Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 14. tölublaš og Lesbók barnanna 2. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						6

MORCVNBLAÐIÐ

Fðstu'dagur   18.   Janúar   1963

Pétur   Sigurðsson,   ritari   Sjómannafélags   Reykjavíkur:

Árásir kommúnista á forystu-

menn Sjómannafélagsins

A Ð undanförnu hafa margir

spurt mig hvað valdi hinum ofsa

legu árásum kommúnista á frá-

farandi stjórn Sjómannafólags

Reykjavíkur og einstaka meðlimi

þess ,en níðskrif þeirra og rógur

á síðum Þjóðviljans og dóttur-

blaðs þeirra svokölluðu „Sjó-

mannablaði", yfirgengur alit sem

áður hefur skeð á þessu sviði í

sögu íslenzkrar verkalýðshreyf-

ingar. Eg hefi einnig verið spurð

ur hversvegna þessum skrifum

kommúnista sé etoki svarað frek

ar en raun ber vitni um.

Ég hefi bent fyrirspyrjendum á

að ég hafi leitazt við eins lengi

og hægt hafi verið, að halda þess

um málum innan félagsins, hafi

m.a. svarað litlu einu af fyrri

árásum þeirra í blaði þess fyrir

stuttu. I því svari mínu tók ég

aðeins lítilsháttar af öllu því

sem fram hafði verði borið, til

meðferðar, og svaraði helztu

rangfærslum kommúnista á til-

tölulega hógværan hátt.

Viðbrögð kommúnista í Þjóð-

viljanum urðu hinsvegar þau að

þeir urðu agndofa af undrun og

skelfing yfir þv>í að ósannindi

og óhróður þeirra væri hrakinn

að nokkru. Þeir eru vanari hinu,

að „terrorisera" andstæðinga

sína í verkalýðshreyfingunni,

ráðast að þeim með skömmum

og svikabrigzlum, óhróðri og ó-

sannindum á síðum þjóðviljans

og nota sömu aðferð auk beinna

hótana á vinnustöðvunum. Gott

dæmi um þetta eru aðferðir

sumra kommúnista við þá póli-

tísku andstæðinga sína, sem hafn

arvinnu stunda í Reykjavik, en

þár hefur þessum aðferðum ó-

spart verið beitt. Og mörg dæmi

eru kunn um menn sem bein-

línis hafa flúið þann vinnustað

og aðra af þessum sökum.

Ef þetta eru ekki atvinnuof-

sóknir, hvað telst til þeirra þá?

Nú þurfa þessir „herramenn"

ekki að halda að þeir noti með

árangri þessa aðferð við mig eða

aðra stjórnarmenn í S.R. Þótt

okkur greini á um margt erum

við sammála um, að kommúnist

ar og handbendi þeirra innan

verkalýðshreyfingarinnar og ut-

an, eru mestu óþurftarmenn, sem

eitt  lýðræðisfélag  getur alið.

Það mun verða enn Ijósara á

næstunni, en verið hefur, að ráð

andi kommúnistar í verkalýðs-

hreyfingunni hafa ekki aðeins

staðið í vegi fyrir eðlilegri og

heilbrigðri þróun í samskiftum

þeirra aðila, sem vinnumarkað-

inn skipa, heldur haft af laun-

þegum stórfé með aðgerðum sín

um. Það situr því sízt á fram-

bjóðendum kommúnista í S.R.

að ráðast að stjórnendum þar,

fyrir þær aðgerðir ríkisvaldsins

sem gerðar voru til að bjarga

hagsmunum heildarinnar og fyr

irbyggja meira tjón, en orðið

var, á síðastliðnu sumri.

Árásir kommúnista á S.R. að

þessu sinni, eru ekki sízt vegna

þess að þeim er kunnugt um

þessar skoðanir okkar á starfi

þeirra og að innan Sjómanna-

félagsins má finna marga af hörð

ustu andstæðingum kommúnista

innan   verkalýðshreyfingarinnar.

