Morgunblaðið - 16.08.1961, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.08.1961, Blaðsíða 3
MiðviEudagur 16. ágúst 1961 3 MORGVNBLAÐIÐ ★ — ÉG ÁLÍT, eíns og ég hefi raunar alltaf álitið, að Grænland sé Paradís sport mannsins, og með fullri virðingu fyrir Rivierunni, þá mundi ég taka Græn- land fram yfir, hvenær sem er. Þessi túr okkar til Grænlands nú verður alls ekki metinn til peninga, sagði Jóhannes Snorrason, yfirflugstjóri, er Morgun- blaðið ræddi við hann í gær um Grænlandsferð Hér er „Katan“ í fjöruborðinu í Gleraugnavötnum. — Myndirnar tók Birgir Þórhalisson. Sextugsafmæli f Moskusuxafirði Öll fjöll stóðu á haus í Gleraugna - vötnum - frá veiðiferð til Grænlands ýmissa framámanna í flug málum. Var farið á Kata- línaflugvél Flugfélags ís- lands, en fyrir dyrum stendur niðurrif vélarinn- ar, og gæti þetta því hafa verið hennar síðasta ferð. Hins vegar hefur nú verið •stofnaður klúbbur, sem gengur undir nafninu Kötuklúbbur, og hyggst klúbburinn reyna að fá því framgengt að „Katan“ verði ekki rifin, heldur notuð til sportferða til Grænlands. Það vorum við Brandur Tómasson, yfirflugvirki, sem áttum hugmyndina að þessum túr, sagði Jóhannes Snorra- son. — Brandur er mikill veiði og sportmaður og til í allt, og við ákváðum að gera allt, sem í okkar valdi stæði til þess að fara eina góða ferð áður en Kata yrði rifin. Gamlir starfsmenn Að fengnu leyfi Flugfé- lags íslands, þá reýndum við að láta eldri starfsmenn Flug- félagsins, sérstaklega gömlu sjóflugmennina, ganga fyrir. Þá var Agnar Kofoed-Hansen flugmálastjóri með í förinni, en Sigurður Jónsson gat því miður ekki farið með. Björn Eiríksson, handhafi loftferða- skírteinis nr. 2 var hinsvegar með. Örn Johnson gat því mið ur ekki farið með, en hann verður vafalaust með í næstu veiðiferð. Einnig voru með í ferðinni Gunnar Jónasson, forstjóri, en hann var vélamaður hjá gamla Flugfélagi íslands, Og flaug þá bæði á Súlunni og Veiðibjöll- unni, og Bergur G. Gíslason, flugráðsmaður og í stjórn F.Í., en Bergur hefur sem kunnugt er verið mikill áhugamaður um flugmál frá upphafi og starfað mikið að þeim. Einn- ig var ákveðið að gefa einum veiðimanni og ferðagarpi kost á að taka þátt í leiðangrinum, og varð Guðmundur Einarsson frá Miðdal fyrir valinu, m. a. vegna þess, að hann er mikill i máttúruskoðari, og fengum við ; hjá honum hina beztu kennslu s í greiningu bergtegunda og | jurta. Aðrir þátttakendur voru nú-1 verandi starfsmenn F.Í., en alls vorum við 14 í ferðinni. f Litið á veðrið Við ætluðum upphaflegaf að leggja af stað klukkan sjö 1 á föstudagsmorguninn, en við ■■xfi Björn Eiríksson — sextugur í Moskusuxafirði \ töfðumst vegna þoku yfir Grænlandi. Var samt ákveðið að fara og líta á þetta, því að við gátum ekki beðið margra hluta vegna. Við fórum í loft- ið á milli klukkan átta og níu um morguninn, og flugum sem leið liggur réttvísandi í hánorð ur. Sáum við síðast land gegn- um glufu þegar við flugum yf- ir Hornstrandir, en síðan var flogið í skýjum út yfir mitt Grænlandshaf. «■^1 Húrrahróp Um 100 mílum fyrir sunn- an mynni Scoresbysunds sáum við fjöllin á austurströnd Grænlands, Og hýrnaði þá mik ið yfir