Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 14. tölublaš og Lesbók barnanna 2. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						8

MORCUNBLAÐIÐ

Fðstudagur   18.   janúar  1963

Skoðanir heirra

UNDANFARNA mánuði hefur deilan milli

greindi þá á um einstök atriði Marx-Lenin

ur ríki um grundvallaratriði, og telja sum

vikunni, sem leið, birti Alþýðudagblaðið í

Kínverja. Svar við því kom að vörmu spo

betra tækifæri, en nokkru sinni áður, til að

stærstu kommúnistaríkja heims.

Rússa og Kínverja farið harðnandi. Fyrst

isma, en nú virðist sem alger skoðanamun-

ir, að hreinn klofningur sé framundan. — í

Feking, málgagn Mao-Tse tung, afstöðu

ri í Pravda, málgagni Krúsjeffs. Gafst því

bera saman skoðanir ráðamanna tveggja

MAO

Það skiptir ekki máli, hve góðum vopnum heimsvaldasinnar hafa yfir að

ráða, hvort um er að ræða byssur, skriðdreka, eldflaugar eða kjarnorkuvopn

__ framkoma þeirra og hegðan einkennist af hugleysi. Þeir, sem misst hafa

sjónar á þessari staðreynd, hafa augsýnilega glatað þeim hæfileika, sem hverj-

um byltingarsinna er nauðsynlpffur, en í þess stað orðið skammsýnir og

hræddir eins og mýs.

UM   KAPITALISMA                                           kríjsjeff

Við höfum ekki þörf fyrir skjalfestar skýrgreiningar, sem neyða á okkur

til að viðurkenna, heldur þörfnumst við heiðarlegrar athugunar á heimsvalda-

stefnu nútímans, þar sem tekið er tillit til kjarnorkuvopna og annars herbún-

aðar. Sú skoðun, að heimsvaldasinnar séu huglausir, leiðir til þess, að alþýðan

er ekki lengur á verði og verður þeirrar skoðunar, að trúin á styrk heims-

valdasinna sé aðeins sögusögn.

MAO

Við lögðum hvorki til, að reistar yrðu eldflaugastöðvar á Kúbu, né heldur

reyndum við að standa í vegi fyrir, að þær yrðu lagðar niður. Það, sem við

beitum okkur gegn, er, að sjálfstæði þjóðar sé fórnað til þess eins að koma

til móts við heimsvaldasinna. Þetta er 100% undanhald, sem líkja verður við

Munchenarsamningana.

KUBUMALIÐ

KRÚSJEPF

Nú, þegar hættan er að mestu liðin hjá, þá reyna „vinstrisinnaðir orð-

hákar' að láta líta út sem Sovétríkin hafi gefizt upp. Þeir, sem komið hafa

fram með kenninguna um „Miinchenarsamningana á nýjan leik", eru greini-

lega ekki kunnugir grundvallaratriðum sögunnar og vita ekki, hvað þeir

tala um.

MAO

Sagen greinir ekki frá því, að eitt einasta land hafi snúið frá kapitalisma

til sósiahsma á friðsamlegan hátt. Þeir, sem ekki gera lengur neinn greinar-

mun á réttmætum og óréttmætum styrjöldum, hafa tekið upp stefnu „borgara-

legra friðarsinna". Styrjöld myndi óumflýjanlega leiða til sigurs sósíalismans

og falls heimsvaldasinna.

UM   STYRJALDIR

KRÚSJEFF

Kjarnorkustyrjöld myndi verða mikil hindrun í vegi þróunar nýs þjóðfé-

lags, sem þá yrði að reisa á rústum. Þegar allt kemur til alls, þá er það ekki

stefna alþýðunnar að deyja á „mikilfenglegan" hátt, heldur að lifa hamingju-

samlega. Kommúnistar geta ekki hagað sér eins og þessir ábyrgðarlausu penna-

skussar, sem leika sér að lífi fólks.

MAO

Þeir kunna ekki að meta þann neista byltingar, sem verið er að tendra

meðal vanþróaðra landa; þeir segja, að lítill neisti geti kveikt ófriðarbál. Sé

málið tekið til athugunar, þá er afstaða þeirra þessi: fólk í kapitalistalöndum

á ekki ?ð gera uppreisn; fólk í kúguðum löndum á ekki að berjast fyrir frelsi

sínu;  íbúar  heimsbyggðarinnar  eiga   ekki   að  berjast  gegn  heimsvaldasinn-

um___  endurskoðunarstefna er eiturlyf fyrir fólkið. Það er heillandi músík,

þrælurn til hugarhægðar.

UM   BYLTINGU

KRtSJEFF

Það verður að segja eins og er. Frá tímum Trotskys hafa engir tækifæris-

sinnar gripið til svo skelfilegra ráða, sem algerlega draga dul á sannleikann.

Þeir íela uppgjöfina með hástemmdum byltingarslagorðum, sem verka eiga

á tilfinningar almennings. Það yrði ákaflega skaðsamlegt, ef reyna ætti, í

heimi, sem ei sífelldum breytingum undirorpinn, að koma öllum byltingarað-

ferðum í fast form, eins og þeir reyna að gera, sem sífellt eru með órökstuddar

fullyrðingar. I stað þess að vinna að framgangi byltingarinnar, reyna þeir að

kæfa hana.