En sem aðalsvar við spurning-

unni i upphafi þessa máls tel ég

þó vera þá staðreynd, sem þeim

er ekki síður kunn, en öðrum

sem með málum þessum fylgjast,

að kommúnistar eru nú á hröðu

undanhaldi í verkalýðsfélögunum

þeir tapa fylgi hvarvetna sem

kosningar fara fram. Það örvænt

ingarfulla tilræði sem gert er

að Sjómannafélaginu, einu

stærsta stéttarfélagi landsins,

hefði, ef það heppnaðist, í för

með sér alger yfirráð kommún-

ista yfir öllum 'samgöngum til

sjós og lands, yfir það stórum

hluta verkalýðshreyfingarinnar,

að aðrir andstæðíngar þeirra

yrðu varnarlausir. Þeir gætu á

fáum vikum lamað svo allt at-

hafnarlíf hér á landi, að ringul-

reið, skortur og upplausn mundi

ríkja, og þá tæki við uppskeran

úr þessum frjóa akri kommúnista

Það bragð þeirra, að gera hróp

að öldruðum sjómönnum sem enn

halda tryggð við félag sitt, sem

vita manna bezt, að hagsmunum

sjómanna er betur borgið í allra

annara höndum, en kommúnista,

bregst algerlega.

Það er ekki hægt fyrir menn

eins og Árna Jóhannsson og Sig.

Breiðfjörð, að hræða þessa gömlu

baráttumenn, sem áttu allt blóma

skeið ævi sinnar í röðum sjó-

manna, sem börðust við vald

atvinnurekanda,   þegar   því   var

beitt á þann veg, sem eldri kyn-

slóðin þekkir öllum betur.

Enda sjá allir, eins og ég benti

á í fyrrnefndu svari mínu í gegn

um þennan loddaraleik kommún

ista. Þeir telja það hina mestu

goðgá, að menn sem stundi önn

ur störf eftir að þeir koma í

land, eða milli þess, að þeir fari

til sjós haldi sig í sínu gamla

stéttarfélagi, hafandi það í huga,

að í S.R. fær enginn að taka þátt

í ákvörðunum um kaup og kjör

nema þeir hafi verið skráðir á

skip tilheyrandi viðkomandi

starfsgrein, á yfirstandandi ári,

Þessu halda þeir fram á sama

tíma og ofurvald kommúnista á

verkalýðssamtökunum er byggt

á setu manna í verkalýðsfélögum

sem alls ekki eiga heima þar, og

með því að halda utan einstakra

félaga og heildarsamtakanna,

þeim sem eiga þar fullan félags-

rétt.

Þetta m4 sanna með ótal dæm

um.

Þeir telja það gangi glæpi

næst, að ég eigi sæti i stjórn S.R.

því ég hafi komizt klakklaust í

gegnum Stýrimannaskólann, á

sama tíma og þeir stilla upp

starfandi skipstjóra við stjórn-

arkjör nú, auk sölumanns hjá

einu stærsta heildsölufyrirtæki

landsins. Og svona til að krydda

framboðið hafa þeir bætt við

Árna, Jóhannssyni, en hann sit-

ur fundi Dagsbrúnar og gengur

erinda kommúnista þar og ætti

aamkvæmt fullyrðingum sjálfs

sín að vera í Matsveinafélaginu.

Þessum sama Árna þykir að von

um slæmt að einn af félagsmönn

um okikar skyldi flytjast til Kaup

marínahafnar   á   nýliðnu   ári   og

vera þvi á kjörskrá nú skv. lög

um félagsins. Honum finnst hins

vegar ekkert að því, þótt trú-

bræður hans hafi í framboði við

síðustu A.S.Í. kosningar, bónda

vestur í Dölum, sem hefur búið

þar góðu búi í nokkur ár. Hon-

um finnst líka bölvanlegt að tveir

aldnir S.R. félagar sem vinna í

Áburðarverksmiðjunni verka-

mannastörf (skv. samningi við

Dagsbrún, en tugir ef ekki hundr

uð Dagsbrúnarmanna stunda sjó

hluta úr árinu) skuli enn vinna

fyrir félag sitt og neyta atkvæð

isréttar síns við stjórnarkjör, en

þarna vinna fleiri meðlimir S.R.

Á þá minnist Árni ekki, því hann

telur þá til stuðningsmanna

sinna.

