Morgunblaðið - 14.05.1961, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.05.1961, Blaðsíða 11
Sunnudagur 14. mal 1981 MORGUNBLAÐIÐ 11 Mikil atvinna Fréttabréf frá ísafirði ísafirði, 29. apríl 1961. ' ' Veðurfar og samgöngur ’ Hinn nýliðni vetur var yfir- leitt mildur og snjóléttur. Um páskaleytið snjóaði nokkuð, en aldrei tepptust götur í bænum af völdum snjóa. Til fjalla snjó- áði allmikið einkum um páskana, og var sá snjór einkar kærkom- inn skiðaunnendum, því að hér Var, svo sem kunnugt er, háð akíðalandsmótið um það leyti. S'iðusfu syningar á Kardimammu- bænum t DAG verður Kardemommu bærinn sýndur í næstsíðasta, sinn en síðasta sýning leiks- ins verður á annan í hvíta- sunnu. Höfundur leiksins, Thorbjörn Egner, kemur til landsins á hvítasunnudag og verður viðstaddur á síðustu sýningu leiksins. — Myndin er af Soffíu frænku. I Sumardagurinn fyrsti heilsaði miður blíðlega. Þann dag var kafaldsfjúk af norðaustri. En fáum dögum síðar gerði ein- muna veðurblíðu og að undan- förnu hefir verið logn og sólar hefir notið flesta daga, snjóa hefir óðum tekið upp og er nú snjólaust í byggð, en heiðar eru ófærar og ísafjörður enn inni- króaður um samgöngur á landi. Er þess að vænta að hafist verði handa hið fyrsta við að > ryðja snjó af fjallvegum svo að byggða lögin hér komist í samband við aðalakvegakerfi landsins. Flugsamgöngur hafa eigi verið eins góðar sl. vetur og undan- farin ár. Ekki þarf mikið að vera að veðri svo að ófært verði að fljúga á hinn nýja flugvöll, sem tekinn var í notkun á síðasta hausti. Fyrir fáeinum vikum var síð- asta Katalínaflugvélin tekin úr notkun, en hún hefir mörg und- anfarin ár verið aðaltengiliður- inn milli ísafjarðar og Reykja- víkur. í vetur flaug hún hingað stundum jafnhliða landflugvél- um Flugfélags íslands. Er mikil eftirsjá að þessari ágætu flugvél, er hún nú hverfur af sjónarsvið- inu. Atvinna Atvinna hefir verið mikil hér. 9 stórir bátar eru gerðir héðan út auk rækjufoáta. Afli hefir ver- ið fremur tregur hjá stærri bát- unum og gæftir miður góðar þar til nú síðustu vikur. Þrjú hrað- frystihús eru starfrækt hér og þrjár rækjuverksmiðjur. Senn líður að vertíðarlokum. Tveir tog arar hafa verið gerðir út héðan, ísborg og Sólborg. ísborgu var lagt fyrir nokkru vegna afla- brests, en Sólborgu er enn haldið úti, en togaraútgerðin hér á við erfiðleika að stríða nú svo sem annars staðar hjá okkur íslend- ingum. Nýjar húsbyggingar verða að líkindum fáar í sumar, en unnið * Sinfóníuhljómsveit Islands Tónleikar þriðjudaginn 16. xnaí 1961 kl. 21.00 í Þjóð- leikhúsinu. Stjórnandi: BOHDAN WODICZKO Einleikari: Pólski píanóslillingurinn TADEUS ZMUDZINSKI Chopin: Píanókonsert Nr. 2 M. de Falla: Nætur í görðum Spánar Aðgöngumiðar í Þjóðleikhúsinu Mœðrablám í dag gefa allir móður sinni blóm. Blómaverzlanir verða opnar í dag til kl. 3 Félag blómaverzlana Iðna5arhusnæði 600 ferm. iðnaðarhúsnæði til sölu. Húsnæðið er einangrað og með hitalögn. Lysthafendur leggi nöfn sín og heimilisfang í lokuðu umslagi á afgr. Mbl. merkt: „Iðnaðarhúsnæði — 1289“. TIL SÖLU Chevrolet 1958 fjögurra dyra, 6 cylindra, sjálfskipt, keyrð 37.500 km, ætíð í einkaeign. — Tilboð merkt: „Bel Air — 1248“, sendist afgr. Mbl. fyrir 19. mai. við Hau íbúðarhús, sem þegar hefílF'verið byrjað á. Ákveðið hefir verið að leggja nýja vatnsleiðslu til bæjarins, en á