MAO                                                 UM   KLOFNINGINN

Allir þeir, sem þora að halda fram sannleikanum, eru ekki hræddir við að

vera í minnihluta um stundarsakir. Hinir, jafnvel þótt þeir séu í meirihluta,

geta ekki komið í veg fyrir sitt eigið gjaldþrot. Það getur heyrzt hátt í þeim,

en meirihluti þeirra er yfirborðsskennt gervifyrirbæri. Við munum aldrei gef-

ast upp fyrir and-Marx-Leninistum. Útúrsnúningar eru gagnslausir; átölur

hafa ekki gert okkur neitt mein.

KRt'SJEFF

Það fer ekki hjá því, að kommúnistar hafi miklar áhyggjur af þeirri

kenningu, að innan alþjóðakommúnismans sé nú um að ræða „tímabundinn

meirih'ula", sem „neitar að viðurkenna mistök sín" og „tímabundinn minni-

hluta", sem .berst fyrir sannleikanum". Þessi kenning sýnir klofning í röðum

okkar. Það, sem kommúnisminn þarfnast, er ekki skipting í meiri- og minni-

hluta, heldur eining, eining, og aftur eining.

—   Bæjarstjórn

Framih.   af   bls   2

að hægt sé að bæta rekstur SVR

með  kaupum  á  nýrri     tegund

vagna i dag.

>b) Rekstursafkoma SVR verð

ur bezt bætt með auknu tækni-

legu eftirliti og viðgerðarþjón-

ustu og eftirliti með aksturs-

hæfni vagnstjóra.

e) Eftir að rekstursnýting nú

verandi tækja er komin á viður

kenndan „standard" miðað við

íslenzkar aðstæður, er ástæða til

að gera víðtæka athugun og satn

anburð á öðrum vagnategundum

og leita síðan tilboða í þær teg

undir, sem til greina koma.

d) Samkvæmt framanrituðu

mæli ég gegn því, að vagnateg-

undum hjá SVR verði fjölgað

að sinni. Eg mæli hins vegar

með því ,að þeir vagnar, sem

fceyptir verða nú, séu af tegund

inni Volvo B-655."

Á grundvelli þessara aíhug-

una, athugun forstjóra IR á

reynslu af LeySand-vögnum í

Osló og Kaupmannahöfn, athug

un forstjóra SVR á reynslu

sömu vagna í Bergen og víðar,

og auglýst var eftir tillboðum í

strætisvagna almennt og tilboð

umboðsmanna Leyland var að-

eins 3% lægra en tilboð Volvo, sá

stjórn IR ekki ástæðu til að

fjölga vagnategundum að þessu

sinni.

Þar sem Óskar Hallgrímsson

hafði látið að því liggja í ræðu

sinni, að einhver annarleg sjónar

niið — en ekki sérfræðileg rann

sókn — hefði ráðið því ,að Mer-

cedes Benz og Volvo vagnar voru

valdir, þegar ákveðið var að

fsekka tegundum vagna hjá SVR,

vakti SM athygli hans á því, að

bæjarráð hefði á sínum tíma skip

að nefnd sérfróðra manna til

þess að gera tillögur um það,

hvaða vagna væri hentugast að

kaupa til endurnýjunar á vagna-

kosti SVR. Um þetta atriði hefði

nefndin sagt svo í áliti sínu:

„Af þeim tilboðum og upplýs-

ingum um nýja dieselvagna, sem

fyrir lágu hjá SVR og nefndinni

hefúr tekizt að afla sér, en hún

sendi fyrirspurnir til allra bila-

innflytjenda í bænum, sem ekki

höfðu   áður   sent   tilboð,   og   til

greina gátu komið, telur hún, að

aðeins  eftirfarandi  þrjár tegund

ir henti staðháttum hér í bæ:

Merceres Benz, þýzkur.

Scania Vabis, sænskur.

Volvo, sænskur.

Nefndin er þeirrar sfcoðunar,

að eðlilegt væri, að keyptar yrðu

nú tvær tegundir dieselvagna

helzt frá tveimiux londum, ef

núverandi ástæður að öðru leyti

leyfðu, til þess að hægt væri

sem fyrst að gera samaniburð á

gæðum þeirra og notagiddi, en

fullnægjandi reynsla er ekki

fengin hér á landi fyrir hinar

ýmsu  tegundir  dieselvagna.

Eftir þeim upplýsingum, sem

nefndin hefur í höndum um Scan

ia Vabis-vagninn, er hann dýr-

ari en svo, að hann geti komið

til greina nú, samanborið við

hinar tvær tegundir framan-

greindra  dieselvagna.  Auk þess

er ekki vitað uim afgreiðslutíma

þessa vagns né önnur mikilvæg

atriði, er nefndin hefur spurzt

fyrir um, svo sem gerð vagn-

grindar  o.þ.h.

