Morgunblaðið - 18.07.1961, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.07.1961, Blaðsíða 18
i. MORGVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 18. júlí 1961 18 ★ ÍÞRÓTTIH ★ 3 mef seft í sundi (JHET Jastremski frá Oliio setti um helgina tvö heims- met í sundi á móti í Evans- ville i Indiana. Hann synti 100 m bringu- sund á 1.09.8 og bætti 4 ára gamalt met Rússans Min- askins um 1,7 sekúndu. Á laugardag synti harm- 200 m bringusund á 2.35.3, en það er 1.3 sek. betri tími en fyrra heimsmetið sem Ástralíu maðurinn Gatherhole átti. Á sunnudaginnr setti svo kanadisk stúlka Mary Stew- art nýtt heimsmet í 100 m flugsundi kvenna. Tími henn- ar var 1.10.7 og náðist á móti í Vancouver. KR, Valur og Akur■ eyri sigruðu ÞESSI mynd er tekin á Islands mótinu í útihandknattleik kvenna. Mótinu lýkur 20. júlí en leikir þess hafa verið marg ir hverjir jafnir og skemmti- legir, og í þeim barist af hörku eins og mynd Sveins Þormóðssonar sýnir. ÞRÍR leikir íslandsmótsins í 1. deild hafa farið fram um þessa helgi. Á sunnudagskvöldið mætt ust Vaismenn og Akumesingar á Eaugardalsvellinum og fóru Vals- Danir og KR keppa í kvöld á Meiavellmum Danir og KR á Melavellinum 333 HÉR eru nú staddir knattspyrnu menn danskir, sem hingað era komnir í boði Vals og er heim- sóknin liður í 50 ára afmælishá- tíðahöldum félagsins. Er þetta annað danslca liðið sem sækir yngri félaga Vals heim. Þetta er lið frá Lyngby Boldklub, en það er eitt stærsta og fjölmennasta félag yngri leikmanna í Dan- mörku hefur 450 pilta starfandi í 19 liðum. Liðið er mjög gott og á glæsi- legan leikferil að baki. Þeir hafa þegar leikið hér einn leik við B- lið Val og sigruðu dönsku piltarn ir með 4—0. Sýndu þeir mjög fallega knattspymu. En fyrsti reglulegi leikur liðs- ins verður í kvöld a Melavellin- um og mætir liðið þá KR (2. fl.) Um næstu helgi leika Danirnir svo í Vestmannaeyjum, en þar er eitt sterkasta 2. flokks lið lands- ins um þessar mundir. f sfirðingar sigr uðu ísafirði, 17. júlí ÍSFIRÐINGAR og Breiðablik kepptu í knattspyrnu á ísafirði sl. laugardag í sambandi við ís- landsmótið í 2. deild. Leikar fóru þannig að ísfirðingar sigruðu með 4 mörkum gegn 3. Á sunnu- dag léku sömu lið aukaleik. Sigr- uðu ísfirðingar þá einnig með 3 mörkum gegn 2. — AKS. menn með sigur af hólmi, skor- uðu 3 mörk gegn 1. Valsmenn náðu frumkvæði x leiknum strax í upphafi og í hléi stóðu leikar 3 gegn 0. Var sigur Vals í leiknum verðskuldaður, en leikurinn var ekki sérlega vel leikinn og þófkenndur á köflum. • Akureyri — Hafnarf jörður Á sunnudaginn léku Hafnfirð- ingar og Akureyringar á Akur- eyri. Akureyringar unnu auð- veldan sigur, skoruðu 6 mörk gegn 1. Leikurinn var heldur dauflegur samt og þyngslalegur hjá báðum liðum. • KR — Fram í gærkvöldi mættust KR og Fram á Laugardalsvellinum. Mikillar hörku gætti í leiknum Og lítið sást af góðri knattspyrnu. KR skoraði 2 mörk gegn 0. í hálf- leik stóð 1:0. Golfmeistaramóti íslands lauk á Akureyri um helgina. Akureyr ingar urðu mjög sigursælir í þessu móti og báru sigur úr být um ■ öllum flokkum. 1 meistara- flokki og 1. flokki voru leiknar 72 holur og urðu úrslit scm hér segir: Meistaraf Iokkur: íslandsmeistari: Gunnar Sólnes, Ak, 322 h. 2) Gunnar Konráðs- son, Ak, 332 h. 3) Hafliði Júlíus son, Ak, 332 h. 4) Sigtryggur Júl- íusson, Ak, 334 h. 5) Óttar Yngva son,R, 335 h. 6) Jóhann Eyjólfs- son, R, 337 h. 7) Hermann Ingi- marsson, Ak, 340 h. 8) Helgi Jakobsson, R, 344 h. 9) Pétur Björnsson, R, 345 h. 1. flokkur. 