Árna og blaði hans ÞjóS-

viljanum finnst einnig að starf-

andi stýrimenn megi alls ekki

vera í félaginu nema þeir séu

kommúnistar. Yfirmenn flestir

vita þó manna bezt að uppruna

allra kjarabóta meðal sjómanna

æðri sem læri, er að finna í

starfi S.R. og á fiskiskipum er

kaup þeirra miðað við þau kjör

sem nást til handa hásetum.

Einnig má benda á, að kommún-

istar í verkalýðshreyfingunni á-

samt fleiri aðilum hafa mótað

þá stefnu í skipulagsmálum

hennar að allir sjómenn háir

sem lágir eigi að vera í sömu

samtökunum.

En Moskvumálgagnið ræðst að

þeim, sem gegna yfirmannsstörf

um, ef þeir styðja lista lýðræð-

issinna, en af kommúnistinn Guð

björn Jensson skipstjóri kýs í

Sjómannafélaginu, er það gott og

blessað.

Til að kóróna kosningafylgi-

lista „starfandi sjómanna", létu

þeir nýlega Einar Gunnar Einars

son kjósa, en Einar rak til

skamms tíma lögfræðiskrifstofu

hér í bæ og stundaði auk þess

umfangsmikla   fasteignaverzlun.

Ekki hefur fyrrv. formaður

Æskulýðsfylkingarinnar         Jón

Norðdahl látið á sér standa, en

hann er betur þekktur af störf-

um sínum við raflagnir 02 raf-

tækjaheildverzlun, en sjó-

mennsku.

Nei í gagnrýni sinni á stjórn

endur S.R. og einstaka meðlimi

þess,  eru kommúnistar að kasta

-fc    Enn um Lídó

Það var mikið dreng-

skaparbragð við æskufólk höf-

uðstaðarins, þegar Þorvaldur

Guðmundsson, forstjóri, opnaði

því hin glæsilegu salarkynni

veitingahússins Lídó á síðastl.

hausti undir kjörorðinu:

Skemmtið ykkur án áfengis.

Þorvaldur hafði rekið Lídó

árum saman sem vínveitinga-

hús, — og eitt bezt sótta hús

sinnar tegundar — og því ekk-

ert eðlilegra en að hann héldi

þeim rekstri áfram. En em"

stöku menn geta átt það til að

fórna persónulegum hagsmun-

um fyrir hugsjónir sínar, og

þetta gerði Þorvaldur. Hann

trúði því, að hægt væri að reka

skemmtistað    fyrir    æskufólk,

sem ekki neytti áfengis, og

hann framkvæmdi þessa hug-

mynd sína á eigin kostnað,

enda þekktur að því að fram-

kvæma það sem honum dettur

í hug, flestum mönnum betur.

Kjörorði þessa æskulýðsstaðar

lætur hann framfylgja af ein-

stæðum myndugleik, og ekki

er vitað til, að þar hafi sézt

vín á nokkrum utan tveim

strákum fyrsta kvöldið, sem

það var opnað. Var þeim vísað

á dyr og gert ljóst, að þeir

ættu þangað ekki afturkvæmt,

— en gestum tilkynnt um há-

talara, að hér yrðu reglur haldn

ar án undantekninga og lin-

kindar, hver sem í hlut ætti.

Og þegar er fengin reynsla fyr-

ir því,  að þeir foreldrar,  sem

grjóti úr glerhúsi. Og vandséð

er hvor hópurinn um sig, lýðræð

issinna eða kommúnista tapaði

meira fylgi ef þeim yrði að

þeirri ætlan sinni að svipta

fjölda manna félagsréttindum.

Hinsvegar hefi ég aldrei borið

á móti því að margt gæti betur

farið í stjórn félagsins og skipu

Iagsmálum þess. Hinu mótmæli

ég harðlega aS ekki sé í alla staði

fylgt lögum félagsins og lögum

og   reglum   Alþýðusambandsins.

Meðan kommúnistar beita sam

tökum verkalýðsins sér til póli-

tísks framdráttar, þar sem þeir

koma þvi við, byrjar S.R. ekki

á róttækum skipulagsbreytingum

að kröfu kommúnista, nema þeir

liti í eigin barm.

