Föstudagur 18. janúar 1963 MORGUISBLA&IÐ 23 ¦ - EBE i TT- ------------- Frarrah. af bls. 1 Vilja semja við öll aðildarríkin ekki Frakka eina Meðan ráðherrar sexveldanna sátu á fundinum raeddi brezki ráðherrann, Edward Heath, við fulltrúa frá samveldislöndunuim og einnig fulltrúa aðildarríkja Fríverzl.svæðisins. Hafði hann skýrt frá þeim áranigri, sem þeg ar hefði náðst og helztu ágrein iragsatriðunum. Hann kvaðst Bvartsýnn á úrslitin eftir að mál ið tóik óvænt þessa nýju stefnu Æyrir nokkrum döguni. í aðai- stöðvum brezku samninganefnd arinnar er almenn svartsýni ríkj andi, að sögn fréttaritara. Haft er eftir nefndarrnönnum, að Heatih bafi favatt ráðherrana tfimm, sem vilja allt til vinna, að Bretar fái inngöngu í Banda iagið, til þess að fara að öllu með varúð, því að Bretar óski ekki eftir deilum við Fraikka og vilji ekki valda klofningi innan Efnahagsbandalagsins. Stjórnin í London hafði stöð- ugt samband við Heatíh í dag. Var haldinn ráðuneytisfundur rétt áður en ráðherrafundurinn í Briisseil hófst. Sagði talsmað- ur stjórnarinnar, að honum lokn um, að Bretar væru enn þeirrar skoðunar að um aðild Breta að Efnaihagsbandalaginu þyrfti að 'semja við öll aðildarríki þess, en ekki Frakka eina. Fregnir frá Bonn herma, að ¦utanrtílkismálianefnd sambands- þingsins, hafi einróma samþykkt að mæla áfram með fullri aðild Breta og áframhaldandi samn- ingaviðræðum. Ályklun Evrópuráðsins. Ráðgjafanefnd Evrópuráðsins samþykkti á fundi sinum í dag ályktun, þar sem þeim tilmælum er beint til aðildarríkja Efna- hagsbandalagsins og Bretlands að þau leggi sig fram um að ná sem allra fyrst samkomulagi um aðild Bretlands. Ályktunin var samþykkt með Sí atkv. gegn engu, en sex fulltrúar sátu hjá. Lögð er á það áherzla í álykt uninni, að náist ekki samkomu- lag minnkí mjög líkurnar fyrir aukinni einingu Evrópuríkja. en í nánustu framtíð muni tæp ast gefast tækifæri til svo víð- tæks samstarfs rikja álfunnar, sem fyrirhugað hafi verið. ffjP'i. $m ^ %nW^ Sextugur maöur barinn og rændur :¦:¦ ¦: ,^^ ¦ i i^fmOlí'^ ¦ <4&MX&i Þyrla frá varnarliðinu jsækir sjúkling til Vestf j.j v L í FYRRAKVÖLD yar hrinigt til Slysavarnafélags íslands og tilkynnt, að Ragnar Guð- mundsson, bóndi að Hrafna- björguim í Arnarfirði, hefði fengið heilablóðfall og yrði að grípa til skjótra ráðstaf- ana til að koma honuim á sjúkrahús. Vegir milli fjarð- anna eru allir ófærir, þ.á.m, vegurinn til Dýraf jarðar, þar sem næsti sjúkraflugvöllur er. Slysavarnafélagið snéri sér því til varnarliðsins og bað uim aðstoð. Var vel við þeirri miálaleKun brugðist, og lofað að senda þyrlu á vettvang þegar í birtingu. Kl. 9,30 í gærmorgun kom þyrlan til Reykjavítour, til þess að ná í son Raignars, Gunnar, sem var leiðsöguimaður í ferðinni. Að því loknu var haldið aí stað og fylgdi þyrlunni önnur flug vél, af gerðinni DC-3, og flutti hún eldsneyti fyrir þyrl una, sem hefur mjög tak- markað fhigþol. Báðar vél- arnar lentu á Hellissandi og tók þyrlan benzin þar. Síðan var haldið áfrani norður, en sökuim dknnwiðris varð að snúa aftur til Sands og bíða þar átakta unz rofaði