Morgunblaðið - 14.10.1961, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.10.1961, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 14. okt. 1961 Dorothy Quentin: Þötilaev Skáldsaga Ég er hrædd um, að herra André líki það ekki, að þetta fólk éti þig út á guð og gaddinn, sagði hún. í þriðja sinn varð Frankie að taka það fram, með allri sinni þolinmæði, að gestirnir mundu ekki kosta hana neitt, út yfir afnotin af húsinu í nokkrar vik- ur. Ég ætla að fara inn í borgina með strætisvagninum og panta þetta allt, sagði hún og veifaði kauplistanum, og Joseph getur farið niður í þorpið og fengið ein hverja vinnuhjálp. Ég vil láta hreinsa og viðra öll svefnherberg in fyrir hádegi á morgun. Það getum við vel gert, svaraði Claudette með nokkurri tregðu, en það á ekki vel við, að ungfrú Laurier fari í strætisvagni. Lofðu mér að hringja í, sjúkrahúsið fyrst — herrann sagði, að þú ætt ir að hafa afnot af sjúkrahúss- bílnum þegar þú þyrftir. En um fram allt máttu ekki fara í stræt isvagni. Herra André þóknast það lík- lega ekki? svaraði hún snöggt og reiðilega. Þetta veifið eru eng ir peningar til og hitt veifið verð ég að halda mig eins og ríkis- bubba. Þetta er ekki nema bull og vitleysa, fóstra. Hvenær fer vagninn? Klukkan tíu. Gamla konan hristi höfuðið. Alltaf hafði Fran coise verið þver og ekki farið að reglum, en hún hafði aldrei óhlýðnast herra André. Já, gott og vel en honum líkar þetta ekki, svaraði hún þver- móðskulega. Frankie stökk á fætur og gekk til gömlu konunnar og horfði á hana ögrandi. En áður en hún gæti nokkuð sagt, sagði Claud- ette blátt áfram: Þú verður að athuga, að hann er nú greifinn de Tourville! Stúlkan hló stuttaralega. Og ég er mademoiselle Laurier frá Laurier! Það kann vel að vera, að faðir hans hafi verið bezti vinur Edvards frænda og það getur líka verið, að hann sé enn fjárhaldsmaður minn, en þar fyr ir þarf hann ekki að segja mér fyrir öllum verkum, fóstra góð! Claudette horfði beint á hana og óró skein út úr augum henn ar. Hún lagði höndina á öxl stúlk unnar og sagði í ströngum róm: Þú ert of ung til að skilja þetta og þú lÆfur verið of lengi að heiman, Herra André hefur ver- ið góði engillinn okkar hérna, siðan herra Edvard sálugi varð of heilsulaus til að stjórna sjálf ur. Ef ekki hefði verið þessi ó- þreytandi umhyggja hans, hefði engin eign orðið handa þér að erfa, barnið gott. Bláu augun urðu að lúta í lægra haldi fyrir þeim brúnu. En Frankie svaraði aðeins kulda lega: Já, sjálfsagt hefur hann séð t vel um ykkur, af því að hann hef ur talið það skyldu sína. En hann fær ekki að stjórna mínu lífi í öllum smáatriðum. Ég fer með strætisvagninum, hvað sem hver segir, fóstra. Claudette andvarpaði og gerði sér hroll og stúlkan þrýsti henni að sér. Þú varst nú alltaf svo hrifin af André, var það ekki? Mér finnst þú hafa verið það líka. Nú varð ofurlítil þögn í sól- bjarta svefnherberginu. Frankie tróð vörulistanum sínum í hand töskuna og setti á sig litla, glannalega hattinn, sem hún hafði keypt í Trinidad. Fóstrunni fannst hún líta út eins og saut- ján ára. Henni þótti vænt um, að í dag var Francoise sama sem ekkert máluð, aðeins með ofur- lítið púður og varalit — alls ekki eins og þessi uppábúna kona, sem í gær. • Hann ætlar að giftast ungfrú Fauvaux, sagði hún léttilega þeg ar þöignin ætlaði að fara að verða óþolandi, þ>á þarf hann ekki að hugsa um að dást að mér, né ég að honum. / Claudette hristi höfuðið með hörkusvip og lokaði snyrtiborð- inu með ofurlitlum skelli. Mér þykir verst. að þú skyldir ekki fljúga heim fyrir sjö mánuðum, hvað sem öllum samningum leið. Frankie gat ekki annað en sam