Morgunblaðið - 28.04.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.04.1960, Blaðsíða 1
24 síður Brezkir togaramenn heimta öndunarbann herskipavernd Grimsby, 27. apríl. — Einkaskeyti frá fréttaritara Mbl. BREZKIR togaramenn munu berjast fyrir því að bannaðar verði allar landanir erlendra togara í Bretlandi, sagði Dennis Welch skipstjóri í dag, en hann er formaður stéttarfélags yfirmanna á togurhm í Grimsby. Samtök yfirmanna í Grimsby og Hull hafa boðað til sér- stakrar ráðstefnu til að ræða árangursleysi landhelgisráð- stefnunnar í Genf. Þar munu þeir einnig ræða um mögu- leikana á því að jiefja að nýju veiðar á íslandsmiðum: „Fé- lagar mínir eru mjög fýsandi þess að komast aftur á ís- landsmið“, sagði Welch við blaðamann. „Þeir geta það auð- sjáanlega ekki án verndar, þessvegna er málið háð því hve langan tíma undirbúningurinn tekur. Nú þegar Genfarráð- stefnunni er lokið, höfum við í hyggju að taka til alvarlegr- ar athugunar allar landanir útlendinga, ekki aðeins íslend- inga, heldur einnig Þjóðverja og Belga“. — Welch kvaðst mundu leggja þetta mál fyrir brezka togaraeigendafélagið næstu daga. Welch sagði að brezkum togaraskipstjórum, sem staddir eru á hafi úti, hafi verið símuð úrslit Genfarráðstefnunnar, og hafi þeir símað heim og krafizt aðgerða. Macmillan Hare ræðir við Hare, landbúnaðarráðherra, er var aðalfulltrúi Breta á ráðstefn unni í Genf, fór í dag á fund Maemillans forsætisráðherra til að gefa honum skýrslu um ár- angurinn. Hare sagði blaðamönn um á flugvellinum, við heimkom una, að spurningin um það hvort senda skuli aftur herskip til að vernda brezka togara innan 12 mílna svæðisins við íslands yrði að ræðast í brezku ríkisstjórn- inni. Talsmaður brezka utanríkis- ráðuneytisins sagði á blaða- mannafundi í dag að engin á- form væru uppi um viðræður brezkra og íslenzkra ráðherra ' Fulltrúar halda heimleiðis um ástand það sem skapaðist vegna árangursleysis ráðstefn- unnar í Genf. Togaraeigendur á fundi Nokkuð hefur verið rætt um það hjá opinberum aðilum hvort Lloyd utanríkisráðherra Breta og Guðmundur I. Guðmundsson utanríkisráðherra muni nota tæki færið á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Istan- bul í næstu viku tii að ræða óformlega um málið. Þeir hefðu áður átt einkaviðræður á fundum Atlantshafsbandalagsins. Vöruðu þessir menn við bjartsýni, þar sem málið virtist komið í algjöra sjálfsheldu. Togaraeigendur koma saman til fundar í Grimsby á morgun til að ræða það hvenær togarar þeirra komist aftur á Is- landsmið og hvort það verði und- ir herskipavernd. Varaformaður brezka togaraeigendafélagsins, Copley, sem var einn af fulltrú um Bretlands í Genf, mun sitja fundinn. 3.700 haldi í manns i S.-Afríku \ Morgunblaðinu barst í gær svohljóðandi skeyti frá fréttaritara sínum í Genf: MESTUR hluti sendinefnd- anna fór frá Genf í gær og í morgun. — Ráðherrarnir Bjarni Benediktsson og Guðmundur I. Guðmunds- son fara héðan í dag og Hans Andersen sendiherra og Davíð Ólafsson fiski- málastjóri á morgun. Ég reyndi að fá stutt samtal við Hare, fulltrúa Breta, eftir atkvæðagreiðsl- una í gær, en hann neitaði að segja nokkuð. Kveðjur. Þorsteinn Thorarensen. Jóhannesarborg, 27. apríl. —• (NTB-Reuter) — LÖGREGLAN í Suður- Afríku handtók í dag 497 manns, og hafa nú um 3.700 manns verið fangelsaðir þar síðan uppþotin urðu í Sharp- ville hinn 21, marz sl. Erasmus, dómsmálaráð- herra, tilkynnti þinginu í gær að neyðarástandið, sem lýst var eftir Sharpville-upp- þotin, yrði áfram ríkjandi meðan þess væri þörf. Friðsamlegar handtökur Aðalárás lögreglunnar í dag var á hafnarborgina East London þar sem 312 voru teknir höndum. Herlið umkringdi borgina og 100 manna lögreglulið var síðan sent inn í hana til að framkvæma handtökurnar. Meðal þeirra sem Framh. á bls. 23. bar- dagiaTjormnni í GÆRMORGUN dró til mik- illa tíðinda á Tjörninni í Reykjavík. Fjórir svanir komu fljúgandi af himnum og hugð- ust