mannskapnum. Þegar við komum upp að ströndinni sáum við að þoku- laust var innst í Scoresby- í s 3» * íHsSSkí Brandur Tómasson með væna bleikju í Moskusuxafirði. sundi,, og með það að bak- hjarli héldum við áfram norð- ur. Yfir flugvöllinn í Meistara vík komum við í átta þúsund fetum, en hann var lokaður. Síðan sáum við ekkert að heita nema fjallatinda upp úr þokunni, en stundum grillti í firðina. Sáum við að þar var hægvirði en dálítið íshröngl. Síðan var geysilegur spenn- ingur um borð hvort Moskus- uxafjörður væri íslaus, en þangað var ferðinni heitið. Eftir rúma fimm tíma vorum við yfir firðinum, og þá var hrópað húrra um borð, og menn kættust mjög. Vgi Vaðið í land Við renndum okkur síðan þarna niður og lentum innst í firðinum. Þar var íslaust, fallegar silungsár, sauðnaut í hlíðum, og lómar og selir svömluðu um. Var þarna mjög fagurt. Lítið er þó um gróður í Moskusuxafirði, en þó nokk uð af eyrarrósum og öðrum smáblómum. Hinsvegar veitt- um við því athygli að þarna var mikið af læmingjaholum, og Guðmundur frá Miðdal sá einn læmingja skjótast á milli hola. Við ókum vélinni beint upp í malarkamb rétt við stærsta árósinn. Var síðan vaðið í land. Ég á gúmmíbát, sem ég keypti hjá Gunnari Ás- geirssyni, og kom hann sér í góðar þarfir við að koma vél- inni fyrir. Það er lítill utan- borðsmótor á bátnum, og síð- ast þegar ég var í Narsassuak, sá hótelstjórinn bátinn hjá mér, og í fyrramálið fer ég aft ur til Grænlands og með bát og mótor handa hótelstjóran- *-g Bleikja í öllum ám Þarna í firðinum var sleg ið upp tjöldum og menn fóru að hita sér kaffi og mat. Höfð- um við það ákaflega notalegt. Síðan voru settar saman steng ur, og kom strax í ljós að þarna var bleikja að ganga upp í allar ár, og þegar menn höfðu veitt dálítið af silungi, var farið í gönguferðir. Tak- markað var hvað mátti veiða af silungi vegna þyngdar flug- vélarinnar, en við höfðum að sjálfsögðu mikinn útbúnað með okkur. Ferðin var heldur ekki farin til þess að skófla upp silungi, heldur til að kynn ast landinu og njóta náttúr- unnar. Við sáum þarna mikið af grágæsum Og einn hvítan Grænlandsfálka. Öll veiði var bönnuð nema silungsveiðin, enda ekkert skötið. Bleikjan, sem við veiddum þarna, var spikfeit, glitrandi sjóbleikja. Við suðum nokkrar strax, og snæddum, og þetta var auðvitað herramannsmat- ur. wgi Sextugsafmœli Á laugardaginn átti Björn Eiríksson sextugsafmæli, og þá var náttúrlega hitað kaffi, og Agnar Kofoed-Hansen færði Birni gjöf. Við það tæki færi flutti Agnar ávarp, og þakkaði Birni þátt hans í upp- byggingu flugsamgangna á ís- landi, en Björn er annar elzti flugmaðurinn, og flaug hjá gamla flugfélaginu á sínum tíma. Hann hætti störfum hjá Flugfélagi íslands þegar ég kom heim frá Kanada 1943. Þennan dag lagðist þoka yf- ir, og gátum við því ekki flutt ökkur til, en annars var ætlunin að fara á einhvern annan stað. Þetta veður hélzt fram á sunnudag, en þá hófum við okkur á loft og tókum stefnu til suðurs. Allir firðir voru þá meira eða minna fullir af þoku, en þó bjartviðri í fjarðarbotn- um. Þótti mönnum þá mikið koma til fegurðar fjallanna. Víða mátti einnig sjá hrika- lega borgarísjaka í