Morgunblaðið - 20.09.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.09.1960, Blaðsíða 1
24 síður 47. árgangur 214. tbl. — Þriðjudagur 20. september 1960 Prentsmiðja Morgunblaðsin* Afríku og Asíuríkin styðja Hammarskjöld Dag Hammarskjöld 28 tarast ★ Róm, 19. sept. — Reuter. — 28 menn hafa farizt afvöldum fárviðris, sem geisað hefur um Norður- og Mið-ltalíu sl. fjóra sól arhringa. Mörg hundruð manns Ihafa flúið heimili sín í þorpum, sem eru umflotin vatni og vegir og járnbrautarlínur hafa lokazt af vö'dum regns og skriðufalla. Hafa ekkí orðið aðrar eins um- feröartruflanir af völdum veðurs é ítalíu í tólf ár. Frá Sameinuöu þjóöunum, New York, 19. sept. (Reuter-NTB) SEXTÁN Afríku- og Asíu- þjóðir undirrituðu tillögu, sem borin var fram af sendi- manni Ghana á aukafundi Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sl. sunnudag. Er þar lýst fullu trausti á Hammar- skjöld, framkvæmdastj. SÞ. Tillögu þessara ríkja svipar að efni til tillögunnar, sem Ceylon og Túnis háru fram í ör- yggisráðinu, en Sovétríkin beittu neitunarvaldi gegn. Þar er lýst trausti á Hammar- skjöld og fullum stuðningi við stefnu hans í Kongó, Jögð áherzla á nauðsyn þess, að ekkert ríki hlutist til um málið án milli- göngu Sameinuðu þjóðanna og þá aðeins að beiðni framkvæmda stjórans. Þá skuli Hammarskjöld vinna bráðan bug að því að að- Örlar á samkomu- lagsvilja í Kongó stoða miðstjórn landsins við að koma þar á lögum og reglu og reyna að viðhalda einingu og pólitísku sjálfstæði ríkisins. Loks er óskað framlaga í sjóð, sem Sameinuðu þjóðirnar geti ráð- stafað til viðreisnar í Kongó í samráði við miðstjórnina. Aðeins kommúnistaríkin áfellast Hammarskjöld Undir tillöguna skrifuðu Ceyl- on, Ghana, Guinea, Indónesia, írak, Jórdanía, Líbanon, Líbería, Líbýa, Marokkó, Nepal, Saudi- Arabía, Súdan, Túnis, Arabalýð- veldið og Yemen. Áður en tillagan var lögð fram, höfðu fjölmargar þjóðir lýst trausti og stuðningi við Hammarskjöld, m. a. Jórdanía, Pakistan, Nepal, Túnis, Noregur, Brazilía, Líbýa og Argentína. Aðeins kommúnisaríkin (Pól- land, Búlgaría, Rúmenía, Úkra- ína, Ungverjaland og Tékkósló- vakía) fylgdu dæmr Zorins og gagnrýndu aðgerðir Hammar- skjölds í Kongó. • 1 gærkvöldi lagði Zorin, fulltrúi Rússa, fram tillögu, þar sem veitzt var harkalega að Hammarskjöld og stefna hans í Kongó-málinu for- dæmd, þar sem hún hafi orð- ið orsök ófara Lumumba og stjórnar hans. Er búizt við að tillaga þessl verði feld. Jafnaðarmenn unnu á í Svíþjóð Stjórn Erlanders mun sitja Stokkhólmi, 19. september. (NTB-Reuter) Ú R S LIT kosninganna til annarrar deildar sænska þingsins urðu í meginatriðum á þá leið, að jafnaðarmenn unnu á, en hægrimenn töp- uðu. Þá unnu kommúnistar nokkurt atkvæðamagn, en þeir buðu nú fram í fleiri kjördæmum en í kosningun- um 1958. Úrslit urðu á þessa leið, þegar utankjörstaðaat- kvæði eru ekki talin með: Leopoldville, 19. september. TALSMAÐUR SÞ í Leopold- ville skýrði fréttamönnum svo frá í dag, að gert hefði verið samkomulag við her- menn í innrásarliðinu í Kat- anga um að koma á um það bil 30 km breiðu hlutlausu svæði. Nú virðist heldur rofa til, þar sem stjórnmálamennirn- ir, m. a. Lumumba, munu hafa fallizt á að hætta við inn rásina í Katanga í bili og reyna að jafna ágreiningana með viðræðum. 1 dag hafa fregnir verið að berast um að samkomulag hafi orðið milli Lumumba og Kasa- vubu, en Kasavubu hefur tví- vegis borið það til baka. Víst er að menn frá Ghana, Guienu, Mai-okkó, Arabalýðveldinu og Túnis hafa reynt að vinna að málamiðlun milli þeirra Kasa- vubus og Lumumba. Málamiðlun Seint í kvöld bárust þær fregn ir að Kasavubu og Lumumba hefðu haldið fundi hvor í sínu lagi, og tilkynnt, að nú hefðu þeir náð sam- komulagi. Ef þessar fregnir eru réttar, mun Lumumba hafa geng ið að skilmálum Kasavubu um að sá síðarnefndi fái meiri ítök í stjórn landsins, fái meiru að ráða um skipan ráðuneytis og að Lumumba taki allar skoðanir andstæðinga sinna í fylkisstjórn- unum til meðferðar á ráðuneytis- fundum. Jafnframt berast fregnir um að Mobutu, núverandi herráðsfor- ingja, hafi verið sýnt banatil- ræði í annað sinn á skömmum tíma, en í gær réðist inn til hans liðsforingi í Kongóher og ætlaði að skjóta hann með skamm- byssu, en Mobutu tókst að af- vopna hann. I dag reyndi annar hermaður að skjóta á Mofoutu inn um glugga, en var handtek- inn. —. Síðustu fregnir frá Kongó herma, að Ileo, sem Kasavu- bu skipaði forsætisráðherra á sínum tíma, ihugi nú þann möguleika að Lumumba fái j sæti í stjórn sinni. Tage Erlander Sósíaldemókratar hlutu 1.968,- 428 atkvæði og 116 þingmenn kjörna. Unnu þeir 278.929 atkv. og 5 þingsæti. Þjóðflokkurinn hlaut 699.584 atkv. og 39 þingmenn. Flokkur- inn vann 29.361 atkv. og eitt þing sæti. Hægri flokkurinn hlaut 638.