Morgunblaðið - 06.01.1961, Qupperneq 17
Föstudagur 6. janúar 1961
MORGUNBLAÐIÐ
Sigurður
vörður —
„Vort líf sem svo stutt og
stopult er
það stefnir á æðri leiðir.
Og uppheiminn fegri en
i augað sér,
mót öllum oss faðirinn breiðir".
V (Einar Benediktsson).
1 dag er til moldar borinn
' (Guðm.) Sigurður Jóhannesson
húsvörður við Gagnfræðaskól.
við Vonarstræti í Rvík. Hann
lézt á Hvítabandinu 27. des. s.l.
á 66. aldursári.
Fæddur var hann að Bessa-
stöðum í Mýrahreppi, Dýrafirði,
20. maí 1895, skammt frá Mýr-
um, þar sem foreldrar hans
bjuggu, þau hjónin: Sólveig
Þórðardóttir og Jóhannes Guð-
mundsson. Stóðu að honum sterk
ir stofnar vestfirzkra bænda í
báðar ættir, sem ekki skal rakið
hér.
Haustið 1899 drukknaði faðir
hans á Dýrafirði 10. okt. ásamt
móðurbróður: Jóni Þórðarsyni og
þriðja manni, öllum úr Mýra-
hreppi, er þeir voru að inna af
hendi þjónustu við landhelgis-
lögin undir forystu sýslumanns
V.-ísafjarðars., Hannesar Haf-
steins er komst með naumindum
lífs af úr því ,,þorskastriði“ við
Breta, upp við landssteina Dýra-
fjarðar. Og mun sá „ljóti leik-
ur“, „Jóns Bola“ ekki líða úr
minni þeirra er þá voru komn
ir til vits og ára í Dýrafirði um
aldamótin.
Eftir fráfalil föðurins, fluttist
ekkjan með 3 börn sín að Meira-
Garði þar sem systir hennar:
Sigríður Þórðardóttir og Kristján
Ólafsson, skipstjóri, maður henn
ar stýrðu búi með miklum mynd
arbrag.
Sólveig Þórðardóttir var mik
il tápkona og fórnaði öliu sínu
þreki til forsjár barna sinna. En
1900 á jólanótt varð hún að
þola þá raun að missa einkadótt
urina Guðbjörgu 13 ára, mestu
efnisstúlku. Sannaðist þá, sem
oftar hin mikla lífsspeki skálds
ins að:
„Bölið manns sjálfs er því bærra,
sem hugur og hjarta er stærra"
Voru þá eftir þeir synirnir: Sig
urður sál. og Ingimundur, núver
andi fræðslumálafulltrúi í Rvík.
Sigurður naut náms við ung-
mennaskóla sr. Sigtr. Guðlaugs-
aonar að Núpi, hins þjóðkunna
æskuleiðtoga. Og að því loknu
innritaðist hann 1912 til búfræði
náms að Hvanneyri og lauk þar
námi 1914.
Að loknu námi að Hvanneyri,
vann hann að jarðabótastörfum
bæði í Borgarfirði og í Húna-
vatnssýslu, eftir að hann flutt
ist þangað.
18. apríl 1918 kvæntist hann.
Kristínu Jónsdóttur frá Brekku
í Þingi í Húnavatnssýslu, hinni
mestu dugnaðar- og myndar
konu. Jafnhliða jarðræktarstörf
um hafði Sigurður ætíð búskap
til að styðjast við, og mun kona
hans Iiafa átt þar ómæld dags-
verk í fjarveru manns síns og
veikindaforföllum.
Þau hjón eignuðust 5 syni (1
dó í bernzku). Hinir 4 sem upp
komust eru: Björn, járniðnaðar
maður (dáinn 29. maí 1959),
kvæntur Guðrúnu Ebenesersdótt
ur. Jóhannes Sölvi, bóndi að
Hellu á Árskógsströnd í Eyja-
firði, kvæntur Halldóru Ólafs-
dóttur. Ingimar, járniðnaðarmað
ur í Rvík, kvæntur Huldu Alex
andersdóttur. Þórketill, trésmið-
ur í Rví,k ókvæntur.
