Morgunblaðið - 14.02.1961, Blaðsíða 1
24 síður
Lumumba myríui
Kafangastjórn segir íbua þorps nokburs
hafa drepið hann er hann fúr þar um á
fióffa. — Ymsir eru vanfrúaðir á það
Elisabethville og New York, i
13. febrúar (NTB/AFB/Reuter |
1» A Ð var tilkynnt opin-
berlega í dag, að Patrice
Lumumba, fyrsti forsætisráð
herra Kongó, sem verið
hafði í haldi undanfarna
mánuði, hefði verið drepinn
í gær af íbúum þorps nokk-
urs í Suður-Katanga. Fyrir
þrem dögum skýrði Katanga-
stjórn svo frá, að Lumumba
og tveir stuðningsmenn hans,
hefðu flúið úr fangelsi því,
sem þeir höfðu setið í um
skeið þar í fylkinu. — Þrá-
látur orðrómur var hins
vegar á kreiki um það, að
mennirnir hefðu verið myrt-
ir, en flóttasagan væri upp-
spuni. Og tilkynning Kat-
angastjórnar í dag hefur
engan veginn sannfært alla
um, að Lumumba og félög-
um hans hafi ekki þegar ver
ið komið fyrir kattarnef fyr-
ir nokkrum dögum.
★
Lumnmba var 35 ára gamall.
Hann var aðalforingi Þjóðernis-
sinnaflokksins í Kongó og varð
forsætisráðherra, er landið hlaut
sjálfstæði sl. sumar. — Hann
var rekinn frá völdum í sept.
sl. og hafði setið í fangelsi síð-
an í byrjun desember.
Tí'or Thors
„Afbrotamenn í augiun
heimsins“
Það var innanríkisráðherra
Katanga, Munongo, sem skýrði
frá drápi Lumúmba í dag.
Sagði hann, að sendiboði frá
umræddu þorpi hefði komið til
Elisabethville í gærkvöldi og
sagt tíðindin, að Lumumba og
tveir félagar hans hefðu verið
drepnir um daginn, er þeir
fóru um þorpið á flótta sínum.
Kvað ráðherrann þrjá úr ríkis-
stjóminni þegar hafa farið á
vettvang ásamt læknum og
Moskvu, 1S }an. (NTB/Reuter)
RÚSSNESKIR vísindamenn
hafa enn einu sinni komið á
óvart og vakið heimsathygli.
— Mikið rússneskt geimskip
lllar horfur
í Katanga
RAJESHWAR Dayal, fulltrúi
Hammarskjölds í Kongó, hef-
ir sent framkvæmdastjóranum
skýrslu um ástandið þar. Lýs-
ir hann einkum ástandinu í
Katanga sem mjög'Tlggvæn-
legu, þar sem stjórnin þar
leggi nú alla áherzlu á að
hervæðast sem hraðast. Sækja
herdeildir hennar nú norður
á bóginn, og segir Dayal, að
þær hafi rofið samþykkt um
hlutlaust svæði í Norður-Kat-
anga. — í stjórnartilkynningu
frá Elisabethville í gær sagði,
að tekinn hefði verið bærinn
Bukama, og að þar hefðu ver-
ið handteknir um 300 vopnaðir
„uppreisnarmenn“ af Baluba-
kynþætti.
Talsmaður SÞ í LeopoldviIIe
sagði í gærkvöldi, að Dayal
hefði skorað á Tsjombe, for-
sætisráðherra Katanga, að
hætta öllum hernaðaraðgerð-
um í norðurhluta fylkisins og
Játa af árásum á Balubamenn.
Sagði Dayal, að yfirvöld Kat-
anga bæru ábyrgðina, ef til
átaka kæmi við herlið SÞ í
fylkinu.
hefðu þeir þekkt þar lík Lum-
umba, Mpolo, fyrrverandi æsku-
lýðsmálaráðherra í stjórn hans,
og Okito, fyrrv. varaforseta öld-
ungadeildar Kongóþings. Sýndi
ráðherrann fréttamönnum dán-
arvottorð þessara þriggja
manna til sönnunar máli sínu.
Hann kvað lík þeirra hafa verið
greftruð þegar í stað, en neitaði
að segja hvar, og sömuleiðis
neitaði hann að skýra frá nafni
þorpsins, þar sem þeir hefðu
verið drepnir. Kvað hann það
Framh. á bls. 23
(643 kg. að þyngd) þýtur nú
frá jörðu og stefnir til ná-
grannaplánetunnar Venusar,
með rúmlega 4 km hraða á
sekúndu. — Sögðu sovézkir
vísindamenn í kvöld, að
geimskipið myndi ná til Ven-
usar einhvern tíma milli 15.
og 31. maí nk. — og myndi
þá annaðhvort hitta plánet-
una eða fara skammt frá
henni — og þá taka að ganga
sem ný gervipláneta á braut
um sólu. Hvort heldur sem
yrði, mundu fást ómetanleg-
ar upplýsingar um þessa
„dularfullu“ reikistjörnu, sem
hylur sig í þéttu skýjalagi —
m. a. fengist sennilega úr því
skorið, hvort þessi nágranni
jarðar okkar fóstri einhvers
konar líf. — Hið nýja geim-
far lagði upp í langferð sína
í gær — frá gervitungli, sem
skotið hafði verið á loft sl.
föstudag og gengið á braut
um jörðu síðan.
