Morgunblaðið - 26.05.1960, Blaðsíða 1
24 síður
47 árgangur
119. tbl. — Fimmtudagur 26. maí 1960
Prentsmiðia Morgunblaðsins
injon manna
misstu heimili
Jarðskjálftar, flóðbylgjur
og nú eldgos
Santiago, Chile, 25. maí.
TALIÐ er, að á f jórða þúsund manns hafi farizt í Chile í jarð-
skjálftunum og flóðunum og yfir milljón manna mun hafa
misst heimili sín. Og ekki bætir það úr ástandinu, að fjöl-
mörg eldfjöll í sunnanverðum Andesfjöllum hafa nú byrjað
að gjósa — og spúa eldi og eimyrju yfir stór héruð landsins.
Hefur miklu felmtri slegið á alla landsmenn. Jarðhræringar
halda áfram, þó mun vægari en í upphafi, og upplausnar-
ástand ríkir um gervallt landið.
hefur beðið allar þjóðir, sem af-
Jögufærar eru, að veita aðstoð.
Einnig hefur alþjóða rauði kross-
Fólk á flótta undan
hraunstraumnum
Fjögur stór eldfjöll á fyrr-
greindu svæði hafa byrjað að
gjósa nú, auk þess mörg
smærri. Þúsundir manna hafa
lagt á flótta undan glóandi
hrauninu, sem æðir niður dal-
ina og eru mörg þorp þegar í
hættu. Talið er, að aska muni
nú leggjast á 23.000 fermílna
landsvæði.
Fjölmennar sveitir björgunar-
liða vinna að því að flytja fólk
úr bæjum og þorpum, sem eru
í hvað mestri hættu. Einn gíg-
urinn opnaðist í sveit þar sem
500 manns höfðu drukknað í
flóðunum og 60 menn að auki
týndu lífinu í aurskriðum, sem
hlupu fram við jarðskjálftana.
Beðið um hjálp
Flugvélar og þyrilvængjur frá
Perú, Argentínu, Bandaríkjun-
um auk Ohile hafa í allan dag
flutt vistir og hjúkrunargögn til
þeirra héraða þar sem þörfin hef
ur verið mest — og Chilestjórn
Atkvæða-
greiðslu
frestað?
f
— New York, 25. maí
ATKVÆÐAGREIÐSLU um álykt
unartillögu Rússa um vitur á
Bandaríkin vegna U-2 njósna-
flugsins dróst á langinn í Ör-
yggisráðinu í kvöld, þar eð
Gromyko sagðist þurfa frest til að
undirbúa svarræðu sína við ræðu
Cabot Uodge. Menn gera sér í
hugarlund, að Gromyko vilji
heyra ræðu Esenhowers um „topp
fundinn“ í kvöld, áður en hann
gengur frá ræðu sinni. Banda-
ríkjastjórn hefur eindregið farið
þess á leit við Rússa, að rússneska
útvarpssendingin á ræðu forset-
ans verði ekki trufluð.
inn verið beðinn ásjár og víða
um lönd mun nú hefjast söfnun
fyrir lyfjum, matvælum og klæð
um fyrir hina bágstöddu.
Saratoga
i árekstri
WASHINGTON, 25. maí. — Yfir-
stjórn bandaríska sjóhersins til-
kynnti hér í dag að bandaríska
flugvélamóðurskipið S A R A -
T O G A hafi orðið fyrir miklum
skemmdum, er það í fyrrinótt
lenti í árekstri við 6.135 tonna
vestur þýzkt kaupfar. Árekstur-
inn átti sér stað um 200 sjómílur
austur af Henryhöfða í Virginíu-
ríki í Bandaríkjunum og var
móðurskipið á 34 hnúta siglingar
hraða, er það gerðist. í tiikynn-
ingunni var ekki getið um hvort
mannskaði hafi orðið.
Þýzka skipið Bernd Leonhardt
skemmdist einnig mikið, en gat
haldið til Baltimore fyrir eigin
vélaafli.
