Morgunblaðið - 04.02.1961, Blaðsíða 1
16 síður og Lesbók
48. árgangur
28. tbl. — Laugardagur 4. febrúar 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Galvao boóid hæli
sem flóttamanni
Rio de Janeiro, 3. febrúar.
—• (Reuter/NTB) —•
RÍKISÚTVARPIÐ í Rio de
Janeiro tilkynnti í kvöid, að
Henrique Galvao og mönn-
um hans hefði verið boðið
hæli sem pólitískir flótta-
menn í Brasilíu og hefðu
þeir þegið það. Þá hefur ver
ið ákveðið að „Santa Maria“
verði í varðveizlu brasilíska
Bjóhersins, þar til réttarfars-
leg hlið málsins hafi verið
athuguð nánar. Er nú öflug-
ur, vopnaður vörður um
borð í skipinu.
Fyrstu portúgölsku farþegarn-
ir af Santa María komu flugleið-
is til Lissabon í dag. Um fimm
þúsundir manna fögnuðu þeim á
flugvellinum og hylltu þá sem
hetjur. Verulegur hluti hinna
evrópsku farþega mun hinsvegar
fara heimleiðis með systurskipi
,,Santa María“, „Vera Cruz“ sem
nú er komið til Recife.
• Kjánalegt að sigla út
Galvao tjáði fréttamönnum í
dag, að hann hefði leitað hafnar
vegna þess að einn farþeganna
var svo sjúkur, að aðeins mátti
telja 10% líkur til þess að hann
lifði, kæmist hann ekki í sjúkra-
hús. Galvao sagði, að allar get-
fANAR blöktu I hálfa stöngi
í Grindavík í gær, vegna hins
hörmulega sjóslyss er Ingi-
bergur Karlsson sjómaður frá
Karlsskála drukknaði, í
Djúpsundinu þar í fyrradag.
Þetta er annað sjóslysið sem
verður á þessum slóðum, í
hinni þröngu og hættulegu
innsiglingu Grindavíkur, frá
því á árinu 1926. Þá varð ægi-
legur mannskaði þar, er átta
skip fórust með níu mönnum.
Er mörgum mönnum í þessu
athafnasama sjávarplássi,
minnisstæður sá hörmulegi at-
burður. I gærmorgun fannst
lík Ingibergs rekið í Hópsnesi,
svo og brak úr bát hans. Hann
var 43 ára að aldri, og hafði
ekki gengið heill til skógar.
Hafði verið sjdúklingur á Víf-
ilsstöðum. Móðir hans Guðrún
Steinsdóttir er rúmlega sjöt-
ug. Hún á nú fimm syni á lífi
og eina dóttur.
gátur og staðhæfingar um að
hann væri kommúnisti væru al-
rangar og hann hefði heldur ekk-
ert samband við Castro, forsær-
ísráðherra Kúbu og hans menn.
Galvao, lagði sem fyrr áherzlu
á að taka skipsins væri enn að-
eins fyrsti þátturinn í aðgerðum
gegn einræðisstjórnum þeirra
Salazars og Francos á Pyrenea-
skaga. Hann sagði, að kjánalegt
hefði verið af sér að reyna að
Frh. á bls. 15.
1 STOFU þrjú í Keflavík-
urspítala, hittu blaðamenn
Morgunblaðsins um nón-
bil í gær, hressilegan sjó-
mann, sem svo sem sólar-
hring áður hafði háð hina
hörðustu baráttu fyrir lífi
sínu, og hafði hreinlega
verið talinn af, í hinu svip
lega sjóslysi er varð í
Grindavík í fyrradag.
Hann heitir Einar Jónsson
úr Járngerðarstaðahverfi í
Grindavík og var á sundi í
45 mínútur í 6 stiga heitum
sjó og í sjö stiga frosti, áður
en honum var bjargað.
★
Heimsóknartími spítalans
var að hefjast er blaðamenn-
ina bar að garði ásamt frétta
ritara Mbl. í Keflavík, Helga
S. Jónssyni.
Forstöðumaður spitalans,
Guðmundur Ingólfsson, sagði,
er blaðamennirnir spurðust
fyrir um líðan Einars, að
hún væri góð, en hann var
mjög þungt haldinn í fyrra-
kvöld. — Hann er á góðum
batavegi nú og hann vill
fúslega ræða við ykkur.