til skömimu siðar, og þyrlan komst alia leið á áfangastað- inn og lenti á túninu að Hrafnabjörguim. Það var laust fyrir kl. 2. Um svipað leyti og vélin lenti í Arnarfirði mæidi presturinn á Þingeyri við Dýrafjörð vindhraðann, og reyndist hann vera 30 hnút- ar, svo að varnarliðsmenn hafa orðið að leggja sig í talsverða heettu við björgun- ina. Ekiki tók langan tíma að koma sjúklingnum upp í vél- ina, og var því brátt haldið af stað til Sandis, til að taka eldsneyti, en mikill mótvind ur var, og sóttist ferðin seint. Ragnar var meðvitundarlaus er hann kom upp í fluigvél- ina, en á leiðinni til Sands fekk hann rænu, og er þang- að var komið kl. rúml. 4, var líðan hans orðin sæmileg eít- ir atvifcum. Nú var tekið að rötokva og ekki hægt að komast lengra, þar sem þyrluim er yfirleitt ekki flogið í myrkri. Með hliðsjón af líðan Ragnars var því ákveðið að bíða til morg- uns, en halda til Reykjavfik- ur strax í birtingu. Læknir frá varnarliðinu er með í ferð inoni og mun annast sjúfcl- inginn þar til hann kemst á sjiikrahús. SL. ÞRBDJUDAGSKVÖLD var ráðizt á sextugan mann, líklega nærri Miðbænum í Rvík, hann barinn með flösku og rændur áfengi og peningaveski með 800 krónum L Nánari atvik voru þau að um kl. 22:30 um kvöldið kom maður inn í sælgætissöluna Ad- lon í Aðalstræti. Voru þar tveir ungir menn að stumra yfir göml- um manni, blóðugum í andliti, og báðu þann, sem inn kom, að aka gamla manninum í slysavarðstof- una, sem hann gerði. Skemmdir á land- helgisvélinni minni en á horfðist UNDANFARNA daga hefur far- ið fram athugun á tjóni því, sem varð á flugvél landhelgis- gæzlunnar er bifreið rakst á vænginn á henni, og hefur kom- ið í ljós að það er sem betur fer líklega ekki eins umfangsmikið og haldið var í fyrstu, að því er Fétur Sigurðsson, forstjóri Land helgisgæzlunnaj tjáði Mbl * gær. Sagði hann að næstkomandi laugardag væru væntanlegir menn frá erlendu fyrirtæfci til að Hta á skemmdirnar, og vera með í ráðum um viðgerð á þeim. Þangað til verður ekki hægt að segja um hve langan tíma við- gerðin tekur. En dragist hún um of á langinn, sagði Pétur, þá höfum við gömlu Katalínu í bafchöndinni. Var gert að meiðslum manns- ins í slysavarðstofunni, en hann hafði hlotið talsverða áverka á höfði og annað augað var sokk- ið. Var maðurinn síðan fluttur heim til ættingja sinna. Mál þetta var kært til rann- sóknarlögreglunnar á miðviku- daginn. Segir gamli maðurinn, að hann hafi hitt ungan mann, en vissi ekki nákvæmlega hvar, enda utanbæjarmaður. Piltur þessi bað hann um að gefa sér vín, hvað maðurinn gerði. Bað þá pilturinn gamla manninn um að gefa sér peninga, en því neit aði hann. Segir gamli maðurinn að pilturinn hafi þá barið sig í höfuðið með vínflöskunni og rot að sig. Næst kveðst hann muna eftir sér er verið var að gera að meiðslum hans í slysavarðstof- unni, og saknaði þá veskis síns með 800 krónum og vínflöskunn ar. Rannsóknarlogreglan leitar nú árásarmannsins. Taka Islendingar þátt í sólkyrrðarrannsóknum? Kommúnisiar Framhald af bls. 3. Þjóðviljinn sagði frá því að lýðræðissinnar hefðu farið ham- förum