Morgunblaðið - 03.01.1964, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.01.1964, Blaðsíða 13
Föstudagur 3. Jan. 1964 13 'U MORGUNBLADID Aukið vinfengi og bætt r >• Aramótaræða dr. Bjarna Benedikts sonar forsætisráðherra Samitakamátturinn hefur áreið anlega unnið stórvirki. Ýmislegt, sara hér hefur verið bezt gert, vaari enn óunnið, ef honum hefði ekki verið beitt. En hefur honuim ætíð verið beitt í rétta átt? Eða hafa í skjóli hans orðið átök og deiliur seim engum koma að gagni? Auðvitað verða launþegar, að hafa sín samtök og gæta þess, að ekki sé á rétt þeirra gengið. En þegar litið er um öxl yfir at- burðarás síðustu áratuga, þá sóst hið sama endurtaka sig æ ofan í æ. Með eins eða tveggja ára bili eru háðar harðvítugar launadeilur, sem enda ætíð með ’ Gott kvöld, góðir hlustendur. Á bESSARI stundu verður áreið enlega fleirum en mér hugsað til Ólafls Thors, sem ávarpað hefði ykkur enn í kvöld, ef heilsa hans hefði leyft. Hann dvelur nú vestan hafs sér til hvíldar og hressingar. Auðvitað eru skiptar skoðanir um Ólaf Thors, því að K’ stendur um stóra menn stormur úr hverri átt. . • En ég mæli örugglega fyrir munn allra íslendinga, þegar ég ber fram þá ósk, að hann komi eem fyrst aftur heim, hraustur og hressandi. Megi þjóðin lengi njóta lífsreynslu hans og ráð- hollustu. Af gæðum lífsins ríður mest á, Bð heilsan haldist. Aldrei hafa fleiri á samri stundu gert sér igrein fyrir hverfulleik líiflsins en þegar sú fregn barst út, að for- seti Bandarikjanna, hlaðinn lífs- krafti á bezta aldri, hefði fallið fyrir morðingjahendi. Þnátt fyrir allan sfcoðanaágreining var hans innilegar saknað um allan heim en áður eru dæmi til um nokk- urn einn mann. Hinn almenni Böknuður er því athyglisverðari sem John F. Kennedy var vissu- lega í liifanda lífi umdeildur maður, harður í horn að taka og hikaði ekki við að beita hinu ítrasta valdi, ef á þurfti að halda. En einmitt með því bjargaði hann heimisfriðnum svo seim sést é viðurkenningu þeinra, er þá létu undan síga, á því, að hann hí fi verið sannur friðarins mað- ur. Vonandi verður ársins 1963 minnzt í sögunni fyrir það, að þá hafi farið að létta ófriðar- skýjunuim, sam lengi hatfa yfir vofað. Enn er þó of snemmt að dæma um, hvort þar er varan- legur bati á ferðum eða einungis svikaglenna. En trúa viljum við |því, að bannið gegn helsprengju- tilraunum boði nokkuð gott og þýðan í kalda stríðinu haldi ófram að aukast. Eitt merki henn ar er heimildin, sem Vestur- Ðerlínarbúar hafa fengið til þess að heimsækjia um hátíðirnar frændur og vini fyrir austan múrinn mikla. ískyggileigt er þó, að ekiki nær sú leyfisveitimg til þess, *að Austur-Be/rlímarbúar Ifari vestur fyrir múrinn. Þá er óttazt, að þeir hverfi ekki aust- ur yfir aftur, en enguim virðist til hugar koma, að þeir, sem Buisur fara, ílendist þar. Á meðan svo stendur ber að taka öllum batamerkjum með varúð. Sjálfir getum við íslend- ingar ekki lagt mikið af mörk- um til að auka friðarhorfur, ann- ®ð en leyfi okkar til þess, að á landi okkar sé haldið uppi vörn- um fyrir málstað frelsisins. Sú þjóð, sem neitaði að tryggja svo Binn eigin hag og skoðanabræðra Binna, mundi sýna, að hún skildi ekki hvað til friðar og sjálfstæðis hennar heyrir. Skipti okkar við aðrar þjóðir hafa á þessu ári öll horft til auk- ins vinfengis og bættrar sam- Iþúðar. Landhelgisdeilunni við Breta laiuk með hinni happa- Bælu samningsgerð 1961 og nú í vetur lýkur þeim tímabundmu fiiskveiðiréttindum, sem