Morgunblaðið - 28.02.1963, Blaðsíða 1
24 siður með Barnafiesbók
„Viö erum alls óhræddir"
MOBGUNBLAÐBB hringdi í
gær til dr. Kristins Guð-
mundssonar, sendiherra Is-
lands í Moskvu, og spurði
hann, hvort minnzt hefSi ver-
ið á njósnamálið í blöðum
eða útvarpi þar í landi. Dr.
Kristinn svaraði því neitandi
og sagði, að það væri ekki
siður blaða austur þar að
skýra frá slíkum málum, nema
kannski þegar mótmælaorð-
sendingar rússnesku stjórnar-
innar eru birtar. Hann sagði:
„Þetta tekur allt sinn tíma.
Þó eitthvað svona gerist utan
lands þarf það ekki endilega
að koma í blöðunum hér. Þeir
láta málið liggja milli hluta,
en ég veit ekki hvað þeir
gera“.
„Hafið þér haft nokkurt
samband við rússneska utan-
ríkisráðuneytið"?
„Nei, það hef ég ekki. Við
höfum ekki heyrt frá þeim“.
„Hvað haldið þér að Rússar
taki til bragðs“?
16. tilræðis-
maðurinn hand-
tekinn í París
París 27. febrúar (NTB)
I DAG var handtekinn í París
Vngverjinn Gyula Sari, en hann
er einn þeirra sex, sem farið
hafa huldu höfði frá því í ágúst
og sakaðir eru um þáttöku í til-
ræði við de Gaulle Frakklands-
forseta í þeim mánuði. Eins og
kunnugt er eru fimmtán menn
sakaðir um þátttöku í tilræðinu
®g níu þeirra hafa verið fyrir
rétti að undanförnu.
Gyula Sari var dæm-dur til
dauða, in absentia, fyrir þátt-
tökuna í tilræðinu, en nú verður
mál hans tekið upp að nýju.
í gær handsamaði franska lög
reglan Antoine Argoud, ofursta
eem talinn er einn af leiðtogum
leynihreyfingarinnar OAS. Var
lögsreglunni vísað á Argout, þar
eom hann lá bundinn og keflað-
ur í bifreið á götu í París. Argoud
eegir að sér hafi verið rænt
úr gistilhúsi í Múndhen og síðan
hafi ræningjarnir skilið hann
eftir í bifreið í Paris.
Eftirlitsferðir
Genf, 27. febr. (NTB).
KULiLTRÚI Sovétríkjanna á af-
vopnunarráðstefnunni í Genf
~hélt því fram í dag, að Sovét-
ríkin hefðu fallizt á að leyfa
eftirlitsferðir innan landamæra
Binna vegna þess að í óform-
iegum samtölum hefðu Vestur-
veldin sagt, að þau myndu sam-
þykkja tvær til fjórar eftirlits-
íerðir á árL
Washington 27. febrúar (NTB)
Sir Winston Ohurohill var í
dag útnefndur heiðursborg-
eri rikisins North Carolina í
Bandarikjunum. North Caro-
lina er annað ríkið í Banda-
ríkjunum, sem sýnir Church-
il'l þenhan heiður. Hitt rík-
iö er Nehraska. Lögð hefuir
verið fyrir bandariska þingið
tillaga þess efnis, að Churohill
verði gerður heiðursborgari
dr. Kristinn Guðmundsson
„Ég veit það ekki“.
„Kannski þeir reyni að
svara í sömu mynt og sendi
einhvem íslending heim“?
„Ég veit það ekki, það er
ekki af miklu að taka. Við
erum bara tveir hér, við Har-
aldur Kröyer, auk rússneskrar
stúlku. Það er allur mannskap
urinn. Ég veit ekki til þess
að þeir hafi gert neitt í sam-
bandi við njósnamálið, sem
kom upp í Ástralíu fyrir
skemmstu. Engum hefur verið
vikið úr landi mér vitanlega.
„Og ekkert minnzt á málið“.
„Nei, það hefur ekkert ver-
ið minnzt á það í blöðunum".
En þér hafið auðvitað fengið
fréttina um njósnamálið að
heiman“?
Já, ég fékk skeyti um það
i morgun, og svo hafa erlendu
sendiráðsstarfsmennirnir ver-
ið mér svo hjálplegir að
senda mér fréttiraar, sem
þeim hefur borizt á fjarrit-
ara“.
„Og þér eruð alls óhrædd-
ir“?
„Já, það erum við“.
Hættan á vinsiitum
kommúnistar ík jann a
eykst í sífellu
segir Alþýðudagblaðið í Peking
Rætt um lijarn-
orliutier IMATO
París 27. febrúar (NTB).
