Morgunblaðið - 14.11.1963, Blaðsíða 1
24 siður
50 árgangwr
243. tVl. — Fimmtudagur 14. nóvember 1963
Prentsmiðja Morgunblaíisins
Uppreisnartilraun barin niður í Irak
Fyrrverandi leiðtogi
Baathista reynir að steypa
ríkisstjórn flokksins
Damaskus, Sýrlandi, 13. nóv. — (AP) —
SNEMMA í morgun var gerð tilraun til stjórnarbyltingar í
írak. Hófst uppreisnin með því að loftárásir voru gerðar á
höfuðborgina Bagdad og herbúðir skammt frá borginni. •
Tókst stjórnarhernum á fáum klukkustundum að sigrast á
nppreisnarmönnum og hrekja foringja þeirra á flótta úr
landi. Aðalhvatamaður uppreisnarinnar var Ali Saleh el
Saadi, fyrrverandi aðstoðar-forsætisráðherra í stjórn el
Bakr, en honum hafði verið vikið úr stjórninni sl. mánudag.
.... X-Nv.-v .\«-í -:w• •?•• .«<«•w V '-x\ ww«t«Wv.- \.vw* . \v,..a í \ qjíW ••50$»>"#.W'\V-V
Fyretu fréttirnar um uppreisn-
ina voru mjög óljósar. Áður hafði
verið lesin í útvarpinu í Bagdad
tilkynning um breytingar á ríkis-
etjórn Baaath-flokksins, og að ný
15 manna stjórn hafi tekið við
völdum sl. mánudag. Ahmad
Hassan el Bakr var eftir sem áð-
ur forsætisráðherra, en næstir
honum á listanum komu Taher
Yahya, forseti herráðsins, Haz-
em Jawad, aðstoðar-innanríkis-
ráðherra og Taleb Hussein Sheb-
ib, utanríkisráðherra.
SAADI VIKIÐ ÚR
STJÓRNINNI
Það vakti strax nokkra furðu
að Ali Saleh el Saadi átti ekki
sæti í nýju stjórninni, en hann
var áður aðstoðar-forsætisráð-
í FRÉÍT frá Valetta á eyjunni
Möltu segir að herflugvél frá
írak hafi lent þar síðdegis í
dag á leið frá Madrid.-Í vél-
inni voru 13 manns, þar af sjö
einkennisbúnir. Sagt er að vél
inni hafi verið neitað um við
dvöl í Madrid. Vélin stóð við
í tvær stundir í Valetta, en
hélt síðan ferðinni áfram til
Kýpur.
herra og auk þess einn af mestu
áhrifamönnum flokksins.
Eftir að tilkynnt hafði verið
um nýju stjórnina var haldið á-
fram að útvarpa venjulegri dag-
skrá þar til skyndilega um kl.
fimm í morgun (ísl. tími) að út-
varpsstöðin þagnaði. Óljósar
fregnir bárust eftir það frá Lond-
on og Washington að eitthvað
mikið væri um að vera í írak.
Engin staðfesting fékkst þó á
þessu fyrr en Bagdad-útvarpið
hóf sendingar á ný. Kom þá
Saleh Mahdi Ammash, hermála-
ráðherra, fram fyrir hlustendur í
nafni el Bakr forsætisráðherra og
sagði einingu Baath-ista í hættu,
gera þyrfti ráðstafanir til að
vernda líf borgaranna og ráða
fram úr aðsteðjandi vandamál-
málum. Síðan hætti útvarpið
sendingum að nýju.
HERFLUTNINGAR
Fréttir tóku nú að berast eftir
ýmsum leiðum um að uppreisn
hafi verið gerð í landinu. Far-
þegaflugvél, sem lenda átti í Bag
dad, var snúið við til Teheran
í fran, og sögðu farþegarnir að
þeir hefðu séð miklar herflutn-
ingalestir á leið til höfuðborgar-
innar. Einnig höfðu þeir séð um
100 skriðdreka skammt frá borg-
inni. Þá bárust fregnir frá ýms-
um sendiráðum í Bagdad um að
flugvélar hefðu gert loftárásir á
forsetahöllina og á herbúðir við
höfuðborgina.
Um hádegið tók að heyrast í
útvarpsstöð, sem nefndi sig fyrst
„Útvarp arabisku þjóðarinnar"
og seinna „Útvarp byltingarinn-
ar í írak“. Flutti útvarpsstöð
þessi ávörp og áskoranir frá
stjórn el Bakr. Skýrði útvarps-
stöð þessi frá því að lýst hafi ver-
ið útgöngubanni í höfuðborginfti
og úthverfum hennar, en skoraði
jafnframt á borgarbúa að sýna
stillingu. Komu þeir el Bakr for-
sætisráðherra og varnarmálaráð-
herrann fram í útvarpinu og hétu
því að leyst yrði úr vandanum.
