Morgunblaðið - 07.01.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.01.1964, Blaðsíða 1
24 sí5uv „Eftir margra ára þögn höfum við hitzt..." Páll páfi og Aþenagoras patríarki ræddust við í Landinu helga — Páfi kom til Rómar ■ dag AMMAN, RÓM, 6. janúar. — (NTB-AP) — I D A G kom Páll páfi VI til Rómar að aflokinni þriggja daga pílagrímsferð til Landsins .helga og tóku forseti Italíu «g ríkisstjórn á móti honum á flugvellinum. Á sunnudagskvöldið hittust yfirmenn rómversk- og grísk- kaþólsku kirkjunnar í fyrsta skipti í 500 ár. Bar fundum Páls páfa og Aþenagorasar patríarka af Konstantíriópel fyrst saman á Olíufjallinu. Féjlust kirkjuleiðtogarnir í faðma, er þeir hittust. í morgun var annar fundur Páls páfa og Aþenagorasar patríarka í Jerúsalem, og að honum loknum gáfu þeir út sameiginlega yfirlýsingu þar sem segir m.a.: „Við biðjum Guð, að fundur okkar megi verða uppha'f nýrrar þróunar honum til dýrðar og til hjálpar hinum trúuðu. Eftir margra ára þögn höfum við hitzt....“ Mikill mannfjöldi var saman kominn til að fagna Páli páfa hvar sem hann fór á pílagrímsferð sinni. Hann heim- sótti marga helga staði í Jórdaníu og ísrael og í morgun söng hann messu í Fæðingarkirkjunni í Jerúsalem. Áður en páfi fór frá Jerúsalem í dag til Amman, sendi hann kveðju 250 þjóðhöfðingjum, kirkjuleiðtogum og stjórn- málamönnum. (Sjá skeyti til forseta íslands hér á síðunni). gleymanlegra minninga, djúpt snortinn af því, sem hann hefði upplifað á pílagrímsferð sinni. Þegar til Páfagarðs kom ávarp aði páfi mannfjölda, sem safnazt hafði saman á Péturstorginu og sagði m.a., að ferð hans til Lands ins helga gæti haft áhrif á sög- una, og markað tímamót kristn- um mönnum og öllu mannkyni til blessunar. Eftir aldalangan að- skilnað Rómar og Konstantínópel hefði hann rætt við patríarkann í anda bræðralags og einingar. Með s/óð ógleyman- legra minninga Það var farið að skyggja í Róm, er flugvél Páls páfa VI lenti á Ciampino flugvellinum kl. 16:20 að íslenzkum tíma. Flug völlurinn var flóðlýstur, skreytt ur fánum og blómum. Forseti Ítalíu og ríkisstjórn buðu páf- ann velkominn á flugvellinum og páfinn og forsetinn könnuðu heiðursvörð. Síðan hélt Antoni Segni, forseti, stutta ræðu. Sagði hann, að pílagrímsferð páfa hefði mikið sögulegt gildi og gæfi lof orð um vöxt og viðgang kirkj- unnar. í svarræðu sinni sagði páfinn, eð hann kæmi heim með sjóð ó- Skeyti pafa til forseta * Islands FORSETA íslands barst í gær símskeyti frá Páli páfa VI, sem hljóðar svo í íslenzkri þýðingu: Frá hinni helgu borg Jerúsalem viljum vér fullvissa yður um, að vér höfum beðið heitt til Guðs um velgengni og frið meðal allra þjóða í réttlæti og bróðurkær- lcika. (Frá skrifstofu forseta íslands). Hann hefði komizt í snertingu við Krist og verk hans og nú er hann stigi aftur á ítalska grund gæti hann sagt, að þannig hefði ferðin verið. Páfinn sagðist hafa heimsótt hina helgu staði í auðmýkt-og bæn. „í orðum Jesús má finna svör við öllu hinu óvissa og ó- þekkta, sem opinberast mönn- um. Vilji hans.