Bretar fengu imnan íslenzkrar fiskveiði- lögsögu. Aldrei kom til mála, að þau réttindi yrðu endurnýjuð eða framlengd og munu nú flest- jir hafa sannfærzt um, að allar hrakspár um slíkt voru ástæðu- lausar. Brezka stjórnin vildi með heimboði til forseta íslands gera augljóst, að öll óvild vegna land- helgisdeilunnar væri úr sögunni. Kemur öllum saman um, að for- setinn hafi gert frægðarför til Bretlands. Hann varð þar var eimlægs vinarhugar í garð is- lenzfcu þjóðarinnar og bar hróð- ur hennar meðal þeirra, sem litt þekktu til hennar áður. Heimsókn varaforseta Banda- ríkjanna, Lyndon B. Johnsons, hingað til lands var tákn vin- áttu þjóðar hans í okkar garð. Almenningur hér sýndi glögg- lega, að hann kunni að meta þessa vinsemd og varð tilraun til truflunar einungis til þess, að hinn sanni hugur íslendinga kom enn betur í ljós. Af John- son höfðu farið ýmsar sögur áð- ur en hann kom hingað, en þóít menn sæu hann eimungis í svip duldist þeim ekki, að hann er mikilhæfur maður. Enda er það haft eftir hinum látna forseta, að e.f hann hefði eklki • sjálfur haft hug á forseta-dæmitniu xnnndi hann hafa stutt til þess þann Bandaríkjamann, er hann viissi til þess hæfastan, Lyndon B. Joihnson. Er nú mikið undir því komið fyrir alla heimsbyggð- ina, að Kennedy hafi þarna reynzt sannspár um hæfileika eftirmianns síns. Horfur eru á þv*i, að á árinu 1964 ljúki því eina deilumáli, sem við eigum við frændlþjóð á Norðurlöndum. Gert er ráð fyrir almiennum þingkosningum í Dan mörku oig hefur því verið heitið, að eftir þær verði handiritamálið tekið upp að nýju og afgreitt á þann veg, sem við megum vel við una. Ber að fagna því, að þetta deilumál leysist svo, að báðuim þjóðum verði sæmd að. Metum við það því meira við Dani sem þeir sýna með þessu sannan stórhug, en eru ekki þvingaðir vegna réttarkrafna eða lögskyldu, sem fram yirði knúin gegn vilja þeirra. Nú í árslok er og rétt að rifja upp og þakka þá gjafmildi, sem ýmsir Danir og raunar fleiri Norðurlandamenn, einkum Norð- menn, sýndu í sambandi við byggingu Skálholtsdómkiirkju, en vígsla hennar fór fram á árinu með miklum hátíðleik. Af innanlandsmáluim vefjast efnahagsmálin enn mest fyrir mönnum. Minnist ég raunar ekki, að öðru vísi hafi verið öll þau ár, sem ég hefi haft aifekipti af stjórn.mélum. Höfum við reynzt furðanlega fundvísir á að búa okkuir þar til örðugleika, sem ekki hafa orðið auðleystari við það, að þeir eru heimatilbúnir. Sannast þá enn, að sjálfsskapar- vítin eru verst. Ég hetfi allra sízt löngun til að gera litið úr vand- anurn, sem nú er við að etja, n-é draga úr áhyggjum manna hans vegna. Þó komia mér í hug um- mæli, sem ég sá nýlega höfð eftiir Jdhn Meynard Keynes, ein- um kunnasta hagfræðingi þess- arar aldar. Þau hljóða svo: „Látum okkur ekki ofmeta þýð ingu efnahagsvandans né vegna ætlaðrar nauðsynjar hans fórna öðrum efnum, sem hafa meira og varanlegra gildi. Úrlausn hans ætti með sama hætti og tannlækningar að vera í höndum sérfræðinga.“ Efnahagsörðugleilkar heillar þjóðar varða að vísu fleiri og eru vandmeðfarnari en skemmd- ar tennur í einum manni, en um hvorttveggja gilda lögmál or- saka og afleiðinga, sem sérfræð- ingar kunna mest skil á og ekiki "MH«v v .... ..... ... . 