fjöllunum. Þegar við komum yfir Kong Oscarsfjörð, sáum við að byrj að var að létta til yfir Meist- Framhald á bls. 19. STAKSTEI Wlí Úrtölur Jóns Helgasonar Mbl. barst nýlega svohljóðan«B bréf, sem það telur rétt að komi fyrir almenningssjónir: „Samtal það, sem Magnús Kjartansson ritstjóri, átti við Jón prófessor Helgason um handrita- málið í Þjóðviljanum 30. júlí s. 1. hefur orðið mörgum að umræðu- efni undanfarið. En væri ekki ráð að velta því fyrir sér, hvort hér sé nokkuð nýtt á ferðinni. Jón á augsjáanlega sem gamall danskur embættismaður og lerrgi búsettur í Danmörku erfitt með að hugsa sér að handritin verði flutt til þeirra heimastöðva, þar sem þau voru skráð. Danir vinni svo vel að rannsóknum á þeim að ótrúlegt sé að íslendingar komist þar til jafns við, hvað þá geri betur. Líka muni kostn- aður íslendinga af heimflutningn um verða þungbær, samanber það sem orðrétt er sagt í við- talinu: ,,Þá má ekki gleyma stofnkostnaði, borðum, lömpum, ritvélum, ljósmyndaáhöldum o. s. frv., það kostar skilding.“ Já, það er margt að athuga og ekki veldur sá er varir. En það er eins og íslendingar vilji aldrei láta sér segjast. Hversu oft hafa þó ekki áður hljómað í eyrum okkar áþekkar raddir úr þessari átt (Landssuðri)? Og hví í skoll- anum hafa íslenrdingar gert sig svo digra að sinna þeim ekki.“ „Sjálfstæðisstagl“ Jóns Sigurðssonar Bréfritarinn heldur síðan áfram og kemst að orði á þessa leið: „Var ekki forðum margsinnis bent á, hversu dýrt íslendingum mundi verða að annast sjálfir verzlun sína í stað þess að láta kónginn gera það með tapi? Mundi ekki kostnaðurinn okkar af landhelgisgæzlunni, svo eitt- hvað sé nefnt, vera minni, el Danir hefðu hana enn í sínum höndum. Að maðui tali nú ekki um sjálft fullveldið. Er ekki von að menn séu orðnir þreyttir á „handritastaglinu“. Það er ekki hóti betra en sjálfstæðisstagl Jóns Sigurðsson- ar á öldinni, sem leið, og þeirra Bjarua frá Vogi og Benedikts Sveins sonar á ungdóms árum Jóns Helga sonair. Nei, við skulum bara spara okkur skild- inga og láta Dani vinna fyrir okkur úr handritunum, bæði orðabækur og annað. Reynsla frá fyrri tímum hefur Iíka kennt okkur að það getur verið hæp- in ráðstöfun að kasta fé í orða- bókahöfunda. Það kann sem sé að vera að þeir dragi sér fé til annarra nota en til var ætlazt.“ Hið óeðlilega ástand ' Þjóðviljinn skýrir í gær á for- síðu frá þeirri ráðstöfun lepp. stjórnar Rússa í Austur-Þýzka- Iandi að loka landamærunum milli Austur- og Vestur-Berlínar, m. a. með þessum orðum: „Þessar ráðstafanir komu ekki á óvart, þvi að við því hafði verið búizt síðustu daga að aust- urþýzk stjórnarvöld myndu láta til skarar skríða, til að binda endi á hii óeölilega ástand, sem ríkt hefur í samskiptum Vestur- Berlínar við umheiminn." Hvert er „hið óeðlilega ástand" sem kommúnistablaðið talar um að ríkt hafi í Berlín? Það er fyrst og fremst í því fólgið, að þúsund- ir Austur-Þjóðverja hafa flúið ógirarstjórn kommúnista inn í Vestur-Berlín. Fólkið i Austur- Þýzkalandi hefur þúsundum sam- an yfirgefið heimili sín, eignir sínar og ástvini til þess að kom- ast út úr þrælakistunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.