1 Einn son eignaðist Sigurður
utan hjónabands, Sigurð skrif-
stofumann á Akureyri, kvæntan
Ásu Leósdóttur.
1 AlJir eru þeir bræður hinir
mestu atgervismenn, með verk-
lægni og hagleikshneigð, sem
virðist mjög ríkjandi í kynstofn
inum.
1938 fluttu þau hjón meö fjöl-
skyldu sína til Reykjavíkur.
Vann Sigurður þar við ýmis iðn
aðarstörf, jafnvígur á tré og
jám, þar til fyrir ári síðan, að
hann gerðist húsvörður hjá
Gaenfræðaskólanum við Vonar
Jóhannesson hús-
Minning
stræti í Rvík.
í Reykjavik gerðist Sigurður
virkur starfsmaður templararegl
unnar og vann henni með heil-
steyptum huga, eftir því sem
heilsa og kraftar leyfðu.
Fráfall Björns Sigurðssonar,
er fyrr getur var öllum aðstand
endum mikið áfall og harmsefni,
er hann féll frá á bezta aldri,
og mun þá mörgum, sem til
þekktu hafa komið í hug túlk-
un skáldsins er kvað:
„Hér féll grein af góðum stofni,
grisjaði dauði meir en nóg“.
Sigurður var maður „þéttur
á velli og þéttur í lund“, fjöl
hæfur með ríka listamanns-
hneigð og ljóðrænn, en dulur
og bar ekki tilfinningarnar á
torg.
Eins og að líkum lætur varð
Sigurður fyrir snertingu hinn-
ar rismiklu vakningaöldu alda
mótanna, þar sem vaskir svein
ar og dætur þjóðarinnar „stigu
á stokk og strengdu þess heit“,
að gerast vökumenn og vorboðar
í íslenzkri þjóðlífsbaráttu. Og
þrátt fyrir mikinn heilsubrest,
allt frá unglingsárunum tókst
honum að hefja „Grettistök“ er
margur hraustur samferðamað-
ur undraðist.
En þegar dýpra var skoðað
kom í ljós að hann átti andlega
sterkan hugarheim, er stóð af
sér alla umhleypinga og storma
mannlífsins, eins og kemur Ijós-
lega fram í eftirfarandi ljóðlín
um hans.
„Þegar öndin frá mér flýr.
Furðuströnd á heiða.
Þá um löndin leik ég hýr.
— Laus við böndin neyða“.
Slíkir menn bogna ekki, en
„Bresta í bylnum stóra seinast".
Að leiðarlokum er hann nú
kvaddur af sveitungum og sam
ferðamönnum með innilegri sam
úðarkveðju til eftirlifandi ekkju,
sona, bróður og annarra vensla
manna.
Blessuð sé minning hans.
Bjarni ívarsson.
t
ÞAÐ ER ekki nema rúmt ár
síðan Sigurður heitinn Jóhannes
son gerfíst húsvörður í Gagn-
fræðaskólanum við Vonarstræti.
Kynni okkar ná heldur ekki
yfir lengri tíma. En mér er ó-
hætt að fullyrða, að á þessum
stutta tíma ávann hann sér
traust og virðingu allra þeirra,
sem kynntust honum þar.
Hann var óvenju samvizku-
samur maður og skyldurækinn
svo að af bar. Hann var ljúf-
mannlegur í framkomu og gædd
ur slíkri stillingu, að honum var
sérstaklega lagið að umgangast
unglinga.
Slíkir mannkostamenn eru
vandfundnir.
Sigurður er í dag kvaddur með
söknuði og þakklátum huga af
nemendum, kennurum og öðru
starfsfólki skólans.
Megi minningin um hinn góða
dreng og trúa þjón lifa lengi í
huga þeirra, sem honum kynnt-
ust.
Ég bið algóðan Guð að blessa
syrgjandi ástvini hans með sinni
oilífu huggun og náð.
Ástráður Sigursteindórsson.
Til sölu
Kjöt- og nýlenduvöruverzlun
Verzlunarhæð við Nesveg ásamt, vörulager
og áhöldum.
MÁLFLUXNINGS- OG FASTEIGNASTOFA
Sigurður Keynir Pétursson, hrl.
