Morgunblaðið - 15.11.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.11.1963, Blaðsíða 1
24 siðuv Bjarni Benediktsson tekur við embætti forsætisráðherra \ Ríkisráðs- fundi ■ gær Johann Haf- stein skipaður domsmálaráð- herra A FUNDI ríkisráðs kl. 11,30 í gærmorgun féllst forseti ís- lands á beiðni Ólafs Thors um lausn frá embætti for- sætisráðherra af heilsufars- ástæðum. Jafnframt skipaði forseti dr. Bjarna Benedikts- son -forsætisráðherra. Þá-var Jóhann Hafstein, alþingis- tnaður, skipaður ráðherra í ráðuneyti íslands og fer hann með dóms-, iðnaðar-, heil- brigðis- og kirkjumál er dr. Bjarni Benediktsson hafði með höndum. Kl. 2,00 síðdegis í gær var haldin fundur í Sameinuðu Alþingi og las hinn nýi for- sætisráðherra, dr. Bjami Benediktsson, upp eftirfar- andi tilkynningar: „Tillaga til forseta fslands um skipan embættis forsætisráð- herra.M Læknar mínir hafa tjáð mér, eð mér sé nauðsynlegt að taka mér algera hvíld frá störfum í nokkra mánuði. Ég get því ekki unnið að lausn hinna ýmsu vandamála, sem framundan bíða. Haustið 1-961 stóð svipað á fyrir mér. Tók ég mér þá hvíld frá störfum í þrjá mánuði. Ég tel ekki rétt að hafa sama hátt á nú og leyfi mér því allra virð- ingarfyllst að fara fram á, að þér, herra forseti fallist á að veita mér lausn frá embætti for- sætisráðherra. Jafnframt leyfi ég mér allra virðingarfyllst að leggja til í samræmi við einróma óskir þing flokks Sjálfstæðisflokksins, að dr. Bjarni Benediktsson dóms- og kirkjumálaráðherra verði skipaður forsætisráðherra í trausti þess, að þér, herra for- seti, fallist á framangreindar til- lögur mínar, leyfi ég mér að leggja fyrir yður til undirskriftar lausnarbréf mér til handa og skipunarhréf dr. Bjarna Bene- diktssonar til að vera forsætis- ráðherra í ráðuneyti íslands. í forsætisráðuneytinu 13. nóv- ember 1963, Ólafur Thors, Birgir Thorlacius. Á þessa til'lögur hefur forseti íslands ritað: „Fellst á tillöguna. Ásgeir Ásgeirsson, Reykjavík 14. nóvember 1963“. I samræmi við það hefur hann undirritað skipunarbréf til handa mér til að vera forsætisráðherra, í ráðuneyti íslands og bréf, þar sem hann veitir Ólafi Thors lausn frá embætti forsætisráð- herra. Þá var þar borin upp önnur till. til forseta íslands um skip- un ráðherra og breytingu á for- setaúrskurði frá 20. nóvember 1959 um skipun og skipting starfa ráðherra. o.fl.: „Þar sem þér, herra forseti, hafið fallizt á að veita Ólafi MYND þessi var tekin á ríkis- ráðsfundi í gær. — Frá vinstri: Ingólfur Jónsson, land t búnaðarráðherra, Gunnar Thoroddsen, fjármálaráð- herra, Birgir Thorlacius, rík- isráðsritari, forseti íslands Ásgeir Ásgeirsson, Guðmund- ur í. Guðmundsson, utanríkis- ráðherra, Emil Jónsson sjáv- arútvegsmálaráðherra, Gylfi Þ. Gislason, viðskiptamála- ráðherra. Jóhann Hafstein dómsmálaráðherra var fjar- verandi. Gosefnin þeytast npp úr haffletinum á eldstöðvunum. Myndin var tekin í gær í 300 metra fjarlægð af Sigurgeiri Jónassyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Vestmannaeyjum. Fréttir um gosið á baksíðu og öðrum síðum blaðsins. Thors lausn frá embætti forsætis ráðherra og skipað mig forsætis- ráðherra, leyfi ég mér al'lra virð- ingarfyllst að leggja til, að yður þóknist að skipa Jóhann Haf- stein alþm. ráðherra í ráðuneyti íslands og jafnframt að gera þá breytingu á forsetaúrskurði nr. 64 frá 20. nóvember 1959, að mér verði falið að gegna þeim ráðherrastörfum, sem í þeim úr- skurði voru falin Ólafi Thors, en Jóhann Hafstein fari með þau málefni, sem mér voru falin i nefndum úrskurði. í trausti þess, að fallizt verði á framangreinda till., leyfi ég mér allra virðingar- fyllst, að leggja fyrir yður, herra forseti, til undirskriftar skipun- arbréf -handa Jóhanni Hafstein alþm. til að vera ráðherra í ráðu neyti íslands, svo og úrskurð um breytingu á forsetaúrskurði frá 20. nóvember 1959 um skipun og skipting starfs ráðherra o.fL í forsætisráðuneytinu 14. nóvemiber 1963, allra virð- ingarfyllst, Bjarni Benediktsson, Birgir Thorlacius". Á þessa tillögu hefur forseti íslands einnig ritað: „Fellst á tillöguna. Ásgeir Ásgeirsson, Reykjavík 14. nóvember 1963.“ Og jafnframt undirritaði hann skipunarbréf til handa Jóhanni Hafstein, til að vera ráðherra í ráðuneyti íslands. Og ennfrem- ur forsetaúrskurð um breytingu Framihald á bls. 13

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.