í kosningunum um sl. helgi og rak upp mikið harmakvein yfir óförum hinna stéttvísu" verkamanna. Hverjir skyldu það þá vera þeir stéttvísu" verka- menn, sem tryggt hafa kommún istum völdin í Verkalýðsfélagi Borgarness? Þá sögu þekkir verkafólkið í Borgarnesi það vel að óþarfi er að sinni að birta nöfn þessara stéttvísu verkalýðs leiðtoga" en ef til vill skapast ástæða til þess síðar. Rétt er að taka það fram, að B-listi lýðræðissinna í Verkalýðs félaginu í Borgarnesi er skipaður mönnum úr öllum lýðræðisflokk unum, mönnum, sem sett hafa bagsmuni stéttar sinnar og sam- taka ofar innbyrðis pólitískum deilum um þjóðmál. Það sam- starf, sem þarna hefur skapazt er til fyrirmyndar, sem getur haft ómetanlega þýðingu fyrir Terkalýðshreyfinguna. Þess vegna eru kommúnistar jafn reið ir og raun ber vitni og munu gera allt, sem í þeirra valdi er, til að hindra sigur verkafólksins í Borgarnesi. Kn lýðræðissinnar munu standa fast saman í kosn- ingunum á morgun og sunnudag og gera það sem í þeirra valdi Btendur til að hnekkja lögbrot- um og yfirgangi kommúnista og aðstoðarmanna. þeirra. ÁRBD 19©4 og 1966 standa fyrir dyrum alþjóðlegar rannsóknir vegna svokallaðs sólkyrrðarárs, en það er þegar sólblettir eru minnstir. Eru þetta almennar rannsóknir á borð við þær sem gerðar voru á alþjóða jarðeðlis- fræðiárinu. Hafa alþjóðasamtök, sem þetta annazt, skrifað Rann- sóknarráði og mælzt til þátttöku af íslendinga hálfu. í gær kallaði framkvæmda- stjóri Rannsóknarráðs, Stein- grímur Hermannsson, saman fulltrúa frá þeim stofnunum, sem kæmu til með að annast okkar hlut í rannsóknunum. Var á fundinum valin nefnd til að gera áætlun um hvað slík þátttaka mundi kosta og gera tillögur um hvort íslendingar eigi að taka þátt í þessum rann- sóknum. í nefndinni eru: dr. Þorbjörn . Sigurgeirsson pró- fessor, dr. Gunnar Böðvarsson, Teresía Guðmundsdóttir, veður- stofustjóri, Sigurður Þorkels- son, símaverkfræðingur og dr. Þorsteinn Sæmundsson. 13 dæmdir til dauða - Hitfast Tunis, 17. jan. NTB^AP í dag kvað herdómstóll í Túnis upp dauðadóma yfir 13 mönnum af 25, sem ákærðir voru um hlut deild að tílræomu við Habib Bourguiba, forseta landsins nú fyrir skömmu. Flestir hinna dæmdu hafa farið fram á náðun. Sjö hinna dauðadæmdu eru liðsforingjar úr hernum í Túnis, en hinir eru óbreyttir borgarar. Búið að gera við sæsímastrenginn SÆSÍMASTRENGURINN, sem slitnaði fyrir um þaG bil^viku, sunnan við Færeyjar, var tengd- ur saman á fjórða tímanum í fyrrinótt, að því er Sigurður Þorkelsson, símaverkfræðingur, tjáði blaðinu í gær. Fór skipið Suenson, sem er eign ivlikla nor- ræna símafélagsins, á vettvang til að gera við skemmdirnar. Ekki hefur verið gefið upp með hverjum hætti strengurinn hef- ur slitnað, en málið verður rann sakað. Á meðan fór allt símasamband við Evrópu varðandl flugsam- göngur um hinn nýja Icecan- streng, og einnig nokkuð af öðrurh símtölum. Annars voru notuð loftskeyti, eins og áður, en við það verður símasamband miklu ótryggara og háð skilyrð- um í ionahvolfinu. Drukkinn á stolnu hjóli f GÆRDAG gerðist það á Vestur- götu að drukkinn maður ók á hjóli fram af gangstéttarbrún, og steyptist við það fram af hjólinu í götuna. Hlaut maðurinn nokk ur meiðsli í andliti. Lögreglan kom á staðinn, og kom brátt á daginn að maðurinn hafði stolið reiðhjólinu frá SÍS. Hér er um tvítugan pilt að ræða, og hefur hann að undanförnu valdið ýms- um vandræðum og verið ^j'ður gestur hjá lögreglunni. Framh. af bls. 1 kvöld, var gefin út opiníber til- kynning þar sem sagði meðal annars, að .