Morgunblaðið - 05.02.1961, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.02.1961, Blaðsíða 24
Rœtt um öl á Alþingi. Sjá bls. 10. Reykjavíkurbréf er á bls. 13. 29. tbl. — Sunnudagur 5. febrúar 1961 Treg síldveiði — og tregur afli líiiubáta I FYRRINÓJT var síldveiðin fremur treg. Jón Einarsson skip- stjóri á Fanneyju sagði í samtali við blaðið laust eftir hádegið í gær að 10 bátar hefðu fengið síld í fyrrinótt um 20 mílur suð- nr af Selvogi. Var aflinn frá 150 tunnum upp í 500 tunnur, hjá sumum eftir tvö köst. Síldin var dreifð og stóð djúpt. Veður var enn gott í gær en spáð versnandi. Margir bátar voru á miðunum. AKRANESI,*4. febr. Aðeins þrír bátar komu hingað með síld í dag. Það voru Höfrungur II. með 500 tunnur, Böðvar með 150 tunn ur og Skipaskagi (í reknet) 80 tunnur. Blíðuveður var á miðun um — Oddur. HÖFN, Hornafirði, 4. febr. — Hornafjarðarbátar fóru aðeins 30 sjóferðir í janúarmánuði. Kom þar hvorttveggja til verkföll og ógæftir. Afli 8 bata í þessum 30 sjóferðum var 216,5 lestir. Mestan afla hafði Sigurfari, 40,7 lestir í 6 sjóferðum. í fyrra fóru Hornafjarðarbátar Nýtt skip AKRANESI, 4. febr. Ingimund- ur Ingimundarson, einn af skip stjórumxm á bátum Haralds Böðvarssonar & Co. flaug kl. 8 í morgun til Noregs. Erindi hans er að athuga 190 tonna stálbát, sem þar er í smíðum. —Oddur. Sólarkaffi EINS og að undanförnu halda Bíldælingar og Arnfirðingar í Reykjavík sinn árlega sólarkaffi fagnað og að þessu sinni í Sjálf- stæðishúsinu í kvöld kl. 8,30. Lít- um liðna tíð, fögnum sól og syngj- um eins og í gamla daga, sólar- ljóð Jens Hermannssonar, Sólinni fagnað: Komdu sæl að sunnan sól í dalinn minn, Öllum flytur yndi, ástarkossinn þinn. Allt sem andann dregur, á þig fyrir vin. Vertu eins og áður alltaf velkomin. Þegar Jens Hermannsson var kennari var gefið frí í skólanum og börnin gengu upp í hlíðina fyr ir ofan þorpið í sólargeislann og fögnuðu sólinni með söng. Við góðn helisa) í GÆR spurðist blaðið fyrir um líðan Bergþórs Guðmunds sonar og Einars Jónssonar, sem björguðust af trillubátn- um, sem fórst í Grindavík s.l. fimmtudag. Bergþór, sem er Akureyring ur, var við góða heilsu í gær og var farinn að klæðast. Hann heldur til hjá Hjalta Magnússyni á Sæbóli. Hafði Bergþór verið ráðinn á bát- inn þessa vetrarvertíð og hafði farið nokkra róðra er slysið varð. Einar Jónsson liggur enn á sjúkrahúsinu í Keflavík, en líð an hans var sögð góð í gær og á hann að útskriíast þaðan á morgun. 100 sjóferðir í janúar og öfluðu 773,5 lestir. Meðalaflinn í sjóferð er öllu minni en í fyrra. Afli hefir glæðzt nú seinustu daga, frá 7,5 lest til 12 lestir í róðri af góðum fiski. Röskur helm ingur aflans er þorskur. Eru það miklu betri hlutföll en undanfar- in ár. Nýlega fóru 3 menn í eftirleit í Kollumúla. Fundu þeir 3 kind- ur, sáu nokkuð af hreindýrum og talsvert af rjúpum. — Gunnar. Það hefir verið mikið um að vera í verstöðvunum á Suðurnesjum undanfarna daga. Unnið hefir verið af kappi sólarhringinn út við síldarsöltun. Var engu lík- ara en að komið væri á plan á Siglufirði eða