Agnar Gústafsson, hdl.
Björn Pétursson, fasteignaviðskipti
Austurstræti 14, II — Símar 19478 og 22870.
Allskonar verzluna-
hœkur
f yrirligg jandi.
Eggert Kristjánsson & Co.
Sími 11400.
Gips þilplötur
Utanhúss asbest
Trétex
Harðtex
Rúðugler 2, — 3, — 5, — 6 mm
Mars Trading Company hf.
Klapparstíg 20 — Sími 17373.
17
iMaría Sigurbjarnardóttir
IMinning
I DAG er til moldar borin frá
Fossvogskirkju frú María Sigur-
bjarnardóttir, Guðrúnargötu 4,
hér í Reykjavík.
Hún var fædd á Isafirði 26.
júní 1894. Foreldrar hennar voru:
Sigurbjörn Kristjánsson, skip-
stjóri og kona hans Björg Há-
konardóttir.
26. nóvember 1913 giftist María
Geir Jóni Jónssyni, sem þá var
kennari við barna- og unglinga-
skólann á Isafirði.
Arið 1918 sagði Geir Jón starfi
sínu lausu. Það ár fluttu þau
hjónin búferli sitt til Reykja-
víkur. Skömmu síðar varð Geir
Jón gjaldkeri og bókhaldari Isa-
foldarprentsmiðju, og var það til
dauðadags, árið 1939.
Þau Geir Jón og María áttu
þrjú böm: Elztur var Sigurjón.
Hann dó tveim árum eftir lát
föður síns, er hann var að lesa
undir kandidatspróf í læknadeild
Háskólans, Auði, sem gift er
Hauk Jóhannessyfti loftskeyta-
manni, og Huldu, sem gift er Þor
steini Þorsteinssynj starfsmanni
við rannsóknarstofu Fiskifélags-
ins.
A ævi Maríu skiptust á skin og
skúrir. Hún naut mikillar lífs-
hamingju. En varð einnig að þola
þunga harma.
I heimahúsum naut hún mikils
ástríkis góðra foreldra. Hún vary
gefin úrvalsmanni og eignaðist,
vel gefin og ánægjuleg börn. En1
hún missti mann sinn, þegar líf-
ið virtist lofa mestu meðlæti. Og
skömmu síðar einkason sinn, er
hún hafði bundið miklar fram-
i tíðarvonir við. *
' >
Sjálf var María hugþekk kona,
svo öllum fannst bjart í návist
hennar. Hún var fínleg og létt
í spori, brosti og hafði gaman-
ræður til síðustu stundár.
Föroyingar
Verið hjartaliga vaelkomin á jólaveitslu
fyrir föroyingar friggjadaginn 6. jan. kl.20
í Frelsunarherinum.
Gesta og Sjómannaheimilið.
Sendisveiim óskast
hálfan eða allan daginn.
Almenna byggingafélagið hf.
Borgartúni 7.
2 herb. íbóðarhæð
Efri hæð ásamt geymslurisi til sölu við Karlagötu.
Ibúðin er í mjög góðu ásigkomulagi, hitaveita.
Fallegur trjágarður. Laus strax. Aðeins tvær íbúðir
í húsinu.
STEINN JÓNSSON, hdl.
lögfræðistofa — fasteignasala
Kirkjuhvoli — Símar 19090 — 14951
Iðnnemasamband íslands
hefur flutt skrifstofu sina að Skipholti 19, 3. hæð.
Skrifstofan verður opin fyrst um sinn á mánúdögum
kl. 6,30—7,30 og föstudögum kl. 8—9.
IÐNNEMASAMBAND ÍSLANDS
Skipholti 19 — Sími 14729.
3jo herb. íbúð
Höfum til sölu í fjölbýlishúsi í Vesturbænum 3. herb.
íbúð á. 4. hæð.
MÁLFLUTNINGS - OG FASTEIGNASTOFA
Sigurður Reynir Pétursson, hrl.
Agnar Gústafsson, hdl.
Björn Pétursson, fasteignaviðskipti
Austurstræt 14, II — Símar 19478 og 22870.