Við áreksturnn kom eldur upp
í bandaríska flugvélamóðurskip-
inu, sem er stærsta skip sinnar
gerðar í heiminum, og getur m a.
flutt 100 orrustuþotur. — Vinstri
brúarvængur þýzka skipsins og
íbúðarverur skemmdust einnig
mikið og afturmastur skipsins fór
í sjóinn.
MÖRGUM hefur orðið star-
sýnt á þessa sérkennilegu
byggingu, sem verið er að
reisa á svokölluðum Borgum,
yzt á Digraneshálsi. Hvaða
hús er þetta? Þetta er guðs-
hús Kópavogsbúa.
Kirkjustæðið er eitthvert
hið fegursta á tslandi. Um-
hverfis kirkjuna er autt svæði
og þaðan er útsýni yfir Faxa-
flóa á Snæfellsnes, austur um
Hellisheiði og suður á Reykja
nes, og segja má, að hún blasi
við helmingi þjóðarinnar. —
Þetta er jafnarma krosskirkja
með tvöföldum bogum og
verður gler á milli boganna,
og myndar hún þannig nokk-
urs konar ljóskross, því hún
verður upplýst, þegar dimmir.
Grunnurinn að kirkjunni
var lagður í fyrra og er 18V£x
1814 fermetri, og er gert ráð
fyrir, að hún taki 280 manns
í sæti. I kirkjusalnum verða
svalir og 4 hliðarherbergi,
skrúðhús og fleira. Kirkjan er
12 m að hæð, en útbyggingin
314 m. Ekki hefur enn verið
ákveðið, hvort sérstakur
klukkuturn verður reistur
síðar við kirkjuna, en klukk-
urnar verða til bráðabirgða í
vesturstafni kirkjunnar, yfir
innganginum. — Húsameistari
ríkisins, Hörður Bjarnason,
hefur gert teikninguna að
kirkjunni, og er kostnaður við
byggingu hennar áætlaður 3
milljónir kr.
Hættan liðin hjá
en björgunarstarfið er geysierfitt
TOKYÓ, 25. maí: — Björgunar-
sveitir voru önnum kafnar í dag
við að koma heimilislausum und-
ir þak, veita nauðsynlega hjúkr-
un og leita lika á úthafsströndum
Japanseyja. Enn hafa ekki fund-
ist nema um 100 lik, en óttazt er
að mun fleiri hafi látið lífið er
flóðöldurnar skullu á strendurn-
ar hver af annarri eftir jarð-
skjálftana miklu í Chile.
Margir bælr einangraðir
Talið er, að útsogið hafi tekið
marga með sér og því munu all-
ir þeir, sem lífinu týndu í þessum
Trufln Rússar?
— Washington, 25. maí.
BANDARÍKJASTJÓRN lagði
aftur í dag ríka áherzlu á það, að
stjórnin vænti þess að rússnesk
yfirvöld hindruöu ekki rússneska
alþýðu í að hlýða á ræðu Eisen-
howers forseta um „Toppfund-
inn“ og ástandið, sem endalok
hans hafa skapað. í þessu sam-
bandi hefir dagskrá „Voice of
America“ verið send á bylgju-
lengdum, sem miðað verður á
Rússland og fjölmörg önnur lönd,
því ræðunni verður útvarpað á
mörgum tungumálum.
Flugstjórinn fékk ranga veðurlýsingu
GREVESMUEHLEN, 25. maí: —
Bandaríska herflugvélin, sem
Slaufur og hanastél í haust
London, 25. maí. (Reuter)
A TÍZKUSÝNINGU, sem
haldin var í dag á vegum
heildsölufyrirtækis Christi-
an Diors í London, kom það
fram að hausttízkan mundi
fyrst og fremst einkennast
af slaufum. — Konur skulu
skrýða dragtir, kápur, hana
stélskjóla, kvöldkjóla og
jafnvel morgunkjóla slauf-
um í bak og fyrir, slaufur
í hálsmál, á ermar, mitti,
belti og pils.