sinnt henni í huga sínum. \ VII. Heimreiðin til Laurier var míla á lengd og lá niður hratta brekku, alveg niður í fjöru. Auk þess var þetta vondur vegur, enda voru ilskór Frankie orðnir fullir af ryki áður en hún vissi af. Hún áttaði sig á því, að Claud ette hefði haft lög aðmæla með ráðleggingu sinni en hún hafði nú í þvermóðsku sinni tekið það í sig að fara til Bellefleur í stræt isvagni. Þessi ameríski dugnaður hennar og sjálfræði hafði enn komið henni í koll. En hún gat alls ekki komið sér að því að hringja í sjúkrahúsið, hvenær sem hún þurfti á fari að halda — þeir mundu hafa annað þarfara að gera við ökutækin þar — en sjálf varð hún að fá sér bíl tafar laust. En engu að síður var hún í ævintýraskapi þegar hún stóð undir pipartré og beið eftir vagn inum. Evrópskum börnum hafði aldrei verið leyft að nota áætl unarbílinn, sem gekk meðfram ströndinni og kom við í þorpum innlendra manna, allt frá landar eign de Tourville, þar sem vegur inn var einkaeign, gegn um Belle fleur og til Irishtown, sem var al veg hinumeginn á eynni. Stund- um höfðu þau André’ stolið sér fari með honum, í þeirri von að bílstjórinn eða aðrir færi ekki að kjafta því í Claudette eða — sem var helmingi verra — í Anne Marie. En enginn hafði sagt eftir þeim, og nú fylltist Frankie þakklæti til eyjarbúa fyrir þagmælskuna. En nú, þegar hún var orðin tuttugu og þriggja ára, var það barnaskapur að láta sér finnast þetta eitthvert ævintýri. Kann- ske var það meira spennandi vegna andúðarinnar, sem fóstra hafði sýnt þessu fyrirtæki henn ar, en hinsvegar gat henni ekki dottið í hug, að André væri það á móti skapi, því að hann hafði MARKÚS kveður MARKÚS hefur birzt hér í blaðinu frá því í ágúst 1948 eða rúm 13 ár. Hefur verið ákveðið að hætta sögunni. Þar sem Sirrí var í mikium vanda stödd í gær, fengum við ungan íslenzkan listamann, Birgi Bragason, til að bjarga henni úr ógöngunum. En ekki munu allir á einu máli um það hvernig sögunni eigi að ljúka, svo Birgir teiknaði og samdi tvenn sögulok, og birtast hvortveggja hér í dag. jafnan verið andvígur kynþátta mismunun. Hún greip plámablað og dust aði mesta rykið af ilskónum sín um og raulaði dægurlag fyrir munni sér: „Væri það ekki gam an?“. Já, væri það ekki gaman, ef þau André gætu flutt klukk una aftur á bak og orðið áhyggju laus börn aftur? Loksins kom lítill, einfaldur strætisvagn, stynjandi og más- andi eftir veginum og bílstjórinn brosti vingjarnlega þegar hann sá hana bíða þarna. Hann glotti þegar hún rétti honum handfylli af casettas, sem, var myntin þarna og hún hafði fengið að láni hjá Claudette. Hann var of ungur til þess að muna eftir henni, en hann vissi hver hún var. Og það vissu farþegarnir sýnilega líka. Þrjár casettas er nóg ef ung frúin ætlar bara til Bellefleur, sagði hann, — og meira en nóg. Ég hef heyrt, að farið hafi verið ein casetta fyrir ófriðinn.... Það er meira en nóg fyrir þessa gömlu beinakvörn sagði gömul kona í vagninum og allir hlógu. Vagninn var næstum al- skipaður og Frankie furðaði sig á því, þangað til hún mundi, að þetta fólk var allt úti-sjúklingar úr sjúkrahúsinu. Sumir voru með umbúðir um limi, einn hafði höf uðbindi eins og vefjarhött og einn var með handlegginn í fatla. Frankie settist hjá honum og þau brostu hvort til annars eins og gamlir kunningjar. Þú hefur að minnsta kosti ekk ert um að kvarta, frú Hunnekin, sagði bílstjórinn góðlátlega. Allir sjúklingar sjúkrahússins eru fluttir ókeypis. Já herra læknirinn sér um, að strætisvagnarnir féflétti okk- ur ekki,-sagði gamla konan glað lega og sneri sér að Frankie. Þykir yður ekki gaman að vera komin heim, ungfrú Laurier? Jú, það