undanförnum árum hefir oft verið vatnsskortur hér. Nýja vatnsleiðslan mun skila til bæj- arins þrisvar sinnum meira vatns magni en bærinn hefir nú. Ýmislegt H. 13. apríl sl. hélt Sunnukór- inn kirkjutónleika í ísafjarðar- kirkju. Voru tónleikarnir haldn- ir í tilefni þess, að h. 23. júní nk. á Kirkjukórasamband íslands 10 ára afmæli. Stjórnandi tónleik- anna var Jónas Tómasson tón- skáld, en hann átti áttræðisaf- mæli þennan dag. Flutt voru m. a. á efnisskránni lög eftir þrjú vestfirsk tónskáld: Jónas Tómasson, sr. Jóhannes Pábna- son,Stað í Súgandafirði og Krist in Guðlaugsson frá Núpi. Sr. Sigurður KristjánssOn flutti ávarp og minntist Kirkjukóra- sambands íslands. Einnig flutti hann Jónasi Tómassyni árnaðar- óskir og þakkir fyrir mikil störf í þágu tónlistarlífs ísafjarðar á liðnum áratugum. Hylltu kirkju- gestir Jónas með því að rísa úr sætum. Hljómleikarnir voru hin- ir ánægjulegustu og mjög vel sóttir. Iðnskóla ísafjarðar var slitið 15. apríl Og hafði starfað frá því í byrjun janúar. 39 iðnnemar stunduðu nám í skólanum Og skiptust þeir milli 11 iðngreina. Brautskráðir voru 24 nemendur. Hæstu einkunn á burtfararprófi hlaut Guðjón Eiríksson, nemandi í bifvélavirkjun, 8,95. — G. K. Létta og þægilega • Stillanleglr og sjálfbrýnandi hnifar. • Leikur í kúlu- legum. Fæst víða í verzlunum. Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 — Sími 35200. VINNA International Voluntary Service. óskar eftir umsóknum, frá ungu fólki, um vinnu í alþjóða vinnubúðum við byggingu á ýms um mannúðarstofnunum í Vestur Evrópu. Sérstaklega óskað eftir íslend ingum í fyrstu vinnubúðirnar á íslandi á tímabilinu 28. júní — 23. ágúst. Lágmarkstími 2 vikur. Skrifið til: I. V. S., 72 Okley Square, London, N. W. L. England. Stúlka óskast á heimili í minnst 6 mánuði, til 4ra manna fjöi- skyldu. Nýtízku hús, hentugar ferðir til miðborgar London. — Einkaherb. og ágæt skilyrði. Vin samlegast skrifið upplýsingar á ensku og mynd æskileg. Mrs. M. Gould, 58, Sudbury Court Road, HARROW Middlesex, England. Tilkynning frá þekktri heimilisaðstoðarskrifstofu Vel borguð atvinna er fáanleg í London nú þegar. P. & L. Agency, Room 500 1-2 Hannover Street London, W1 * iF »1 K- KLUBBUR/NN KRUMMAKVARTETT ★ KALT BORÐ Hlaðið ljúffengum réttum Borðpöntunum veitt móttaka eftir kl. 2 í dag. — Matargestir ganga fyrri. STYRKTARFÉLAG VANGEFINNA. Húnvetningaféíagið í Hvík Félagsfundur verður n.k. fimmtudagskvöld 18. þ.m. í Tjarnarcafé, niðri, kl. 8,30 s.d. Dagskrá: 1. AkvörSun um framtíðarnotkun félagsheimilisins. 2. Önnur mál. STJÓRNIN Frá Tónlistarskólanum 1 Reykjavlk Inntökupróf í Kennaradeild Tónlistarskólans verður mánudaginn 29. maí kl. 4 síðdegis að Laufásvegi 7. Næsta kennslutímabil hefst 1. október n.k. og stend- ur tvo vetur. Öll kennsla er ókeypis en próf frá deildinni veita réttindi til söngkennslu í barna og unglingaskólum. Væntanlegir nemendur sendi umsóknir í Tónlistar- skólann. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans kl. 11—12 daglega. Skólastjórð, Við miðbœinn Helmingur eignarinnar Þingholtsstræti 11 (hús og éignarlóð) er til sölu. Húsið er nú allt atvinnu- húsnæði. Tilboð, sem greini verð og greiðsluskilmála, afhendist undirrituðum. ÁRNI STEFÁNSSON, hdl. Málflutningur — Fasteignasala Suðurgötu 4 — Sími 14314

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.