Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						24 síðm

muhl^Mb

49. árgangur

251. tbl — Föstudagur 9. nóvember 1962

Prentsmiðja Morgunblaðsins

Havana, New York,

Wasfaington, 8.  nóv.

AP-NTB.

ALX.T bendir nú til þess, að

viðræður Anastas Mifcoyan, vara

utamrikisráðherra Sovétríkjanna,

©g Fidel Castro, f orsætisráðherra

Kúbii, gangi mjög erfiðilega. Er

jafnvel talið, að Mikoyan hafi

ekkert orðið ágengt þá sex d-^ga,

er hann hefur dvalizt á Kúbu.

Er helzt að sjá, sem f jandskap-

ur ríki milli Castros og Mikoy-

ans. í gærkvöldi, er 45. ára af-

mælis rússii.t'sku byltingarinnar

var minnzt með hófi í Havana,

þar sem Mikoyan var heiðurs-

gestur, létu þeir ekki sjá sig,

Castro, bróðir hans, Raoul

Castro, landvarnarráðherra, og

iðnaðarmálaráðherranai, Che Gu-

evara.

Castro mun hafa neitað með

öllu, að erlendar eftirlitsnefndir

komi til Kúbu, nema því aðeins,

að Bandaríkin fallizt á kröfu

Sína, í fimm liðum, sem með-

al annars gerir ráð fyrir því, að

herstöðin í Guantanamo verði

lögð niður.

Mikoyan er sagður fylgja

sveigjanlegri stefnu, þ. e. að

Bandaríkin tryggi það, að ekki

verði gerð árás á Kúbu. Kröfur

Castros verði ræddar síðar.

Talsmaður Bandaríkjaforseta,

Lincoln White, sagði í dag í

Washington, að Bandaríkin legðu

áherzlu á það, að komið yrði við

eftirliti, á landi, á Kúbu. Krefj-

ast Bandarikjamenn þess, að auk

eldflauganna verði farið á brott

með 20 sprengjuþotur af 11-28

gerð, og vísa til ummsela Krús-

jeffs, þar sem hann bauð að fjár-

lægja pll þau vopn frá Kúbu,

„sem Bandaríkin teldu árásar-

vopn".

Samkomulag -hefur náðst milli

Bandaríkjanna og Sovétríkjanna

um að bandaríski flotinn hafi

eftirlit með skipum þeim, er fara

nú  frá Kúbu,   þannig,  að hægt

Framh. á bls. 23.

Talið frá vinstri: Ónefndur marskálkur, Voroshilov, fyrrv. forseti, Malinovsky, varnamálaráðherra, Krúsjeff, forsætisráðherra,

og Brechnev.

„Flokksfjandinn" Voroshilov

af tur á grafhýsi Lenins

SVO sem venja er á afmælis-

degi rússnesku byltingarinn-

ar, var mikið um að vera í

Moskvu á miðvikudaginn, á

45. afmælisdegi byltingarinn-

ar. — Meðfylgjandi myndir

voru teknar meðan fram fór

mikil hersýning og sýning

hinna margvíslegustu her-

gagna. Önnur myndin sýnir

áhrifamenn og leiðtoga Sov-

étríkjanna nú, J»ar sem þeir

standa á grafhýsi Lenins og

horfa á hersýninguna. — A

myndinni eru, talið frá hægri:

Leonid Brechnev, forseti,

Nikita Krúsjeff, forsætisráð-

herra, Rodion Malinovsky

marskálkur, landvarnaráð-

herra,    Klementi    Voroshilov

marskálkur, fyrrverandi for-

seti og loks marskálkur, sem

ekki er vitað hvað heitir.

Þessi mynd minnir á fregn-

irnar af byltingarafmælinu í

fyrra, þegar Voroshilov, fyrr-

verandi forseta, var vísað

burt, er hann ætlaði að ganga

til sætis í heiðursstúkunni,

þar sem hann hafði átt fast

sæti mörg undanfarin ár.

Varð hann síðan að standa

fyrir framan grafhýsið við

hliðina á konu, sem seldi

rjómaís.

Þá var í Kreml nýlokið 22.

flokksþingi kommúnista, þar

sem haldið var uppi heiftar-

legum árásum á marga fyrr-

verandi    forvígismenn    Ráð-

stjórnarríkjanna — fyrst og

fremst þá Malenkov, Molotov,

Bulganin, Voroshilov og Kag-

anovitsj. Þeir voru einu nafni

nefndir „óvinir flokksins og

Sovétríkjanna" — siðar

„flokksfjendur" — og sakaðir

um ólöglegar handtökur, mis-

þyrmingar og morð þúsunda

saklausra flokksfélaga.

Meðan á hinum harðvítugu

árásum á Voroshilov stóð,

reyndi hann hvað eftir annað

að grípa fram í fyrir ræðu-

mönnum, en var jafnan skip-

að að þegja. Ekki varð úr, að

hann fengi nokkru sinni að

tala, en undir lok þingsins

var lesið upp frá honum bréf,

þar  sem  hann  játaði  syndir

sínar og sagði frá skiptum

sínum við hina „flokksfjend-

urna". Sagði Voroshilov í

bréfinu, að hann hefði ekki

gert sér grein fyrir því, fyrr

en árið 1957, að menn þessir

ynnu skemmdarstarf í flokkn-

um og þá hefði hann sagt

skilið við þá að fullu. For-

dæmdi hann aðgerðir þeirra

og kvaðst iðrast gerða sinna.

Er bréfið hafði verið lesið,

flutti Krúsjeff ræðu og fyrir-

gaf Voroshilov drýgðar synd-

ir. Sagði forsætisráðherrann

mál hans þess eðlis, að taka

bæri á því með mildi og

skilningi. Hann hefði greini-

lega verið notaður „óafvit-

andi", af gömlu Stalínistun-

um, en séð að sér í tíma og

forðast þá fugla upp frá því.

Væri mál hans allt annars

eðlis en t.d. mál þeirra Malen-

kovs og Molotovs — þeir

væru ekki annað en þver-

hausar, sem ekki skildu, að

tímar og viðhorf væru breytt.

Akafar kröfur komu fram

um það á flokksþinginu, að

„flokksfjendurnir" yrðu rekn-

ir úr flokknum, en lyktir

málsins á þinginu urðu, að

framkoma þeirra og verk

voru fordæmd, — en þótt

fordæmingu væri lýst á hin-

um „alvarlegu mistökum"

Voroshilovs, var tekið til

greina, að hann hefði „að

vissu leyti stuðlað að því að

upp komst um „flokksfjend-

urna" ".

Það síðasta, sem svo hefur

heyrzt frá Voroshilov, er

grein sú, er birtist eftir hann

í „Pravda", málgagni komm-

únistaflokksins, eftir að Krús-

jeff hafði fallizt á að rífa nið-

ur eldflaugastöðvarnar á

Kúbu. Hvatti Voroshilov til

einingar innan flokksins. Er

líklegt talið að hann hafi með

þessari grein átt að draga úr

óánægju þeirra afla í Sovét-

ríkjunum sem andstæð hafa

verið Krúsjeff, nú síðast í

Kúbumálinu.

Eldflaugasýning á Rauða torgi

7. nóvember sl. Eldfiaugarnar

sem sendar voru til Kúbu

munu vera af þessari gerð.

•«• <i««wtr*«vA

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24