1) Bragi Hjartarson, Ak, 350 h. Skíðamóf á miðri síldar- vertíð SIGLUFIRÐI, 17. júlí. — Sl. sunnudag var skíðamót haldið í Siglufjarðarskarði. Þykir það tíð- indum sæta í miðjum júlímánuði og meðan síldarvertíð stendur sem hæst. Keppendur voru frá ísafirði, Siglufirði og úr Reykja- vík. Keppt var í svigi karla. Fyrst- ur var Svanberg Þórðarson úr Reykjavík á 86 sek., tvöföld um- ferð, annar var Árni Sigurðssön fná ísafirði á 86,3 sek. og þriðji Bogi Nilsson frá Siglufirði á 88,9 sek. Veður var ágætt og nægur snjór. — Stefán. 2) Jóhann Guðmundsson, Ak, 352 h. 3) Ragnar Steinbergsson, Ak, 353 h. 2. flokkur. » 1) Sævar Gunnarsson, Ak, 191 h. 2 )Stefán Árnason, Ak, 196 h. 3) Jón Guðmundsson, Ak, 202 h. John Konrads til Randaríkjanna HINN heimsfrægi sundmaður, John Konrads frá Ástralíu, sem sigraði í 1500 m sundi Rómarleik anna er nú á förum til Bandaríkj anna. Hefur hann hlotið 3ja ára námsstyrk við Suður-Kaliforníu háskólann. Golfmeistaramótið: Akureyringar unnu í öllum greinum Hannes Kr. Hannes- son málarameistari í DAG verður til möldar bor- inn góðkunnur Reykvíkingur, Hannes Kr. Hannesson, málara- meistari. Hann lézt hinn 13. þ.m. tæplega sjötugur að aldri. Hann var fæddur hér í bænum 8. okt. 1892, sonur hjónanna Kristínar Árnadóttur og Hannes- ar Hannessonar. Um þær mundir sem Hannes var í heiminn borinn, voru að gerast merkileg þáttaskil í sögu Reykjavíkur. Þá var að hefjast nýtt tímabil í atvinnuháttum bæjarins, einkum hvað sjávarút veginn snerti, og átti véltæknin þar drýgstan hlut að máli. Þessi þróun atvinnulífsins, sem eins mætti kalla byltingu, hlaut óhjá- kvæmilega að draga að sér mjög aukið vinnuafl, enda fjölgaði bæj arbúum þá mjög ört ár frá ári. í kjölfar þessa sigldu svo miklar byggingarframkvæmdir, bæði íbúðarhúsa og annarra bygginga í sambandi við hina stórauknu útgerð. Fól'ksfjölgunin leiddi svo af sér margháttaða atvinnumögu-' leika; mikil vinna skapaðist við hverskonar verzlun, mikil þörf varð einnig fyrir iðnaðarmenn, bæði vegna byggingarfram- kvæmda svo og vegna almennrar þjónustu, sem vaxandi bæjarfé- lag hlýtur að krefjast. Á yngri árum sínum var Hannes heitinn leng^ í póstferð- um með hinum kunna pósti Hann esi Hanssyni, hér austur um sveitir. Jafnframt því fór hann einnig að vinna að húsamálun, en mun ekki hafa snúið sér að þeim störfum eingöngu fyrr en hann fór að vinna hjá Lauritz Jörgensen, málarameistara, er hann var að mála hús Nathan & Olsen, sem nú er Reykjavíkur Apótek. Var það síðan hans ævi- starf. Hannes var liðlega meðalmað- ur á vöxt, samsvaraði sér vel og yfirbragð hans bjart og glaðlegt. Hann var hið mesta snyrtimenni og háttvís í allri umgengni, og báru öll vinnubrögð hans mjög keim af þeim eiginleikum. Hann var hinn mesti iðjumaður, sem aldrei lét neitt tækifæri ónotað til vinnu, Og stundvís með afbrigð um. Vinnufélagi var hann ágæt- ur, gamansamur óg hnyttinn í órði, en gat þó skipt skapi ef hinum mislíkaði eitthvað Og gat þá verið fastur fyrir. Hannes starfaði um áratugi í Slökkviliði Reykjavíkur. Reynd- ist hann þar hinn ötulasti maður, Og var jafnan skipað þar í sveit, sem mest reyndi á þrek og ör- yggi. Marga hefi ég heyrt tala um það hve viðbragðsfljótur hann var þegar brunakall kom. Hann skildi vel að hver mínúta gat ráðið miklu um það, hvort takast rriætti að forða