Morgunblaðið - 04.07.1961, Blaðsíða 1
20 síður
\
48. árgangur
146. tbl. — Þriðjudagur 4. júlí 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsins
-5000 manna brezkt
erlið komið til Kuwait
Ástandið við landamæri íraks
fer enn ekki batnandi
íraksstjórn sakar Breta um ógnanir
Kuwait, London, Bagdad, 3. júlí — (NTB-Reuter-AFP) —
BREZKA herliðinu í Kuwait hefur í dag enn fjölgað til
muna og mun nú telja 4—5000 manns. Flutningaflugvélar
lentu á flugvellinum hér fimmtu hverja mínútu, hervagnar
eru um borgina alla og á þýðingarmiklum stöðum í land-
inu hafa brezkir herflokkar hvarvetna komið sér fyrir.
Það er mál manna í Kuwait, að ástandið á landamærum
íraks hafi orðið enn óvissara, þar eð írakskt herlið sé nú
fjölmennara en áður.
Af hálfu íraksstjórnar er því
haldið fram, að herflutningar
Breta séu ógnun við írak, sem
einungis hafi ætlað sér að beita
friðsamlegum ráðum við að sam
eina furstadæmið landi sínu.
Sendiherra Breta í Bagdad átti
á sunnudaginn viðræðufund með
uutanríkisráðherra íraks, en ár-
angur varð enginn.
Reynt að draga úr viðsjám
Forsætis- og utanríkisráð-
herra Jórdaníu, Banjat Talhuni,
hélt í dag fund með arabísk-
um sendiherrum í Amman, höf-
uðborg sinni. Segja fréttamenn,
að á fundinum beri að líta sem
tilraun Jórdaníu til að draga úr
spennunni milli íraks og Ku-
wait. Talsmaður Sameinuðu þjóð
anna í Amman skýrði frá því,
að sérlegur sendimaður Dag
Hammarskjölds, framkvæmda-
stjóra, í náiægari Austurlönd-
um, Pier Spinelli, hafi frestað
för sinni til Genf, vegna þró-
unarinnar í Kuwait. Líbýustjórn
sendi írak orðsendingu í dag,
þar sem þess er farið á leit,
að ekki verði gripið til neinna
ráðstafana gegn Kuwait, er
stefnt geti í hættu friðnum á
þessum slóðum og leitt af sér
fjandskap milli Arabaríkjanna.
Herflutningar halda áfram
Fréttaritari Reuters símar frá
hafi haldið út á eyðimörkina.
Lengst hefur brezka herliðið
farið um 40 km norður fyrir
Kuwait-borg. Brezkar þotur
halda stöðugu eftirliti, en hafa
fengið fyrirmæli um að fljúga
ekki nær íröksku landamærun-
um en 15—25 km. Samkvæmt
frásögn eins flugmannsins, eru
byggingar olíufélaganna nú orðn
ar mannnlausar. Von er á enn
fleiri brezkum hermönnum til
Kuwait; fyrstu hóþarnir af liði
frá Kenya eru lentir hér og heilt
herfylki frá Nairobi er væntan-
legt. —
Brezka flotamálaráðuneytið
hefur skýrt frá því, að nú
séu milli fjögur og fimm þús
und brezkir hermenn í Ku-
wait. Þar liggja nú við akk-
eri flugvélamóðurskip, tvær
freigátur og eitt herskip að
auki. Eru áhafnir þeirra ekki
taldar með í áðurnefndum
fjölda.
Frá flotastöðinni Aletta á
Möltu berast fregnir um, að
Kuwait, að brezka herliðið í fjórir brezkir tundurduflaslæð-
furstadæminu sé nú dreift yfir arar hafi látið úr höfn og stefni
stórt svæði á eyðimörkinni milli til Aden. Eigi þeir að vera reiðu
borgarinnar Kuwait og íröksku búnir til starfa á Persaflóa. —
landamæranna. I>eir, sem síðast Samtímis yfirgaf flotastöðina
hafi komið, séu sveit fallhlífa- birgðaskip og olíuflutningaskip í
hermanna frá Kýpur, er þegar ! Framh. á bls. 13.
Lát Hem-
ingways
ERNEST Hemingway, skáldið
heimskunna, lézt á sunmúdag
inn af skoti úr einni af byss-
um sínum, er hann var að
fága. Hann var 62 ára að
aldrj. Fregnin um sorgarat-
burð þenna barst hratt út í
gær og kom hvarvetna á ó-
vart. Hemingway var fyrir
skömmu kominn úr sjúkra-
húsi og dvaldi á heimili sínu
í Idaho í Bandarikjunum.
Hann var, sem alkunna er,
mikill veiðigarpur, og var, er
slysið bar að höndum, að huga
að byssum sínum. Eiginkona
hans var fjarverandi, en er
hún kom heim lá Hemingway
þar helsærður.