Aðallitif á fatnaði, sem
sýndur var á sýningunni,
voru grár, svartur, brúnn,
flöskugrænn, fagurrauðir
litir og bláir.
Þá er svo að sjá, sem kon-
ur skuli hafa mittið á rétt-
um stað og engar breyting-
ar eru boðaðar í pilsasídd.
rússneskar orrustuþotur neyddu
til að lenda í A.-Þýzkalandi á
föstudaginn, flaug. til Wiesbaden
í kvöld. Flugstjórinn kvaddi
rússnesku og austur-þýzku her-
mennina brosandi og 30 austur-
þýzkir slökkviliðsmenn komu á
vettvang við flugtakið.
Hafði flugmaðurinn verið var-
aður við að reyna flugtak, því
akurinn, sem flugvélin hafði lent
á, var gljúpur og korngrasið á
honum var orðið tveggja feta
hátt. Flugstjórinn skellti skolla-
eyrum við aðvörununum og far-
þegarnir fjórir sömuleiðis. Allt
gekk að óskum og komst vélin á
loft er hún hafði runnið akurinn
nær á enda.
Fréttamönnum var meinað að
tala við flugstjórann og aðra, sem
í vélinni voru. Var sagt, að þeir
mundu segja sögu sina, er þeir
kæmu til Wiesbaden. Fréttamað-
ur Reuters ber flugstjórann þó
fyrir því, að hann hafi fengið
rangar upplýsingar um vinda, er
hann fór frá Kaupmannahöfn á
föstudaginn áleiðis til Hamborg-
ar. Hafði hann því tekið ranga
stefnu og farið inn yfir A.-Þýzka-
land óafvitandi — og vaknaði
hann við vondan draum er
rússneskar orrustuþotur birtust
skyndilega og skutu aðvörunar-
skotum.
hamförum, vart finnast. Lögregl-
an tilkynnti í kvöld, að yfir 850
manns hefðu slasazt meira og
minna. Þó eru öll kurl hvergi
nærri komin til grafar því mörg
byggðarlög eru enn einangruð og
þangað hefur ekki tekizt að senda
lækna og lyf, enda þótt mikill
fjöldi þyrilvængja hafi í dag ver-
ið á þönum með hjúkrunargögn.
Geysilegt tjón
Neyðarástandi hefur verið
lýst í 15 borgum, 15 bæjum og
tveimur þorpum, þar sem yfir
150 þús. manns eru heimilislaus-
ir eftir þessar hamfarir náttúr-
unnar.
En það er ekki einungis mann-
tjón, sem hér hefur orðið, því
flóðbylgjurnar hafa valdið geysi
miklu tjóni á mannvirkjum þeim,
sem gegna þýðingarmiklu hlut-
verki við ýmiskonar framleiðslu-
störf. Landbúnaður og sjávarút-
vegur munu hafa beðið tjón, sem
metið er á 13.440,000 dollara.
Perluveiðar, sem er mikill og
öflugur atvinnuvegur, hafa orð-
ið fyrir skakkaföllum, er nema
um 14.560.000 dollurum og tjón
á opinberum byggingum er met-
ið á 2.750.000 dollara.
Samgönguleiðir ófærar
1 dag var hættan á að fleiri
flóðöldur skyllu á ströndina tal-
in úti svo að fólk, sem flúið hafði
til fjalla, flykktist aftur niður í
bæ og borgir. Samgöngueiðir og
símakerfi er í molum á stórum
svæðum og verður unnið dag og
nótt að því að lagfæra það. Her-
menn og brunaliðsmenn unnu að
því að hreinsa þjóðvegi og gera
brýr akfærar á ný, en langur
tími mun líða þar til allt verður
komið í samt lag þótt vel verði
unnið.
Pasternak hrakar
MOSKVU, 25. maí. — Líðan
skáldsins Boris Pasternaks hrak-
aði mjög í dag. Hann fékk snert
af hjartaslagi í apríl sl. og síðar
lungnabólgu og heilsu hans hefir
farið síhrakandi. Nú attra síðast
hefir hann einnig fengið mikla
magablæðingu.