— sé hann boð- inn velkominn í einlægni — er vegurinn til friðar í heiminum", sagði páfi. Að lokum þakkaði hann öllum, sem átt hefðu þátt í því, að gera honum pílagríms- ferðina ógleymanlega og þakk- Framhald á bls. 23 Páll páfi VI og Aþenagoras patríarki af Konstantínópel kvöddust með kossi. IUúrnum lokað á ný SJm 1,2 milljónir heimsóttu A-Berlín um Jólin . Berlín, 6. janúar. Á MIÐNÆTTI aðfaranótt mánudagsins rann út frestur sá, sem Vestur-Berlínarbúar höfðu fengið til þess að heim- sækja vini og ættingja í Aust- ur-Berlín. Talið. er að 1,2 milljónir eða um helmingur Vestur-Berlínarbúa hafi not- að tækifærið og farið austur fyrir múrinn, en endanlegar tölur liggja ekki fyrir. Að morgni suninudagsins, síð- asta dagsins, sem heiimsóknir voru leyfðar, vöru langar raðir bifreiða og gangandi fólks við hliðin fimm, seim gerð voru á múrinn, þegar heimsóknirnar hófust skömmu fyrir jól. Er tal- ið að þennan dag hafi um 250 þús. menn farið austur fyrir múr inn og var það mesti fjöldinn, Vonir standa til, að innan skamms hefjist viðræfJur um frekari heimsóknir Vestiur-Ber- línarbúa til Austur-Berlínar. — Hafa Vesturveldin gefið borgar- stjórn Vestur-Berlínar heimild til þess að semja um þær við fulltrúa stjórnar Austur-Þýzka- lands. Talsmaður borgarstjórnar- innar hefur látið svo ummælt, að hefjist viðræður á ný, verði reynt að ná samkomulagi um, að allir Vestur-Berlínarbúar fái að ferðast til Austur-Berlínar hvort sem þeir eiga ættingja þar eða ekki. Einnig muni reynt að semja um lengri dvaiarleyfi en nú um jólin, því að þá mátti hver maður ekki dveljast lengur en einn sólarhring í Austur- hluta borgarinnar. Viðræður um menningar- tengsl USA og Sovét Moskvu, 6. jan. (NTB). í DAG hóf bandarisk sendinefnd viðræffur viff fulltrúa Sovétstjórn arinnar um menningartengsl landanna 1964—1965. í forsæti bandarísiku sendi- nefndarinnar er sendiherra Bandarikjanna í Moskvu Foy Kholer. Rætt verður um gagn- kvæmar heimsóknir vísinda- sem fór um hliðin á einum degi. manna, iðnaðarnefnda, landibún- aðarsérfræðinga, þingmanna Og stúdenta. Einnig verður rætt um sjónvarps- og útvarpsdagskrár. Sem kunnugt er áttu viðræður þessar að hefjast í nóvemiber sl. en var frestað, er Bargfhoorn, prófessor var handtekinn í Moskvu. Barnihoorn var síðar lát inn laus að kröfu Kennedys for- seta. Róðstefno IATA hnfin Montreal, 6. janúar (NTB) í DAG hófst í Montreal ráff- stefna IATA (Alþjóffasam.bands flugfélaga). Til umræðu eru verð lækkanir á flugleiffum yfir At- lantshaf og er gert ráff fyrir, að þær verði einróma samþykktar. Káffstefnan stendur í viku. Sem kunnugt er, hélt IATA ráðstefnu í Nassau fyrir skömmu og þar náðist samkomulag um tillögu um fargjaldalæikkun á leiðinni yfir N.-Atlantshaf, en við atkvæðagreiðslu, sem fram fór bréflega að ráðstefnunni lok inni var tillagan felld með fáum atkvæðum. Mörg stór félög innan IATA, sem fJjúga yfir N.-Atlantsihaf, hafa nú tilkynnt, að þau muni lækfca fargjöld sín 1. apríl n.k. þótt samþykki IATA fáist ekki. Talið er ag þessi ákvörðun flug- íélaganna verði til þess að sam- komulag náist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.