stórtjóni og kannske mannslífum. Það er naumast hægt að gera sér grein fyrir mikilvægi þess starfs, sem ötull slökkviliðsmað- ur innir af hendi fyrir bæjarfé- lag sitt og samborgara. Á þetta þó einkum við hér fyr á tímum, meðan flest hús voru úr timbri, Og eldfæri öll og ljósbúnaður með þeim hætti, að margföld elds hætta var að, miðað við það sem nú er, jafnframt því sem öll tæki Og aðbúnaður slökkviliðsins var lakari. Vegna þessa starfs, svo og fyrir hin daglegu störf sín sem iðnað- armaður, var Hannes velþekktur borgari og vinmargur. Mörgum Reykvíkingum er vafa laust enn í minni hin frostkalda vetrarnótt er Hótel ísland brann. Segja má að þá hafi miðbærinn verið í bráðri eldshættu, enda þótt slökkviliðsmönnum tækist þá með fádæma dugnaði og hreysti að stöðva útbreiðslu elds- ins. Það mun hafa verið síðasti stórbruninn, sem Hannes barðist við með félögum sínum, og hlífði sér þá hvergi þótt kominn væri af léttasta skeiði. Þá varð líka mönnum starsýnt á hann um morguninn, eftir næturlanga bar áttu við þennan mikla eldsvoða, þar sem hann stóð í klakabrynju frá hvirfli til ilja, en brosandi og glaðlegur á svip yfir unnum sigri. Hannes kvæntist 24. júli 1920, eftirlifandi konu sinni, Guðrúnu Kristmundsdóttur. Eignuðust þau þrjú börn, sem öll eru á iifi: Dagmar, gift Guðmundi Þorleifs syni, skipstjóra; Sigrún, gift Ás- geiri Péturssyni, lögfræðingi og Valgeir, málarameistari, kvænt- ur Ásdísi Árnadóttur. Nú er þessi mæti Reykvíkur horfinn af sjónarsviði okkar, eftir langan og gifturíkan ævidag. Hann sá Reykjavík va»:a úr smá þörpi í stórborg, og hann hafði sjálfur alla tíð lagt drjúgan skerf fram til þess að svo mætti verða. Þess vegna munu margir minnast hans með hlýhug og þakklæti. Ég kveð svo þennan gamla vin minn með góðar minningar í huga, um leið og ég votta fjöl- skyldu hans og öðru venzlafólki samúð mína. Jökull Pétursson. — Síldarskýrslan Framh. af bls. 3 Pétur Sigurðsson Reykjavík 6525 Rán Hnífsdal 3483 Reykjaröst Keflavík 1698 Reynir Vestmannaeyjum 3002 Reynir Akranesi 4505 Runólfur Grafarnesi 4000 Seley Eskifirði 4091 Sigrún Akranesi 2515 Sigurbjörg Búðakauptúni 1375 Sigurður Akranesi 4514 Sigurður Siglufirði 5856 Sigurður Bjarnason Akureyr! 4169 Sigurfari Vestmann^eyjum 2751 Sigurfari Akranesi 3769 Sigurfari Patreksfirði 3903 Sigurfari Hornafirði 1287 Sigurvon Akranesi 4739 Skarðsvík Hellissandi 1560 Smári Húsavík 4779 Snæfell Akureýri 7052 Snæfugl Reyðarfirði 4100 Stapafell Ölafsvík 7029 Stefán Arnason Búðakauptúni 2329 Stefán Ben Neskaupstað 1515 Stefán Þór Húsavík 3217 Steinunn Ölafsvík 5718 Steinuian gamla Keflavík Stígandi Vestmannaeyjum 2688 Straumnes ísafirði 2072 Stuðlaberg Seyðisfirði 5830 Súlan Akureyri 3194 Sunnutindur Djúpavogi 6639 Sveinn Guðmundsson Akranesi 1385 Sæfari Sveinseyri 5404 Sæfaxi Neskaupstað 1584 Sæfell Ölafsvík 1811 Sæljón Reykjavík 1331 Særún Siglufirði 1484 Sæþór Olafsfirði 3695 Tálknfirðingur Sveinseyri 4170 Tjaldur Stykkishólmi 3221 Unnur Vestmannaeyjum 1668 Valafell Ölafsvík 5030 Vattarnes Eskifirði 2555 Víðir II Garði 11468 Víðir Eskifirði 6085 Vilborg Keflavík 3489 Vísir Keflavík 1224 Vonin II Keflavík 4859 Vörður Grindavík 4157 Þorbjörn Grindavík 4951 Þorgrímur Þingeyri 1718 Þórkatla Grindavík 3645 Þorlákur Bolungarvík 5051 Þorleifur Rögnvaldsson Olafsfirði 1263 Þórsnes tykkishólmi 122Æ Þráinn Neskaupstað 3335

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.