þeir ættu t.d. að líta gaumgæfi-

lega á félagaskrá Dagsbrúnar og

athuga kennarafylgi sitt þar,

þeir ættu að stugga viS hinum

mikla fjölda atvinnurekenda iðn

aSarmanna og embættismanna í

Þrótti á Siglufirði og Vkvf. f

Neskaupstað .Þeir ættu að rann

saka ýtarlega hvernig fulltrúar

geta komið á A.S.f. þing sena

eWki hafa haldið fundi árum

saman. Og áður en þeir mæla

fyrir lagabreytingtun sínum á

aðalfundi n.k. sunnudag og hafa

í för með sér skiptingu Sjómanna

félagsins í marga hluti, ættu þeir

að líta til Akureyrar, en þar sam

eina þeir stór verkalýðsfélögt,

isjálfum séir og félögunum til

styrktar.

Um hin einstöku mál í sam-

bandi við störf stjórnar og árang

ur í kjaramálum verður að sjálf

sögðu rætt á aðalfundi. En ó-

þarft er fyrir Árna Jóhannsson

og þá félaga hans sem gerzt

hafa trúboðar Stalíns í S.R. að

tileinka sér það sem núv. stjórn

hefur vel gert og átt þátt að.

Vaðall þeirra, brigzl og ósann

ar fullyrðingar er létt í öskum

íslenzkra  launþega.

Ég skora að síðustu á alla Sjó-

mannafélaga að neyta atkvæðis-

réttar síns og mæta á aðalfundi

félagsins n.k. sunnudag.

Pétur   Sigurðsson

ritari S.R.

**  M

^

kv«»c x ml

r



vita af börnum sínum í Lídó,

geta verið örugg um, að þau

eru ekki í neinum áfengisháska

meðan þau eru þar. Er þetta

þakkarvert og ætti að vera góS-

templurum og öSru bindindis-

sinnuðu fólki til fyrirmyndar

og hvatningar um að halda opn

um vínlausum skemmtistöðum

fyrir æskufólk með þeim fríð-

indum, sem templurum er gef-

in.að lögum en það er: enginn

skemmtanaskattur og engar

greiðslur fyrir löggæzlu, sem

allir aðrir verða að inna af

hendi.

-^    Erfitt   um   framkv^md

laganna

í áfengislögunum stendur,


að eigi megi selja né veita ungl

ingum innan 21 árs áfengi. En

komist unglingar undir þeim

aldri inn á vínsöluhús er ekki

á nokkurs manns valdi aS fram

fylgja þessu lagaákvæSi. í

fyrsta lagi er hér engin passa-

skylda, — en hún þyrfti að

vera —, og í öðru lagi geta

unglingar undir lögaldri fengið

velflesta fullorðna til að panta

og kaupa fyrir sig áfengi. Þar

með er gríman fallin og allt að-

hald komið úr reipunum.

•* *.***"

Síðan Lídó var opnað, sem

æskulýðsstaður bregður svo

kynlega við, að hvergi sjást

opinberar kvartanir um að ungl

ingum innan 21 árs sé nokkurs

staðar meinaður aðgangur. —

Sýnir þetta ljóslega, að þessi

aldursflokkur fær alls staðar

inni, á vínsöluhúsum, — og það

sýnir ennfremur, að sú lög-

gæzla, sem greidd er af al-

mannafé, svo og sú löggæzla,

sem greidd er af veitingahús-

unum sjálfum, samkvæmt

reikningi frá dómsmálaráðu-

neytinu, er að öllu gagnslaus.

Um dans- og skemmtistaði

— aðra en Lídó — er þess þrá-

faldlega getið í fréttum, og

þykja nú reyndar ekki lengur

mikil tíðindi, aS vegna al-

mennrar ölvunar hafi orSiS að

kalla til öflugt lögreglulið til

að skakka leikinn, til viSbótar

því lögregluliSi, sem gætir

stöSugt hvers staSar fyrir sig.

HvaS veldur þessum slapp-

leika eftirlitsins? Hvernig stend

ur á því, að þaS sem blessast

á Lídó, — gengur ekki á hin-

um   dans-   og   skemmtistöSun-

um? —       _.

^.      Faðir.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24