Frú Hemingway varð að
vonum mikið um hið sviplega
fráfall manns síns og er nú
undir læknishendi. Samkvæmt
ummælum yfirvaldanna í bæn
um Ketchum í Idaho, mun
væntanlega velta á óskum
hennar, hvort athuguð verða
nánar atvik þau, er leiddu
til þessa hryggilega atburðar.
Hammarskjöld leggur til:
Breyting á starfs-
skipan hjá SÞ.
BANDARÍSKA útvarpsstöð-
in „Voice of America" skýrði
frá því í gærkvöldi, að Dag
Hammarskjöld, framkvæmda
stjóri Sameinuðu þjóðanna,
hefði lagt fram tillögur um
nokkrar skipulagsbreytingar
á skrifstofu samtakanna í
aðalstöðvunum.
Embætti aðstoðarframkvæmda-
stjóra
í þessum tillögum Hammar-
skjölds mun gert ráð fyrir
að 5 aðstoðarframkvæmdastjórar
verði látnir bera ábyrgð á af-
greiðslu pólitískra mála, en aðrir
níu fjalli einkum um fram-
kvæmdir á vegum samtakanna.
Allir séu menn þessir jafnhátt
settir, en samkvæmt tillögunum
skulu þeir, sem með stjórnmálin
hafa að gera, aðeins geta gengt
embætti í 3—5 ár, hinir í tvö-
faldan þann tíma. — Eins og
málum er nú háttað eru stjórn-
málalegir aðstoðarframkvæmda-
stjórar tveir.
Réttlátleg skipting
Hammarskjöld bar ofangreind-
ar tillögur sínar fram, eftir að
kunngjörð hafði verið skýrsla 8
manna sérfræðinganefndar, sem
lagt hafði áherzlu á nauðsyn
þess, að starfslið Sameinuðu þjóð
anna skiptist sem réttlátlegast,
landfræðilega séð.
Það kom fram hjá Hammar-
skjöld, að ef tillögur hans verða
samþykktar á næsta adsherjar-
þingi, sem kemur saman til
funda hinn 19. september nk.,
muni mega byrja láta þær koma
til framkvæmda strax næsta ár
og að fullu 1963.
Frægasta mynd sem tekin vaír af Hemingway. Hún er tekin
af kanadíska ljósmyndaranum Karsh.
Hann var í mið-
punkti aldarinnar
Ummæli Kiljans um Hemingway látinn
HEMINGWAY var í- saman það sem hefði þurft
mynd þess allra bezta í að segja um Ernest Hem-
Éngilsaxneskri manngerð. ingway daginn eftir and-
Hann hefur'sennilega haft lát hans. Það er ég ekki
meiri áhrif en nokkur ann tilbúinn að gera, þó þessi
ar rithöfundur á þessa maður hafi verið mér hug-
kynslóð og vakið það bezta stæðari en flestir rithöf-
hjá sinni þjóð, sú mann- undar aðrir.
gerð sem hann var. Og rit- Eitthvað á þessa leið fór-
höfundar á fjarlægustu ust Halldóri Kiljan Laxness
stöðum hafa skrifað undir orð> er fréttamaður blaðsins
... ,. , hitti hann að máli á heimili
augliosum ahrifum fra , , . . ,
ö J hans að Gljufrastemi í gær,
honum. Það er erfitt að vegna hins skyndilega and-
eiga í stuttu máli að taka Frh. á bls. 2
Grein um Hemmingway er á bls. 11
Mikil áta milli síldar-
svæöanna og lands
Mér lízt vel á útlilið, ef síldin færir sig þangað, segir Jakob
Jakobsson um borð í Ægi /
— MÉR lízt vel á útlitið í
sumar, sérstaklega ef síldin
færir sig nær landi, sagði
Jakob Jakobsson fiskifræð-
ingur um borð í Ægi, er
Mbl. átti tal við hann í gær.
— Það er mikil áta víðast
hvar sunnan við síldargöng-
urnar, þannig að líklegt er
að þær færi sig suður á bóg-
inn, þó erfitt sé að spá þar
nákvæmlega um, bætti Jakob
við.
Jakob sagði að síldin hefði
verið fremur stygg til þessa og
hefði það háð veiðunum. Síldin
væri nú einkum á þremur svæð-
um, norður og norðvestur af
Kolbeinsey, og væri mestur
hluti íslenzka síldveiðiflotans á
þeim slóðum. Þriðja svæðið
væri norðáuustur af Melrakka-
sléttu, norðan Rifsbanka, og
væri norski flotinn þar ásamt
nokkrum hluta íslenzka flotans.
Stakar torfur á milli
Jakob sagði að ekki væri með
Framh. á bls. 2