Þegar við komum inn í
stofu 3, sem er tveggja-
manna stofa, hittum við fyr-
ir kraftalegan mann. Hendur
Einar Jónsson brosir hinn hressasti. Hann hefur lagt hina stóru og kraftalegu hönd ofan á
sængina. (Ljósm. vig.)
björgun úr landi
þykkar og sigggrónar. Hann
virtist talsvert miklu eldri en
hann er í rauninni. Hann er
aðeins 29 ára, en hefur
verið sjómaður frá því á
unglingsárum, á bátum og
togurum.
— Þú gætir farið í annan
róður núna strax, svo hress
virðist þú okkur vera, Ein-
ar?
— Já, ekki þó á trillu.
þetta var þriðji og síðasti
róðurinn minn á henni, en
ég verð í vetur formaður á
Steilunni.
Það verður fyrsta vetrar-
vertíð hans sem formanns á
báti. Hann lauk prófi í Stýri
mannaskólanum árið 1955.
— Þú hlýtur að vera synd-
ur sem selur?
— Ég mun ekki teljast sér
stakur sundmaður, sagði Ein-
ar. — í rauninni lærði ég
ekki að synda fyrr en ég
kom i Stýrimannaskólann, og
ég hef enga sérstaka rækt
lagt við það.
Annað sögðu Grindvíking-
amir okkur, sem við hittum
síðar um daginn. Einar hafði
eitt sinn sótt bát til Hollands
og leikið sér í brimsköflum
úthafsbárunnar á einhverrl
baðströndinni þar, og hann
gaf þeim hollenzku ekki
neitt eftir, sögðu skipsfélagar
hans.
— Það er þá kannski lýs-
ið, sem gefið hefur þér þetta
fádæma þrek?
— Nei. Ég tek aldrei lýsi.
Mér finnst það vont. Ég hef
ekki smakkað lýsi frá því ég
var í barnaskóla norður á
Siglufirði og því var þá hálf-
partinn neytt ofan í mig.
★
— Þú varst niðri í lúkar,
Framh. á bls. 15.
Verzlunarbankinn stofnaður
S T J Ó R N Verzlunarsparisjóðsins hefur boðað til stofnfundar
Verzlunarbanka Islands hf. í dag. Fundurinn hefst kl. 14:30 og
verður hann haldinn í Tjarnarbíói.
ár 10 millj. kr. hlutafé
Verður þar endanlega geng-
ið frá stofnun Verzlunarbank-
ans, en Alþingi samþykkti á sl.
vori lög, er heimila ábyrgðar-
mönnum Verzlunarsparisjóðsins
að breyta sparisjóðnum í banka.
Á fundi ábyrgðarmanna spari-
sjóðsins 14. júní sl. var einróma
samþykkt að neyta heimildar
iaganna og var þá hafizt handa
um söfnun hlutafjár. Hlutafé
bankans verður rúmar 10 millj.
króna og er hlutafjársöfnun
lokið.
Á fundinum verða bankanum
settar samþykktir og reglugerð
bankans verður þar lögð fram.
Hefur stjórn sparisjóðsins ann-
azt undirbúning þennan.
Þá verður kosið í bankaráð
I Verzlunarbankans og tveir end-
urskoðendur.
Verzlunarsparisjóðurinn
fimm ára
í dag eru liðin 5 ár frá því
Verzlunarsparisjóðurinn var
stofnaður og er hann nú stærsti
sparisjóður landsins. Hefur
rekstur hans gengið með mikl-
um ágætum.
Stjórn Verzlunarsparisjóðsins
hafa skipað frá upphafi Egill
Guttormsson, stórkaupmaður,
Pétur Sæmundsen, viðskipta-
fræðingur, og Þorvaldur Guð-
mundsson, forstjóri, en spari-
sjóðsstjóri hefur verið Höskuld-
ur Ólafsson, lögfræðingur.
Ræða fiskveiðar
OSLÓ, 3. febrúar (NTB). —
Viðræður eru nú hafnar milli
Norðmanna og Svía um fisk-
veiðar, sökum væntanlegrar út-
færsíu norsku fiskveiðilögsög-
unnar. Hófust fundir í Osló I
dag. Formaður norsku nefndar-
innar er Bredo Stabell en hinn-
ar sænsku Sture Petren.