'V'SS Bjarni Benediktsson verður haggað hvorki með funda samþykktúm né samtakamætti. Sjálfur benti t. d. Keynes á sín- um tíma á ráðin til að korna í veg fyrir atvinnuleysi og er það ekki sízt þeim ráðum að þakka, að böli atvinnuleysisins hefur nú tekizt að útrýma eða halda í skiefjum gagnstætt því, sem var á árunum milli ófriðanna. Sér- fræðingar eru ekki alvitrir en hagnýt þekking er samt mun hollari leiðarvísiir en ótal Egils- staðasamiþykktir. Þekkingin ein stoðar ekki, ef menn fást ekki til að skeyta henni, en án hennar skapa menn sér oft örðugleika að óþörfu. Eng inn efi ©r ó því, að okkur ís- lendingum mundj. nú um langt slceið hafa vegnað mun betur, ef við hefðum áttað okkur á nokkr- um helztu staðreyndum efnahags lífsins og virt lögmál þess. Með þessu er engan veginn sagt, að við höfum til einskis unnið eða engu góðu fengið áork að. Þvert á móti, þá hefur margt gengið okkur i hag og framfarir oiðið undra-miklar, þegar á allt er litið. En ýmsa erfiðleika hefði mátt losna við og hraða umibót- um, ef betur hefði verið að gáð. Hér er þó margt í efni og sumt svo samanslungið, að örðugt er að átta sig á hinu sanna sam- hengi og fá rétta heildarsýn. A síðustu 50—60 árum hefur svo að segja samtímis orðið ger- breyting í flestum greinum þjóð- lífsins. Þjóðin fær stjórnarfars- legt frelsi, nútírna tækni er inn- leidd, meiri hluti fólks flyzt úr strjálbýli í þéttbýli, verzlun verð ur innlend, nýir atvinnuvegir eru teknir upp, ótal félagssam- tök eru mynduð og veðurfar stór batnar, að ógleymdum áhrifum tveggja heimsstyrjalda. Allt hef- ur þetta haft þýðingu, meira og minna samiverkandi í sörmu átt. En hver eru áhrif hvers um sig? Um það verður seint fullyrt til hlítar. Athugum aðeins þátt félags- samitakanna. svokölluðum sigri launlþega. En á sama stendur, hvaða stjórn- mólaflokkur eða flokkar eru Við völd, — og þeir hafa allir verið það oftar en eimu sinni á þessu tímabili, — þá neyðast stjórnar- völdin ætíð nokkru eftir að kauphækkanirnar hafa verið knúðar fram til að gera gagnráð- stafanir — auðvitað ekki af mannvonaku, enda væri hún þá furðulega almenn Og áhrifarík í öllum flokkum — heldur til þess að koma í veg fyrir, að efnahagskerfið fari úr skorðum. Niðurstaðan er sú, að flestir telja á hlut sinn gengið og síðan er hafizt handa á ný og þá einban- lega borið fyrir að bæta þurfi hag hihna verst launuðu, þó að það vilji farast fyrir, er til fram- kvæmdanna kemur. Þessa sögu þarf ekki að rekja. Við þeikkjum hana öll af feng- inni reynslu og fyrri hluta síð- ustu útgáfu hennar höfðu menn fyrir augum nú fyrir hátíðirnar. Sízt ber að undrast, þótt menn Vilji bæta sinn hag, hitt er furðu legra,. að þeir skuli ekiki hafa áttað sig á leiðunum til þess held ur halda ætíð hina gamaltroðnu leið vítahrings, sem engum færir kjarabætur en skapar ölluim örð- ugleika. Mér er fjarri skapi að láta svo sem ríkisstjórnin eigi enga sök á þeim örðugleilkum, sem nú blasa við. Hún var of viðbragðs- sein að snúast gegn varðþensl- unni, sem magnazt hefur á þessu ári með óheilbrigðum yfirborg- unum og öðrum truflunar- merkjum. E. t. v. er það nokkur afsökun, að við vorum ætið sak- aðir um samdrátt, þó að of lítil tilhneiging i þá átt væri fremur ásökunarefni. Meðalhóifið er stundum vandratað. Aðalatriðið er, að bver og einn verður fyrirfram eftir föng- um að gera sér grein fyrir af- leiðingum gerða sinna og meta, hvort þær séu líklegar til að ná settu rnarki. Þeir, sem berjast fyrir alrnenn um kauphækkunum, verða aS hafa hreinskilni og kjark til þesB að horfast í augu við þær al- mennu verðlagshækkanir, sem af þeirn spretta. Oft heyrist til þess vitnað; að kaupmáttur launa hafi komizt svo og sjvo hátt á tilteknuim tíma, en hnign- að síðan og vanrækslu ef ekki illvilja stjórnarvalda kennt um. Þessu er haldið fram, þó að eðli málsins, lög landsins og síendur- tekin reynsla segi til um, að al- mennum kauphækkunum fylgja ákveðnar verðlagshækkanir. — Verðgildi nýrrar kauphækkunar- öldu hlýtur því að hníga oifan í öldudial áður en varir.