Morgunblaðið - 03.01.1964, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.01.1964, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ r Föstudagur 3. jan. 1964 GAVIN HOLT: 21 IZKUSYNING Er það ekki líka sannleikur? — Já, það er það. — Og hvorugur okkar er að ganga í svefni. — Eg veit ekki, hvað þér eruð að fara. — Gott og vel .Það gerir ekk ert til, ef þér vitið, hvað þér sjálfur eruð að fara. Þér komið til að verða að tala mikið, og það væri leiðinlegt, ef einhver fingraför kæmu upp til að mót- mæla yður. Til dæmis á skúff- unni áðurnejndu. — Fingraför? endurtók hann og starði á hendurnar á sér. Eg sagði: — Við skulum fara niður og tala við lögregluna. Hann hreyfði sig ekki. Það var eins og hann væri dofinn, en kannski hefur hann bara verið að hugsa. Eg beið í næstum heila mínútu, og horfði á hann hleypa brúnum aftur og aftur. Hann hafði laglegt andlit, þótt það væri dálítið þunglamalegt, og hann virtist hreinskilinn á svip inn. Hann var harður í horn að taka, ef hann vildi það við hafa. Hann gat hlegið og líklega var hann góður við skynlansar skepn ur. En Selina hafði aldrei verið skynlaus. — Við skulum fara, sagði hann loksins. Þegar við komum niður á fyrstu hæð, fór hann á undan mér og ætlaði að opna skiif- stofudyrnar, en ég stöðvaði hann áour en hann hafði lokið því. Eg iagði vasaklút á handfangið áð- ur en ég sneri því. XIII. Clibaud var þarna ekki lengur. Fyrsti lögreglumannahópurinn var inni, en embættislausir áhorf endur þama voru Grigue læknir og Selina sáluga Thelby. Þarna voru tveir menn í einkennisbún- ingi og mér datt í hug, að þeir hefðu verið á ferð og heyrt í tal- stöðinni. Þarna var einn maður til í ofstórum vaðmálsfötum, sem voru eins og glerblásari hefði sniðið þau. Ég þekkti hnakka- drambið á honum, áður en hann sneri sér við, en hann var nú lika allt og sumt, sem mig lang- aði að sjá af honum, en hann var því vanastur að gera mér einhver vonbrigði. — Ja, hérna! sagði ég glað- klakkalega og reyndi að dylja gremju mína. — Það er þó ekki sem mér sýnist, að þetta sé hirm virðulegi Bede liðþjálfi? Svei mér ef ég sagði þetta ekki full-vingjarnlega, en hann var nú ekki alveg í því horninu Hann glápti á mig eins og naut í nývirki. — Tyler! nöldraði hann. — Aldrei getur maður séð þig, án þess að þá sé eitthvert hræ ein- hversstaðar nærri. — Þetta er líklega gagn- kvæmt. Hann glotti og það ró- aði mig dálitið. Ég fann, að ef hann héldi áfram að skána, færi mér líklega að þykja bara vænt um hann, áður en lyki — en þó ekki strax. — Hvað ert þú að flækjast hérna? spurði hann. Ég útskýrði það í stuttu máli og hann kom með nokkrar spurn ingar. Svo sagði hann,_ að ég gæti beðið fyrir utan. Ég hefði ekkert leyfi til að ryðjast inn til hans. Hann mundi kalla á mig þegar hann þyrfti mín með. — Þakka þér fyrir, sagði ég. — Ég kem ef ég má vera að þvL En þú ættir að tala við hann hr. Thelby. Hann er næsti aðstand- andi skilst mér. Ég sneri mér að Benton. — Þetta er hr. Bede frá Scotland Yard. Þá ætti yðar raunum að vera sama sem lokið. Jim Bede setti upp embættis- svipinn. Aldrei skildi ég, hvernig hann fór að því. Hann sagði: — Allt í lagi, Ritzy! Það var ekki meira. Ég ætla að tala við majórinn. Ég var einmitt á leiðinni upp til að hitta hann. Ég gekk í áttina að fortjald- inu. Ég vildi hitta Sally. Ég hafði ekki gengið neitt hart að Benny út af kjólnum, af því að ég vildi fyrst heyra, hvað stúlk- an hefði að segja. Eftir þetta taugaáfall yrði hún sjálfsagt meðfærilegri. SHtltvarpiC Óvæntir áramóta- gestir í Albaníu •k ÞAÐ kom mjög á óvart, þegar frá því var skýrt á á gamlársdagkvöld að for- sætisráðherra Kínverka al- þýðulýðveldisins, Chou en-lai, og fylgdarlið hans, hefðu konv.