Morgunblaðið - 10.01.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.01.1964, Blaðsíða 1
24 síður 51. árgangur 7. tbl. — Föstudagur 10. janúar 1964 Prentsmiðja Morgunblaðsins Tunnuverksmiðja ríkisins á Siglufirði brennur og slökkviliðsmenn beita slöngum sínum á eldinn. Myndina tók Steingrímur Kristinsson, ljósm. blaðsins á Siglufirði. Sjá fleiri myndir á bls. 24. Tunnuverksmiðjan á Siglufirði brann til ösku: Tjdn í húsi, vélum og timbri um 13 millj. kr. ELDUR 1 XIMBURHLAÐA VIÐ SKORSXEININN FRÉTXAMENN blaðsins á Siglu- íirði símuðu eftirfarandi frásögn ef brunanum, upptökuim hans og baráttu slökkviliðsins við eld- inn: Um klukkan hálf tíu á mið- vikudagskvöld var slökkviliðið á Siglufirði kvatt út vegna elds í Tunnuverksmiðjunni. Sá eldur var í vélahúsi verksmiðjunnar, nánar til tekið við skorstein í hús iriu. Skorsteinn þessi, sem er við ketil þar sem brennt-er spónum og öðru, er hlaðinn úr múrsteini, múrhúðaður, og að auki er hann einangraður með vikurplötum. Talið er að kviknað hafi í út frá skorsteini þessum. Eldurinn var umhverfis skor- steininn, en þar var ekkert úr- gangsefna, aðeins timbur á milli lofta, en Tunnuverksmiðjan er tvílyft, byggð inni í stóru járn- grindahúsi. Slökkviliðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins við skorsteininn. Er enginn reykur var sjáanlegur lengur, hélt slökkviliðið af staðnum, en sex menn voru skildir eftir á bruna vakt, og voru þeir á stöðugu varð bergi um kvoiv.__ og nóttina, bæði í verksmiðjuhúsinu og lag ernum, þar sem geymt var tunnu efni og eitthvað af tunnum. Slöng ur voru og til taks. Á milli verksmiðjunnar sjálfr ar og lagersins er 15 cm. þykk- ur vikurveggur, múrhúðaður beggija megin. Við þann -vegg er umræddur skorsteinn, að innan- verðu í verksmiðjunni, en hinu megin veggjar var mikill stafli af tunnuibotnaefni. Þarna á milli efnisstaflans og veggjarins er tal ið að eldurinn hafi komið upp í annað sinn. ELDURINN BLOSSAÐI UPP AFXUR Um klukkan tvö í nótt, firnm minútum áður en eldsins varð vart aftur, gengu menn framhjá þessum tunnubotnastafla og urðu einskis varir, hvorki elds né reyks. Á sama augnabliki og elds ins varð vart hringdi Stefán Frið riksson, lögregluþjónn, til vakt- mannanna í verksmiðjunni til þess að spyrja frétta. Fyrir svör um varð Björn Hafliðason bruna vörður, og hvað hann ekkext vera að frétta, allt vseri í stak- asta lagi. En áður en samtali þeirra Stetfáns og Björns laiuk var hrópað að eldur væri laus. Spratt eldurinn þá upp á augna bliki, en vaktmönnum tókst að bæla mesta eldinn. Brunaliðið Framh. á bls. 2. 40 Siglfirðingar atvinnulausir f G Æ R brann Tunnuverksmiðja rikisins á Siglufirði til kaldra kola. Kviknaði í timburgólfi meðfram skorsteini og var eldur lengi falinn í timburstafla, áður en hann blossaði upp. Barðist slökkviliðið á Siglufirði í alla fyrrinótt og gær- dag við eldinn, lengi með súrefnisgrímur vegna reýks, en undir kvöld var búið að slökkva að mestu, nema hvað glóð var enn í timbrinu. Var þá allt brunnið sem brunnið gat í verksmiðjunni. Gífurlegt tjón hefur orðið í bruna þessum. Gizkaði Einar llaukur Ásgrímsson, tæknilegur framkvæmdastjóri verk- smiðjunnar, á það í símtali við blaðið í gær, að tjón væri um 13 millj. kr. Þó varð það lán í óláni að skip með 400 *tand. af tunnuefni til verksmiðjunnar, er á leiðinni og var ókomið til Siglufjarðar. Haukur sagði, að miklir erfiðleikar yrðu líka af því að 40 menn, sem unnið hafa í tunnuverk- smiðjunni, missa nú vinnuna, því lítil atvinna er á Siglu- firði nú í vetur. Aftur á móti hefði bruninn ekki áhrif á síldarsöltun, því hægt væri að fá tunnur frá Noregi. Húsið sem brann var 2000 ferm. að stærð, 8—10 m. hátt hús, byggt um 1950. — Á landinu eru tvær tunnuverksmiðj- ur, á Siglufirði og Akureyri og er framleiðsla þeirra 70—80 þús. tunnur á ári, hvorrar um sig. Skaggs yfirheyrður: Segist ekki hafa œtlað að drepa íslendingana Tulsa, Oklahoma, 9. jan. Einkaskeyti frá AP. MAÐURINN, sem skaut á íslenzku piltana Ketil Odds son og Halldór Gestsson í Tulsa á dögunum, James Skaggs, neitaði í dag að hafa ætlað að verða þeim að bana. Skaggs, sem er nætur- klúbbs- og hjólhýsaeigandi, kom fyrir héraðsdóm í dag og eftir stutta yfirheyrslu, var máli hans frestað til 3. febrúar n.k. Skaggs átti að mæta í héraðsdómi í gær til yfir- heyrslu, en kom ekki. Var þá gefin út handtökuskip- un, en látin niður falla þeg ar hann mætti í réttinum í dag. Eins og skýrt hefur verið frá, skaut Skaggs á Ketil og Halldór, eftir að hann hitti þá í hjólhýsi, sem hann leigði konu að nafni Jacqueline Owings. Vildi Skaggs reka piltana út úr hjólhýsinu, en þeir neituðu að fara, þar sem þeir væru gestir konunnar. Eftir nokkur orðaskipti fór Skaggs, en kom skömmu síð- ar til baka með skammbyssu, skaut á piltana og særði þá, en hvorugan lííshættulega. Skaggs var handtekinn strax eftir árásina, en látinn laus skömmu síðar gegn trygg- ingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.