ítalir múni áfram styðja fulla aðild Breta að Efna- hagsibandalagi Evrópu. Kveður ítalski forsætisráðherrann svo á, að gaumgæfilega skuli íhugaðar tillögur Bandaríkja- stjórnar varðandi kjarnorkuher- styrk Atlantshafsbandalagsins. Segir í yfirlýsingunni, að við- ræðurnar í Washington hafi ver ið mjög vinsamlegar og gagn- legar. Stjórnmálafréttaritarar í Was- hington telja að þessi yfirlýsing sé ætluð sem beint svar við af- stöðu de Gaulle til aðildar Breta að Efnahagsbandalaginu og fyrir ætlunum hans um að koma á fót eigin kjarnorkuher. Fréttaritar- ar velta því nú fyrir sér, hvern- ig Kennedy muni haga ferð sinni til Evrópu. Þykir líklegt, að hann muni ganga á fund Jó- hannesar 23. páfa og væntanlega koma við í París og ræða þar við de Gaulle um ágreiningsmál Frakka og Bandaríkjamanna. Enn telja fréttamenn, að með hliðsjón af lausn Kúbumálsins, undangengnum viðræðum full- trúa Rússa og Bandaríkjamanna og ræðu Nikita Krúsjeffs á flokksþinginu í Austur-Berlín í gær, sé ekki ólíklegt, að þeir Kennedy og Krúsjeff hittist á árinu, sennilega fyrr en seinna. Sýndartil- laga Á borgarstjórnarfundi í gær flutti Guðmundur Vigfús son (K) tillögu um athugun á lcaupum á skuttogara og verk- smiðjutogara. Borgarstjóri talði nauðsyn og í verka- hring útgerðarráðs og BÚR að fylgjast með öllum nýjung um á sviði útgerðar, og að því leyti væri tillagan óþörf, en meðan vinnuaflsskortur, afla- Ieysi og fjárhagsafkoma tog- araútgerðar væri slik sem nú, væri þessi tillöguflutningur sýndarmennska. Frá umræð um um tillögu þessa verður nánar skýrt í blaðinu á morg- un. Cermaníu kvik- mynd um dulverur ÞJOTVERJAR hafa ekki siður skapað dulverur en vér Islend- ingar og eru þær ýmist illar eða góðar. Ein er sú dulvera þýzku þjóðarinnar, sem flest gott hef- ur látið af sér leiða þar í landi og enn lifir ótrúlega góðu Mfi í hugum fólksins, og er það Das Heinzelmannchen. Hvert eðli hennar er og hvernig hún kemur fram við mannfólkið hef- ur verið tekið saman nýlega og sett á kvikmynd, er sýnd verð- ur á vegum félagsins Germanía í Nýja bíó á morgun, laugardag. Myndin er í litum og alllöhg, enda hefur gerzt mikil saga af þessum hugstæðu dulverum, en af þeim sökum verða ekki aðrar fræðslumyndir sýndar þetta skiptið. Kvikmyndin er elcki síð- ur fullorðnum en börnum til fróðleiks og skemmtunar. A u k ævintýramyndarinnar verða sýndar fréttamyndir' frá sl. hausti. Sýningin hefst kl. 2 e. h., og er öllum heimill aðgangur, börnum þó einungis í fylgd með fullorðnum. Saumakona óskast til að taka að sér breytingar í tízku- verzlun. Tilboð merkt: Hálfsdags vinna 3905" sendist afgr. Mbl. fyrir sunnudagskvöld.