ð til Tirana, höfuðborgar Albaníu, þá um daginn og hygðust dveljast þar um ára- mótin. Engar fregnir höfðu borizt, er bentu til þess, að slíkt ferðalag væri fyrir hönd- um. if Helztu fyrirmenn Albaníu tóku á móti forsætisráðherr- anum o* fylgdarliði hans á flugvellinum í Tirana, þar sem uppi héngu stórar ir.yndir myndir af Chou en-lai og Stalin. f ávörpum gesta og gestgjafa var lögð áherzla á órofa vináttu Albaníu og Kína. En svo sem kunnugt er, Hoxa, leiðtogi albanska kommúnistaflokksins. hafa Albanir verið ákafastir stuðningsmenn Kínverja í hugsjónadeilunum svokölluðu við Rússa og þeirra fylgis- menn. if Litlar fregnir hafa borizt af þessari óvæntu dvöl kíverska forsætisráðherrans í Albaníu og samkvæmt AP-frétt á fimmtudag var ljósm.yndurum vestrænna blaða ekki leyft að senda frá Albaníu ljós- myndir af komu kínversku gestanna. Velta menn því nú fyrir sér, hver eða hverjar séu ástæður til þess, að Chou En-lai gerði svo skyndiiega hlé á Afríkuferð sinni — hvort hann muni halda henni áfram, að Albaníu-dvölinni lókinni — hvort eitthvað merkilegt sé á seyði í komm- únistaheiminum eða hvort Ehou En-lai hafi einfaldlega óskað að vera sem næst sínum nánustu vinum, er nýja árið gengi í garð og hið liðna væri kvatt. Svo sem frá hefur verið skýrt í fréttum stóð til, að Chou En-lai ferðaðist um Afríku í tvo mánuði. Hugðist hann fara til Guineu, Ghana, Mali, Somalíu, Uganda og Tanganyika, auk Egyptalands og Alsír, sem hann þegar hafði heknisótt. Flest þessara ríkja hafa viðurkennt Peking- stjórnina og notið verulegrar efnahagsaðstoðar hennar, þar sem a.m.k. 18 Afríkuríki önnur hafa enn neitað að við- urkenna stjórnina og hallað sér í átt til Formósu og fengið þaðan efnahagsaðstoð. Ferð Chou En-lais hefur vakið mikið umtal og bolla- Chouen-Lai, forsætisráðherra Kínverska Alþýðulýðveldis- ins. Myndin var tekin í Egyptalandi fyrir skömmu. leggingar. Hefur sú skoðun verið ríkjandi, að tilgangur ferðarinnar væri og fyrst og fremst að grafa undan áhrifum Rússa í Afríku, enda er tím- inn til ferðarinnar þannig valinn, að auðvelt er að draga þá ályktun. Áhrif Rússa hafa farið þverrandi í Afríku síð- ustu mánuði og Afríkumenn meðal annars sakað þá um kynþáttafordóma. Hafa Kín- verjar notað sér þá árekstra og kynnt undir eldunum með því að benda á, að þeir — hinn guli kynþáttur — eigi öllu meiri samleið með Af- ríkunegrum en Rússar, sem séu hvítir og beri „þar af leiðandi“ engu meiri hlýhug til blökkumanna en Vestur- landabúar. Talið er víst, að Chou En-lai hafi lagt til við leiðtoga Egyptalands og Alsír að haldin verði ný Bandung- ráðstefna til þess að efla ein- ingu sannra sósíalista gegn heimsvaldasinnum og fylgis- mönnum þeirra, þ.e.a.s. Vest- urveldunum og Rússum. Hann hefur minnt þá á bræðraanidann frá Bandung, þar hafi verið rætt um að rík- in hlutuðust ekki til um inn- anríkismál hvers annars og efnahagsaðstoð yrði eklki bund in skilyrðum sem þeiim, er Rússar hafi sett Afríkuríkj- um á síðustu árum. Áður en Bandung ráðstefn- an var haldin í apríl 1955 höfðu Kínverjar lítil