Á FUNDI fastaráðs Atlantshafs-
bandalagsins. -em hófst í París
í dag, ræddi Livingstone Merch-
ant, sérstakur sendimaður Banda
ríkjaforseta, stofnun sameigin-
legs kjarnorkuherafi. Atlants-
hafsbandalagsins. H/atti hann
fulltrúana á fundi fastaráðsins
til þess að láta í ljós skoðanir
sínar á tillögum Bandaríkjanna
um stofnun þessa herafla.
Talsmaður Atlantshafsbanda-
lagsins sagði að fundinum lokn-
um, að Merchant hefði gert laus-
lega grein fyrir tillögum Banda-
ríkjastjórnar um sameiginlegan
kjarnorkuher, en síðar myndi
ráðið ræða flóknari hluta þeirra,
t. d. hvernig stjórn heraflans
verði háttað, og í sambandi við
fjárhagsvandamál við stofnun
hans.
Fulltrúi Frakka var ekki við-
staddur fundinn í dag, en eins
og skýrt hefur verið frá, er de
Gaulle Frakklandsforseti and-
vígur því, að Frakkar taki þátt í
stofnun sameiginlegs kjarnorku-
herafla Atlantshafsbandalagsins.
Brezki sendiherrann hjá Atl-
antshafsbandalaginu, sir Evelyn
Shuckburgh gerði. á fundinum
í dag grein fyrir samningnum,
sem Macmillan forsætisráðherra
Breta og Kennedy Bandaríkja-
forseti gerðu í Nassau í des. sL
Groinyko í Ósló
Osló, 27. febr. (NTB)
Andrei Gromyko, utanrfk-
isráðherra Sovétrikjanna k<xm
í dag til Osló í opinbera heim
sókn. Dvelst hann í Noregi í
viku og ræðir við ráðherra
norsku stjórnarinnar.
Peking, 27. febr. — NTB — AP
I MÁLGAGNI kínverska komm-
únistaflokksins, „Alþýðudagblað-
inu“, birtist í dag ritstjórnar-
grein, þar sem ráðizt er á end-
urskoðunarsinna (Sovétríkin) af
meiri hörku en nokkru sinni frá
því að ágreiningurinn'reis milli
Rússa og Kínverja. Kommún-
istaflokkur Sovétríkjanna er
nafngreindur á mörgum stöðum
í greininni, sem er mjög löng, en
hörðustu árásunum er beint að
þeim, sem blaðið nefnir „vissa
félaga“. Enginn vafi er talinn á
því að þar sé átt við Krúsjeff,
forsætisráðherra Sovétríkjanna,
og þá, sem fylgja honum að mál-
Efnahagsþvingamr
í greininni er einnig svarað
árásum kommúnistaflokka á
vesturlöndum á ofbeldisaðgerðir
Kínverja gegn Indverjum. Blað-
ið fordæmir þessa andstæðinga
Kínverja og segir að þeir reyni
að beita Kina efnahagslegum
þvingunum með því að rifta
hundruðum samninga, sem Kín-
verjar treystu að yrðu haldnir.
Blaðið segir, að Kínverjar séu
fúsir að ræða ágreininginn við
bræðraflokkana og leggur
áherzlu á það að hættan á vin-
slitum kommúnistaríkjanna sé
sífellt að aukast. Blaðið kennir
Sovétríkjunum og þeim, sem
fylgja stefnu þeirra, um það
hvernig ástandið er nú.
Fréttaritari frönsku fréttastof-
unnar AFP í Peking segir, að
þrjár meginályktanir megi draga
af greininni og eru þær:
1. Kínverjar muni ekki hvika
frá skoðunum sínum, því þeir
telji afstöðu sína þá einu, sem
samræmist kenningum Lenins
og Marx eins og þær voru túlk
aðar í Moskvu-yfirlýsingunum
1957 og 1960.
2. Flokkar, sem fylgi endur-
skoðunarstefnunni, verði að
hverfa frá henni, viðurkwma
mistök sín og snúa aftur til hins
sanna Marx-Leninisma. Ef þeir
geri það ekki geti það valdið vin-
slitum kommúnistaríkja.
3. Kínverski kommúnista-
flokkurinn, sem nýtur stuðnings
nokkurra kommúnistaríkja í Asíu
og AJbaníu, ætli að verja hin
einu sönnu grundvallaratriði
kommúnismans.
Meistaraverk
Fréttaritari AFP segir enn-
fremur, að sérfróðir menn séu
þeirrar skoðunar, að ritstjórnar-
greinin sé meistaraverk á sviði
sósíalískrar rökhyggju (díalek-
tík) og ótvíræð yfirlýsing um
afstöðu Kínverja til hugsjóna
kommúnismans og utanríkismála.