Þetta sam- hengi orsakar og afleiðingar verð ur ekki rofið með því að maigna öldurótið. Hitt yrði miklu árang- ursríkara að reyna að koima kyrrð á, svo að jafnvægi öruggs verðgildis og fasts verðlags komi í staðinn. Þá tjáir ekki annarsvegar að mótmæla afekiptum ríkisvalds- ins af launadeilum og heimta að frjáls samningsréttur sé hafður í heiðri en krefjast hins vegar, að ríkissitjórnin leysi deilurnar án þess að við nokkurn sé kom- ið, og ríkissjóður borgi það, sem á milli ber, án þess að afla sér til þess nauðsynlegs fjár. Með réttu er undan því kvart- að, að hér tíðkist ýmis konar lausung í fjármálum, lítið sé að marfca reikninga og skýrslur um hag atvinnufyrirtækja, enda séu skattsvik nær opinber og á allra vitund. Gegn sliku verður að sporna rneðal annars með mun strangara eftirliti en hingað til. En á meðán eilíf óvissa ræður um framhald atvinnurekistrar, verkföll blasa við með nokikurra missera eða mánaða fresti ‘ er hætt við, að hver hramsi til sín eftir föngum. Viðurkenninig á nauðsyn fjársöfnunar til áfram- haldandi uppbyggingar er tor- fengin, svo að hver og einn rétt- lætir sjálfan sig með því, að haldi sá, er hefur. Mun og sönnu nær, að skattsvik fara ekki eftir stéttum heldur aðstöðu og á- kvörðun hvers einstaks. Úr sjálfheldunni verður ekki sloppið nema allir leggist á eitt- Löggjafarvaldið megnar ekki ó- stutt af heilbrigðu almennings- áliti að ráða við vandann. Al- þingi og ríkisstjórn hljóta að stjórna í samræmi við þá stefnu, sem kjósendur hafa valið við al- mennar kosningar. Sam-tökum almennings má ekki beita til þess að torvelda, að löglegur meirihluti kjósenda ráði. En rík- isstjóm og Allþingi verða einni'g að kappkosta að hafa náið og gott samistarf við hin fjölmennu samtök fólksins, sem af sinni hálfu ber að tryggja að lýðræði ráði innan þeirra. Ólíkar skoðanir mega ekki leiða til þess, að menn geti ekki unnið saman að augljósum hags- munamálum allra. Skoðunamun- ur stafar sjaldnast af illvilja hvað þá samsærishug heldur ólík um sjónarmiðum. Aukið víðsýni og umburðarlyndi létta lausn margs vanda. Við ættum að hafa lært, að paradís verður seint búin til hér á jörðu. Þeir, sem trúðu á þús- und ára ríkið, hvort heldiur í austri eða vestri, haifa flestir vaknað við illan draum. Hevrum hvað Halldór Kiljan Laxness segir eftir sína bitru reynsiu. í Skáldatíma kemst hann svo að orði: „Það virðist nú hafa orðið for- stöðumönnum Rússa ljóst, að orð ið sósíalismi er aðeins kaldrana- leg skrýtla, ef það táknar c .t- hvað annað en almenna vel- gengni þjóðarinnar. í lönd-uim eins og til dæmis Sviþjóð hefur „kapitalisminn“ um langt skeið verið arðnýttur af -sósíalista- stjórninni til eflingar almennri velgengni í landinu: kúnni er ekki slátrað í soðið heldur haldið mátulega feitri svo hún mjólki.“ Þrátt fyrir paradísarmissi margra, þá þokar mönnum áfram í rétta átt og það hraðar en orðið hefur .hér á landi, ef þeir fást til að sjá hverjar leiðir liggja að settu marki og hvað hefur helzt tafið förina. En er þetta ekki tómt tal? Er í alvöru hæg að ná samvinnu Framh. á bls. 15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.