Raufarhöfn þegar komið var í verstöðv- arnar. Hér sést ein síldarstúlkan við söltun í Keflavik. Myndina tók vig í fyrra- kvöld. Rdðrarbanni aflétt í Eyjum Á FUNDI stjórnar og trúnaðarmannaráðs Út- vegsbændafélags Vest- mannaeyja, sem hald- inn var kl. 3 í gær, var einróma samþykkt að létta af róðrarbanninu í Ekkert nýtt undir sólinni BOLUNGAVÍK, 3. febr. — í Mbl. var fyrir skömmu mynd af lönd- unarháfum, gömlum og nýjum, og sagt að nú væri farið að nota alveg nýja gerð af slíkum háfum, sem hefðu mikla kosti fram yfir þá gömlu. En ekkert er nýtt und- ir sólinni. Hér í Bolungavík hafa slíkir háfar verið framleiddir í 10 ár, og verið notaðir af Bolvík- ingum, Hnífsdælingum, ísfirðing um o. fl. Eftir myndinni að dæma teljum við jafnvel að okkar séu heldur betri. Það er Vélsmiðja Bolvíkinga sem framleiðir þessa háfa. Varðandi slys það sem varð á Bolungavíkurvegi fyrir skömmu, þegar bíll vallt niður af veginum, er rétt að geta þess að fallið hefur verið mælt og reyndist vera 48 m., en hvorki 30 né 70—80, eins og fram kom í fréttum. —• Sól á ný NESKAUPSTAÐ, 4. febr. — f gær munu flestir bæjarbúar hafa litið sólina aftur eftir langan tíma, eða frá því í fyrrahaust. Ágætt veður er hér ftú og allir bátar á sjó. — Sv. L. Vestmannaeyjum. — Stjórnin leit svo á að nokkrar lagfæringar hefðu fengizt á fiskverði og flokkun fisksins svo að ekki væri ástæða til að halda banninu áfram. Enn stendur yfir verk fall Verkalýðsfél. Vest- mannaeyja og geta róðr- ar því ekki hafizt af þeim sökum. Skólahús reist á Leirá Akranesi, 3. febrúar. SKOLAMAL hreppanna utan Skarðsheiðar, sem eru fjórir, eru að komast á rekspöl. Hugir manna eru samstilltir um að reisa heimavistarskóla skammt frá Leirá, gamla höfuðbólinu, og leiða þangað heitt vatn frá upp- sprettunum við Leirárlaug. Smíði hússins hefst í vor. Bygginga- nefnd er tekin til starfa. Eru í henni oddvitar hreppanna, og for maður er síra Sigurjón Guðjóns- son, prófastur í Saurbæ. A fjár- lögum þessa þings hefur verið veitt rúmlega hálf milljón króna til byggingarinnar. Þarna við Leirárlaug streymir fram miklu meira en næg hitaorka handa skólanum. A svæðinu eru 80 börn á skólaskyldualdri, og þar starfa fjórir farkennarar. Utan Skarðsheiðar eru nú þrjú félagsheimili: Miðgarður, Fanna- hlíð og Hlaðir, en raunverulega er hið fjórða í sölum sláturhúss- ins við Laxá. — Oddur. Nýir trak- torar en enginn til oð aka þeim BERLÍN, 4. febr. — Samyrkjubú í Jessenits-héraðinu í Austur- Þýzkalandi hafa fengið 66 nýja traktora á þessu ári — en þar finnst enginn sem kann að aka þeim. Reinholt Ianz, yfirmaður vél- stöðvar Jessenitz lét svo um mælt við fréttamenn héraðsblaðsins Schweriner Volkszeitung, að sam yrkjubúin þörfnuðust að minnsta kosti 115 manna til að aka þessum nauðsynlegu tækjum. Hafa nú verið gerðar ráðstafanir til að þjálfa bændur í meðferð traktora en þeir hafa einungis notað hesta áður. Tveim bílum stolið I FYRRINOTT var tveimur bif- reiðum stolið. Onnur hvarf frá Asvallagötu 57. Var það Chevro- letbifreið rauð og ljós að lit af árgerðinni 1947. Þá hvarf einnig