- 576 atkv. og 36 þingmenn kjörna. Flokkurinn tapaði 55.182 atkv. og 9 þingsætum. Miðflokkurinn hlaut 567.477 atkv. og 35 þingmenn. Flokkur- inn vann 86.488 atkv. og 3 þing- sæti. Kommúnistar hlutu 186.771 atkv. og 6 þingmenn. Flokkur- inn vann 58.922 atkv. og eitt þing sæti. ★ Ríkisstjórn Tage Erlanders mun sitja áfram, en stjórnmála- fréttaritarar tala um að Erland- er muni væntanlega endurskipu- leggja ráðuneyti sitt á næstunni. Fátt um kvebjur við komu Krúsjeffs New York, 19. september. (Reuter-NTB) ER hafskipið Baltika lagði að bryggju í New York í dag var úrhellisrigning. Fimm hundr- uð lögreglumenn stóðu vörð á bryggjunni, sem hafði verið lokað á stóru svæði og fékk enginn að fara þar inn fyrir nema hann ætti brýnt erindi. Móti farþegum tóku sendimenn rússneska sendiráðsins og fleiri Rússavinir, þeirra á meðal banda- ríski iðjuhöldurinn Cyrus Eaton. Þeir frömdu lögbrotiö Kommúnistar í Dagsbrún hindra allsherjaratkvæðagreiðslu ÞAU tíðindi gerðust um s.l. helgi, að kommúnistastjórnin í Verka- mannafélaginu Dagsbrún hafði að engu kröfu 573 félagsmanna um að viðhafa allsherjaratkvæða- greiðslu við kjör fulltrúa félags- ins á Alþýðusambandsþing. Eftir að krafan var kominn fram, þver- braut stjórnin lög og reglur fé- lagsins og A.S.Í. með því að láta kjósa alla 34 fulltrúa félagsins á fundi, þar sem aðeins var mættur um 1/11 hluti þeirra félags- manna, sem hún þykist vera að kjósa fulltrúa fyrir. í 1. gr. c lið reglugerðar A.S.t. segir að allsfoerjaratkvæða- greiðsla skuli fara fram ef „minnst 1/5 hluti FULL- GILDRA félagsmanna krefst þess skriflega“. 1 5. gr. laga Dagsbrúnar segir ennfremur: „Þeir félagsmenn, sem ekki fullnægja ákvæðum 2. og 3. greinar (þ.e. aukameðlimir) hafa aðeins málfrelsi og tillögu rétt um málefni félagsins". Samkvæmt framangreindum reglum er augljóst, að einungis tala fullgildra félagsmanna kem- ur til greina í þessu sambandi og einnig er augljóst, að þeir fé- lagsmenn, sem aðeins hafa mál- frelsi og tillögurétt, en hvorki kosningorétt né kjörgengi, geta engan veginn talizt fullgildir fé- lagsmtnn. Við fulltrúakjör á þing A.S.I. ber að miða við félagatölu við undanfarandi áramót. Nú viil svo til, að enginn vafi leikur á um það, hve marga stjórn Dags- brúnar taldi fullgilda félags- rhenn vera um s.l. áramót. Fyrir liggur kjörskrá félagsins frá því i janúar og eru á henni um 2300 nöfn, en nokkrir voru kærðir inn, meðan á kosningu stóð. Sam kvæmt mati kommúnistastjórn- Framhald á bls. 3. Rauðum renning hafði verið komið fyrir þar sem Krúsjeff stigi á land, en þó varð hann að ösla nokkurra sentimetra vants- lag að bifreiðinni, sem hann ók í til aðsetursstaðar síns við Park Avei ue. Miklar varúðarróðstafanir höfðu verið gerðar við komu forsætis- róðherrans. Þyrlur flugu yfir skipinu á leið þess inn höfnina og strandbátar fylgdu því. Allar brýr, sem skipið sigldi undir voru lokaðar fyrir umferð. Hópur flóttamanna lýsti andúð Ekki tóku neinir opinberir full- trúar Bandaríkjastjórnar á móti Krúsjeff og fylgdarmönnum hans, en staðgengill Hammarskjölds var Jean de Noue, skrifstofustjóri' spjaldskrárdeildar Sameinuðu þjóðanna. Nokkur hundruð manns söfn- uðust saman við höfnina og lýstu andúð sinni á hinum austrænu leiðtogum. Voru það einkum hóp- ar flóttamanna frá Austur Evrópu. Hið geysifjölmenna lög- reglulið kom fljótt á ró svo að ekki kom til neinna átaka. Jafnóðum og kommúnistaleið- togarnir gengu í land héldu þeir allir ávörp og lögðu áherzlu á hve allsherjarofvopnun væri nauðsynleg til að viðhalda friði í heiminum. Churshill fil Titos ★ Belgrad, 19. sept. — NTB — Tito, forseti Júgóslaviu hefur boðið Sir Winston Churshill að heimsækja sig í haust að sumar- bústað hans á Brioni eyju.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.