form. KSÍ, Ingvar Pálsson ; ritari þess og Sveinn Zoega : einnig í stjórn þess. Þeir eru ; allir á einu máli um hve > einstaklega vel liðsmenn ; hafi haldið strangar reglur : er settar voru um hegðun j í förinni. Aldrei kom það : fyrir að þessar reglur væru j brotnar, og það var eins og ; allir vildu leggjast á eitt um j að halda þær og ná sem ; mestum og beztum árangri - bæði félagslega og afreks- j Iega. * - Strangar voru reglurnar ; og má því kannski ætla að I fararstjórnin hefði verið ó- ; vinsæl. En svo var alls ekki. ; Piltarnir í förinni eru allir j á einu máli um að þeir hafi ; ekki í annan tíma verið i j för þar sem fararstjórarnir ; voru eins samrýmdir kepp- j endunum og nú, og tóku ■ eins mikinn og virkan þátt : í öllu því er gera þurfti. j Með þessu er ekki verið að ; kasta rýrð á aðra farar- j stjóra fyrr eða síðar, heldur ; einungis að undirstrika j þann góða anda er ríkjandi ; var í förinni frá upphafi j til enda og einnig að bera j til baka þær grunsemdir, ! sem Mánudagsblaðið síð- j asta virðist vera að reyna : að vekja. Þær eru með öllu j úr lausu lofti gripnar. Það ; geta þeir er fylgdust með > landsliðinu dag hvern full- j yrt. — A.St.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.