Morgunblaðið - 09.08.1961, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.08.1961, Blaðsíða 1
48. árgangur 24 síður Síldaraf linn 1,2 mál og tn. Víðir II. með 17,747 SÍL.OARAFLINN á sumrinu er nú kominn upp í 1.197.225 tunnur og mál, en var á sama tíma í fyrra 683.602 mál og tunnur. Af Iþessum afla hafa 342.860 tunnur fengist í salt, 834.955 mál farið í bræðslu, og 19.710 tunnur verið frystar. Afli síðustu viku var 159.660 inál og tunnur. Hæstu síldarbátarnir eru nú Víðir II úr Garði með 17.747 tunnur og mál, Guðrún I»or- kelsdóttir frá Eskifirði 16.462 mál og tunnur, Ólafur Magnús son frá Akureyri með 15.777 tunnur og mál, Haraldur AK 14.968 tunnur og mál og Heið- rún frá Bolungarvík 14.420 mál og tunnur. Annars staðar í blaðinu er listi yfir önnur síldveiðiskip og afla þeirra. Aætlunorflug New York — Moskvu ALMENNT er nú búizt viö, að á næstunni verði undirritað samkomulag milli Bandaríkjamanna og Rússa um fast áætl- unarflug milli New York og Moskvu. Hefur mik- ið verið um það rætt hér á landi í þessu sam- bandi, að líklega yrði flogið um Keflavíkur- flugvöll. Blaðið leitaði því upp lýsinga um það hjá ís- lenzkum stjórnarvöld- um í gær, hvort tilmæli hefðu komið fram í þessa átt, og fékk þau svör, að svo væri ekki. Er helzt rætt um Stokk- i hólm eða Ósló sem hugs anlega áfangastaði á leiðinni, og e.t.v. einnig Gander. Þessa mynd tók Magnús Eymundsson, stýrimaður, um borð í varðskipinu Þór, er brezki togarinn Southella var tekinn að veið- um innan fiskveiðimarkanna og neitaði að hlýða varðskipinu um að fylgjast með þvi til hafnar. _ Á myndinni sést herskipið JDuncan og togarinn. — Sjá frétt á síðu 15. Vestræn ríki sammála um viö- brögð gegn sovézkum ógnunum j Rusk hélt aðalræbuna á fundi j j fastaráðs Atlantshafsbandalagsins j Frelsi Berlínar og réttur Vesturveldanna verði tryggður París, 8. ágúst. (Reuter) FASTARÁÐ Atlantshafs- bandalagsins var á fundi sín- um í dag sammála um af- stöðu vestrænna ríkja gegn ógnunum Sovétveldisins í Berlín og ákvað að hafa enn nánara samráð sín í milli „vegna hins alvarlega ástands, sem nú ríkir“, eins og kom- ízt er að orði í tilkynningu um fundinn. Tveggja klukkustunda fundur Tilkynningin var gefin út að loknum tveggja klukkustunda fundi fyrir luktum dyrum. — Á fundinum gerði Dean Rusk, ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, fulltrúum aðildarríkjanna 15 grein fyrir viðræðum utanríkis- ráðherra Vesturveldanna í París um helgina. f tilkynningunni var lögð áherzla á eftirfarandi atriði: 1. Friðsamleg og réttlát lausn þeirra vandamála, er varða Þýzkaland og Berlín, fæst aðeins með því að virða sjálfsákvörðunarrétt íbúanna 2. Vestrænar þjóðir eru ákveðnar í að standa vörð um frelsi Vestur-Berlínar og þeirra tveggja milljóna manna, sem í henni búa. 3. Vestrænu ríkin verða ekki svipt rétti sínum í Berlín — og Sovétveldið get- ur ekki hlaupizt undan skuld bindingum sínum frá 1944 um að ábyrgjast samgöngur Vesturveldanna við borgina. Er hér í aðalatriðum um að ræða þá grundvallarstefnu vestrænu ríkjanna, sem mörkuð var á utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins í Ósló fyrr á þessu ári. Framh. á bls. 8 ÍMeðfylgjandi mynd er af geim farinu Vostok n sem flutti Ghermann Titov sautján ferð ir umhverfis jörðu. Sjá grein á bls. 10. Fundur „hlutlausra“ NÝJU-DEHLI, 8. ágúst (Reuter NTB) — Utanríkisrúðherrar hinna svonefndu hlutlausu þjóða munu að líkindum halda með séír fund, áður en leiðtogafundur þess ara ríkja verður haldinn í Belg- rad 1. september n.k. Er það til- laga Indverja, að fundur ríkis- leiðtoganna verði undirbúinn með þessum hætti. Mest áherzla mun þar verða lögð á heimsvanda málin, afvopnun o.fl. Átján ríki hafa tekið boði uim þátttöku og 3 eru enn óviss. Meðal þeirra leið toga, gam mæta, verða Nehru, Nasser og Sukarno, en ekki er vitað með vissu, hvort Castro kemur. Friðrik efstur FRIÐRIK Ólafsson stórmeistari átti alla athygli þeirra er fylgjast með svæðamótinu í Tékkósló- vakíu, er hann í 6. umferð móts- ins í fyrradag vann þann keppi- nautinn er fram til þessa hefur verið honum skeinuhæ/tastur að vinningatölu. Sigraði Friðrik Uhlman A-Þýzkalandi. Friðrik fórnaði biskupi fyrir peð, en fékk við það sóknarmögu leika og notaði þá meistaralega til vinnings. Gragger Austurríki gerði jafntefli við Szabo en Sliwa tap- aði fyrir Bobotsov. Filip vann Bobotsov (Biðskák úr 5. umferð). Staðan eftir 6 umferðir á mótinu er þannig. Friðrik Ólafsson 5% vinning, Filip Tékkóslóv. 5, Uhlman 4, Citescu, Johannesen og Szabo 3%, Ciric og Milic Júgóslavíu og Perez 3, Barendregt, Blom Dan- mörku, Bobotsov og Sliwa 2%, Gragger og Nimela 1%, Ljung- qvist 1. Úrslit 5. umferðar mótsins hafa ekki borizt af einhverjum ástæð- um. En mjög má ráða af vinninga töflunni hvernig sú umferð hefur farið. M. a. má sjá að Friðrik hef- ur i 5. umferð unnið Ljungqvist Svíþjóð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.