Lumumba á velmektardögum
sínum
Blöð og fréttastofnanir á
Vesturlöndum hafa mjög
rætt þetta nýjasta „geimaf-
rek“ Rússa, og vestrænir vís-
indamenn hafa sent rússnesk
um starfsbræðrum sínum
heillaóskir. — Telja menn
það fádæma nákvæmni, ef
tekst að hitta Venus með
geimskipinu — álíka og það
að hitta flugu á 1.600 km
skotfæri!
■Ar Að „rjúfa skýjaþykknið"
Einn af fremstu geimferða-
sérfræðingum Sovétstjórnarinn-
ar, Ari Sternfeld, gaf í dag
nokkrar upplýsingar um braut
geimskipsins. Hann sagði að það
mundi verða milli 92 og 198
daga á leiðinni til Venusar. Ef
,,skipið“ hitti ekki plánetuna,
muni það fara á löngum spor-
baug umhverfis sólu og verði
umferðartíminn þá nokkru
skemmri en hið jarðneska ár.
Annar vísindamaður, prófessor
Alexander Mikhailov, sagði, að
enda þótt geimskipið gerði
ekki annað en fara fram hjá
Frh. á bls. 23
ITfc* > • > «1
Ujup gja mil
og Kfnverja?
NÝjum fregnum um það svarað með
Rússneskt geim-
skip til Venusar
Thor Thors í
stuttri heimsóhn
vináttuyfirlýsingu í Peking
THOR THORS sendiherra Is-
lands í Washington og fastafull-
trúi Islendinga hjá Sameinuðu
þjóðunum kom hingað heim sl.
mánudagsmorgun með Loftleiða-
fiugvél. Kemur hann til viðræðna
við ríkisstjórnina, m. a. um fram-
hald allsherjarþingsins, sem held
ur áfram störfum í næsta mán-
uði. Var því eins og kunnugt er
frestað rétt fyrir jólin.
Thor Thors mun því aðeins
hafa hér örskamma viðstöðu að
þessu sinni. Fer hann sennilega
vestur aftur n.k. laugardag.
Á SUNNUDAGINN birtu
stórblöðin Observer í Lund-
únum og hið bandaríska New
York Times ný skjöl um ó-
samkomulag það, sem talið
er, að undanfarið hafi ríkt
með Sovétríkjunum og hinu
kommúníska Kína. Sam-
kvæmt skjölum þessum, sem
sögð voru fengin frá einu af
leppríkjum Rússa, hefur ó-
samlyndi þessara tveggja
höfuðríkja kommúnismans
verið miklu meira og alvar-
Kirkjan
berst
„«pp á líf og dauða44
BERLÍN, 13. febr. (Reuter). I
Prestastefna þýzku mótmæl-
endakirkjunnar hófst í Vestur
Berlín í dag. — f gær gerðist
sá atburður, að austur-þýzk
lögregla hindraði 6 v-þýzka
biskupa og um 30 klerka í að
komast yfir til Austur-Berlín-
ar til þess að hlýða þar messu,
er skyldi vera e. k. inngangur
prestastefnunnar.
★
Otto Dibelius, yfirmaður
mótmælendakirkjunnar í öllu
Þýzkalandi, mótmælti þessum
aðförum harðlega í dag við
upphaf prestastefnunnar — og
lýsti því yfir, að kirkjan berð
ist „upp á líf og dauða“ gegn
öllum tilraunum kommúnista
til að þröngva upp á hana póli t
tískum skilyrðum og afskipt- 7
um. )
★ /
Forsvarsmenn Vesturveld J
anna í Berlín sendu í dag hin
um rússneska yfirmanni þar
mótmæli vegna atburðarins,
sem gerðist í gær við merkja
línuna milli borgarhlutanna.
Meiri bjór
LONDON, 13. febr. (Reuter). —
Brezkar ölgerðir brugguðu meira
af bjór á sl. ári en nokkru sinni
síðan 1948, að því er samtök öl-
gerðarmanna upplýstu hér í dag.
Árið 1960 voru framleiddar
26,5 milljónir tunna af bjór í
Bretlandi, og er það um einni
milljón tunna meira en árið áð-
ur. Talsmaður bruggaranna sagði,
að aukningin kæmi m.a. til af því
að bjór væri nú hlutfallslega ódýr
ari en oftast áður, og einnig
mundi það gera sitt, að miklar
endurbætur hefðu víða verið gerð
ar á bjórstofum í Englandi sl. ár,
þannig að þær væru nú ánægju-
legri samkomustaðir en áður.
Mikil aðsókn
YFIR 2000 manns skoðuðu yfir
litssýninguna á verkum Gunn-
laugs Blöndal í Listasafni ríkisins
fyrstu tvo dagana, sem hún var
opin.
Rússa
legra en menn höfðu hingað
til talið. — Þar segir nokk-
uð frá orðaskiptum Krúsjeffs
og kínverskra leiðtoga á
kommúnistaráðstefnunum í
Rúmeníu og Moskvu á sl. ári
— m. a. að Kínverjar hafi
sakað Krúsjeff um alvarleg
mistök í sambandi við upp-
reisnirnar í Póllandi og Ung-
verjalandi árið 1956, vegna
þess að hann hefði á þeira
tíma hugsað mest um það að
reyna að koma sér í mjúkinn
Framh. á b’s 8
m