sam- skipti haft við Arabaríkin í Austurlöndum nær. Eina ríkið á þesum slóðum, sem viður- kennt hafði Pekingstjórnina var ísrael og á árinu 1954 og fyrri hluta ársins 1955 vann Pekingstjórnin að því, að skipzt yrði á sendiimönnum og komið á viðskiptasamn- ingum milli ríkjanna. Á hinn bóginn voru tengsl ísraels við Vesturveldin sterkari en svo, að slíkt gæti náð frarn að ganga, svo sem Kínverjar óskuðu. Frá því árið 1955 hafa Kín- verskir kommúnistar í sí- vaxandi mæli skipt sér af stjórnmálum ríkjandi í Afríku og Mið-Asíu. Hafa þau af- skipti í rauninni verið hin flóknustu og ber margt til, m. a. ágreiningur og sam- keppni Kínverja og Rússa. Samskipti Kínverja og Egypta hafa til dæmis verið með þeim hætti, að svo virðist, sem þeir sláist með annarri hend- inni en klappi hvor öðirum með hinni. Og Kínverjar hafa fylgzt náið með mistökum þeim, er Rússum befur orðið á í Afríku og hagað sér eftir því. Þess má m. a. geta, að útvarpssendingar Kínverja til Afríku eru sterkari en allra annarra þjóða og að því sum- ir segja skemmtilegri og læ- víslegar fléttaðar áróðri en sendingar Rúsisa. Þeir hafa komið sér upp sterkri áróðurs bækistöð í Guineu, m. a. 100.000 kw útvairpsstöð, sem nær allt inn til innstu myrk- viða Mið- og Suður-Afrílku. —Stangveibifélagib Framh. af bls. 24 ugt er. Veiðifélag Árnesinga mun taka tilboð Stangaveiði- félagsins fyrir á fundi inn- an skamms. í tilboði Stangaveiðifélagsins er fram tekið, að leigutími sé 10 ár og hafi Stangaveiðifélag- ið forleigurétt að þeim tíma liðn- um til fimm ára. Leigugjaldið sé endurskoðað árlega og fært til hækkuhar eða lækkunar í sama hlutfalli og breytingar þær, sem kunna að verða á verðlagsgrund velli landbúnaðarafurða. Með tilboði sínu ritaði stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur bréf til formanns Veiðifélags Arnesinga, Jörundar Brynjólfs- •onar, Kaldaðarnesi. í bréfi þessu kernur það fram, að aðilar hafa átt viðræðufundi um mál þetta á s.l. ári. Síðan segir: Eins og vitað er, eru berg- vatnsámar á svæðinu, orðnar mjög laxlitlar, hverju sem þar er um að kenna, og því ekki gott að vita hvernig laxgöngum verð- ur háttað í þær, þegar hann kemst óhindraður áfram. Það er til dæmis mjög líklegt eða hætt við, að lítið hafi klekizt út af laxi í sumum þeirra undanfarin ár og því mundi liklega verða lítil gengd í þær, fyrr en nýrr- ar ræktunar færi að gæta, eftir nokkur ár. Það mun einnig taka nokkum tíma að finna alla þá stangveiði- staði í jökulvatnssvæðinu, sem kunna að vera fyrir hendi og þess vegna ekki gott að segja hve margar stengur sé hægt að hafa á hverju svæði eða í hverri á til að byrja með, þó að oss teljist svo til, að eftir nokkurn reynslutíma, mundi vera hægt að koma fyrir þeim stangafjölda sem um getur í tilboðinu. Á fundinum í vor var nokk- uð rætt um, að hentugt gæti reynzt, að bæði félögin stæðu að fullkominni klak- og eldis- stöð fyrir al.lt svæðið. Það er vitað, að bygging og rekstur slíkrar stöðvar kostar mikið fé, sem hægara mundi vera fyrir bæði félögin að standa undir. Vér höfum því gert ráð fyrir að hluti af árlegri leigu færi til þessara framkvæmda. Vér vit- um að vísu ekki hve Vedðifélag- ið kann að hafa af handbæru fé til þessara framkvæmda, en sjálfsagt finnst oss að einhver hluti af árlegri leigu fari til þessara framkvæmda. Þó vér nefnum þessa ákveðnu upphæð gæti vel verið að hún gæti