Haft er eftir manni, sem er mál-
um kunnugur í Peking, að rit-
stjórnargreinin sé sögulegt skjal.
Miklar biðraðir voru fyrir ut-
an blaðasölustaði í Peking í dag
og fólk stóð í hópum við glugga
Framh. á bls. 2
Óvíst hve-
nær njósn-
ararnir fara
MBL. hafði í gær samband
við sendiráð Sovétríkjanna
og spurðist fyrir um hve-
nær sendiráðsstarfsmennirn-
ir, sem vísað var úr landi,
færu héðan. Morozov, fyrsti
sendiráðsritari, varð fyrir
svörum. Sagði hann að enn
væri óákveðið hvenær eða á
hvern hátt mennirnir færu úr
landi.
KOMMðNISTAR TAKA AFSTÖÐU MEÐ RðSSUM
ÞEGAR fregnirnar um hinar
víðtæku njósnatilraunir sov-
ézka sendiráðsins hér á landi
bárust út, mun flestum hafa
komið sú spurning einna
fyrst í hug, hvernig kommún-
istar og málgagn þeirra brygð
ust við. Það átti ekki minnst-
an þátt í eftirvæntingu manna
og forvitni, að upplýst var, að
sá íslendingur, sem hinir sov-
ézku njósnarar höfðu árum
saman lagt í einelti í því
skyni að fá hann í þjónustu
sína, hefur um langt árabil
verið flokksbundinn komm-
únisti. Taka kommúnistar enn
þá einu sinni afstöðu með
Rússum? spurðu menn. Eða
bregðast þeir við eins og sönn
um íslendingum sæmir og for-
dæma hið ólöglega og háska-
lega atferli þeirra?
Svörin við þessum þýðing-
armiklu spurningum fengu
menn, þegar „Þjóðviljinn“
kom út í gærmorgun, og er
þeir lásu ummæli Einars Ol-
geirssonar, formanns Komm-
únistaflokksins, um málið i
Vísi í gær. Hvorki „Þjóðvilj-
inn“ né Einar Olgeirsson sjá
minnstu ástæðu til að víkja
einu einasta ámælisorði að
störfum hinna sovézku flokks
bræðra gegn öryggi íslenzku
þjóðarinnar, heldur ráðast
með brigzlum á þann mann,
sem mat meira heill sinnar
eigin þjóðar en hagsmuni
Sovétríkjanna og reyna að
gera hann tortryggilegan —
og taka þannig enn einu sinni
beina afstöðu með húsbænd-
um sínum í Kreml. Hafi ein-
hverjir íslendingar til þessa
verið í vafa um það, hverra
hagsmuni forysta Kommún-
istaflokksins ber fyrir brjósti,
þá þurfa þeir ekki að vera
það lengur. Hún hefur af-
hjúpað sig sem umboðsmenn
erlends valds, sem iíta á
hagsmuni hins alþjóðlega
kommúnisma æðri öllu öðru,
jafnvel þegar í húfi er öryggi
þeirrar eigin þjóðar.
Ástæðulaust er að hefja
um það deilur við „Þjóðvilj-
ann“ og Einar Olgeirsson,
hvort Ragnar Gunnarsson
hafi verið eða sé kommúnisti
að þjóðfélagsskoðun, enda
skiptir það raunverulega engu
máli í því efni, sem hér er
um að ræða, og „ásakanir“
„Þjóðviljans“ og Einars Ol-
geirssonar í hans garð um
skort á hollustu við „hug-
sjónina“ aðeins gerðar. í því
skyni að leiða athyglina frá
kjarna málsins. Á þvi er þó
enginn vafi, að hann hefur
allt frá unglingsárum verið
eindreginn fylgjandi og með-
limur Kommúnistaflokksins,
enda hefur honum frá. önd-
verðu verið sýndur trúnaður
innan flokksins og starfað
mikið á hans vegum. Þannig
hefur hann t.d. setið í stjórn
Æskulýðsfylkingarinnar í
Reykjavík, verið í stjórn
Dagsbrúnar um árabil, verið
sendur til Sovétríkjanna fyr-
ir milligöngu flokksins, tekið -
þátt í sellustarfsemi flokksins
í Reykjavik, o. s. frv. Þegar á
allt þetta er litið hlýtur
mönnum að þykja í hæsta
máta brosleg sú fullyrðing
Einars Olgeirssonar, að Ragn-
ar hafi „um árabil gengið er-
inda Sjálfstæðisflokksins" í
Framhald á bls. 2