bifreiðm £-364, dökkblá Dodgebifreið. Loft lævi blandau. í Kivu Leopoldville, 4. febrúar, —« (Reuter — NTB). ÚTVARPIÐ í Ueopoldville til, kynnti í gær, að nú yrði aftur tekið upp stjórnmálasamband milli Belgíu og Kongó, en því var slitið í ágúst sl. Útvarpið sagðl að Bomboko, utanríkisráðherra, mundi gefa opinberlega tilkynn- ihgu um málið alveg á næstunni, Síðustu fregnir frá Kivu hér- aði í Kongó herma, að þar sé ekkii barizt í dag, en loft lævi blandið. En undanfarna daga hafa Nigeríu menn úr liði Sameinuðu Þjóð, anna átt í höggi við Lumumba- menn nærri bænum Kindu í Kivu fylki. Bardagar upphófust á þann veg, að eitthvað kastaðist í kekki mi'Ui Nígeríuhermanna og Lumumbamanna, er sátu saman að sumbli í mesta bróðerni í her- stöð Nígeríumanna. Fyrst létu þeir hendur skipta, en er það ekki dugði til þess að útkljá deilu málin gripu Lumumbamenn til vopna. Þeir munu hafa verið um 1500 talsins í næsta nágrenni og umkringdu stöð Nígeríumann, anna, er aðeins voru 200. Ekki er ljóst hversu margir hafi fallið í bardögunum, sennilega 5—6 Lumumba-menn og einn liðsfor- ingi úr liði Nígeríumanna. Skipun frá Stanleyville Lumumbamenn hafa fengið fyrirskipun frá Stanleyville um að láta af bardögum, en ekki er ljóst hvort því boði verður hlýtt til lengdar. Nígeríumenn hafa tilkynnt að þeir hafi hvorki nægi leg vopn né vistir til þess að standa gegn Lumumbamönnum, hefji þeir sókn á ný. Flugvél með tveim norskum flugmönnum innanborðs var I gærkveldi skotin niður yfir Kivu héraði, en hvorugan mannanna sakaði. Bœndafundur um raf- magns- og iðnaðarmál EGILSSTOÐUM, 4. febrúar. — í gær var haldinn í barnaskól- anum 1 Egilsstaðakauptúni bændafundur. Til umræðu voru rafmagnsmál og iðnaðarmál, Framsögu um rafmagnsmál hafði Bjöm Guttormsson bóndi á Ketilsstöðum í Hjaltastaða- hreppi. Tóku margir til máls og er að vonum mikill áhugi hjá bænd- um að komast í samband við rafmagn. Þó fannst mér þeir ekki marka sér ákveðna stefnu í þeim málum og á ég þar við að umræður snerust of mikið um tæknihlið málsins. Framsögu um iðnaðarmál hafði Einar bóndi Björnsson í Mýnesi og talaði hann fyrir því að komið yrði upp iðnaði þar sem unnar yrðu landbúnaðarafurðir svo sem kjöt, gærur og ull. Þórður Benediktsson skóla- stjóri flutti erindi um þilplötu- verksmiðju, sem þegar er farið að ræða um að stofnsetja hér á landi. Kæmi þá mjög til álita að hér á Austurlandi væri hrá- efni til slíks iðnaðar. Var góður rómur gerður að þessu máli. Jónas Pétursson alþingismað- ur var mættur á fundinum og tók þátt í umræðum. Margir tóku til máls og voru menn yfir- leitt þeirra skoðunar að iðnaður risi upp hér í Egilsstaðakaup, túni. Fundurinn fór vel fram og voru umræður skemmtilegar með köflum. Fundarstjóri var Þorsteinn Sigfússon bóndi 1 Sandbrekku og fundarritari Stef án Sigurðsson Ártúni. Fundina sátu um 50 manns. — Ari. NÆSTA handavinnukvöld Sjálf- stæðiskvennafélagsins Eddu I Kópavogi verður þriðjudags- kvöldið 7. þ.m. að Melgerði 1 Kópavogi. ; Kennari Guðrún Júlíusdóttir,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.