eða ætti að vera önnur, eða jafnvel mismunandi frá ári til árs, eft- ir því hvemig framkvæmdum yrði hagað. Tungufljótssvæðið. Þetta svæði er algjörlega laxlaust, og ekki að vænta þar neinnar veiði fyrr en laxastigi hefir verið gerður í Faxa og rækbun svæð- isins hefir verið framkvæmd í 5-7 ár. Oss þykir því rétt að hafa þetta svæði í sérstökum lið, og mætti alveg eins hugsa sér að gera um það sérstakan samning, sem þó yrði að vera samhliða samningi um aðalsvæð ið, þar sem vart kemur til greina að hugsa um ræktun þess, með- an hinar mikilvirku veiðivélar eða netalagnir eiru í ósasvæðinu. Má segja að betta eigi við um aUt svæðið. FÖSTUDAGUR S. Janúar. 7:00 Morgunútvarp. 7:30 Fréttir. — Tónleikar 7:50 Morgunleikfimi 8:00 Bæn — Veðurfregnir. 8:30 Fréttir — Tónleikar. 9:00 Úrdráttur úr forystugrelnum dagblaðanna — 9:10 Veðurfr 9:20 Spjallað við bændur: Agnar Guðnason ráðunautur. 12:00 Hádegisútvarp. 13:15 Lesin dagskrá næstu viku. 13:25 „Við vinnuna": Tónleikar. s 14:40 „Við, sem heima sitjum.M 15:00 Síðdegisútvarp. (Fréttir og tilk. — Tónleikar — 16:00 Veðurfr.) 18:00 Merkir erlendir samtíðarmenn: Séra Magnús Guðmundsson tal« ar um Stanley Jones. 18:20 Veðurfregnir. 18:30 Lögin leikin á strengjahljóðfæri, 19:00 Tilkynningar. 19:30 Fréttir. 20:00 Efst á baugi (Björgvin Guð* mundsson og Tómas Karlsson). 20:30 Tónleikar: Hornkonsert nr. 2 í Es-dúr (K417) eftir Mozart. (Barry Turckwell og Sinfóníiu hljómsveit Lundúna leika; PeU er Maag stj.). 20:45 Ferðaminningar frá Hawaí og fleiri góðum stöðum (Vigfúj Guðmundsson). 21:05 Einsöngur: Tom Krauss syngur lög eftir Richard Strauss. 21:30 Útvarpssagan: „Brekkukotsann* áll“ eftir Halldór Kiljan Lax« ness; XVIII. (Höfundur les). 22:00 Veðurfregnir. 22:10 Daglegt mál (Árni Böðvars« son). 22:15 Upplestur: Snorri Sigfússon les kvæði eftir Schiller, í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar. 22:30 Næturhljómleikar: „Manfred-sinfónían'* op. 58 eftir Tjaikovsky (Hljómsveitin Phil-* harmonia í Lundúnum leikur; Paul Kletzki stj.). 23:25 Dagskrárlok. LAUGARDAGUR 4. JANÚAR. 7:00 Morgunútvarp. 7:30 Fréttir. — Tónleikar 7:50 Morgunleikfimi 8:00 Bæn — Veðurfregnir. 8:30 Fréttir — Tónleikar. 12:00 Hádegisútvarp. 13:00 Óskalög sjúklinga (Kristín Ann* Þórarinsdóttir). 14:30 í vikulokin (Jónas Jónasson). 16:00 Veðurfregnir — Laugardags- lögin. 16:30 Danskennsla (Hreiðar Ásvalds* son). 17:00 Fréttir. Þetta vil ég heyra: Karl Karls- son sjómaður velur sér hljóm- plötur. 18:00 Útvarpssaga barnanna: „Dísa og sagan af Svartskegg" eftir Kára Tryggvason; I. (Þorsteinn Ö. Stephensen). 18:20 Veðurfregnir. 18:30 Tómstundaþáttur barna og ungl- inga (Jón Pálsson). 18:55 Tilkynningar. 19:30 Fréttir. 20:00 „Uglan blóðugluklóa", smásaga eftir Líneyju Jóhannsdóttur (Lár us Pálsson leikari). 20:15 ,,Aumingja Carmen": Guðmund- ur Jónsson gerir þessu hlut- verki sín skil. 21:00 Leikrit: „Flýgur fiskisagan**, gamanleikur eftir Philip John- son. Þýðandi: Ingólfur Pálma- son. — Leikstjóri: Balvin Hall- dórsson. Persónur og lcikendur Alfred Booker borgarstjóri .... Þorst. Ö. Stephensen Minnie kona hans ,.„.w Helga Valtýsd. Maggie þjónustustúlka ....... Bryndía Pétursdóttir Presturinn Valur Gíslason Frú Pratt Guðrún Stephensen Mospy ........ Þóra Friðriksdóttir 22:00 Fréttir ©g veðurfregnir. 22:10 Danslög. » 24:00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.