Sagði forsætisráðherrann að
Framhald á bls. 23.
Bandaríkjastjórn mótmælir
handtöku Barghoorns
Seg|a hana geta haft alvarlegar afleiðingar
Moskvu, 13. nóv. — (AP-NTB)
BANDARÍKJASTJÓRN hefur af
Jóhann Hafstein
hent utanríkisráðuneytinu í
Moskvu og sendiráði Sovétríkj-
anna í Washington harðorð mót-
mæli vegna handtöku Frederick
C. Barghoorns prófessors, sem
sakaður er um njósnfr í Sovét-
ríkjunum. Þvertekur bandaríska
stjórnin fyrir það að Barghoorn
hafi stundað njósnir og krefst
þess að hanrt verði tafarlaust lát-
inn laus, og að starfsmenn banda-
ríska sendiráðsins í Moskvu fái
að hafa samband við hann. Kröf-
um bandarísku stjórnarinnar hef-
ur ekki verið sinnt.
Barghoorn er kennari í rúss-
neskum fræðum við Yale háskóla
í Bandaríkjunum. Hann fór til
Sovétríkjanna í mánaðar kynn-
isferð 1. október sl., og ætlaði að
halda heimleiðis 1. þ. m. Síðast
fréttist til hans í Moskvu 31. okt.
Jóhann Hafstein
dómsmálaráðherra
Á FUNDI í þingflokki Sjálfstæð-
isflokksins, sem hófst kl. 5 síð-
degis í gær var samþykkt með
samhljóða atkvæðum að Jóhann
Hafstein, alþingismaður, skyldi
taka sæti dómsmálaráðherra í
ríkisstjórninni í stað Bjarna
Benediktssonar, sem verður for-
sætisráðherra.
Jóhann Hafstein er fæddur á
Akureyri 19. sept. 1915. Hann
lauk stúdentsnrófi árið 1934 og
lögfræðiprófi árið 1938. Hann var
fyrst kosinn á þing í Reykjavík
árið 1946 og hefur átt sæti á
þingi síðan sem þingmaður Reyk
vikinga. Hefur hann setið á 19
þingum.
Hann var formaður Sambands
ungra Sjálfstæðismanna 1943 til
1949, formaður Heimdallar FUS
í Reykjavík 1939 til 1942. Banka-
stjóri Útvegsbankans hefur hann
verið frá árinu 1952 til þessa dags
að undanskildum síðari hluta árs
ins 1961 er hann gegndi störfum
dómsmálaráðherra í viðreisnar-
stjórninni.
Jóhann Hafstein hefur undan-
farið setið fund NATO-þing-
manna, sem haldinn var í París.
Mun hann væntanlegur heim á
morgun.
Yfirvöldin í Alsír báru í gær
til baka frétt frá Marrokkó
um að útlendingaherdeild
skipuð hermönnum frá
Egyptalandi, Kúbu, Búlga-
ríu og Kína hafi verið send
til eflingar alsírska hersins.
Segja yfirvöldin að sendi-
nefndum frá þessum löndum
hafi verið boðið til landsins
í tilefni afmælis byltingarinn
ar gegn Frökkum, og séu nú
flestir farnir heim.
Meðfylgjandi mynd var
tekin s.l. mánudag í herbúð-
um við Colont.b-Bechar, ná'
lægt landamærum Marokkó
Sýnir hún Aly Amer hers-
höfðingja frá Arabiska sim
bandslýðveldinu kanna egyp
zkt herlið.
en þá hafði hann samband við
einn af starfsmönnum sendiráðs-
ins. í gær var skýrt frá því að
Barghoorn hafi verið handtekinn
„fyrir nokkrum dögum“ sakaður
um njósnir.
¥
Sendiherra Bandaríkjanna I
Moskvu, Foy Kohler, gekk í dag
á fund Valerian Zorins, aðstoðar
utanríkisráðherra, og ræddust
þeir við í stundarfjórðuijg. Krafð
ist sendiherrann þess að Barg-
hoorn yrði þegar í stað látinn
laus og að sendiráðsmenn fengju
að tala við hann. Einnig krafðist
sendiherrann þess að fá að sjá
ákæruna á hendur Barghoorn. —<
Svaraði Zorin því til að engar
upplýsingar yrðu gefnar að svo
stöddu um Barghoorn, en kvört-
un Bandaríkjastjórnar yrði kom-
ið áfram til réttra aðila.
í Washington var sendiherra
Sovétríkjanna, Anatoly Dobryn-
in, kvaddur á fund í utanríkis-
ráðuneytinu og honum tilkynnt
að handtaka Barghoorns gæti
haft mjög alvarlegar afleiðingar.