veit hamingjan svaraði stúlkan og brosti framan í öll brosandi andlitin og reyndi að sitja á óþolinmæði sinni, því að bílstjórinn og farþegarnir virtust ætla að gera sér að góðu að staza þarna og skrafa saman við hliðið að Laurier allan daginn. Það var heitt í vagninum og loft ið þungt af allskonar meðalalykt, dökku hörundi og kókosolíu. Ég hef mikið að gera og þarf að fara til borgarinnar í kaupstaðarferð, svaraði hún, svo sem til að gera grein fyrir ferðum sínum. Allir kinkuðu kolli og bílstjór inn flýtti sér að setja í gang en ferðin gekk seint því ð vegurinn var vondur, og auk þess var stanzað við hvern kofa til þess að taka farþega, og loks þurfti enginn þarna að flýta sér, nema fellibylur væri í aðsigi. Til vinstri handar glitraði á sjó- inn, meinlausan og lygnan eins og stöðuvatn, og pálmarnir hvísl uðust á í hægum blænum. En inni í vagninum gat enginn sam kjaftað, heldur töluðu allir stanz laust, við Frankie og um hana, algjörlega feimnislaust. Hún fann, að enn gat hún talað máll ýzku eyjarinnar fyrirhafnarlítið, Þegar svo loksins ferðinni var lokið og bíllinn skrölti inn á markaðstorgið í Bellefleur, vissii fólkið eins mikið um fyrstu fyr 'SEWM, l'll <íivc^ vou rwo t|o»e« -ro LHqiSKÓuíBÍójL ?CHtRRV * I M COMIMG.' STfjy WHfRE1 you flBF.... l'O Qive fiNyTHiw6 foH e pwty CgUITLL,OERn[ SIMCF W£ 'vf—. JfBtEW UVINC SiU FDR So \^( long, I rHOuGHT >r would OE^S •fí/A/ ro G-ETMFIftdÍEO So / TOOH REI/eueA/D ffioVp / PHOTOf HHpntlí PBO kaÍMoRFuHetnOlB, SOGULOK I: — Markús! Viltu bara hundzk ast hingað í einum grænum og redda mér eða ég skal svo sann- arlega ............... — O, haltu þér saman! Sérðu ekki að ég er önnum kafinn við 1 að losa krullupinnann úr lokkn- um mínum? Sirrí sæta: Hversvegna færðu þér ekki vinnu í SÍS eins og annað fólk í stað þess að skvett- ast um alla skóga eins og ein- hver Tarzan? Afi steggur: Bra-bra (þýð: Mikill fjári, Andy er þiá tík eftir aHt). Andy: O, Ett ’ann sjálfur! Sigríður: Ég er orðin dauðupp gefin á þér Markús, og þar sem ég hef verið leynilega gift hon- um Ferdinand í öll þessi ár, þá Markús: Minnið naig á að lýsi ég hérmeð frati á þig og skrifa og kvarta yfir lyftunni í fer mína leið. Framvegis mun ég þessum hjalli. búa á blaðsíðu 6, niðri. Bæ, bæ! SÖGCLOK II. _ Hjálp! — Sirrí! Eg er að koma! Vertu kyrr . . . Ó, nú ætti ljósmyndari Morgunblaðsins að vera hér! — Hetjan mín! — Jæja elskan! Þar sem við höfum lifað í synd svona lengi, hélt ég það gæti verið tilbreyting að því að ganga í það heilaga, svo ég tók prestinn með mér! — Og eftir vígsluna gef ég ykk ur tvo miða í Háskólabíó! aitltvarpiö I Laugardagur 14. október 8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 8:05 T6n leikar. — 8:30 Fréttir — 8:35 Tón leikar. — 10:10 Veðurfregnir). 12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. 12:25 Fréttir og tilkynningar). 12:55 Oskalög sjúklinga (Bryndís Sig* urjónsdóttir). 14:30 Laugardagslögin. — (Fréttir ki, 15:00 og 16:00). 16:30 Veðurfregnir. 18:30 Tómstundaþáttur bama og ungl inga (Jón Pálsson). 18:50 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr. 19:30 Fréttir. 20:00 Einleikur á hörpu: Nicanor Zabn leta leikur lög eftir de Huete. Coelho, Nadérmann og Labarre, 20:15 Leikrit: „Víst ertu skáld, Kristó* fer!“ eftir Bjöm-Erik Höjer, I þýðingu Þorsteins Ö. Stephen^ sens. — Leikstjóri: Helgi Skúla* son. 20:55 Ur einu í annað: Guðmunduf Jónsson bregður hljómplötum á fóninn. 21:40 Upplestur: „Fjúk“, smásaga efti* Þóri Bergsson (Andrés Björns-* son). 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Danslög. — 24:00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.