Morgunblaðið - 12.02.1961, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.02.1961, Blaðsíða 1
24 siður og LesboR 48. árgangur 35. tbl. — SunnudagUi febrúar 1961 Prentsmiðja Morgunblaðsins Fjárdráttur í Kommúnista- flokknum r Framkv.stjóranum vikið frá Stjórn Landsmálafélagsins Varðar. Talið frá vinstri: Sitjandi: Sverrir Jónsson, ritari, Hösk- uldur Ólafsson, formaður, Sveinn Guðmundsson, varaformaður, Sveinn Björnsson, gjaldkeri Standandi: Baldur Jónsson, Þórður Kristjánsson, Sverrir Júlíusson, Jón Jónsson, Einar Guðmundsson, skrifstofustjóri Varðar, Þorkell Sigurðsson. — Á myndina vantar Eyjólf Kon- ráð Jónsson. r •• Oflugasta stjórnmálafélag landsins Landsmál afélagið Vörður 35 ára stofnað 1926, mjög áhrifaríkt í stjórnmálabaráttunni. Óhætt er að segja, að engin samtök hafa eflt Sjálfstæðisflokkinn jafnmik- ið og Vörður, en félagið hefur starfað í flokknum og verið for- ystufélag hans allt frá stofnun hans árið 1929. Nú er félagð lang stærsta og öflugasta stjórnmála- félag landsins. í kvöld kl. 8,30 hefst veglegur afmælisfagnaður í Sjálfstæðishús inu. Þar munu forystumenn Sjálf- stæðisflokksins flytja ávörp og ræður og ennfremur verður þar flutt skemmtiatriði. Er dagskráin hin vandaðasta óg er ekki að efa að sjálfstæðisfólk muni fjöl- menna á þennan afmælisfagnað Varðarfélagsins. Sjá grein um félagið á bls. 10. ^ Málverk finnst ^ af norskri forn- drottningu Ellisif. UNDANFARNAR vikur hef- ur legið á grunur um, að ekki væri allt með felldu í fjármálum Sósíalistaflokks- ins, sameiningarflokks al- þýðu, enda er nú komið á daginn að þar hefur verið mikil fjármálaóreiða, og nú Leopoldville, 11. febr. (Reuter) ÚTVARPSSTÖÐ Tsjombes í Katanga tilkynnti í dag, að það hefði komið í ljós, að bifreið sú, sem sást úr flug- vél um 200 mílur norður af Elisabethville, hefði verið bifreið sú, sem Lumumba og fylgismenn hans notuðu til undankomu úr fangavistinni. í morgun komu hermenn úr liði Tsjombes að bifreið- inni. Hún lá við veginn á hvolfi, en hvorki sást tangur né tetur af Lumubma eða fylgismönnum hans. Herstjórn SÞ hefur ákveðið að framkvæma allsherjarrannsókn á þessu Lumumba-máli. Munu lögreglumenn liðsins m. a. fara til býlis þess, þar sem sagt er að Lumumba hafi verið geymdur og rannsaka allar aðstæður þar. Þá verður stjórn Tsjombes krafin ýtarlegra skýrslna um málið og þess óskað að fangaverðir Lum- umba verði sendir til yfir- heyrslu. Herstjórnin segir, að ástandið í norður og austurhluta Kongó, rouni verða mjög alvarlegt, ef Lumumba hefur verið drepinn. Er bent á það að fylgismenn hins horfna forsætisráðhera í Stanley ville hafa ítrekað lýst því yfir, að 300 hvítir menn í héraðinu skuli miskunnarlaust verða drepnir, ef Lumumba er tekin af lífi. síðast hefur komizt upp um fjárdrátt. Við athugun hefur komið í ljós að fjárdráttur þessi nemur 400 þús. krón- um. — # Guðmundur tekur við 1 sambandi við rannsóknir á máli þessu hefir Inga R. Helga- syni verið vikið úr starfi sem framkvæmdastjóra flokksins og Guðmundur Vigfússon tekið við. Eggert Þorbjarnarson hefir ver- ið fenginn til að athuga og end- urskoða fjármálaóreiður flokks- íns. # Útvtga peninga Að lokum má geta þess, að Mbl. I-efir aflað sér upplýsinga um að Ægi Olafssyni, sem rekur heildverzlun kommúnista, Marz Trading Company, bafi ver- ið falið að útvega fé það, sem á vantar í sjóði flokksins vegna óreiðunnar. LANDSMÁLAFÉLAGH) Vörður verður 35 ára á morgun, 13. febr. Félagið varð strax, þegar það var NORSKUR listfræðingur, Knut Berg, hefur nýlega gert merkilega uppgötvun. Hann hefur fundið mjög góða mynd af norskri forndrottningu, Ellisif, drottningu Haralds Sig- urðarsonar harðráða, sem uppi var á 11. öld. Um Ellisif, dóttur Jariz- leifs konungs í Hólmgarði, er mikið talað í Heims- kringlu Snorra Sturluson- ar, þ. e. í sögu Haralds harðráða. Myndin af Ellisif er fresko- mynd í Soffíukirkjunni í Kænugarði (Kiev). Er hún þar í hótpi fjögurra dætra Jarisleifs konungs. A öðrum stað í kirkjunni er mynd af Jarisleif konungi og drottn- ingu hans. Myndir þessar voru gerðar meðan Jarisleifur var enn á lífi og myndirnar sýna mismunandi svip þessa kon- ungafólks svo greinilega, að varla getur leikið vafi á því, að myndirnar séu sviplíkar þersónunum. Þessar myndir hafa lengi verið þekktar í Rússlandi, en norrænir sagnfræðingar hafa ekki kynnzt þeim fyrr en nú, að Knut Berg listfræðingur hefur farið að leggja sér- staka stund á rannsóknir á grísk-rómverskri málaralist. I Rússlandi telst það ekki til stórtíðinda, þótt til séu greini legar andlits myndir af höfð- ingjum, sem uppi voru fyrir 1000 árum. Hinsvegar eru það meiri tíðindi á Norðurlöndum þar sem engar myndir eru yfir Framh. á bls. 23 « l

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.