Morgunblaðið - 30.03.1960, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.03.1960, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 30. marz 19G0 MORr.TiNTiT.AÐIÐ 11 Fæðingardeild Sólvangs afhentur miimingarsjóður HAFNARFIRÐI — Óskar Jóns- son, útgerðarmaður hér í bæ, og kona hans, Mikkalína Sturlu- dóttir, hafa stofnað minningar- sjóð hjónanna Margrétar Magn- úsdóttur, Ijósmóður frá Þingeyri í Dýrafirði, og Jens A. Guð- mundssonar, kaupmanns sama stað. Stofnfé sjóðsins er kr. 20 þúsund, og hefur því verið af- hent að gjöf fæðingardeild Sól- vangs hér í Hafnarfirði. Er til- gangur sjóðsins að styrkja efna- litlar mæður, sem leggjast inn á fæðingardeild Sólvangs. — Fer úthlutun fram árlega 20. des. og í fyrsta skipti 1960. Stjórn sjóðsins skipa sam- kvæmt skipulagskrá, forstjóri Sólvangs, yfirlæknir sömu stofn- unar og yfirljósmóðir fæðingar- deildar Sólvangs. Jóhann Þorsteinsson, forstjóri Sólvangs, hefur beðið blaðið að flytja gefendum þakkir stofnun- arinnar. Gengur saman með SAS og Lufíhansa? Kaupmannahöfn. marz. — Einlcaskeyti til Mbl. — ' KVÖLDBERLINGUR greinir frá því, að stjórnir Norðurlandanna þriggja hafi sent Bonn-stjórn- inni orðsendingu með tilmælum að loftferðasamningur V-Þýzka- lands og Norðurlanda verði fram lengdur um 3 mánuði óbreyttur, en hann á að renna út 1. apríl. Lagt er til, að fresturinn verði notaður til viðræðna milli SAS og Lufthansa um nánari sam- vinnu, jafnvel samræmingu flug- ferða. Aðild Lufthansa að Air Union mun ekki hindra slíkt. Bonn-stjórnin vill hins vegar, að loftferðasamningurinn verði framlengdur um 6 mánuði með Sýning Valtýs Péturssonar í Listamannaskálanum hefur vákið mikia athygli og verið mjög fjölsótt. Þegar hafa margar myndir selzt. Sýningin er opin daglega frá kl. 2—10 e h. fram á mánu- dagskvöld, en þá lýkur sýningunni. Hér að ofan er ljósmynd af einu málverki Valtýs. Gjofir til Hlíðarendakirkju NtJ undanfarin ár, síðan Hlíðar- endakirkja var endurbætt hafa henni borizt margar góðar gjafir, utan þess sem margir gáfu ríf- lega meðan á endurbótum stóð, bæði safnaðarfólk og gamlir safnaðarmeðlimir, sem farnir eru úr sókninni og aðrir sveitungar. Gjafirnar eru m.a. þessar: Skírn- arskál úr silfri, áletruð til minn ingar um hjónin í Hallskoti, Þor- stein Jóngeirsson og Ingibjörgu Guðmundsdóttur. Gefin af fóstur dóttur þeirra Soffíu Markúsdótt- ur og manni hennar Ólafi Guðna- syni, kaupmanni í Reykjavík. Einnig önnur minningargjöf um sömu hjón: Aletruð Biblía, gefin af annari fósturdóttur þeirra, Guðrúnu Sveinsdóttur og manni hennar, Guðmundi Pálssyni. Alt- arisdúkur, gefin af Halldóru Nikulásdóttir, Múlakoti. Kristal- ljósakróna og tveir vegglampar úr sama afhentir af hjónunum Ingibjörgu Kristjánsdóttir og Is- leifi Sveinssyni, sem gefið er til minningar um foreldra hans Mar gréti Guðnadóttur og Svein Jóns son og dóttur þeirra Jóhönnu, af vinum og vandamönnum þeirra. Blómsturvasi úr silfri, til minn- ingar um hjónin í Múlakoti Guð björgu Þorleifsdóttur og Túbal Karl Magnússon. Gefið af börn- um þeirra. Fimm þúsund krón- ur, minningargjöf um Svein Teitsson á Grjótá, frá konu hans Vilborgu Jónsdóttur og börnum þeirra og tengdabörnum. Fimmt- án sálmabækur. Ókunnur gef- andi. Svo og eitt þúsund krónur í bréfi til undirritaðs, sem skipt- ast á milli Hlíðarenda og Breiða- bólstaðarkirkju. Frá ónefndum. Svo hafa nokkuð mörg áheit bor- izt, sem ég man ekki að telja upp, þar sem ég hef afhent þau jafn- óðum fjárráðamanni kirkjunnar og líka sumir ekki viljað láta nafns síns getið. Vegna þess að ég hef ekki séð