Verð hinna dieselvagnanna —

Mercedes Benz og Volvo — mun

vera svipað, og vitað er, að

grindur Volvo-vagnanna eru atf

réttri stærð og gerð fyrir yfir-

byggingar SVR án nokíkurra

breytinga. Hins vegar virðist

ekki hægt að nota þær á Merc-

edes Benz-undirvagna nema

breyta  þeim  nokkuð.

Framangreind ummæli nefndar

innar sýna, svo ekki verða born-

ar brigður á, að ekkert hefur

annað ráðið ákvörðun um val á

vagnategundum en hagkvæmnis

sjónarmið, sagði SM.

Loks benti SM á að nær allar

langferðabifreiðar, sem keyptar

hafa verið til landsins á undan-

förnum árum^ hafa verið af Merc

edes Benz, Volyo og Scania Vab-

is-.gerð, en SÍS, sem á sínum

tíma hafði umboð fyrir Leyland,

flutti inn nokkra tugi bifreiða

af þeirri tegund, en lét umboð-

ið síðan af hendi við annan að-

ila.

Guðmundur Vigfússon (K) og

Kristján Benediktsson (F) tóku

undir ræðu Ósikars Halligríms-

sonar og endurtóku m.a. aðdrótt-

anir hans í garð stjórnenda SVR

meirihluta stjórnar IR ag meiri-

hluta sjálfstæðismanna í borg-

arstjórn um, að pólitísk sjónar-

mið hefðu ráðið þvd, hvaða vagn

ar hafa verið keyptir fyrir SVR.

Geir Hallgrímsson, borgarstjóri,

minnti á það,  að á sínum tíma

hefðu allir verið sammála um, að

fækka bæri þeim tegundum

vagna,. sem SVR hefði í notkun,

og þær tegundir sem á undan-

förnum árum hafa verið keypt-

ar, voru valdar eftir gagngerða

rannsókn sérfræðinganefndar og

eftir að útboð hafði farið fram.

Hins vegar væri sjálfsagt að taka

slíkar ákvarðanir til endurskoðun

ar með tilteknu millibili og bæði

fylgjast sérstaklega með því,

hvort hentugri tegundir kæmu

fram og gallar kæmu fram á

þeim bifreiðum, sem í notkun

eru. Samþykkt stjórnar IR mið-

aði að hinu síðarnefnda með

hinni tæknil. athugun, sem fyrr

er nefnd, og bar borgarstjóri

fram eftirfarandi tillögu sem

viðaukatillögu við samþykkt IR

og breytingartillögu við fram-

komna tillögu Óskars Hallgríms-

sonar:

„Jafnhliða tæknilegri athugun

á reynslu og notagildi núver-

andi vagnakosts SVR skal fara

fram ítarleg rannsókn á öðrum

tegundum almenningsvagna, er

til greina gætu komið til notk-

unar fyrir SVR. Er stjórn IR

heimilt að kveðja sér til aðstoð-

ar í þessum efnum nefnd sér-

fróðra manna, er vinni að þess-

um málum í samráði við for-

stjóra SVR og forstjóra og stjórn

IR Ber i þeim efnum sérstak-

lega að taka til athugunar — og

ef rétt þykir undirbúa — útboð

um kaup á  strætisvögnum".

Samþykkti borgarstjórn þessa

tillögu borgarstjóra með 9 at-

kvæðum gegn §.

Vegna  ummæla  Óskars  Hall-

grímssonar um Leyland-vagna

vakti börgarstjóri athygli á

þeirri skoðun forstjóra strætis-

vagnanna í Bergen, að hann

legði Leyland og Volvo að

jofnu. Spurningin er því þessi:

Eigum við að fjöl.-ra tegundum

strætisvagna — með þeim ókost-

um, sem allir eru sammála um,

að séu því samfara að hafa of

margar tegundir í notkun — og

festa kaup á vögnum, sem taldir

eru að vísu jafngóðir þeim, sem

nú   eru notaðir, en ekki betri?

Itrekaði borgarstjóri þá skoð-

un sína, að full ástæða væri að

taka til endurskoðunar tegunda-

val á vögnum SVR, en þvi

mætti ekki gleyma — eins og

fulltrúar minnihlutaflokkanna

virtust gera — að þar kæmu þá

vissulega til greina fleiri teg-

undir en sú ein, sem þeir hefðu

minnzt á. — Að lokum lét borg-

arstjóri í ljós undrun sína yfir

því, að borgarfulltrúar minni-

hlutans hefðu látið leiðast til

þess að stofna til pólitísks á-

greinings um mál þetta, sem 1

eðli sínu væri eingöngu tækni-

legs eðlis. Borgarstjóri vakti at-

hygli á, að óeðlilegt væri að

skipa sérfræðinganefnd — einn

úr hverjum flokki borgarstjórn-

ar. — Ef nefnd sérfræðinga ætti

að kveða á um vagnakaup SVR

bæri að skipa hana með tilliti

til þekkingar hvers nefndar-

manns um sig á tilteknu sviði

notkunargildis almenningsvagna

fremur en eftir pólitískum skoð-

unum þeirra. Illa væri komið, ef

eigi væri hægt að treysta áliti

sérfræðinga nema um flokks-

bræður væri að ræða.                  ->

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24