vinna stóra hólmann úr höndum þýzku „keisarahjón- anna“, sem hafa búið þar væntanlegum erfingja sínum hreiður. „Keisaranum“ varð þegar ljóst hvað í húfi var og hóf sig á loft og snerist gegn aðkomusvönunum og tókst með harðfylgi sínu að hrekja þá á flótta á syðri tjörnina. Þar upphófst svo mikil or- usta. Réðust aðkomusvanirnir f jórir allir í einu á „keisarann“ og tókst eftir vasklega vörn hans að „kaffæra hann og berja svo með vængjunum að hann varð alblóðugur og vir- tist falla í rot um tíma. Hon- um tókst þó með ítrustu kröft- um að flýja í áttina að Hljóm- skálanum, þar sem Guðmund- ur Hermannsson, varðstjóri stóð og bægði hann hinum svönunum frá „keisaranum", sem ella hefðu gengið af hon- um dauðum. Svo var af „keisaranum“ dregið eftir bardagann, að Guðmundur gat tekið um háls honum, dregið hann að landi og strokið honum. Virtist hann taka því feginsamlega og hjarnaði furðufljótt við. Það er af svönunum fjórum að segja, að þeir hófu sig skömmu síðar til flugs, hnit- uðu ógnandi einn hring yfir stóra hólmanum, þar sem „keisarynjan“ gæti hreiðurs-1 ins, en flugu síðan í suður átt að Háskólanum og hurfu út í' himinblámann. (Sjá mynd). Ný stjórn í S.-Kóreu Seoul, S-Kóreu, 27. apríl. — (NTB-Reuter) — SYNGMAN Rhee sagði í dag opinberlega af sér sem for- seti Suður-Kóreu, og til- kynnti jafnframt að það sem Togveiðar í S-íshafi IJMUIDEN, Hollandi. 27. apríl. (NTB) — Norski togarinn „Tromstraal 2“ kom til Ijmuiden nýlega vegna vélabilunar. Hafði togarinn verið á heimleið frá Suður-íshafinu, þar sem gerðar voru veiflitilraunir með botn- vörpu. Ekki vildi áhöfnin gefa neinar upplýsingar uni árangur af förinni, en talið er að Norð- menn hafi í huga að stunda í framtíðinni togveiðar í Suður ís- hafi og vinna aflann um borð í verksmið j uskipum. Skrýtinn fiskur Loftskeytamaður togarans sagði að fiskurinn sem veiðst hafi, sé ólíkur þeim fiski er afl- ast á norðurslóðum, og staðfesti skipstjórinn það. Væri hann lík- ari hitabeltisfiski, með stórt kúlulaga höfuð og oft nærri gegn sær. Væri líkast því sem fiskur- inn væri blóðlaus. j>að fylgir fréttinni að einn af fiskifræðingunum sem með voru í ferðinni, hafi farið flugleiðis til Noregs með skýrslu um ár- angurinn. „Tromstraal 2“ var fjóra mán- uði í förinni. ævinnar, ætlaSi vera „óbreyttur eftir væri hann að borgari“. Tilkynning Rhees var stutt orð. Þar sagði hann aðeins: „Ég, Syngman Rhee, hef ákveðið að segja af mér sem forseti, þar sem ég virði sam- þykkt þjóðþingsins, og mun helga landi og þjóð líf mitt sem óbreyttur borgari“. Huh Chung utanríkisráðherra, hefur tekið við embætti forseta til bráðabirgða og skipuð hefur verið ný 12 manna' stjórn, sem fara mun með völdin þar til breytingar hafa verið gerðar á stjórnarskránni og nýjar kosn- ingar farið fram. Friður ríkir nú aftur í höfuðborginni og dregið hefur verið úr áhrifum neyðar- ástandsins. Fluttur heim Rhee, kona hans og uppeldis- sonur flytja nú í einkabústað hans í útjaðri Seoulborgar. Þar er álitið að hann muni eyða ævi- dögum sínum í kyrrð. Jafnvei helztu stuðningsmenn Rhecs játa að uppreisnin gegn stjóm hans hafi fyrirbyggt að hans verði í framtíðinni minnzt sem þjóðarhetju Suður-Kóreu. Þegar tilkynning Rhees var birt, varð mikill fögnuður á göt- um Seoul, og myndir af forset- anum fyrrverandi voru rifnar af veggjum opinberra bygginga. Rhee hefur sagt að hann sjái mjög eftir því að þurfa nú að yfirgefa hallargarðinn sinn, og kvaðst vona að næstu húsráð- endur leyfi honum að koma þang að aftur einu sinni á vori til að sjá trén þegar þau eru að springa út. 130 drepnir Fall Syngmans Rhees er I beinu áframhaldi af ásökunum um að forsetakósningarnar 15. marz sl., þegar Rhee var endur- kjörinn í fjórða sinn, hafi verið falsaðar. Uppþot og mótmælaað- gerðir vegna kosninganna hafa þegar kostað 130 manns lífið og um 1500 hafa særzt. f lokaátök- Framh. á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.