þetta þakkað í blöðum, leyfi ég mér fyrir hönd kirkju og safnaðar að þakka þess ar gjafir allar, um leið og ég bið öllum gefendunum velfarnaðar. Hafi þakklæti komið frá öðrum og farið fram hjá mér, þá er góð vísa ekki of oft kveðin. Safnaðarfulltrúi Hlíðarendasóknar. Helgi Erlendsson. verulegum breytingum á þá lund að verulega verði (..regið úr flugi SAS til Þýzkalands og innan þess. Bonnstjórnin vill einnig halda áfram viðræðum Luft- hansa og SAS og gefur það beint til kýnna, að Air Union (samtök sem Lufthansa, Alitalia, Air France og Sabena hafa gert með sér) er opið SAS. Síðar í dag sagði talsmaður SAS, að fundir hæfust aftur með samninganefndum SAS og Luft- hansa á morgun eða næsta dag. Gat talsmaðurinn þess jafn- framt, að samvinna SAS og Swissair nefði nú staðið í eitt ár. Ekkert væri því til fyrirstöðu, að fleiri tækju þátt í þeirri sam- vinnu. Halldór Tryggvasan frd Miðdal FORELDRAR Halldórs, ættingj- ar og vinir hafa staðið við sjúkra- beð þess unga manns — séð þján- ingar hans og þverrandi æsku- þrótt. Tár þeirra hafa fallið á fagra minningu fyrri tíma — er vonir þeirra spáðu dugandi far- sæld á framabraut hans. Og svona þóknaðist Guði að sýna þeim beztu útkomuna. Alltaf og allstaðar er það móð- irin sem á hæsta tón mannlegra tengsla á jörðu vorri. Það er einnig hún sem kann að tala lágt í kyrrð sorgarinnar — þessi alvöru orð „drengurinn minn er dáinn“! Sjúkdómar vinna stundum hratt. Eyða afli æskunnar á stutt um tíma svo þeir verða örkumla vesalingar um langa ævi. Þar standa vinir og vísindamenn ráð þrota, sjá hvað mannlegur mátt- ur nær skammt og jarðlífið bág- borið í sinni eigin smæð. Þá skul- um v\ð horfa til hæðanna og hlusta á miskunnsemi Guðs. „Þú hrópaðir til mín. Ég frelsaði þig frá nauðum“. Ég þekkti Halldór Tryggvason frá því hann var fimm ára barn. Vissi hvað hann var dulur í skapi og þögull, gekk þó beint fram og fylgdi því fast eftir, er hann vissi réttast vera. Hann var inni- lega þakklátur við foreldra sína og aðra vandamenn. Elskaði þó eina mannveru sérstaklega og tjáði það mái sitt í fullri stærð, með heilaga orðinu „mamma“! Ég þakka þær minningar sem ég á um Halldór. Þakka Guði fyrir eðli hans og ættgöfgL Einnig fyrir heimili hans — Mið- dal, því þar hef ég gjörreynt aug ljós einkenni vors Islenzka aðals. Kristín Sigfúsdóttir, frá Syðri Völlum. EITTHVAÐ FYRIR ALLA Ráðunauti ar á ferð KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 28. marz. — Undanfarið hafa tveir ráðunautar verið á ferð hér í sýslunni og haldið fræðslufundi fyrir húsmæður. Af hálfu Kvenfélagasambands Islands hefur frk. Steinunn Ingimundardóttir sótt fundi þessa. Hefur hún haldið fyrir- lestra um ræktun grænmetis, geymslu matvæla o. fl. Sýnikennsla Þá hefur hún eldað kartöflu- súpu í allra augsýn (sýni- kennsla) og gefið konunum að bragða á réttinum. Frá Búnaðarfélagi íslands hef- ur verið hér Óli Valur Hansson, eftirmaður Ragnars Ásgeirsson- ar í ráðunautsstarfi hjá félaginu. SIN AL C O SÓDAVATN APPELSÍN GRAPE FRUIT KJARNADRYKKIR ★ P I L S N E R M A L T Ö L HVíTÖL ★ Skrúðgarðaræktun Hann hefur haldið erindi um ræktun og gerð skrúðgarða og sýnt í myndum blóm og tré og aðrar dásemdir náttúrunnar. Fundir þessir hafa verið vel sóttir, enda eru allir vegir auðir eins og á sumardegi, svo að senn færu blómin að springa út í görð- um ráðunautarins, ef þeir væru orðnir að veruleika. — Fréttaritari. ek olgerdin EGILL SKALLAGRÍMSSON I___________ SPUR COLA GINGER ALE HI-SPOT LÍMONAÐI QUININE WATER A N A N A S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.